Morgunblaðið - 18.04.1996, Síða 40

Morgunblaðið - 18.04.1996, Síða 40
40 FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1996 MINNIIMGAR MORGUNBLAÐIÐ + Stefán Hall- dórsson fæddist í Garði í Mývatns- sveit 21. apríl 1905. Hann lést á heimili sínu 30. mars síð- astliðinn og fór út- för hans fram frá Akureyrarkirkju 9. apríl. Það verða ætíð mikil þáttaskil í lífi fólks er ástvinir og nánir vinir deyja. Engum kom það þó á óvart er dauðinn knúði dyra hjá öldruð- um heiðursmanni og leiddi hann brott, hljóðlega og sársaukaláust. Stefán Halldórsson múrarameist- ari var á brott kallaður hér á Akur- eyri 30. mars sl. á 91. aldursári. Við þá sorgarfregn er erfitt að finna orð er tjá nægilega þær sáru tilfinningar, trega og þá hluttekn- ingu sem bærist inni fyrir. Með honum hverfur okkur sjón- um kunnur iðnaðarmaður sem markaði umtalsverð spor með giftu- ríku starfi sínu og óvenju miklu framtaki í söng- og leiklistarmálum hér í bæ. Stefán var fæddur að Garði í Mývatnssveit. Foreldrar hans voru hjónin Ingibjörg Lýðsdóttir og Hall- dór Stefánsson. Fyrstu búskaparár sín bjuggu foreldrar Stefáns í _ Mývatnssveit, en síðan á Húsavík. Árið 1914 flytj- ast þau að Kaðalstöðum í Fjörðum. Frá Kaðalstöðum fluttu þau næsta vor, 1920, að Svalbarði á Svalbarðsströnd. Loks árið 1921 flutti íjölskyldan til Akureyrar, þar sem Halldór faðir hans var um langt árabil starfsmaður Vatnsveitu Ak- ureyrar. í október 1922 hóf • Stefán múraranám hjá Einari Jóhannssyni rnúrarameistara og var hjá honum næstu þijú árin. Það var skemmtileg tilviljun, eða örlagaglettni, að fyrsta húsið sem Stefán vann við var Lón, Hafnar- stræti 73 (nú Dynheimar) sem í fyrstu var kvikmyndahús, en síðar félagsheimili söngfélagsins Geysis árin 1945-1975 en þar átti Stefán síðar margar ánægjustundir. Einar, Stefán, Ásgeir Austijörð o.fl. byggðu einnig húsið Rósenborg við Eyrarlandsveg l9, en þar rak Sess- elja Eldjárn matsölu fyrir nemendur Menntaskólans um árabil. Þeir félagar byggðu einnig húsið Brekkugötu 1, sem nú hýsir Spari- sjóð Ak. Þá má einnig nefna Skjald- borg, samkomuhús UMFA og templara, 1926 og Kristneshæli 1927. Sveinsprófi lauk Stefán 10. maí 1928 og meistaraprófi 21. nóv. 1933. Næstu árin vann Stefán á eigin vegum við ýmsar bygg- ingar á Akureyri og í nágrenni. En frá árinu 1938 var hann bygg- ingameistari Kaupfé- lagsins og Sambands- ins og sá um byggingar þeirra og viðhald fast- eigna. Árin 1954- 1956 var Stefán feng- inn til starfa hjá bygg- ingafélaginu Regin, sem reisti ratsjárstöðvar og starfs- mannaíbúðir á Hornafirði og Langanesi. Hann stjórnaði ýmsum byggingaframkvæmdum hér næstu árin og er þar einna svipmest íþróttahúsið og áhorfendastúkan við íþróttavöllinn neðan Brekku- götu, sem reist var 1961-1962. Eftir það varð Stefán aftur bygg- ingameistari hjá KEA um langt árabi!, eða fram á áttræðisaldur er hann lét af störfum. Jafnframt þessum umsvifamiklu störfum var hann húsvörður við Tónlistarskól- ann í 18 ár, eða frá 1969-1987 og annaðist hann einnig ásamt Brynju konu sinni ræstingu í skólanum. Stefán var röskleikamaður mikill til allrar vinnu og all kröfuharður við starfslið sitt og ekki síst sjálfan sig. Hann horfði ekki á er aðrir unnu. Hann hélt á múrskeiðinni í meira en 6 áratugi. Stefán var fé- lagi í Múrarafélagi Akureyrar frá árinu 1928 og kjörinn formaður þess árin 1941-1948. Félagið þakkaði honum mikil og góð störf með því að gera hann að heiðursfé- laga 8. sept. 1978. Þótt starfsdagur væri oft langur og strangur gaf hann sér þó tíma til að sinna hugðarefnum sínum. Snemma komst hann í kynni við sönglistina og var hann gæddur ágætri bassarödd. Hann byijaði að syngja með karlakórnum Geysi árið 1928 og með Gamla-Geysi söng hann frá 1972 allt fram á síðustu æviár eða alls um 65 ára skeið, sem nær einstakt mun teljast. Stefán tók þátt í fjölmörgum söngferðum Geysis, m.a. á Alþing- ishátíðina á Þingvöllum 1930, mörg- um söngferðum til Reykjavíkur, til Austfjarða 1938 og til Norðurlanda 1952. Þá hefir Stefán og Geysishóp- urinn tekið þátt í Heklu-söngmótun- um fi-á upphafi 1935. Einnig söng Stefán í Kantötukór Björgvins Guð- mundssonar er hófst vorið 1933 og um skeið söng hann í kór aldraðra undir stjórn Sigríðar Schiöth. Karlakórinn Geysir var stofnaður 20. okt. 1922 að forgöngu Þorsteins Þorsteinssonar frá Lóni. Þessi kór var Stefáni einkar hugstæður og hjartfólginn. Starfið þar, tónleikar og söngferðir var honum sífelld uppspretta skemmtilegra minninga og upprifjana og söngstjóra sinn, hinn leiftrandi stjórnanda og glæsi- tenór, Ingimund Árnason, mat Stef- án umfram aðra menn. Stefán var alla tíð mjög félags- lyndur og strax sem ungur iðnnemi tók hann þátt í starfi templara og ungmennafélaga. Þetta var á árum áður en fjölmiðlar, útvarp og þó einkum sjónvarp náðu heljartökum á hugum fólks og voru söng- skemmtanir og leiksýningar kær- komin tilbreyting í Iífi alls þorra manna og þakksamlega þegin. Fyrstu spor á leiksviði sté hann með UMFA, er félagið sýndi gam- anleikinn „Gleiðgosann" árið 1931. Sýningarnar vöktu talsverða at- hygli, ekki síst þar sem Leikfélagið starfaði ekki þetta ár. Þarna komu fram nokkrir efnilegir nýliðar sem létu til sín taka í starfi LA næstu árin og má þar nefna Elsu Frið- finns, Margréti Steingríms, Skjöld Hlíðar og Stefán. Árið eftir, 1932, verður merkisat- burður í leiksögu bæjarins, en þá fiutti Geysir á 10 ára afmæli sínu í október, hinn fyrsta söngleik hér í bæ, hinn víðfræga stúdentaleik „Gamla Heidelberg". Aðalhlutverk- in léku Iæknishjónin Bjarni Bjarna- son og Regína Þórðardóttir. Þeir Stefán og Kári Johansen léku barónana Metzing og Breiten- berg. Leikstjóri var Ágúst Kvaran. Sýningarnar hlutu fádæma góðar viðtökur. Árið 1945 tók Geysir leikinn aft- ur til sýninga og að þessu sinni í samvinnu við Leikfélagið. Jóhann Guðmundsson og Brynhildur Stein- grímsdóttir fóru nú með aðalhlut- verkin. Af gömlu félögunum voru það aðeins Stefán og Kári sem léku nú aftur sín fyrri hlutverk. Árni Jónsson leikstýrði. Áratuginn 1941-50 lék Stefán nær árlega með LA, auk þess að sinna þýðingarmiklu starfi að tjaldabaki. En hann hafði með höndum leiksviðsstjórn árin 1947- 1950 og um langt árabil sinnti hann smíði leiktjalda og leikmuna, lengst af með þeim Kolbeini Ögmundssyni og Oddi Kristjánssyni. Síðustu hlutverk Stefáns voru Diaforius læknir í ímyndunarveik- inni 1957, Assesor Svale í Ævin- týri á gönguför 1960, von Ramk- enau í óperettunni Bláu kápunni 1961 og að lokum Antonio í Þrett- ándakvöldi 1963. Þrátt fyrir margvísleg störf og annríki gætti Stefán ætíð afar vel að hagsmunum fjölskyldu sinnar og sparaði þar hvergi sporin. Stefán var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Bára Lyngdal Magn- úsdóttir. Börn þeirra eru tvö. Seinni kona Stefáns er Brynja Sigurðar- dóttir. Þeirra börn eru fjögur. Öll bömin og tengdabörnin hafa ætíð sýnt Stefáni og Brynju einstaklega hlýju og umhyggjusemi, ekki sist hin síðustu árin er þreyta og aldur tók að hægja á lífsgöngu þeirra. Geysismenn sýndu hinum aldna félaga sínum jafnan tryggð og vin- áttu og glöddu hann á stórafmælum hans með heimsóknum og söng. Stefán var hinn vörpulegasti maður að vallarsýn, fróður og víð- lesinn. Honum var, sem Önnu syst- ur hans, gefin rík frásagnargáfa og oft var kátt í koti er þau krydd- uðu sögur sínar eða ýktu hæfilega til skemmtunar. Ég sakna Stefáns mágs míns, vináttu hans, hjálpsemi og glaðlega viðmóts. Við Élsa og börn okkar minnumst og þökkum fyrir margar ánægjustundir í Eyrarveginum. Brynju, börnunum og barnabörnum og öðrum ættmönnum vottum við hluttekningu og innilega samúð við brottför þessa góða manns. Blessun fylgi honum á nýrri veg- ferð. Haraldur Sigurðsson. Þegar ég horfi á eftir Stefáni frænda mlnum hverfa yfir móðuna miklu hvarflar hugur minn rúmlega 65 ár aftur í tímann. Ég hafði þá nýlega flutt með fjölskyldu minni austan úr Aðaldal til Akureyrar og sest að í húsi neðarlega á Oddeyri, sem hét Norðurpóll. I næsta húsi, sem í daglegu tali var nefnt Litli- Póll, bjuggu fullorðin hjón með börnum sínum tveimur og var mér sagt að þessi fjölskylda væri frænd- fólk okkar. Smám saman tókust allnáin kynni milli fjölskyldnanna, en einkum varð mér starsýnt á son- inn, sem þá var 25 ára og hét Stef- án. Margt var nýstárlegt, sem bar fyrir augu sveitadrengsins á Akur- eyri, en einna áhugaverðast var að sjá og fylgjast með þessum unga og glæsilega frænda mínum koma og fara á glampandi fallegu mótor- hjóli dag hvern. Það var dýrðlegt í mínum augum og lyfti manninum í háan sess í huga mínum. Og þeg- ar við bættist að stundum bar hann á höfði fallega húfu með gljá- skyggni og hvítum eða bláum kolli fullkomnaði það dýrðina. Var mér sagt að þetta væri einkennishúfa þeirra merku manna, sem sungu í Karlakórnum Geysi, sem á þeim tíma var mjög þekktur fyrir frábær- an söng undir söngstjórn Ingimund- ar Árnasonar. Þetta varð til þess að Stefán varð í huga mínum sá maður, sem mér þótti eftirsóknar- verðast að líkjast og hafa að fyrir- mynd og svo var þessi frændi minn svo ljúfur og geðfelldur mér, ungum drengnum, að það jók enn á dálæti STEFAN HALLDÓRSSON + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR, Háagerði 87, Reykjavík, lést í Landspítalanum þriðjudaginn 16. apríl. Stefanía Júniusdóttir, Herborg Júníusdóttir, Guðmundur Hermannsson, Guðjón Júníusson, Ólafur Júníusson, Árdfs Bragadóttir, Sævar Júniusson, Guðný Þorsteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Bróðir okkar, mágur og vinur, HAUKUR FRIÐRIKSSON fyrrv. símstöðvarstjóri frá Króksfjarðarnesi, lést 15. apríl. Sigmundur Friðriksson, Jón Friðriksson, Guðmunda Guðmundsdóttir, Friðrikka Bjarnadóttir og börn t Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda- móðir, amma og langamma, INGUNN THORLACIUS, lést í Landspítalanum 16. apríl. Jón Thorlacius, Edda Th. Rectorovic, Matthew Rectorovic, Ingunn Thorlacius, Árni Ó. Thorlacius, Magnþóra Magnúsdóttir, Anna G. Thorlacius, Guðmundur Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskuleg eiginkona mín, GUÐRÍÐUR KRISTÍN JÓNSDÓTTIR, Hjallatúni, Vík í Mýrdal, sem lést 14. apríl, verður jarðsungin frá Víkurkirkju laugardaginn 20. apríl kl. 15.00. Páll Jónsson. mitt á honum. Ég heyrði oft mæður okkar tala um það sín á milli að við værum dálítið líkir, frændurnir, og vakti það mikið stolt hjá mér að vera talinn líkjast svo stórglæsi- legum manni, sem var sannarlega minn draumur. Ekki minnkaði dá- læti mitt á frænda mínum við það, að um þessar mundir, eða aðeins síðar, valdi hann sér konuefni, glæsilega stúlku, sem mér fannst hæfa honum, og voru þau í mínum augum stórkostlega vel hæfandi hvort öðru. Um þessar mundir fermdist ég og á ég ennþá fallega fermingargjöf frá þeim hjónaefnun- um. Þetta eru í mínum huga ljúfar endurminningar. En svo liðu tímarnir bæði sárir og ljúfir fyrir frænda minn. En að því kom, að draumur minn rættist um að syngja í Geysi, þótt aldrei eignaðist ég mótorhjólið. Samvera okkar Stefáns í Geysi var nær 30 ára löng auk þess sem við vorum saman með Gömlum Geysismönnum frá 1973 þar til hann varð að hætta fyrir aldurs sakir. Stefán var alltaf traustur liðs- maður bæði hvað sönginn snerti svo og við félagsstörfin, sem hann tók jafnan mikinn þátt í, ekki síst því sem snerti húsnæðis- eða bygging- armál kórsins. Var hann ávallt boð- inn og búinn að leggja sitt af mörk- um þegar þess þurfti með. Þegar ég lít yfír liðnar samveru- stundir með Stefáni finnst mér vert að.geta þess hve glaðlyndur, bjart- sýnn og jákvæður hann var jafnan, ekkert víl eða vol, alltaf eins og allt léki í lyndi. Einn söngfélaga okkar orðaði þetta svo, að Stefán hefði verið maður vorsins, ávallt vor í huga hans hvernig sem annars viðraði. Nú hefur hann verið sjálfum sér samkvæmur og kvatt okkur þegar vor er í lofti. Við vonum að það vor verði honum upphaf ævar- andi sumars. Ég sendi honum kveðju Gamalla Geysismanna með alúðarþökk fyrir elskulegar samvistir og ósk um sæluríka vist í nýjum heimkynnum. Aðstandendum sendum við gömlu söngfélagarnir og við hjónin innilegar samúðarkveðjur. Gísli Konráðssonu Látinn er á Akureyri elskulegur frændi okkar, Stefán Halldórsson, eða frændi eins og við kölluðum hann. Frændi var einn bróðir ömmu okkar Önnu Halldórsdóttur sem lést árið 1975. Á milli þeirra systkina var mikill kærleikur og virðing þannig að ekki fór framhjá neinum er til þeirra þekktu. Það var enda ekki erfitt að láta sér þykja vænt um hann frænda. Hann var einstak- ur öðlingur og ljúfmenni og það eru ekki allir svo heppnir að hafa átt mann eins og hann fyrir frænda. Mikill samgangur hefur alltaf verið milli heimila okkar og eru þær ófá- ar ferðirnar sem farnar voru í Eyr- arveginn. Þar var oft þétt setinn bekkurinn og alltaf jafnvel tekið á móti manni. Þegar við vorum yngri var Eyrarvegurinn einn þessara föstu punkta í tilverunni og á þeim árum fannst okkur að við myndum alltaf hafa frænda, hann yrði alltaf til staðar, þessi fallegi, bóngóði, brosmildi maður sem alltaf var til- búinn að spjalla við okkur og nú í seinni tíð segja okkur margar yndis- legar sögur af þeim systkinum frá þeirra uppvaxtarárum. Hann hafði og lifað tímana tvenna, reynt margt, horft á ástvini koma og fara og séð Akureyri breytast úr þorpi í bæ. Reynsla hans var okkur ómet- anleg. Frændi var mikill ijölskyldumað- ur. Hann naut sín best þegar hann hafði alla sína í kringum sig og minnumst við með gleði og þakk- læti allra stundanna sem við höfum eytt með frænda og hans fólki. Það eru forréttindi að hafa átt hann og hans fjölskyldu að. Nú höfum við verið minnt á að eitt sinn skal hver deyja og komið er að kveðjustund. Við viljuni með þessum fáu orðum minnast Stefáns Halldórssonar, þakka þá gæfu að hafa kynnst honum og fyrir öll árin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.