Morgunblaðið - 18.04.1996, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. APRÍL 1996 41
MINNINGAR
sem við höfðum hann. Við trúum
því og treystum að nú sitji þau og
spjalli, amma og frændi, og er ekki
erfitt að geta sér þess til að um-
ræðuefnið séu Fjörðurnar.
Elsku Inna og þið öll, Guð gefi
ykkur styrk í sorginni. Þessum fá-
tæklegu orðum látum við fylgja ljóð
Davíðs Stefánssonar sem við tengj-
um alltaf við frænda og verður
okkur að eilífu kært eins og minn-
ingin um hann.
Þú komst í hlaðið á hvítum hesti,
þú komst með vor í augum þér.
Ég söng og fagnaði góðum gesti
og gaf þér hjartað í bijósti mér.
Anna Guðný, Hermann Ingi,
Ingibjörg og Matthildur,
krakkarnir í Fjólugötu 13.
Elskulegur móðurbróðir minn,
Stefán Halldórsson eða Stebbi
frændi er látinn. Að leiðarlokum
vil ég færa honum þakkir fyrir allar
yndislegu samverustundirnar sem
við höfum átt í gegnum árin.
Stebbi frændi var í mínum huga
eins og eini frændi minn. Mínar
fyrstu minningar um hann eru af
Tanganum, þá var ég aðeins fimm
ára gömul. Og frændi var alltaf svo
fallegur og góður. Og þannig var
hann alla ævidaga og þannig á ég
óteljandi minningar um hann.
Frændi varð ungur fyrir þeirri miklu
sorg að missa eiginkonu sína frá
tveimur ungum börnum. Það var
ekki auðvelt í þá daga að standa
uppi einn með tvö börn. En Brynja
síðari kona hans, hún Inna okkar,
reyndist honum þá sem síðar sú
stoð sem hann þurfti á að halda.
Inna tók börnum hans sem þau
væru hennar eigin. Inna og frændi
eignuðust fjórar dætur. Afkomend-
ur þeirra eru orðnir margir og allir
hafa þeir átt athvarf í Eyrarvegin-
um. Þar var oft þröng á þingi en
einhvern veginn lánaðist alltaf að
koma öllum fyrir. Þar er skemmst
að minnast níræðisafmælis frænda
sem þar var haldið og þangað kom
fjöldi fólks og gladdist með frænda
á þessum tímamótum. Þá sást vel
hversu frænda þótti vænt um fjöl-
skyldu sína og vini.
Einhvern veginn var Stebbi
frændi alltaf eins og klettur í hafinu
sama hvað á bjátaði. Þó aldrei bæri
skugga á okkar vináttu, þá þurfti
fjölskyldan í Eyrarveginum oft að
horfast í augu við erfiðleika og sorg.
En sterk fjölskyldubönd hafa fleytt
þessari fjölskyldu yfir margan hjall-
ann og gera það einnig nú.
Þegar ég stofnaði sjálf heimili
og eignaðist börn var þeim tekið
opnum örmum í Eyrarveginum og
það voru ófáar ferðimar þangað
úr Fjólugötunni þar sem við bjugg-
um fyrst. Þegar við svo réðumst í
húsbyggingu ásamt Bogga í
Byggðaveginum var frændi þar
múrarameistari. Öll hans hjálpsemi
og góðu ráð reyndust okkur vel og
að loknu verki gátu þijár glaðar
ijölskyldur fagnað í Sjallanum. Það
var aldrei langt í sönginn þar sem
frændi var, því hann hafði yndi af
söng og hafði sjálfur gullfallega
bassasöngrödd, og söng með Karla-
kómum Geysi í áratugi.
Frændi hélt andlegri heilsu nær
til síðasta dags. Ég hef haft yndi
af frásögnum hans af gamla tíman-
um og þá sérstaklega frásögnum
tengdum móður minni og hvað þau
systkin brölluðu saman í gamla
daga. Það er ómetanlegt að frændi
skyldi geta miðlað þessum frásögn-
um til næstu kynslóðar.
Ég átti með honum yndislega
stund aðeins örfáum dögum fyrir
andlátið, og fyrir það verð ég eilíf-
lega þakklát og þannig vil ég muna
hann. Nú stöndum við frammi fyrir
því að þurfa að kveðja þennan fal-
lega og góða frænda.
Elsku Inna og þið öll. Við Ari,
Dídí systir, Boggi bróðir og fjöl-
skyldur okkar, samhryggjumst ykk-
ur öll, en gleðjumst jafnframt yfir
því að hafa fengið að hafa frænda
svona lengi hjá okkur og átt ykkur
öll að vinum. Megi Guð styðja ykk-
ur og styrkja.
Sigríður Halldóra
(Sigga Dóra).
t
Hjartkær sonur okkar, bróðir, barnabarn og frændi,
KARL EMIL HANSEN,
fæddur 17. janúar 1968,lést í Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn
þann 12. apríl síðastliðinn.
Fyrir hönd aðstandenda.
Jóhanna Pálsdóttir Lund, Axel Lund,
Poul E. Hansen,
Páll Eiríkur Hansen,
Kristján Hansen,
Martin Lund,
Hulda Sigurjónsdóttir, Páll Guðjónsson,
og fjölskyldur.
t
Eiginmaður minn,
BJÖRN PÁLSSON
fyrrv. alþingismaðurog bóndi,
Ytri-Löngumýri,
verður jarðsunginn frá Blönduóskirkju
laugardaginn 20. apríl
kl. 13.30.
Ólöf Guðmundsdóttir.
Móðir okkar,
HELGA FINNSDÓTTIR,
Reykjahlíð 4,
Mývatnssveit,
sem lést 13. apríl verður jarðsungin fré
Reykjahlíðarkirkju föstudaginn 19. apríl
kl. 14.00.
Finnur Baldursson,
Sigurður Baldursson.
Elskulegur sonur minn og bróðir,
HELGI STEINARR KJARTANSSON,
Hlíðarvegi 45,
ísafirði,
er lést 12. apríl sl. verður jarðsunginn
frá ísafjarðarkirkju laugardaginn 20.
apríl kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast
hans er bent á Hjálparsveit skáta,
isafirði, og Heilavernd. Minningarkortin
fást í Bókhlöðunni, ísafirði.
Gunnhildur Eliasdóttir,
Katrín Kjartansdóttir.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓNAS H. TRAUSTASON,
Ásvegi 29,
Akureyri,
sem lést að heimili sínu að kvöldi
12. apríl, verður jarðsunginn frá Akur-
eyrarkirkju föstudaginn 19. apríl kl.
13.30.
Kristín Jónasdóttir, Guðjón Agúst Arnason,
Jakob Jónasson, Unnur Björk Pálsdóttir,
Bergljót Jónasdóttir, Árni Árnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, fósturmóðir og amma,
SALÓME GÍSLADÓTTIR,
frá Arnarhóli
i Vestmannaeyjum,
lést 12. apríl síðastliðinn.
Minningarathöfn fer fram í Fossvogskirkju fimmtudaginn 18. apríl
og hefst kl. 15:00.
Jarðsungið verðurfrá Landakirkju í Vestmannaeyjum laugardaginn
20. apríl og hefst athöfnin kl. 14:00.
Fyrir hönd vandamanna,
Gísli Vigfússon, Sigríður Níelsdóttir,
Vigfús Gfslason,
Sólveig Gísladóttir,
Níels Rúnar Gíslason,
Hulda Sámúelsdóttir, Ágúst Hreggviðsson.
t
JÓN ÞORLÁKSSON,
Skútustöðum,
verður jarðsunginn frá Skútustaðakirkju laugardaginn 20. apríl
kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð. Þeim sem vildu minnast
hans er bent á líknarstofnanir.
Gerður Benediktsdóttir,
Arnfríður Anna Jónsdóttir,
Þorlákur Páll Jónsson, Ingunn Guðbjörnsdóttir,
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson. ,
t
KRISTJÁN Þ. KRISTJÁNSSON,
frá Bolungarvík,
verður jarðsunginn frá Hólskirkju í Bol-
ungarvík laugardaginn 20. apríl kl. 11.00.
Vandamenn.
T
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
RAGNAR JÓNSSON,
Stórhólsvegi 1,
Dalvík,
sem lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þann 14. april, verð-
ur jarðsunginn frá Dalvíkurkirkju laugardaginn 20. apríl kl. 13.30.
Steinunn Sigurðardóttir,
Sigurður Ragnarsson, Guðrún Siglaugsdóttir,
Elín Rósa Ragnarsdóttir, Sigurpáll Kristinsson,
Berglind Sigurpálsdóttir, Jónas Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskuleg dóttir okkar, systir og barna-
barn,
SIGRÍÐUR HULD KJARTANSDÓTTIR,
Sæbólsbraut 17,
Kópavogi,
sem lést í Landspítalanum 11. apríl sl.,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju
föstudaginn 19. apríl klukkan 13.30.
Guðrún Sigurðardóttir, Kjartan Stefánsson,
Stefán Kjartansson,
Sigríður Sigurðardóttir,
Stefán Friðbjarnarson, Þorgerður Sigurgéirsdóttir.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
MARGRÉT EYJÓLFSDÓTTIR,
frá Flatey á Breiðafirði,
síðast til heimilis á
Hrafnistu, Hafnarfirði,
andaðist í Landspítalanum 5. apríl sl.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigríður Dagsdóttir,
Halldór Dagsson.
t
Móðursystir okkar,
VERONIKA ÓLAFSDÓTTIR
frá Vestmannaeyjum,
verður jarðsungin föstudaginn 19. apríl kl. 15 frá kapellunni í
Fossvogi.
Laufey Ólafsdóttir,
Hlfn og Ólafur Marel Ólafsson.
t
Minningarathöfn um
VILHJÁLM ARNARSON,
fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 19. apríl kl. 13.30.
Margrét Björk Viihjálmsdóttir,
Örn Þór, Hrund Hansdóttir,
Hanna Rún Þór, Hans Ragnar Þór.