Morgunblaðið - 20.04.1996, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Dæmt um faðerni
eftir lát feðgina
HÉRAÐSDÓMUR Austurlands hef-
ur dæmt í máli, sem kona höfðaði
til að fá viðurkennt að athafnamað-
ur á Höfn væri faðir dóttur hennar.
Maðurinn og dóttirin létust bæði á
síðasta ári, en dómurinn taldi sann-
að að hann hefði verið faðir henn-
ar. Þar var byggt á niðurstöðum
DNA-rannsókna og gagna um sam-
skipti mannsins við dóttur sína. í
kjölfar þessa dóms tekur sýslumað-
urinn á Höfn, fyrir hönd dánarbús
mannsins, afstöðu til kröfu um að
erfðaskrá mannsins verði ógild, þar
sem í ljós sé komið að hann hafi
átt lögerfingja.
Málsatvik eru þau að kona á
Höfn komst að því á árinu 1994 að
hún væri að öllum líkindum ekki
dóttir þess manns sem hún hafði
allt sitt líf talið föður sinn. Við eftir-
grennslan komst hún að því að fað-
ir hennar væri að öllum líkindum
athafnamaður frá Höfn. Hann mun
hafa viðurkennt fyrir henni að hann
væri faðir hennar. Þegar konan var
fimmtug sendi maðurinn henni af-
mæliskort sem hann undirritar
„þinn faðir“. Konan lést snemma á
síðasta ári og mánuði síðar féll at-
hafnamaðurinn einnig frá.
Afabömin krefjast arfs
Maðurinn hafði látið gera erfða-
skrá nokkrum árum áður, þar sem
hann arfleiðir ættingja sína að öll-
um eigum sínum, en þær voru all-
miklar. Börn konunnar lögðu fram
kröfu um að arfurinn gengi til
þeirra með þeim rökum að mað-
urinn hefði verið afi þeirra. Til að
unnt væri að taka afstöðu til þeirr-
ar kröfu þurfti að fá skorið úr um
faðerni móður þeirra og höfðaði
amma þeirra því barnfaðernismál.
í dóminum kemur meðal annars
fram, að samkvæmt DNA-rann-
sóknum voru taldar meira en 99%
líkur að athafnamaðurinn væri fað-
ir konunnar.
Útlendingur eftirlýstur af Interpol
Farbanni hafnað
HÉRAÐSDÓMUR Vestfjarða
hafnaði í gær beiðni lögreglunnar
á Isafirði um gæsluvarðhald og
farbann yfir útlendingi á fertugs-
aldri. Maðurinn var i haldi vegna
kæru ungrar konu um kynferðis-
lega misbeitingu sem á að hafa
átt sér stað í húsi á ísafirði aðfara-
nótt sl. laugardags, en neitaði sak-
argiftum. Hann lýsti sig fúsan til
að sæta farbanni, en beiðni lög-
reglu um það var hafnað.
Við rannsóknina kannaði lög-
reglan sakaferil mannsins og kom
þá í ljós að hann var eftirlýstur
af alþjóðalögreglunni Interpol
vegna 22 mánaða nauðgunardóms
í Finnlandi árið 1991.
Finnsk yfirvöld hafa tilkynnt að
þau muni krefjast framsals á
manninum, en samkvæmt samn-
ingi á milli landanna gæti maður-
inn setið af sér finnska dóminn
hér og er það því lögregluyfirvalda
í löndunum að ákvarða afplánun-
arstað. Þar sem maðurinn hefur
neitað öllum sakargiftum hefur
verið farið fram á DNA-rannsókn.
Mega nota Bónustölvur
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
felldi í gær úr gildi lögbann við því
að Tæknival hf. notaði heitið Bónus
í samsetningu á verslunamafninu
Bónustölvur. Lögbannið var sett á í
maí í fyrra að kröfu Bónuss sf. Bón-
us ætlar að áfrýja til Hæstaréttar.
Tæknival hf. opnaði verslun undir
nafninu Bónustölvur í maí í fyrra.
Forráðamenn Bónuss sf. töldu að
nafn verslunarinnar bryti á rétti
þeirra til vörumerkisins Bónus.
í málflutningnum var því haidið
fram af hálfu Bónuss að vörumerki
þess sé fyrir iöngu orðið að lands-
þekktri ímynd lágs vöruverðs. Nafn-
ið Bónus ásamt mynd af sparigrís
séu helstu einkenni og vörumerki
Bónusverslananna og því hafi notk-
un Tæknivals á nafninu Bónustölvur
strítt gegn lögum um vörumerki og
samkeppnislög.
í niðurstöðu dómsins segir að
vörumerki stefnanda veiti honum
ekki einkarétt samkvæmt vöru-
merkjalögum á orðinu Bónus. Firma-
nafnið Bónus veiti honum heldur
ekki einkarétt enda hafi fjöldi fyrir-
tækja haft það orð í nafni sínu og
hafi haft á undan stefnanda.
Tæknival hf. var því sýknað af kröf-
um Bónuss hf.
Jón Steingrímsson, deildarstjóri
hjá B.T. tölvum, sagði í gær að versl-
unin yrði brátt opnuð aftur undir
nafninu Bónustölvur. „Við erum að
sjálfsögðu ánægðir með dóminn en
vorum þó aldrei í vafa um að hann
félli okkur í vil.“
Bónus áfrýjar
Jóhannes Jónsson í Bónus sagðist
í gær vera mjög ósáttur við dóminn
og að hann væri ákveðinn í að áfrýja
honum til Hæstaréttar. „Þetta er
svo grófur þjófnaður að við munum
ekki gefast upp fyrr en í fulla hnef-
ana.“
200 verk
Barböru
*
Amason
SÝNING á verkum Barböru
Amason var opnuð í Listasafni
Kópavogs í gær, 19. apríi, á
afmælisdegi listakonunnar.
Árið 1983 færði minningar-
sjóður Barböru og Magnúsar
A. Árnasonar Kópavogsbæ að
gjöf um 300 verk eftir þau hjón-
in, þar af um 100 verk eftir
Barböru. Gjöfinni fylgdu þær
óskir að verkin yrðu til sýnis í
væntanlegu listasafni og að hún
yrði hvati að gerð þess.
Á sýningunni eru yfir 200
verk sem gefa yfirlit yfir listfer-
il Barböru og í tilefni hennar
kemur út myndskreytt bók um
Barböru með texta á íslensku
og ensku.
Morgunblaðið/Kristinn
Ráðherra
undrandi á
ummælum
Retsjetovs
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra segist undrandi á ummæl-
um Júríj Retsjetovs, sendiherra
Rússlands hér á landi í Morgunblað-
inu í gær, um að aðrar reglur gildi
um Smuguna í Barentshafi en út-
hafið, þar sem hún sé „umlukt eða
hálfumlukt haf“ í skilningi hafrétt-
arsáttmála Sameinuðu þjóðanna.
„Smugan er alþjóðlegt hafsvæði,
eins og svæðið á Reykjaneshrygg,
við höfum ekki verið að amast við
veiðum Rússa þar,“ segir Halldór.
„Ég tel fráleitt að Smugan sé
umlukt haf. í þeim umræðum, sem
áttu sér stað um veiðar á úthafinu
á vettvangi Sameinuðu þjóðanna,
var gerð tilraun til að skilgreina
Barentshafið sem umlukt haf, en á
það var ekki fallizt. Það hefur því
nú þegar fallið úrskurður í því
máli. Eg er algerlega ósammála
því, sem þarna er sagt og lýsi undr-
un á þeim sjónarmiðum,“ segir
Halldór.
-----'♦ ♦ ♦----
Brids
Norðurlanda-
lið ákveðin
UÐSSKIPAN bridslandsliða á
Norðurlandamóti í Danmörku í
sumar liggur nú fyrir.
I opnum flokki munu Jón Bald-
ursson, Sævar Þorbjörnsson, Guð-
mundur Páll Arnarson og Þorlákur
Jónsson freista þess að vinna Norð-
urlandameistaratitilinn í þriðja
skipti í röð.
Bjöm Eysteinsson landsliðsþjálf-
ari valdi þessa spilara til keppninn-
ar úr 7 manna landsliðshópi sem
myndaður var um síðustu áramót.
í kvennaflokki verður íslenska
liðið skipað Hjördísi Siguijónsdótt-
ur, Ragnheiði Nielsen, Gunnlaugu
Einarsdóttur og Stefaníu Skarphéð-
insdóttur. Þær eru núverandi ís-
landsmeistarar kvenna í sveita-
keppni.
Spila átti einvígisleik um kvenna-
landsliðssætin um þessa helgi milli
tveggja sveita, í kjölfarið á tvímenn-
ingskeppni sem haldið var um síð-
ustu helgi. Par sem fékk rétt til að
mynda aðra sveitina ákvað að nýta
sér ekki rétt sinn og því skipar
áðurnefnd sveit landsliðið án frek-
arí keppni.
Gerðardómur segír samninga Tryggingastofnunar ríkisins ná tíl segulómsjár
Kostnaður stofnunar-
innar umtalsverður
SAMNINGUR Læknisfræðilegrar
myndgreiningar ehf. og Trygginga-
stofnunar ríkisins tekur til segulóm-
rannsókna með segulómsjá, sam-
kvæmt úrskurði gerðardóms sem
féll í gær, en talsverður ágreiningur
hefur verið á milli þessara aðila um
nokkurra mánaða skeið.
Hefur TR neitað að greiða seg-
ulómrannsóknir fyrirtækisins á
þeim forsendum að í samningi
þeirra á milli frá 12. janúar 1995
sé ekki gert ráð fyrir kaupum á
segulómsjá og því ekki hægt að
ábyrgjast kaup á þjónustu sem veitt
er með henni.
Ekki ný starfsemi
Læknisfræðileg myndgreining
svaraði þvi til að engin ákvæði væru
um tækjakaup, heldur einungis
ákvæði um greiðslur fyrir tiltekin
verk og myndu segulómrannsóknir
falla undir samninginn. Forstjóri TR
tilkynnti þá að stofnunin samþykkti
ekki starfrækslu tækisins hjá fyrir-
tækinu og myndi ekki kaupa þjón-
ustu af því. Stofnunin sagði síðan
upp þeim hluta samningsins, er varð-
ar segulómrannsóknir, I október í
fyrra og samningnum frá janúar
1995 í desember síðastliðnum.
Fjárfestingarkostnaður Læknis-
fræðilegrar myndgreiningar ehf.
vegna segulómsjár er talinn nema
um 100-130 milljónum króna og
taldi TR útilokað annað en stofnun-
in hefði þurft að samþykkja fjár-
festingu þessa samkvæmt ákvæð-
um í samningnum. Alls ekki hafi
verið gert ráð fyrir gjaldtöku vegna
þessara rannsókna og tölulegar for-
sendur segulómrannsókna séu út í
bláinn. Einnig benti stofnunin á að
aldrei hafi verið heimild á fjárlögum
til að semja við einkaaðila um þess-
ar rannsóknir.
í niðurstöðu gerðardóms segir að
TR hafi ekki fært sönnur á þá stað-
hæfíngu sína að samningsaðilar hafi
haft þann sameiginlega skilning að
umræddar rannsóknir skyldu falla
utan samningsins. Ekki sé hægt að
telja segulómrannsóknir til nýrrar
starfsemi í þeim skilningi sem fram
kemur í samningnum og hvergi sé
sérstaklega vikið að því að tækja-
kaup til þessara rannsókna skyldu
vera háð samþykki vamaraðila.
Sú almenna regla gildi í verk-
samningum að verksala sé heimilt
að ákveða með hvaða tækjum og
verkfæmm hann vinni umsamið
verk. Verði að telja að TR hafi
borið að gera sérstakan fyrirvara í
samningnum um að tækjakaup fyr-
irtækisins væru háð samþykki
stofnunarinnar, hafi það verið vilji
hennar að áskilja sér slíkt sam-
þykki. Þeirri málsástæðu TR að
samningurinn sé óskuldbindandi
um segulómrannsóknir, þar sem
aldrei hafi verið heimild i fjárlögum
til að semja við einkaaðila um slík-
ar rannsóknir, hafnar dómurinn
sem órökstuddri.
Kostnaður TR
40-50 milljónir
Þorkell Bjarnason læknir hjá
Læknisfræðilegri myndgreiningu
ehf. segir að þessi niðurstaða þýði
að samningurinn við stofnunina sé
í fullu gildi og þrátt fyrir að TR
hafi sagt honum upp fyrir seinustu
áramót sé sú uppsögn á röngum
forsendum reist. Samningurinn
gildi því áfram til ársloka 1997 að
hans mati og verði þeirri túlkun
haldið fram með lagalegum stuðn-
ingi ef þörf krefur. „Við byijum
strax á mánudag að vinna með seg-
ulómsjána og TR á að greiða þær
rannsóknir. Við höfum gert um 500
rannsóknir frá áramótum sem
stofnunin á eftir að greiða, en búið
er að senda þeim reikning fyrir um
400 rannsóknir sem þýðir um 10
milljón króna kostnað," segir hann.
Hann kveðst gera ráð fyrir að
gerðar verði ríflega 2.000 rann-
sóknir alls í ár, sem þýði um 40-50
milljón króna kostnað fyrir TR.
Rannsóknir hafi hins vegar legið
niðri frá því í mars vegna neitunar
stofnunarinnar, fyrir utan að nokkr-
ir tugir einstaklinga hafi greitt fullt
gjald úr eigin vasa og eigi þeir
endúrkröfurétt á hendur stofnun-
inni.
Þenur fjárlagaramma TR
Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigð-
isráðherra segir ljóst að fyrirtækið
geti hafið vinnu með segulómsjánni
en að semja verði um áframhald-
andi rannsóknir eftir þessa niður-
stöðu gerðardóms. Dómurinn eyði
óvissu um hvernig túlka beri samn-
ing á milli málsaðila, að því undan-
skildu að ráðuneytið telji samning-
inn lausan um næstu áramót. Ingi-
björg segir kostnað vegna þessarar
niðurstöðu nema 20-30 milljónum
og sé ekki gert ráð fyrir þeim kostn-
aði í fjárlögum yfirstandandi árs,
sem þýði þenslu í fjárlagaramma
stofnunarinnar nema hægt verði að
finna leiðir til að draga úr öðrum
kostnaði á móti.