Morgunblaðið - 20.04.1996, Side 4
4 LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Göngubrú gerð
yfír Miklubraut
VERKFRÆÐISTOFA Stefáns Ól-
afssonar hefur verið valin úr
hópi þriggja annarra verkfræði-
stofa, til þess að hanna göngubrú
yfir Miklubraut.
Staðsetning brúarinnar er ekki
endanlega ákveðin en þó er ljóst
að hún verður einhvers staðar á
svæðinu frá húsi Félags íslenskra
hljómlistarmanna í Rauðagerði
vestur að Borgargerði. Verið er
að ganga frá hönnunarsamningi
og er reiknað með að hönnun
hefjist strax og verkið verði boð-
ið út í byrjun júni. Áætlað er að
brúin verði fullbúin í haust. Laus-
leg kostnaðaráætlun er um 35
milljónir króna.
Sigurður Skarphéðinsson
gatnamálasfíóri sagði að mikil
þörf væri fyrir göngubrú á þessu
svæði. „Þarna er mikil umferð
og skólafólk á ferð á milli hverfa.
Þarna eru biðstöðvar strætis-
NÝTT fyrirtæki, Bíórásin hf., sem
mikið til er í eigu sömu aðila og Is-
lenska sjónvarpið hf., sem rekur Stöð
3, var stofnað í gær og sótti samdæg-
urs um útvarpsleyfi til útvarpsréttar-
nefndar. Sótt er um sex örbylgjurás-
ir til að endurvarpa erlendu sjón-
varpsefni, fjórar til lengri tíma og
tvær til bráðabirgða. Ráðgert er að
hin nýja sjónvarpsstöð hefji útsend-
ingar ekki síðar en 1. júlí næstkom-
andi.
Eins og kunnugt er hefur útvarps-
réttarnefnd endurúthlutað fjórum
örbylgjurásum til sjónvarpsstöðvar-
innar Sýnar hf., en rásunum hafði
áður verið úthlutað til íslenska út-
varpsfélagsins hf. fyrir hönd Stöðvar
2 og íslenska sjónvarpsins hf. fyrir
hönd Stöðvar 3. Forsvarsmenn
Stöðvar 3 hafa bent á að báðar sjön-
varpsstöðvamar, Stöð 2 og Sýn, eru
að miklu leyti í eigu sömu aðila, en
útvarpsréttarnefnd hefur svarað því
til að um tvö sjálfstæð fyrirtæki sé
að ræða.
ÚTVARPSRÉTTARNEFND mun að
sögn Kjartans Gunnarssonar, for-
manns nefndarinnar, væntanlega
koma saman einhvem tíma á næstu
vikum til að fjalla um bréf útvarps-
stjóra Stöðvar 3 til nefndarinnar
vegna úthlutunar til Sýnar hf. á leyfí
til endurvarps á tveimur rásum á
örbylgjusviði, sem íslenska sjónvarp-
inu hafði verið ráðstafað til bráða-
birgða í september síðastliðnum. í
bréfínu er þess m.a. krafist að nefnd-
in taki málið til meðferðar á ný til
endurákvörðunar og þess jafnframt
krafist að fyrirhugaðri úthlutun á
þeim bráðabirgðaleyfum sem ís-
lenska sjónvarpið hf, hafi nú yfir að
ráða til Sýnar hf. verði stöðvuð, en
þess er farið á leit að afstaða til
málsins verði tekin eigi síðar en 23.
apríl næstkomandi:
Þegar Morgunblaðið óskaði eftir
viðbrögðum Kjartans við þeim efn-
isatriðum sem kæmu fram í bréfi
útvarpsstjóra Stöðvar 3 til útvarps-
réttarnefndar sagðist hann ekki vilja
tjá sig um neitt sem fram kæmi í
bréfínu. „Ég tjái mig ekkert um þetta
bréf. Þetta bréf er sent þessari þing-
kjörnu nefnd til þess að fjalla um
og ég mun bara fjalla um það á
hennar vettvangi en ekki 5 fjölmiðl-
um,“ sagði hann.
Aðspurður hvort útvarpsréttar-
nefnd myndi taka útvarpsleyfí af
þeim fyrirtækjum sem fyrir eru og
úthluta til nýs fyrirtækis sem byijaði
vagna og síðan er reiknað með
að Miklabraut verði fljótlega sex
akreinar, þijár í hvora átt og þá
er varla hægt að bjóða fólki að
ganga yfir hana á sama fleti og
bílaumferðin fer um,“ sagði Sig-
urður.
Guðmundur Hannesson hefur ver-
ið ráðinn útvarpsstjóri hins nýja fé-
lags. Hann sagði að aðdragandinn
að stofnun félagsins hefði verið mjög
skammur, félagið hefði verið stofnað
I gær og samdægurs sótt um leyfí
til sjónvarpsútsendinga til útvarps-
réttamefndar eins og útvarpslög
geri ráð fyrir. Verði umsóknin sam-
þykkt sé það Fjarskiptaeftirlitsins
að úthluta rásum til félagsins. „Út-
varpsréttarnefnd afgreiðir umsókn-
ina frá sér með tilliti til þeirra sjón-
varpsrása sem eru til ráðstöfunar.
Hún gefur út útvarpsleyfí og út-
varpsleyfí eru yfírleitt ekki gefin út
nema það séu einhveijar rásir til
ráðstöfunar, þ.e.a.s sjónvarpsrásir,
því það er sjónvarpsleyfi sem við
sækjum um og sjónvarpsrásir eru
takmörkuð auðlind eins og ljóst má
vera af því sem á undan er gengið,“
sagði Guðmundur.
Hann sagði að sótt væri um fjórar
rásir til lengri tíma og tvær rásir til
bráðabirgða. Fyrirhugað sé að end-
sjónvarpsrekstur, sagði Kjartan að
útvarpsréttarnefnd hefði, eins og
afgreiðsla máls Sýnar hf. sýndi,
ávallt kappkostað að gæta samræm-
is í störfum sínum. „Við myndum sjá
til þess að sambærileg mál fái sam-
bærilega meðhöndlun," sagði hann.
Sjálfsagt að veita leyfi til að
sjónvarpa á VHF-rás
íslenska sjónvarpið hf. hefur haft
í frammi mótmæli vegna úthlutunar
á VHF-rás til Sýnar hf. með hliðsjón
af rekstrarlegum og eignarhaldsleg-
um tengslum þess félags við Stöð
2. Stöð 3 hefur sótt um VHF-rás en
á höfuðborgarsvæðinu eru engar
slíkar rásir á lausu. Aðspurður um
hvort til greina kæmi að taka slíka
rás af öðrum og láta Stöð 3 fá sagði
Kjartan að hver sem er með fyrir-
tæki í þessum rekstri gæti sótt um
leyfí til útvarpsréttarnefndar fyrir
því að sjónvarpa á VHF-rás og allir
sem það myndu gera fengju það svar
að sjálfsagt væri af hálfu nefndarinn-
ar að veita slíkt leyfí og þeim bent
á að snúa sér til Fjarskiptaeftirlitsins
til að fá rás.
Sigurður sagði að ekki hefði
verið efnt til samkeppni um hönn-
un brúarinnar heldur hefði verið
leitað til fjögurra fyrirtækja um
senda inn sínar hugmyndir um
brú og undirgöng. Síðan hefði
hugmynd Verkfræðistofu Stef-
urvarpa beint erlendu sjónvarpsefni
og stefnt sé að því að útsendingam-
ar hefjist ekki síðar en 1. júlí næst-
komandi. Hann segir að þeir eigi
þegar í samningum um útsending-
arnar við nokkra erlenda aðila en
meðan samningar séu ekki frágengn-
ir sé ekki rétt að láta uppi hveijir þeir
séu.
Sáralítil tengsl
Guðmundur segir aðspurður að
tengsl hins nýja félags við Stöð 3
séu f raun sáralítil, þótt félögin séu
mikið til í eigu sömu aðila. Hann sé
að vísu enn starfsmaður Stöðvar 3
jafnframt því að vera starfsmaður
nýja félagsins. Bíórásin hf. sé sjálf-
stæður lögaðili með sjálfstæðan
rekstur og lögheimili í Brautarholti
2. Fyrst um sinn verði fyrirtækið
hins vegar með aðsetur í Húsi versl-
unarinnar, þar sem Stöð 3 sé einnig
til húsa. Þá muni Bíórásin þurfá að
leita eftir kaupum á ýmiss konar
þjónustu og væntanlega verði eink-
„Það mun ekki geta orðið við því
vegna þess að þessar rásir eru ennþá
færri [en örbylgjurásirnar], auk þess
sem þær eru allar notaðar hjá Ríkis-
útvarpinu nema ein hjá Stöð 2 og
önnur hjá Sýn. Þeir myndu fá það
svar að það sé ekki hægt að verða
við þeirri ósk,“ sagði Kjartan, sem
sagði að þetta væri í raun það svar
sem Stöð 3 hefði fengið við sínu er-
indi.
Leyfisveiting þegar samningur
við eiganda efnis liggur fyrir
í Morgunblaðinu í gær var haft
eftir Einari Karli Haraldssyni, sem
sæti á í útvarpsréttamefnd, að hann
sæi því ekkert til fyrirstöðu að Stöð
3 stofnaði dótturfélag, sem sækti um
til útvarpsréttamefndar með svipuð-
um hætti og Sýn hefði gert, og nefnd-
in yrði væntanlega að bregðast við
slíkri umsókn með því að taka rásir
af hinum stöðvunum og úthluta þeim
til nýja fyrirtæksins. Kjartan vildi
ekkert tjá sig um þetta sjónarmið
Einars Karls.
Kjartan sagði að Islenska sjón-
varpið hefði aldrei fengið annað en
áns Ólafssonar verið valin úr og
fer hún sennilega í framkvæmd.
Önnur fyrirtæki sem sendu inn
hugmyndir að brúnni eða undir-
göngum voru Verkfræðistofa
Sigurðar Thoroddsen, Línuhönn-
un og Almenna verkfræðistofan.
um leitað til Stöðvar 3 í þeim efnum.
Guðmundur sagði að hann geri
fastlega ráð fyrir því að útvarpsrétt-
amefnd bregðist vel við umsókninni.
Hún hafi lýst því yfir að hún stefni
að því að jafna samkeppni á mark-
aðnum. Úthlutun sjónvarpsrása sé
með tvennum hætti, annars vegar
til lengri tíma og hins vegar til bráða-
birgða. Fram hafí komið að útvarps-
réttarnefnd geti afturkallað bráða-
birgðaúthlutun fyrirvaralaust án
nokkurra eftirmála. Eftir því sem
hann viti best séu fjórar rásir nú sem
hafí verið úthlutað til bráðabirgða
og það sé ekki annað en réttmætt
samkvæmt starfsreglum útvarps-
réttamefndar að þessum fjórum rás-
um sé úthlutað á nýjan leik. „Við
erum búnir að leggja í heilmikinn
undirbúning vegna stofnunar og
reksturs þessa félags og vonum að
umsókn okkar verði afgreidd hratt
og örugglega,“ sagði Guðmundur
ennfremur.
vilyrði fyrir því að það myndi fá út-
varpsleyfí á rásunum tveimur sem
um ræðir, því útvarpsleyfið sjálft
væri aldrei gefið út fyrr en fyrir
lægi samningur milli íslenska fyrir-
tækisins og erlends eiganda efnisins
sem endurvarpa ætti.
„Þegar það samkomulag liggur
fyrir er útvarpsleyfið gefíð út. Fram
að þeim tíma er mönnum gefíð svo-
kallað vilyrði til þess að þeir geti
kynnt það fyrir hugsanlegum við-
semjendum sínum að þeir séu ekki
bara að forvitnast um þetta að gamni
sínu,“ sagði Kjartan. Aðspurður
sagðist hann telja þetta skapa óör-
yggi fyrir viðkomandi, en þeir hefðu
sjálfír gengist undir þetta fyrirkomu-
lag og tekið við vilyrðum með þessum
hætti.
Útvarpsréttamefnd hefur tekið af
íslenska útvarpsfélaginu hf. leyfið
til endurvarps á tveimur af þeim
örbylgjurásum sem félaginu hafði
verið úthlutað til bráðabirgða og
Fjölvarpið hefur notað til endurvarps
erlendra sjónvarpsstöðva. Kjartan
sagði heimild fyrir þessu- og byggði
það á fijálsum samningi milli út-
varpsréttamefndar og viðkomandi
fyrirtækis.
„Fyrirtækið gerir samning þar
sem það skuldbindur sig til þess að
ef nefndin telji þörf á þá muni þeir
skila leyfínu tafarlaust, fyrirvara-
laust og bótalaust," sagði Kjartan.
Stakk af í
Mosfellsbæ
LÖGREGLAN í Mosfellsbæ
leitaði í gær konu sem stakk
af á litlum brúnleitum fólksbíl
frá hörðum árekstri sem varð
á mótum Reykjavegar og Vest-
urlandsvegar klukkan tæplega
fjögur síðdegis í gær.
Að sögn lögreglu urðu vitni
að því þegar bíl konunnar var
ekið eftir Reykjavegi og í veg
fyrir hvítan Subaru-bíl á leið
eftir Vesturlandsvegi en um-
ferð um Reykjaveg hefur
stöðvunarskyldu gagnvart um-
ferð um Vesturlandsveg.
Áreksturinn varð mjög harð-
ur en ekki urðu þó slys á fólki,
að talið er.
Tjónvaldurinn ók hins vegar
á brott. Lögreglan leitaði kon-
unnar og bíls hennar í gær og
skorar á hana að gefa sig fram
og þá sem geta gefið upplýs-
ingar um málið að hafa sam-
band við lögreglustöðina í Mos-
fellsbæ.
Barn
höfuðkúpu-
brotnaði
SEX ára barn slasaðist mikið
þegar það varð fyrir bíl á
Bröttukinn í Hafnarfirði síð-
degis á miðvikudag. Sam-
kvæmt upplýsingum lögreglu
á fimmtudag var bamið á gjör-
gæsludeild í, en var talið úr
lífshættu.
Slysið varð með þeim hætti,
að barnið hljóp út á götuna á
milli kyrrstæðra bíla og varð
fyrir fólksbíl sem var ekið eftir
Bröttukinn. Að sögn lögregl-
unnar í Hafnarfírði er slysið
dæmigert fyrir hættuna sem
fylgir því þegar lítil börn
hlaupa fram á milli bíla, því
bílstjórar á aðvífandi bílum sjá
þau ekki og ná því ekki að
forðast slys.
Að sögn lögreglu var fólks-
bílnum ekið rólega, en aftur-
hjól hans fór þó yfír höfuð
barnsins sem höfuðkúpubrotn-
aði.
Úthlutun til Sýnar hf.
Stangast
hugsanlega
á við sam-
keppnislög
ÚTHLUTUN útvarpsréttarnefndar
til Sýnar hf. á tveimur sjónvarpsrás-
um á örbylgjusviði, sem íslenska
sjónvarpinu hf. hafði verið úthlutað
til bráðabirgða vegna Stöðvar 3,
gæti hugsanlega stangast á við sam-
keppnislög, að sögn Guðmundar Sig-
urðssonar, forstöðumanns sam-
keppnissviðs Samkeppnisstofnunar.
„Það hefur ekkert erindi borist
Samkeppnisstofnun í þessu sam-
bandi, en að óathuguðu máli er ekki
fráleitt að þetta geti varðað sam-
keppnislög. Þama er verið að úthluta
einhvetjum takmörkuðum gæðum,
og við myndum horfa á þetta út frá
eignarhaldi þeirra fyrirtækja sem
hlut eiga að máli. Það kann að koma
til álita hvort verið sé að úthluta
markaðsráðandi aðila réttindum á
kostnað annarra. Ef þetta getur haft
einhver skaðleg áhrif á samkeppnina
þá myndi þetta væntanlega koma til
kasta samkeppnisyfirvalda með ein-
hveijum hætti, en hagsmunaaðili
sem kann að telja eitthvað á sér brot-
ið í þessu sambandi getur vísað
málinu til Samkeppnisstofnunar ef
hann telur ástæðu til,“ sagði Guð-
mundur.
Nýtt fyrirtæki að mestu í eigu sömu aðila og Stöð 3 óskar sjónvarpsleyfis
Sótt um sex örbylgjurásir
til útvarpsréttarnefndar
Krafa Stöðvar 3 um endurskoðun ákvörðunar útvarpsréttarnefndar
Fjallað um erind-
ið á næstu vikum