Morgunblaðið - 20.04.1996, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Fimmtíu fræðsluerindi á skurðlæknaþingi á Hótel Loftleiðum
Þjóðfélagslegur ávinningur af
hjartaaðgerðum á börnum hér
I EINU af fimmtíu fræðsluerindum á
skurðlæknaþingi á Hótel Loftleiðum
kom fram að umtalsverður þjóðfélag-
legur ávinningur er af hjartaaðgerð-
um á bömum hér á landi. Sigurgeir
Kjartansson, formaður Skurðlækna-
félags íslands, sagði að sjaldan eða
aldrei hefði mæting verið jafn góð á
þing skurðlæknafélagsins en um 90%
félagsmanna komu á þingið í gær.
Þinginu lýkur í dag.
Bjami Torfason sagði frá könnun
á hjartaskurðaðgerðum á bömum og
unglingum með meðfæddan hjarta-
galla á ámnum 1990 til 1995. Rann-
sóknin náði til 26 bama vegna 28
aðgerða á íslandi á tímabilinu. Sjúkl-
ingamir vom á aldrinum tveggja daga
til 18 ára (meðalaldur 10 mánaða).
Opnar hjartaaðgerðir vom 8 og lokað-
ar 20.
Arangur aðgerðanna var að sögn
Bjama góður. Dánartíðni eftir 30
daga var einn af 26 (3,8%), fylgikvill-
Einbýlishús í Fossvogi
250 fm að stærð, vandað hús og vel staðsett.
Þeir sem vilja athuga með kaup, vinsamlega sendi nafn
og símanúmer til afgreiðslu Mbl. merkt:
„F - 15440“.
Álfaskeið - Hafnarfirði
Góð 2ja herb. íbúð með bflskúr
nýkomin í einkasölu. íbúðin er á 1. hæð, 57,4 fm með
parketi og suðursvölum. 24 fm bílskúr með hita og
rafm. Stór geymsla og frystiklefi. Ekkert áhv. Laus
strax. Hagstætt verð 5,6 millj.
Opið í dag Árni Gunnlaugsson hrl.,
frá kl. 12-17 Austurgötu 10, sími 555 0764.
Flétturimi 2 - glæsiíbúð - einkasala
Til sýnis
laugardag og
sunnudag
kl. 14-16
Byggingaraðili:
Atli Eiríksson sf.
Betri frágangur - sama verð.
Til afhendingar strax.
Fullb. glæsileg íb. á frábæru
verði. 3ja herb. 89 fm nettó
og 7 fm geymsla auk stæðis
í bílgeymslu. Verð 8,5 millj.
íbúðin afh. fullb. með parketi,
Alno-innr., skápum og flísa-
lögðu baði. Sérþvottahús.
Öll sameign fullfrág.
Ú
FJÁRFESTING 562 4250
FASTEIGNASALAr"
Borgartúni 31,105 Rvík, s. 562 4250.
Lögfr.: Pétur Þór Sigurðsson, hdl.
íii IIÍHÍ! l)7I
LARUS Þ. VAIÐIMARSSON, framkvæmdasijORI
KRISTJAN KRISTJANSSON, 10GGILTUR FASIEIGNASALI
Nýjar eignir á söluskrá:
Góð íbúð - gott lán - gott verð
3ja herb. íbúð á 1. hæð við Leirubakka. Sérþvottahús í íbúðinni. Vest-
ursvalir. Gott kjallaraherb. fylgir m. sérsnyrtingu. Laus fljótlega.
Jarðhæð - Rofabær - sólrík
2ja herb. jarðhæð, tæpir 60 fm v. Rofabæ. Sólverönd á suðvestur-
hlið. Langtfmalán kr. 3 millj. Laus fljótlega. Tilboð óskast.
Frábært útsýni - Háaleitisbraut
Mikið endurbætt 3ja herb. íb. á 3. hæð. Parket á gólfum. Nýtt gler.
Sameign nýstandsett. Vinsæll staður.
Byggingamenn athugið!
Til sölu m.a lítið timburhús í gamla aust-
urbænum á vinsælum stað. Nánari upp-
lýsingar aðeins á skrifstofunni.
Raðhús á einni hæð
Vegna flutnings til iandsins þurfum við að útvega fjársterkum kaup-
anda raðhús eða parhús á einni hæð um 120 til 130 fm í borginni eða
nágrenni.
Álftamýri - Heimar - Laugarnes
Góð 3ja herb. íb. óskast á 1. hæð. 2. hæð kemur til greina. Rétt eign
verður greidd við kaupsamning. Afhending samkomulag.
• • •
Opið í dag frá kl. 10-14.
Fjársterkir kaupendur
að eignum miðsvæðis
íborginni.
ALMENNA
FASTEIGNASALAN
UU6EVE611BS.55Z 115»-552 n7T
ar fáir og þjóðfélagslegur ávinningur
af aðgerðunum umtalsverður.
Krabbamein í blöðruhálskirtli
Eiríkur Jónsson kynnti könnunina
„Ættartengsl íslenskra karla með
krabbamein í blöðruhálskirtli". Könn-
uð var áhætta karlkyns ættingja
manna með krabbamein í blöðruháls-
kirtli á að fá sams konar mein og
því til viðbótar áhætta kvenkyns ætt-
ingja á bijóstkrabbameini.
Af könnuninni var dregin sú álykt-
un að aðeins ættingjum þeirra karla
sem fengið hefðu framsækið krabba-
mein í blöðruhálskirtli væri hættara
en öðrum við að fá krabbamein í
blöðruhálskirtli. Kvenkynsættingjum
karla með krabbamein í blöðruháis-
kirtli virtist ekki hættara á bijóst-
krabbameini.
Kviðsjá notuð við
gallblöðrutöku
Kristján Óskarsson flutti annað
enndið af tveimur um notkun kviðsjár
við gallblöðrutöku. Hjá honum kom
fram að til að greina reynsluna af
slíkum aðgerðum á Landspítalanum
hefið verið farið yfir gögn allra sjúkl-
inga sem komið hefðu til gallblöðru-
töku frá 1. nóvember 1991 til 10.
desember árið 1994. Á þessu tímabili
voru gerðar 384 gallblöðrutökur. Gall-
blöðrutökur með kviðsjá voru reyndar
í 353 skipti. Sextíu og þrisvar sinnum
var breytt yfir í opna aðgerð en 31
sjúklingur fór beint í hefðbundna opna
gallblþðrutöku. Meðalsjúkrahúsvist
eftir opna gallblöðrutöku voru 8,4
dagar en 3,1 dagur eftir gallblöðru-
töku með kviðsjá. Sjúklingar sem
fengu gallblöðrutöku með kviðsjá
voru komnir aftur til fullra starfa
innan 17,6 daga en þeir sem fóru í
opna gailblöðrutöku eftir 46 daga.
Niðurstaðá Kristján er sú að gall-
blöðrutaka með kviðsjá sé fram-
kvæmanleg með fáum meiriháttar
fylgikvillum. Fæmi eykst með aukn-
um fjölda tilfella eins og sést á færri
opnunum þrátt fyrir aukinn fjölda
bráðaaðgerða. Reynslan af aðgerð-
unum á Landspítalanum styður að
því er fram kom gallblöðrutöku með
kviðsjá sem valaðgerð fyrir bæði gall-
steina og gallblöðmbólgu.
í erindi Jóns Braga Bergmanns frá
Sjúkrahúsi Akraness kom fram að
vel viðunandi árangri við gallblöðru-
tökur mætti ná á litlum sjúkrahúsum.
Jafnvel þótt ekki væru gerðar nema
40 til 60 slíkar aðgerðir á ári.
Aðrar kviðsjáraðgerðir
Skúli Gunnlaugsson uppiýsti að af
sjúkraskýrslum eftir aðgerðir um
kviðsjá vegna vélindabarkaflæðis
og/eða nárakviðslits frá 1994 og 1995
mætti ráða að árangur aðgerðanna
væri mjög sambærilegur við uppgjör
erlendra sjúkrahúsa. Aðgerðir um
kviðsjá við vélindisbakflæði og hliðar-
þindaropshaul eru nú valaðgerðir á
Landspítalanum.
Hjá Margréti Oddsdóttur kom fram
að góðkynja vefjabreytingar og breyt-
ingar af óljósum uppruna í maga
þyrfti iðulega að fl'arlægja með að-
gerð. Hún sagði að gerðar hefðu ver-
ið íjórar aðgerðir á maga gegnum
kviðsjá á Landspítalanum frá því í
október í fyrra. Fyrstu þrír sjúkling-
amir fengu að drekka daginn eftir
aðgerðina og útskrifuðust á öðrum
og þriðja degi. Sá fjórði var aftur tek-
inn til kviðsjáraðgerðar einum og hálf-
um sólarhring eftir fyrri aðgerðina
vegna gruns um leka og saumlína
yfírsaumuð. Hann útskrifaðist á sjötta
degi eftir aðgerðina. Upplýst var að
til að forðast opna magaaðgerð mætti
í flestum tilfellum flarlægja viðkom-
andi breytingu með aðgerð um kviðsjá.
I erindi Kristins Eiríkssonar um
holsár vegna sársjúkdóms í maga og
skeifugöm á Landspítalanum á árun-
um 1989 til 1994 kom svo fram að
árangur aðgerða um kviðsjá við hol-
sári væri sarr.bærilegur við opnar
aðgerðir og sjúklingar virtust fljótari
að ná sér.
Vaxtarhraði ósæðargúla í kviði
í erindi Jóns H.H. Sen um könnun
á vaxtarhraða ósæðagúla í kviði kom
fram sú bráðabirgðaniðurstaða að
vaxtarhraði þeirra væri svipaður og
annars staðar. Hins vegar kom í ijós
að eftirliti með þessum sjúklingum
var mjög ábótavant. Af 65 sjúklingum
frá árunum 1991 til 1995 hafði að-
eins 17 verið fylgt eftir með regluleg-
um rannsóknum. Ákveðið var að kalla
inn þá sjúklinga sem ekkert eftirlit
höfðu fengið eða þar sem langt var
liðið frá síðasta eftirliti til tölvusneið-
myndatöku af kviði til að mæla þver-
mál ósæðarinnar og standa þær rann-
sóknir yfír. Endanlegar niðurstöður
varðandi vaxtarhraða liggja því ekki
fyrir.
Festumein
í erindi Magnúsar E. Kolbeinssonar
kom fram að holsjárskoðun á nára
væri auðveld, öfugt við meðferð á
festumeini sem oft væri langvinn, dýr
og árangur misjafn. Þess vegna væri
mikilvægt að muna eftir hoisjárskoð-
un þegar útiloka þyrfti möguleika á
nárahaul.
Utandagskrárumræða um stöðu Landhelgisgæslunnar
Engin afturvirk veiði-
leyfi hafa fundist
ENGIN afturvirk veiðileyfí hafa fund-
ist hjá Landhelgisgæslunni sam-
kvæmt athugun sem gerð var hjá
stofnuninni.
Þetta kom fram í utandagskrár-
umræðu á Alþingi í gær um málefni
Landhelgisgæslunnar. Umræðan var
mjög hörð, og var Alþýðuflokkurinn
meðal annars sakaður um að standa
fyrir ódrengilegum árásum á pólitíska
andstæðinga og beita þar vísvitandi
ósannindum.
Umræðan var að beiðni Lúðvíks
Bergvinssonar þingmanns Alþýðu-
flokksins og nefndi hann tvær ástæð-
ur. Önnur var að rússneskum togara
var sleppt þótt hann hefði verið stað-
inn að veiðum innan landhelginnar.
Hin var fullyrðingar Höskuldar
Skarphéðinssonar skipherra um að
ítrekað hafí verið gefin út afturvirk
veiðileyfí, en Alþýðublaðið krafðist á
fímmtudag afsagnar Þorsteins Páls-
sonar dómsmálaráðherra fyrir að hafa
gefíð út afturvirkt veiðileyfí til skel-
fískbáts í eigu Einars Odds Kristjáns-
sonar, núverandi þingmanns Sjálf-
stæðisflokks, eftir að báturinn var
staðinn að veiðum án þess að hafa
tilskilin leyfí.
Brýnir hagsmunir
Lúðvík sagði að brýnir þjóðarhags-
munir fælust í því að Landhelgisgæsl-
an sinnti löggæslu af fullum þunga.
„Það er því með öllu óþolandi ef
æðsti yfirmaður Gæslunnar dregur
úr skilvirkni hennar, vegna þess að
hann áttar sig ekki á því að skyldur
hans sem dómsmálaráðherra eru rík-
ari en hagsmunagæsla fyrir éinstaka
aðila í sjávarútvegi," sagði Lúðvík.
Hann sagði hugleiða yrði hvort
koma ætti á fót rannsóknamefnd til
að kanna hvort tilefni sem gefín hefðu
verið til þessara ásakana ættu við rök
að styðjast.
Þorsteinn Pálsson sagði, að varð-
andi tilraunaveiðar m.b. Æsu, lægi
fyrir að Landhelgisgæslan hefði kært
skipið, sýslumaðurinn á ísafirði rann-
sakað málið sem gekk síðan til sak-
sóknara. Öll þessi málsmeðferð sýndi,
að engin tilraun hefði verið gerð til
að hindra að lögum væri komið yfír
skipið og allar þær fullyrðingar Al-
þýðuflokksins væru staðlausir stafír.
Þá sagði Þorsteinn, að forstjóri
Landhelgisgæslunnar hefði gert á því
sérstaka athugun hvort slík veiðileyfi
hefðu verið send frá sjávarútvegs-
ráðuneytinu. Og í bréfí forstjórans frá
í gær væri staðfest, að engin slík leyfi
hefðu verið _gefín út.
Halldór Asgrímsson utanríkisráð-
herra sagði að ráðist hefði verið mjög
ódrengilega á Einar Odd Kristjánsson
og fleiri þingmenn Framsóknarflokks-
ins tóku undir það.
Össur Skarphéðinsson, sem hefur
tjáð sig um málið í fjölmiðlum, sagði
að hann stæði ekki fyrir árás á Einar
Odd, heldur snérist spumingin um
hvort til væri skömmtunarkerfi hjá
gæðingum og vinum dómsmálaráð-
herra þegar kæmi að því að þeir brytu
reglur.
Þá vitnaði Össur í frétt í DV frá
1994, þar sem sagði að snurvoðabát-
ur hefði verið tekinn án veiðileyfís,
en afturvirkt leyfi hefði fengist eftir
að báturinn var tekinn.
Einar Oddur sagði að öll gögn varð-
andi töku Æsu lægju fyrír og allt
væri vísvitandi lygi, sem fram hefði
komið um málið í Álþýðublaðinu. En
það væri samt notað til að koma á
stað þeirri sögu að ráðherrann væri
að hygla sér, flokksbróður sínum og
vini. „Að við séum holdi klædd spill-
ingin hér á íslandi," sagði Einar Odd-
ur, og bætti við að ekki væri hægt
að kalla þá menn annað en rógbera,
sem breiddu viijandi út ósannindi í
fjölmiðlum í pólitískum tilgangi.
Ágúst Einarsson þingmaður Þjóð-
vaka sagði að um væri að ræða óvana-
lega, skammarlega og ódrengilega
árás á einstakling. Þótt atburðarásin
lægi ljós fyrir, og staðfest af embætt-
ismönnum, þá væri samt haldið áfram
persónulegum árásum, eins og Össur
Skarphéðinsson hefði gert.
„Þetta er vindhögg Alþýðuflokks-
ins, en ég kýs hins vegar að líta á
þetta sem fljótræði eins eða tveggja
alþýðuflokksmanna og blaðs þeirra,"
sagði Ágúst og bætti við að þeir skuld-
uðu Einari Oddi og Alþingi afsökunar-
beiðni.
Umfangsmikil aðgerð
Varðandi rússneska togarann sagði
Lúðvík, að forstjóri Landhelgisgæsl-
unnar hefði lýst því yfír að starfs-
menn Gæslunnar hefðu auðveldlega
getað tekið togarann, og rök ráðherra
fyrir þeirri ákvörðun að gera það
ekki væru afar fátækleg.
Þorsteinn Pálsson sagði að það
hefði verið mjög umfangsmikil aðgerð
að taka rússneska togarann. Land-
helgisgæslan hefði verið spurð hvort
hún treysti sér í þá aðgerð og svarað
mjög ákveðið að það væri unnt. Gæsl-
an hefði einnig verið spurð hvort hún
gerði athugasemdir við að togaranum
yrði sleppt en rússneskum yfirvöldum
send hörð mótmæli vegna landhelgis-
brotsins. Því hefði Gæslan svarað
mjög ákveðið að svo væri ekki, og
slíkt myndi ekki skaða gæslustörfín
í framtíðinni. Niðurstaðan hafí síðan
verið sú, að mótmæla atvikinu en láta
togarann fara, og ekki yrði sýnt fram
á það með rökum að um óeðlileg við-
brögð væri að ræða.
Steingrímur J. Sigfússon, Alþýðu-
bandalagi sagði, að fordæmisgildi tog-
aramálsins væri mjög slæmt vegna
síðustu atburða á Reykjaneshrygg. Því
væri framganga ráðherranna hrakleg
og í raun hefði verið rekinn rýtingur
í bakið á Landhelgisgæslunni.