Morgunblaðið - 20.04.1996, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996 11
FRÉTTIR
Miðstjórn ASÍ um breytingar á vinnulöggjöf
Samþykki frtimvarps „stór-
kostlegt skemmdarverk“
FÉLAGSMÁLANEFND Alþingis
hefur veitt frest til þess að skila
umsögnum um frumvarp til laga
um stéttarfélög og vinnudeilur að
sögn Kristínar Ástgeirsdóttur, for-
manns nefndarinnar. í álitsgerð
miðstjórnar Alþýðusambands ís-
lands um breytingar á vinnulöggjöf-
inni segir að með samþykki frum-
varpsins „væru unnin stórkostleg
skemmdarverk á íslenskum vinnu-
markaði".
Kristín Ástgeirsdóttir segir að
byrjað verði að fara yfir umsagnir
eftir helgi. í álitsgerð miðstjórnar
ASÍ er látið í ljós það álit að marg-
ar breytinganna séu „hæpnar, van-
hugsaðar og illa útfærðar" og þess
krafist að afgreiðsla frumvarpsins
verði stöðvuð svo samningsaðilum
gefist tækifæri að semja um sam-
skiptareglur.
Þá hefur ASÍ sent efnahags- og
viðskiptanefnd Alþingis umsögn um
frumvarp til laga um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins. Þar
segir m.a. að til þess sé ætlast að
frumvarpið verði ekki að lögum í
því formi sem það liggur fyrir nú.
Skattheimtuvald til
stéttarfélaga
í umsögn Vinnuveitendasam-
bands íslands eru breytingarnar
studdar, að sögn Þórarins V. Þórar-
inssonar framkvæmdastjóra, þótt
ýmislegt vanti, svo sem ákvæði sem
tryggja rétt fólks til að standa utan
stéttarfélaga.
„Einnig finnst okkur ámælisvert
að stéttarfélögunum sé með löggjöf
veitt skattheimtuvald, með því að
lög um starfskjör segi skýrt að at-
vinnurekendur séu skyldir til þess
að innheimta iðgjöld til stéttarfé-
laga samkvæmt reglum í kjara-
samningum. Jafnframt bendum við
á að við teljum það ekki á færi
vinnuveitenda að knýja fram breyt-
ingu á þessu í andstöðu við stéttar-
félög.“
Þórarinn segir ennfremur að bent
sé á að í frumvarpið vanti reglur
sem heimili sáttasemjara að fresta
boðaðri vinnustöðvun, við tilteknar
aðstæður. „Við teljum að það geti
virkað truflandi á samningaviðræð-
ur ef sáttasemjari telur sig þurfa
að grípa til miðlunar áður en full-
reynt er hvort samningar takast."
LR telur ekki gengið á hlut borgar
Kostnaður við
uppsögri óljós
Rafstöð varveg--
ur opinn fyrir
minni bíla
ÁKVEÐIÐ hefur verið að lokun Raf-
stöðvarvegar vegna brúargerðar á
Vesturlandsvegi yfir Elliðaár nái
ekki til fólksbifreiða.
í frétt frá Vegagerðinni segir að
vegna óska þjónustuaðila við Sæv-
arhöfða og Bíldshöfða hafí áður aug-
lýstri lokun verið breytt. Lokað verði
fyrir umferð allra stærri bifreiða
undir brúna mánudaginn 22. apríl.
Einstefnuakstur verður norður undir
gömlu brúna og þá nýju, sem verið
er að byggja.
Aðeins verður leyfð umferð fólks-
bifreiða en umferð stærri bifreiða
bönnuð. Hæð ökutækja takmarkast
við 2,3 metra og einnig verður sett
upp hraðahindrun. Vegurinn verður
lokaður tímabundið fyrir allri umferð
á meðan unnið er við að koma fyrir
turnum og burðarbitum vegna upp-
sláttar. Verðuc það tilkynnt nánar
síðar.
Vegfarendur, akandi, gangandi og
hjólandi, eru beðnir um að sýna gát
þegar farið er um vinnusvæðið undir
brúnni. Gert er ráð fyrir að hægt
verði að aka á nýjan leik undir nýju
brúna þann 1. ágúst.
LEIKFÉLAG Reykjavíkur telur ekki
að gengið hafi verið á hlut borgar-
innar við uppsögn Viðars Eggerts-
sonar, þó að fulltrúi borgarstjóra
hafi ekki verið henni sammála, að
því er kemur fram í athugasemdum
sem félagið hefur sent frá sér við
greinargerð Hjörleifs B. Kvaran
borgarlögmanns og Örnólfs Thors-
sonar, fulltrúa borgarstjóra í leik-
húsráði.
Þar kemur fram að ekki sé end-
anlega ljóst hver kostnaður vegna
ráðningar og uppsagnar leikhús-
stjóra verður, meðal annars vegna
þess að ekki liggi fyrir hvaða kostn-
aður leiði af því að kærunefnd jafn-
réttismála telji ráðninguna brot á
jafnréttislögum.
Vill endurskoða lög
Sigurður Karlsson, formaður LR,
sem undirritar athugasemdirnar,
segir LR reiðubúið til að endurskoða
lög félagsins, m.a. til að taka af
hugsanlegan vafa sem upp gæti
komið við túlkun og framkvæmd
þeirra. Félagið óskar jafnframt eftir
góðu samstarfí við fulltrúa borg-
arinnar við endurskoðun samkomu-
lags á milli borgar og LR.
í athugasemdum er mótmælt
þeirri túlkun Hjörleifs og Örnólfs að
gert hafi verið ráð fyrir í stofnskrá
frá 1975 að starfsemi LR í Borgar-
leikhúsi yrði rekin án styrkja.
„Með ólíkindum er að þáverandi
borgarstjóri, Birgir ísleifur Gunnars-
son, og þáverandi leikhússtjóri, Vig-
dís Finnbogadóttir, auk annarra full-
trúa beggja aðila sem stóðu að gerð
stofnskrárinnar, hafí imyndað sér að
það eitt að Leikfélagið flytti i stærra
húsnæði yrði til þess að starfsemin
gæti þrifíst án opinberra styrkja.
Þvert á móti gerðu allir sér ljóst að
þegar til kæmi þyrftu opinber fram-
lög að hækka til muna,“ segir þar.
Alnafnar
styðja sinn
hvom fram-
bjóðandann
ÞAÐ KEMUR stundum fyrir að
alnöfnunum Benedikt Sveinssyni,
forstjóra Islenskra sjávarafurða,
og Benedikt Sveinssyni, formanni
bæjarstjórnar Garðabæjar, er
ruglað saman. Listi stuðnings-
manna Guðrúnar Agnarsdóttur
forsetaframbjóðanda, sem birtist
í Morgunblaðinu á fimmtudag, gaf
enn tilefni til að farið yrði manna-
villt.
Þar er skráður meðal stuðn-
ingsmanna Benedikt Sveinsson,
forstjóri í Garðabæ. Umræddur
Benedikt er forstjóri ÍS. Benedikt
bæjarráðsformaður er hins vegar
stuðningsmaður Guðrúnar Pét-
ursdóttur forsetaframbjóðanda,
en þau eru systkinabörn.
Á myndinni sjást þeir saman
nafnarnir, Benedikt, forstjóri ÍS,
(t.v.) og Benedikt, formaður
bæjarráðs í Garðabæ.
Öformlegar viðræður um nýjan virkjanasamning
Samningsaðilar
ósammála um gildis-
svið eldri samnings
ÓFORMLEGAR viðræður um end-
urnýjun kjarasamnings við virkj-
anagerð milli landssambanda Al-
þýðusambands íslands annars
yegar og Vinnuveitendasambands
íslands hins vegar hafa legið niðri
um nokkurt skeið og óvíst er hvert
framhald málsins verður. Deilt er
um gildissvið samningsins og
samningsréttarlega stöðu hans.
Síðastgildandi virkjanasamn-
ingur rann sitt skeið í lok árs
1994 og hefur nýr samningur ekki
verið gerður síðan þá. Samningur-
inn tekur til allra starfa sem vinna
þarf á hálendinu við nýfram-
kvæmdir vegna virkjana og var
fyrst gerður árið 1978 og hefur
verið endurnýjaður með reglulegu
millibili síðan, samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins. Hann tek-
ur bæði til starfa verkafólks og
iðnaðarmanna og í honum er að
finna samræmdar reglur og launa-
töflu vegna starfa við virkjanir á
hálendinu.
Deilt um samnings-
réttarlega stöðu
Óformlegar viðræður um end-
urnýjun samningsins hófust í vetur
en upp úr þeim slitnaði fyrir páska
og hefur nýr viðræðufundur ekki
verið boðaður síðan þá. Sam-
kvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins hefur mikil vinna verið
lögð í það af hálfu beggja aðila
að ná samningum. Talsvert hefur
miðað í þeim efnum, en ennþá ber
nokkuð í milli, einkum hvað varðar
launatöflu og réttindamál.
Þá eru samningsaðilar ósam-
mála um samningsréttarlega stöðu
málsins og hvort giidandi kjara-
samningar leggi verkalýðsfélög-
unum friðarskyldu á herðar ef nýr
virkjanasamningur verður ekki
gerður eða hvort verkalýðsfélög-
unum sé heimilt að efna til vinnu-
deilna í því tilviki. Vinnuveitendur
telja að virkjanasamningurinn sé
útrunninn og úr gildi fallinn.
Samningurinn hafi verið gerður
til hagræðingar vegna vinnu á
hálendinu og sé viðbótarsamning-
ur við aðra kjarasamninga. Sé
enginn samningur gerður gildi
aðrir samningar verkalýðsfélag-
anna við vinnuveitendur og óheim-
ilt sé því að efna til átaka þótt
nýr samningur sé ekki gerður.
Verkalýðsfélögin telja hins veg-
ar að virkjanasamningurinn sé
sérstakur kjarasamningur og og
um hann gildi það sama og aðra
kjarasamninga að síðastgildandi
samningur sé í gildi þar til nýr sé
gerður. Samningurinn sé hins veg-
ar laus til breytinga þar til hann
hefur verið framlengdur og heim-
ilt sé að beita hefðbundnum vopn-
um í vinnudeilum ef þörf krefur
til að ná samningum.
Niðurstaðan gæti orðið sú að
þessum ágreiningi yrði vísað til
úrskurðar Félagsdóms, en staða
málsins virðist mjög óviss nú og
óvíst hvaða stefnu það tekur.
Bónusdagar
I , ■ £ T
Nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér
vinsælu bónusdagana í apríl.
Þrír ævintýradagar, meðan húsrúm leyfir.
Verð
kr. 4,950
Innifalið; Gisting i 3 nætur og
morgunverður af hlaðborði og
þríréttaður kvöldverður síðasta kvöldið.
HÓTEL ÖÐK
HVERAGERÐI
^Sími 483 4700« Bréfsími 483 4775 Lykillinn að íslenskri gestrisni
- kjarni málsins!