Morgunblaðið - 20.04.1996, Page 14
14 LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Um 300 leita eftir sumarvinnu hjá ÚA
Vinnsla gæti
stöðvast vegna
hráefnisskorts
Slippstöðin hf. vill ráða 10 erlenda járniðnaðarmenn
Fagmenn skortir eftir
ástand síðustu ára
Morgunblaðið/Kristján
HJÁ Slippstöðinni er verið að vinna við umfangsmiklar breyting-
ar á togaranum Frosta ÞH frá Grenivík og m.a. að breyta hon-
um í frystiskip. Meðal þeirra sem að verkinu koma eru fjórir
starfsmenn Vélsmiðjunnar Víkur á Grenivík, sem starfa sem
undirverktakar hjá stöðinni. Á myndinni er Jón Ásgeir Péturs-
son að skera gat á þil á millidekki Frosta.
HÁTT í 300 manns hafa óskað eftir
sumarvinnu hjá Útgerðarfélagi Ak-
ureyringa hf. en Gunnar Aspar,
framleiðslustjóri, gerir ráð fyrir að
um 80 manns verði ráðnir í sumar-
afleysingar. í bréfi sem umsækjend-
ur fengu sent er jafnframt tekið fram
að í sumar verði hugsaniega tak-
mörkuð vinna vegna hráefnisskorts
og að ef til vill verði lokað þijár síð-
ustu vikurnar í ágúst.
ísfisktogarar á
Reykjaneshrygg
Gunnar segir að stefnt sé að því
að senda ísfisktogarana Harðbak EA
og Kaldbak EA til karfaveiða á
Reykjaneshrygg í maí og júní, til
hráefnisöflunar fyrir landvinnsluna.
Gangi það ekki eftir gangi fljótlega
á kvóta fyrirtækisins. „Við gerum
okkur vonir um að ísfísktogaranir
geti veitt um 2000 tonn á þessum
tveimur mánuðum. Við verðum
þarna einnig með eitthvað af vinnslu-
skipum en afli þeirra skipa kemur
ekki inn í landvinnsluna. Þannig að
óvissan varðandi kvótastöðuna á
þessu vori er meiri en síðustu ár,“
segir Gunnar.
Breytingar á vinnslulínunni
til skoðunar
Fjölmörg ár eru síðan vinnslan
stoppaði að sumarlagi að sögn Gunn-
ars en síðast þegar slíkt gerðist, var
stoppið hálfur mánuður og út af svip-
uðum ástæðum og hér um ræðir.
Að undanförnu hefur verið unnið
að því að skoða hugsanlegar breyt-
ingar á vinnslukerfi ÚA en á þessari
stundu hefur ekki verið ákveðið hvert
framhaldið verður. Gunnar segir að
komi til þess að vinnslunni verði
breytt verði reynt að fara í þá fram-
kvæmd í ágúst.
SLIPPSTÖÐIN hf. sendi í gær er-
indi til félagsmálaráðuneytisins, þar
sem fyrirtækið óskar eftir leyfi til
að ráða 10 erlenda járniðnaðarmenn
til tímabundinna starfa hjá stöðinni.
Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri
Slippstöðvarinnar, segir að vegna
góðrar verkefnastöðu fyrirtækisins
næstu vikurnar sé nauðsynlegt að
flölga járniðnaðarmönnum. Slipp-
stöðin er að ganga frá samningi við
Samheija um breytingar og lagfær-
ingar á þýska ísfisktogaranum Cux-
haven, sem er í eigu DFFU, dóttur-
fyrirtækis Samheija. Einnig er verið
að vinna við umtalsverðar breytingar
á Frosta ÞH, auk þess sem mikið
er að gera í almennum slippverkefn-
um.
Reynt að halda
verkefnum í landinu
„Við erum að leita eftir járniðn-
aðarmönnum hér innanlands en
reiknum ekki með að finna nægjan-
legan fjölda. Því óskuðum við eftir
því við Félag málmiðnarmanna á
Akureyri að það heimilaði okkur að
flytja inn 10 erlenda járniðnaðar-
menn til tímabundinna starfa og þá
væntanlega Pólveija og hefur félag-
ið samþykkt það. Við teljum að með
því að bæta við nokkrum erlendum
fagmönnum getum við tekið að okk-
ur verk sem við ella gætum ekki
sinnt og færu þá að öllum líkindum
úr landi. Þannig að við erum að
reyna að halda þessum verkefnum
í landinu og fá þá frekar til þess
styrk erlendis frá í stað þess að
horfa á eftir verkefnunum úr landi
eins og gert hefur verið hingað tií,“
segir Ingi.
Járniðnaðarmönnum fækkað
Hann segir að í hremmingum
undanfarinna ára hafi stórlega
fækkað í járniðnaðarmannahópnum
sérstaklega og þegar fyrirtæki eins
og Slippstöðin er orðið eins lítið og
raun ber vitni sé erfitt að ráða við
miklar sveiflur. Ef þessi hugmynd
sem nú sé uppi á borðinu gengur
eftir myndi það gera fyrirtækið
hæfara til að mæta þessum sveiflum
og taka við stærri verkefnum inn á
milli. Ingi sagði að hægt væri að fá
pólska járniðnarðmenn til starfa ef
félagsmálaráðuneytið samþykkti
umsókn fyrirtækisins. Hér er ekki
um ódýrara vinnuafl að ræða og
stöðin þarf að greiða þeim erlendu
laun samkvæmt kjarasamningum
sem í gildi eru hjá stöðinni.
Slippstöðin hefur einnig verið að
auglýsa eftir nemum á samning, í
vélvirkjun, stálskipasmíði og renni-
smíði og gerir Ingi ráð fyrir að einir
fímm nemar verði teknir á samning
á næstu vikum.
Hákon Hákonarson, formaður
Félags málmiðnaðarmanna, segir að
stjórn félagsins hafi samþykkt erindi
Slippstöðvarinnar, enda verði það
fullreynt að ekki fáist innlendir járn-
iðnaðarmenn til starfa.
„Þessi umsókn snýr að þessu ein-
staka afmakarkaða verkefni við
þýska togarann en ekki öðrum verk-
efnum. Þetta ástand er kannski lýs-
andi dæmi um þá slagsíðu sem hef-
ur verið í greininni undanfarin ár.
Menn hafa hætt í faginu og lítið
verið um að fyrirtæki taki nema og
nú þegar fyrirtækin fara að rétta
úr kútnum á ný, þá er þetta eitt af
því sem menn standa frammi fyrir.
En það þýðir ekkert að gefast upp,
heldur að takast á við verkefnin og
leysa þau og það telja menn sig
vera að gera,“ sagði Hákon.
------»-»■■■■♦--
Útibú Landsbankans
Beinlínu-
tenging við
Landsbréf
ÚTIBÚ Landsbankans á Akureyri
hefur fengið beinlínutengingu við
Landsbréf í Reykjavík og nú getur
umboðsmaður útibúsins gengið frá
öllum viðskiptum beint.
Útibú bankans á Akureyri gegnir
stóru hlutverki í verðbréfaviðskiptum
og með því að tengja það beint suð-
ur, er verið að leitast við að koma
til móts við viðskiptavini með bættri
þjónustu.
Af þessu tilefni býður útibú bank-
ans á Akureyri viðskiptavinum sínum
að þiggja veitingar eftir hádegi á
mánudag. Þar verður starfsfólk
Landsbréfa og mun það fræða við-
skiptavini um starfsemi Landsbréfa.
MESSUR
AKUREYRARKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli í Safnaðarheimilinu kl.
11 á morgun, sunnudag. Munið
kirkjubflana. Guðsþjónusta kl. 14.
Biblíulestur í Safnaðarheimili kl.
20.30 á mánudagskvöld.
GLERÁRKIRKJA: Biblíulestur
og bænastund í kirkjunni kl. 13 í
dag, laugardag. Bamasamkoma
verður á morgun kl. 11. Messa
verður kl. 14. Kirkjukaffi kvenfé-
lagsins Baldursbrár í safnaðarsal
eftir mes^u. Eldri borgurum boðin
akstur til kirkjunnar. Fundur
æskulýðsfélagsins kl. 20 á sunnu-
dagskvöld.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Fjöl-
skyldusamkoma kl. 17 á sunnudag,
börn og unglingar taka þátt. Heim-
ilasamband kl. 16 á mánudag,
krakkaklúbbur á miðvikudag og
hjálparflokkur á fímmtudag.
HVÍTASUNNUKIRKJAN:
Lokahátíð krakkaklúbbsins kl. 14
í dag, laugardag, veitingar. Sam-
koma í umsjá ungs fólks kl. 20.30
í kvöld, laugardagskvöld. Safnað-
arsamkoma á morgun kl. 11 og
vakningasamkoma kl. 15.30 sama
dag. Biblíulestur á miðvikudags-
kvöld kl. 20.30 og bæn og lofgjörð
á föstudag.
Akureyrarbær
UTBOÐ
Bæjarverkfræðingurinn á Akureyri, fyrir hönd bæjar-
sjóðs Akureyrar óskar hér með eftir tilboöum í jarð-
vegsskipti, lagnir, hellulögn og götulýsingu í verkið,
Miðbær — Norðurhluti
Geislagata og bifreiðastæði
I. áfangi.
Tilboðið nær til gerðar 115 lengdarmetra af götum
og 1100 fermetra af bílastæðum ásamt tilheyrandi
holræsalögnum, undirbúningi undir gangstéttir, 470
fm hellulögn og uppsetningu götulýsingar.
Skiladagur verksins er 28. júní 1996.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Tæknideildar
Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, Akureyri, frá og með
þriðjudeginum 23. apríl 1996 á 3.500 kr.
Opnun tilboða fer fram á sama stað föstudaginn 3.
maí kl. 11.00.
Bæjarverkfræðingurinn á Akureyri
Árgangur 1954
frá Gagnfrœðaskóla Akureyrar
Toppmódel! Nú mætum við öll og kætumst
þann 18. maí.
Hittumst við Gaggann kl. 14.00 og förum í
smá rútuferð. (Sportklæðnaður.)
Aðalstuðið byrjar með kokteil 54 kl. 19.30 í
Golfskálanum Jaðri.
Tilkynnið þátttöku fyrir 5. maí.
Nánari upplýsingar veita:
Auður sími 461 2314.
Sigurður sími 462 5294.
Rósa sími 462 4446.
Þórey sími 461 1571.
r8Uf «lvCg
pe«flV!tuto'lSt-
ttl'
Nefndin.
<
».w
loakViiV- 1'U,‘
aúÍ$^n
Glerárgötu 28 - Akureyri
Áskriftarsími 462 4966
lygi