Morgunblaðið - 20.04.1996, Page 17
-MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996 17
ÚR VERINU
Fyrirsjáanlegir erfiðleikar í útflutningi krydd- og edikverkaðrar síldar
Tollfrjáls kvóti fyrir
árið þegar fullnýttur
TOLLFRJÁLS kvóti fyrir krydd-
og edikverkaða síld til Evrópusam-
bandsins þetta ár, er þegar full-
nýttur, og ljóst að útflutningur á
slíkri síld síðar á árinu verður toll-
aður um 10%. Gunnar Jóakimsson,
framkvæmdastjóri Síldarútvegs-
nefndar, segir að samningurinn
um tollaívilnanir vegna sölu salt-
síldar til aðildarlanda ESB, sé
ófullnægjandi. Hann geti jafn-
framt komið í veg fyrir að auka
megi vinnslu síldar, eins og stefnt
sé að með veiðum úr norsk-
íslenzka sfldarstofninum.
í lok síðasta mánaðar var
endanlega gengið frá samningi
milli íslands annars vegar og Evr-
ópusambandsins hins vegar um
árlegan tollfijálsan kvóta á nokkr-
um sjávarafurðum, sem fluttar eru
frá íslandi til Evrópusambandsins.
Var þessi samningur gerður í
framhaldi af inngöngu Finnlands,
Svíþjóðar og Austurríkis í sam-
bandið.
Samningurinn tekur fyrst og
fremst til saltaðrar síldar, en sölt-
uð síld er sjávarafurð sem minnst-
ar tollaívilnanir hefur fengið í
samningum við Evrópusambandið,
þar á meðal við gerð EES-samn-
ingsins.
2.400 tonna
tollfrjáls kvóti
í samningnum, sem gerður var
við Evrópusambandið í framhaidi
af inngöngu EFTA-ríkjanna
þriggja í ESB, var samið um 1.750
tonna tollfrjálsan kvóta fyrir heil-
saltaða og hausskorna síld og
2.400 tonna kvóta fyrir ýmsar
tegundir krydd- og edikverkaðrar
síldar, en undir þann flokk falla
mikilvægustu og verðmætustu
síldarafurðirnar. Nú, þegar aðeins
eru liðnir röskir þrír mánuðir af
árinu, er kvótinn fyrir krydd- og
edikverkuðu síldina
fullnýttur, en hann
kláraðist 9. aprfl síð-
astliðinn. Því er ljóst
að sá kvóti, sem samið
var um, er mun minni
en þörf er á.
Hörmungarsaga
Gunnar Jóakims-
son, framkvæmda-
stjóri Síldarútvegs-
nefndar, segir að það
sé afskaplega dapurt
til þess að vita að ekki
hafi náðst að semja
um stærri kvóta.
Reyndar væri það svo
að baráttan undanfar-
in ár í því að ná fram
leiðréttingu vegna
saltsíldarinnar, væri ein hörmung-
arsaga. „Mestu vonbrigðin eru
þau, að ekki var samið um við-
unandi niðurstöðu við gerð EES-
samingsins, en í þeim samningi
var saltsíldin nánast skilin útund-
an. Þetta kom síðan illilega niður
á okkur með inngöngu EFTA-ríkj-
anna í Evrópusambandið, en milli
EFTA-ríkjanna hefur ríkt tollfrelsi
með sjávarafurðir. Bæturnar, sem
við fáum vegna inngöngu EFTA-
ríkjanna í ESB, duga síðan ekki
betur en raun ber vitni.
Ný tollflokkaskilgreining
Um tíma gerðum við okkur von-
ir um að lausn gæti falizt í nýrri
tollflokkaskilgreiningu á krydd-
og edikverkuðum flökum, en í dag
eru þau flokkuð í sama tollflokk
og niðurlagðar síldarafurðir. Með
nýrri skilgreiningu þar sem viður-
kenning hefði fengizt á því að
krydd- og edikverkuð flök flokkuð-
ust sem saltsíldarflök, sem þau í
raun eru, hefðu þau fallið undir
þann eina flokk fyrir sfldarafurðir,
sem nýtur tollfrelsis í Evrópusam-
bandinu. Ríkistollstjóraembættið
var í upphafi sömu skoðunar og
við í þessu skilgreiningarmáli, en
treysti sér ekki í slag við Evrópu-
sambandið, þrátt fyrir að rökin í
því séu nokkuð augljós að okkar
mati.
Stórt strik í reikninginn
Það, hvað kvótinn er lítill og
hann fljótt fullnýttur, er þeim mun
dapurlegra þar sem við höfum
verið að snúa vörn í sókn á mörk-
uðunum. Menn hafa gert sér vonir
um að hægt væri að auka vinnsl-
una enn frekar. Meðal annars eru
miklar væntingar til framtíðar
varðandi nýtingu á norsk-íslenzku
síldinni, en tollarnir setja þar stórt
strik í reikninginn. Það sést af því
að kvótinn er nú fullnýttur áður
en á það reynir hvort norsk-íslenzk
síld fæst til vinnslu eða ekki, og
að ekki sé talað um næsta haust,
en verulegur hluti þeirrar síldar
sem áætlað er að salta í upphafi
næstu haustvertíðar og ætluð er
í jólasöluna til Svíþjóðar og Finn-
lands í lok ársins, verður tolluð.
Það mun vissulega draga úr mögu-
leikum okkar á Norðurlöndunum
og á mörkuðum Evrópusambands-
ins,“ segir Gunnar.
Freðsíldin stendur
mun betur
Gunnar segir einnig að sem
dæmi um hvað saltaða síldin standi
illa, megi benda á að fryst síld
beri- engan toll til Evrópusam-
bandsins stóran hluta ársins og á
því tímabili, sem hún sé tolluð, sé
tollfijáls innflutningskvóti 34.000
tonn.
„Nú, á þeim tíma sem umræðan
og krafan er um aukna nýtingu á
vaxandi síldarafla og frekari full-
vinnslu, er það mál nánast slegið
út með tollahindrunum. Skilyrðið
fyrir því, að hægt sé að sækja fram
í þeim málum er að ná fram niður-
fellingu tolla til Evrópusambands-
ins, þannig að sfldarsöltunin sitji
við sama borð og aðrar helztu út-
flutningsgreinar okkar í sjávarút-
vegi,“ segir Gunnar Jóakimsson.
Ég þakka af alhag börnum mínum og barna-
börnum og öðrum œttingjum og vinum sem
glöddu mig með heimsóknum, blómum, heilla-
skeytum og margvíslegum gjöfum á 95 ára
afmœli mínu.
Guð blessi ykkur öll.
Þorgerður Einarsdóttir,
Hjallatúni,
Vík í Mýrdal.
Erum flutt í
Mörkína €5
Ný sending
Stuttkápur og
heilsársúlpur
Fyrír Sumardaginn fyrsta
TUboft
Heilsársúlpurog sumarjakkar
í miklu úrvali. Mörg snið.
Verð kr. 4.900 og kr. 7.900.
óstsendum
Mörkin 6 - sími 588 5518 (við hliðina á
Opið laugardag kl.
- Bílastæði vi<9 búðar]j
Opið sunnudag frá
Farktúbbur VISAi
býðurfar-og
giillkorthöíúin VIS A
Verö aðeins
á inann í tvíbýli á Holiday Inn Select,
fyrstaflokkshóteli (43.760kr.íeinbýli).
Missið ekki af þessu
tækifæri til að
heimsækja fallega og
Ilflega borg.
Borðin svigna undan
kræsingum og tónlistin
dunaroginnan
seilingar eru hlýlegar
sveitir, aðlaöandi
sinábæir og tækifæri til
skoðunarferða og
útivistar.
Bðkanir adcins á
söluskrifstofu
Fluglciöa
aðLaugavcgi 7.
Hafidsamband
viðDísu.Hörpu
cða
GuðrúnuDagmar
ísíma
S05048Seða
S0S0S34.
FLUGLEIÐIR
I ■ i
Liu, í i
Igf I m- I
1