Morgunblaðið - 20.04.1996, Page 20
20 LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996
ERLENT
Kosið í íran eftir
harða baráttu
Teheran. Reuter.
ÍRANIR gengu að kjörborði að nýju í gær eftir harðvítuga kosningabar-
áttu milli miðjumanna, sem beita sér fyrir efnahagsumbótum, og frambjóð-
enda sem vilja að hvergi verði hvikað frá þeirri stefnu sem mörkuð var
í íslömsku byltingunni fyrir sautján árum.
Kjósendur flykktust á kjörstaði
í íran, fjölmennasta Persaflóarík-
inu, eftir að embættismenn, sem
leggjast gegn efnahagsumbótum,
hvöttu þjóðina til að hafna frjáls-
lyndum frambjóðendum og sökuðu
þá um að vera handbendi Banda-
ríkjanna og ísraels.
„Ég kaus þá sem eru guðhrædd-
ir og eru duglegir að vinna fyrir
fólkið," sagði verkfræðingur eftir
að hafa kosið í Teheran. „Ég styð
landið og trúna. Aðeins ríka fólkið
fylgir fijálslyndu mönnunum.“
Harðlínuöflin náðu meirihluta á
þinginu í kosningunum 1992 og
vilja halda í gildi íslömsku bylting-
arinnar 1979. Stuðningsmenn Ak-
bars Hashemis Rafsanjanis forseta
vilja hins vegar snúa við blaðinu,
koma á efnahagsumbótum og rjúfa
einangrun landsins.
Barist var um 123 þingsæti í
gær, en í fyrri umferð kosninganna
8. mars voru 133 þingmenn kjöm-
ir. Úrslitin í kosningunum liggja
fyrir innan viku.
Varað við „samsæri óvina“
Kvöldið áður en kjörstaðir voru
opnaðir hvatti talsmaður svokallaðs
Verndararáðs, sem er skipað íhalds-
sömum klerkum og lögfræðingum,
kjósendur til að hafna frjálslyndum
frambjóðendum sem styddu ekki
heilshugar klerkaveldishugsjón
íslömsku byltingarinnar. Orðið
„frjálslyndur" hefur niðrandi merk-
ingu í írönskum stjórnmálum og er
notað um þá sem vilja bæta sam-
skiptin við Bandaríkin.
„Óvinirnir geta auðveldlega
keypt slík fólk,“ sagði talsmaðurinn
og vísaði til Bandaríkjanna og ísra-
els. „Þið verðið að muna að óvinirn-
ir hafa valdið öllum okkar vanda-
málum og ef við eigum við pólitísk-
an og efnahagslegan vanda að
stríða er það vegna samsæris óvin-
anna.“
Verndararáðið hefur eftirlit með
kosningunum og getur hafnað lög-
um sem þingið samþykkir.
Hugmyndafræðilega baráttan og
efnahagsleg vandamál, svo sem
60% verðbólga á ári, voru helstu
kosningamálin í Teheran og stærstu
borgunum, en ýmis staðbundin mál
bar hæst í kosningabaráttunni í
dreifbýlinu.
Reutfir
Möttull Krists vekur athygli
MÖTTULLINN af Trier, sem tal- hygli gesta dómkirkjunnar í Tri-
ið er að Jesú hafi klæðst þegar er í Þýskalandi í gær. Klæðin
hann gekk upp á Golgata til hafa aðeins verið sýnd þrisvar á
krossfestingar, vakti mikla at- þessari öld.
Rannsókn mannskæðs tilræðis í Kaíró
Lögreglan handtek-
ur herskáa múslima
Kaíró, Aþenu. Reuter.
EGYPSKA lögreglan handtók í gær
herskáa múslima í fátækrahverfum í
Kaíró í von um að finna tilræðismenn-
ina sem myrtu 18 gríska ferðamenn
fyrir utan hótel í borginni í fyrradag.
Lögreglan réðst inn f hús, sem tal-
in eru fylgsni herskárra múslima, í
þremur hverfum nálægt hótelinu, að
sögn egypska dagblaðsins al-Ahram.
Blaðið gat þess ekki hversu margir
hefðu verið handteknir og ekkert
benti til þess að lögreglan hefði kom-
ist á spor tilræðismannanna.
Dagblaðið sagði að tilræðismenn-
imir fjórir væru líklega í Gama’a
al-Islamiya (íslamska hópnum),
stærstu hreyfingu egypskra múslima
sem vill steypa stjórn landsins og
stofna íslamskt ríki.
Málgögn egypsku stjórnarinnar
gerðu lítið úr þeim möguleika að til-
ræðismennirnir hefðu haldið að
Grikkirnir væru ísraelar og ætlað
að hefna árása ísraela á Líbanon.
Engin hreyfing hefur lýst verknaðin-
um á hendur sér.
Fréttaskýrendur dagblaðanna höll-
uðust flestir að þeirri kenningu að
Gama hefði staðið fyrir árásinni tii
að grafa undan ferðaþjónustunni í
Egyptalandi. Fyrir árásina höfðu heit-
trúaðir múslimar drepið átta erlenda
ferðamenn og sært 53 á fjórum árum.
Fórnarlömbin flutt heim
Lík fómarlambanna vom í gær
flutt með grískri herflugvél til Grikk-
lands og tíu hinna særðu vom fluttir
á sjúkrahús í Aþenu. Fimm til viðbót-
ar era enn á sjúkrahúsi í Kaíró og
í lífshættu.
Fjórar flugvélar fóm einnig í sér-
staka ferð með hundrað grískra
ferðamanna, sem lifðu tilræðið af eða
vildu flýta heimför sinni af ótta við
frekari árásir.
7
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Hvað kosta útsæðiskartöflurnar? 4^
Tegund útsæðis Fyrirtæki Dora Innfl. 5 kg. Gullauga íslenskar 5 kg. Rauðar íslenskar 5 kg. Amazone, möndlulaga lnnfl.,5 kg. Helga íslenskar 5kg. Premier íslenskar 5 kg. Bintje Innfl. 5 kg.
Ágæti Faxafeni 12 1.300 kr. 980 kr. 980 kr. 1.300 kr. 980 kr. 980 kr. 1.300 kr.
Biómavaí v/ Sigtún ekki til 975 kr. 975 kr. 975 kr. íslenskar ekki til 975 kr. ekki til
Gróðurvörur Smiðjuvegi 5 ekki til 960 kr. 960 kr. ekki til 960 kr. 960 kr. 960 kr. íslenskar
Frjó Stórhöfða 35 ekkitii 980 kr. 980 kr. 1.300 kr. íslenskar ekki til 980 kr. 980 kr.
Bananar Elliðavogi 103 ekki til 800 kr. 800 kr. ekki til ekki til 800 kr. ekki til
BYK° ekki til 907 kr. 907 kr. 907 kr. ekki til 907 kr. 907 kr.
Hringbraut, R. Dalshrauni, Hf. 7 9 <3*? CÖ m ^ CD CD
Verðið svipað á
íslenska útsæðinu
ÞEGAR kannað var verð á
útsæði kom í ljós að selj-
endur voru með sama verð
á öllum útsæðistegundun-
um sem þeir bjóða, að
minnsta kosti þeim ís-
lensku. Síðan var oft tölu-
verður verðmunur milli
seljenda á einstökum teg-
undum. Verðið í töflunni á
við um 5 kílóa poka af út-
sæði og skal tekið fram að
ekkert tillit er tekið til
gæða vörunnar.
Samkvæmt heimildum
blaðsins er gullaugað vin-
sælast en margir vilja rauð-
ar kartöflur líka. Þá sækjast
ýmsir eftir því að kaupa
erlend afbrigði með til að
fá stórar bökunarkartöflur.
Spurt er þó nokkuð um I
Helgu sem er rautt gullauga )
en framboðið er hinsvegar
lítið. Verið er að rækta nýj- '
an stofn og segja seljendur
útsæðis að næsta vor verði
væntanlega nóg til af Helgu.
MATUR 96
Nýtt kaffi, ýsu-
snakk, sósur,
kjöt og umbúðir
A SJÖTTA tug fyrirtækja eru með sýn-
ingarbása á sýningunni Matur’96 og mikið
um að vera. I dag, laugardag, ætla bakar-
ar að skreyta risastóra brúðkaupstertu,
fimm matreiðslumeistarar spreyta sig á
að reyna við titilinn Matreiðslumaður árs-
ins 1996, kjötiðnaðarmenn sýna verðlauna-
stykki sín og nemar keppa bæði í fram-
reiðslu og matreiðslu og Ieyfa gestum að
fylgjast með.
Búist er við þúsundum gesta nú um helg-
ina, en sýningin er haldin í íþróttahúsinu
í Smáranum í Kópavogi.
í gær þegar við litum inn á sýninguna
voru ýmis fyrirtæki að kynna nýjungar og
Ieyfa gestum að smakka. Við birtum hér
sýnishorn af því sem fyrir augu bar. I
næstu viku verður nánar fjallað um ýmsar
vörur sem kynntar voru á sýningunni.
ODDI og Umbúðamiðstöðin eru í sam-
starfi við að hanna og framleiða umbúðir
og eru þær kynntar á sýningunni með
nýstárlegum hætti. Umbúðirnar sem eru á
sýningunni hafa að geyma hugmyndir.
Kuðungurinn er tákn þeirra og Oddi og
Umbúðamiðstöðin bjóða til kuðungaveislu.
Morgunblaðið/Sverrir
Á SÝNINGUNNI er verið að kynna eldföst mót frá
Alpan á Eyrarbakka og býðst gestum að kaupa mót
með 40% afslætti.
Morgunblaðið/J6n Svavarsson
í GÆR var Kjötmeistari ársins valinn og hlaut Björn
Ingi Björnsson hjá Höfn á Selfossi titilinn.