Morgunblaðið - 20.04.1996, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996 23
HLUTIR
Mýktin ræður ríkjum
IMýstárlegir hátalarar__________________
►AÐ SÖGN sérfræðinga er mesti misskilningur að
hátalarar þurfi að vera kassalaga til að hljóma vel. B
& W Minipod-hátalararnir sanna hið gagnstæða, en
þeir eru straumlínulaga og án horna. Hljómur þeirra
þykir vera með ágætum og ekki spillir fyrir að fæt-
urnir eru oddhvassir, en það hefur einnig með
hljóminn að gera. Minipod-hátalararnir fást í fjórum
litum; svörtum, hvítum og bláum, auk þess rauða, og í
Bretlandi kostar parið fjörutíu þúsund krónur.
Framtíðarmýs____________________________
►TÖLVUMÝS hafa verið framleiddar í mörg ár,
enda eru þær öllum tölvueigendum nauðsynlegar.
Hönnun þeirra hefur ekki verið fjölbreytt til þessa og
starfsmönnum hjá Brainworks Computer-fyrirtækinu
fannst tími til kominn að bæta þar úr. Þaðan eru þess-
ar þrjár Iitríku mýs, cn stykkið kostar á að giska
3.000 krónur í Bretlandi.
Feráaskrifstofa
►ALLIR þekkja farsíma, ferðatölvur og ferðasjón-
vörp. Færri kannast hins vegar við ferðaskrifstofuna,
sem fyrirtækið British Teleeom hefur hannað. Þetta
er, að sögn talsmanna fyrirtækisins, fullkomin skrif-
stofa með skjá, sem liægt er að skoða betur með
sérhönnuðu höfuðfati. Ferðaskrifstofan er enn á
þróunarstigi og er ekki komin á almennan markað.
Kleinuhringir
►HRINGIR þeir er kenndir eru við kleinur hafa til
þessa aðeins fengist í bakaríum, þar sem sérstaka
maskínu þarf til að móta þá. Breville-fyrirtækið hefur
nú sett á markað slíkt tæki, kleinuhringjajárnið, sem
kemst inn í hvaða eldhús sem er. Því ættu unnendur
kleinuhringa að geta fengið sér uppáhaldið sitt fyrir
minni pening í framtíðinni.
Myndavél fgrir safnarann
►OLYMPUS O-Product-myndavélin er 35 mm með
sjálfvirkum fókus. Eins og sést er hún ólík flestum
öðrum myndavélum, en hún er gerð úr áli. Hægt er
að læsa fókusnum og Ijósopið er sjálfvirkt. Vélin var
framleidd í takmörkuðu upplagi á sínum tíma, en ein-
takið selst á um það bil 80 þúsund krónur á upp-
boðum.
Stafrsen myndbandsupptökuvél
►DCR VX1000E myndbandsupptökuvélin er ekki
eins og myndbandsupptökuvélar eru flestar. Hún
tekur upp á stafrænt form, á svokallaðar DVC-spóIur,
Digital Video Cassettes. Gæðin jafnast á við það besta
sem gerist i' kvikmyndátöku og verðið er eftir því. í
Bretlandi kostar vélin sem svarar 360 þúsundum
króna og hér á landi myndi hún eflaust fara upp í
hálfa milljón ef hún væri flutt inn.
BT"
SIEMENS
Sérstök afsláttarkjör
I dag verður opið frá kl. 10-16
Viö bjóöum ykkur
velkomin í
verslun okkar að
Nóatúni 4.
Við verðum með
ýmis tæki á
sérstöku
tilboðsverði í
tilefni dagsins.
á hinum glæsilegu Siemens heimilistækjum
sem allir vilja - og geta eignast.
Vorsýning
m
N
>
x
SMITH&
NORLAND
V Nóatúni 4 Slmi 511 3000
Heitt á könnunni - gjörið svo vel!
Látið sjá ykkur og njótið dagsins með okkur.
Einkaumboö fyrir Siemens á Islandi