Morgunblaðið - 20.04.1996, Page 33

Morgunblaðið - 20.04.1996, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996 33 AÐSEIMDAR GREINAR Um útköll og hjálpar- beiðnir til bj örgunarsveita A SIÐUSTU dög- um hafa spunnist nokkrar umræður í fjölmiðlum um að of mikill viðbúnaður hafi verið af hálfu björg- unarsveita í V-Skafta- fellssýslu vegna neyðarkalls sem barst um gervihnött og virt- ist koma frá Skaftár tunguafrétti. Þar sem undirritað- ur bar ábyrgð á því að kalla út viðkom- andi björgunarsveitir vil ég upplýsa hvað var til grundvallar Reynir Ragnarsson ákvörðun minni og rekja aðstæður eins og þær blöstu við mér á þeim tíma. Hinn 10.4. sl. kl. 11.35 var mér tilkynnt, frá manni í Lands- stjórn björgunarsveita, að heyrst hefði í neyðarsendi frá því fyrr um morguninn. Samkvæmt út- reikningum frá stöð í Frakklandi bærust merkin frá ákveðnum manni sem vitað var að væri á leið þvert yfir landið og var gefin upp staðarákvörðun í breidd og lengd sem benti til þess að mað- urinn væri staddur sunnarlega í Álfta- vatnakróki á Skaftár- tunguafrétti. Stað- setningartölur bárust nokkuð þétt, en aldrei nákvæmlega þær sömu, þannig að um nokkuð svæði var að ræða sem gat skeikað um 1-3 km á hvern veg. Rigning var og svarta þoka að sjá til fjalla. Mikið hafði snjóað á þessu svæði um páskana, en núna var asa- hláka og hef ég ekki séð Kúða- fljót og Skaftár vatnsmeiri en þennan morgun, ekki einu sinni í Skaftárhlaupum. Óttaðist ég því að sá sem setti neyðarsendinn í gang gæti verið í alvarlegri lífs- hættu, hann gat hafa festst í snjókrapi eða fallið og hrakist í vatnsfalli, því að við svona að- stæður er hver einasta vatns- spræna eins og beljandi á. Hann gat einnig hafa lent í snjóflóði en náð að ræsa neyðarsendinn. í stuttu máli getur maður ekki leyft sér að álíta, þegar neyðar- kall berst að nóg sé að senda einn til tvo vélsleða við áðurgreindar aðstæður og friða sjálfan sig og aðra að þar með hafi allt verið gert til þess að bjarga þessum manni. Svona starfa einfaldlega ekki björgunarsveitir í dag og von- andi ekki í framtíðinni. Ég er hissa á reyndum björgunarsveitarmönn- um í Reykjavík að nota svona neyðarkall til þess að auglýsa ann- ars ágætan neyðarsendi og gefa jafnframt í skyn að það hefði ver- ið unnt að ganga' að manninum vísum á ákveðnum punkti. Þessi ákveðni punktur var sem sagt á reiki og enginn vissi um í hvaða neyð maðurinn var. Það var hægt að senda björgunarsveitir eftir tveim leiðum inn á neyðarkalls- svæðið, eftir nyrðri og syðri Fjalla- baksleiðum. Vitað var að báðar leiðimar yrðu mjög erfiðar vegna krapa-elgs og vatnavaxta og spurning hvor væri fljótfarnari. Það var því ákveðið að senda ISLENSKT MAL Því það sambýður magni mest manninn hvarvitna að þekkja gran(n)t. Svo segir í frægri þýðingu eftir sr. Jón Þorláksson á Bæg- isá, og er þá nokkuð undir hæl- inn lagt hvort menn höfðu síð- asta orðið með einu eða tveimur n-um. En ég ætla fyrst að reyna að svara tveimur nokkuð erfiðum spurningum úr ágætu bréfi frá Hildigunni L. Högnadóttur á ísafirði. Hún spyr fyrst hvort réttara muni að grandskoða eða grann- skoða eitthvað í merkingunni að kanna það gaumgæfilega. Eng- inn merkingarmunur er greinan- legur. Umsjónarmaður treystir sér ekki til ,að gera upp á milli sagnmyndanna. I heimildum seðlasafns Orða- bókar Háskólans er þetta orð ritað með ýmsum hætti á ýmsum tímum, svo sem grannskoða, grandskoða og granskoða. Getur umsjónarmaður ekki full- yrt neitt um upprunann að svo stöddu. Fyrir koma orðin grand- kunnugur = gjörkunnugur og grandgæfilega = mjög vand- lega, og ennfremur að grandlesa og grandskyggn. Öll þessi orð fela í sér vöndugleik og ná- kvæmni. í orðsifjabók Ásgeirs Blöndals Magnússonar segir að grand „lítil þungaeining“ sé til í ís- lensku a.m.k. frá 18. öld og sé ummyndað úr dönsku gran < latínu granum = korn. Sjá einn- ig ensku grind = mala. Gran er einnig í norsku í sömu merkingu og í dönsku, og í Norsk riksmálsordbok er svo grannt í málin farið, að þar er greindur þungi „gransins", 0,00357 grömm. Þá spurði Hildigunnur um réttmæti þess að segja hvort heldur væri „að leiða líkur að einhveiju" eða „leiða líkum að e-u“. Þetta hvort tveggja merkir „að færa rök fyrir“ eða „sýna fram á að eitthvað sé líklegt". Umsjónarmaður Gísli Jónsson 845 þáttur Báðar gerðirnar virðast full- komlega tækar. í Fjölni (5. ár, bls. 17) stendur (fært til nútíma- stafsetningar): „Hér á nú fyrst að leiða líkur til þess.“ Um hina gerðina eru mörg góð dæmi. Þágufallið „líkum’* er væntan- lega verkfæris- eða háttarþágu- fall. Þá leiða menn „með líkum (líkindum)“ rök að o.s.frv. Þótt skráð bókfest dæmi um þetta orðafar séu yngri en dæmið úr Fjölni, getur þetta tal verið gam- alt. Margt var það sem seint eða ekki komst á bækur. Hildigunnur víkur að því fyrir- bæri, þegar lýsingarorðið var er notað kynlaust eða gelt. Sem betur fer, fara þó margir rétt með þetta. Kona segir til dæmis: ég varð ekki vör við þetta og börnin urðu einskis vör. Sjálf- sagt er að halda fast \ rétta meðferð lýsingarorðsins. Ég hef áður fjallað um þetta og helsta „skýring“ á því að segja alltaf „var“ gæti verið áhrif frá snar þegar það er stytting úr snarvit- laus. Þá er snar haft eins í öllum kynjum. Látum svo Hildigunni hafa orðið athugasemdalaust, að öðru leyti en því að þakka henni bréf- ið: „Mikið finnst mér hvimleið sú árátta fjölmiðlafólks að tala sí- fellt um hundraðkalla og þúsund- kalla. Munar fólk eitthvað um að nefna hlutina sínum réttu nöfnum eins og hundrað eða þúsund krónur? Vonandi hefur fréttaþulur rík- isútvarpsins aðeins mismælt sig þegar hann sagði í kvöldfrétta- tíma 11. janúar sl. að „úrslit hefðu verið gerð kunngjörð"! Það er ekki nema sjálfsagt að grípa til gamalla orðtaka eins og oft er gert í fjölmiðlum lands- ins, en þegar menn fara að snúa þeim og breyta þá verður oft ekkert annað en bull sem kemur út úr því. í fréttatíma Stöðvar 2 þann 9. janúar sl. var verið að segja frá Keiko, litla hvalnum sem menn ytra vildu að kæmist aftur á íslandsmið og í fréttinni var þess getið að Keiko hefði ekki „synt heill til skógar“ und- anfarið. Ég held það færi betur að sleppa bara orðtökunum, ef menn kunna ekki að fara rétt með þau. Að lokum örfá orð um auglýs- ingar. Ég á mjög bágt með að þola það, að flestir auglýsendur tala til fólks eins og það væri fífl. Ég get ekki annað en tekið svona djúpt í árinni og það þarf ekki annað en að fylgjast með orðavalinu í auglýsingum fjöl- miðlanna til að heyra að svona er þetta. Nýjasta nýtt var heitt ár og heitur miði í einhveiju happdrættanna, og ekki minnist ég ógrátandi á dömubinda- og bleiuauglýsingarnar. Bílaauglýs- ingarnar eru svo yfirþyrmandi væmnar eða hver keyrir t.d. með eldstrókinn upp úr öllu við hveija beygju? Það þætti ekki gott af- spurnar í minni sveit. Ég þakka fróðlega og skemmtilega pistla um daglegt íslenskt mál. Bestu kveðjur.“ ★ Hlymrekur handan kvað: Torfhildur, Áslaug og Inga í eyru og nef settu hringa, en í höfðingjann Jens þær höfðu ekki sjens: það hafði Karítas kjúklingabringa. ★ Biskup sitr í Málmey um fram páskir. Þar andast Einarr skemmingr af nefdreyra. En eft- ir páskir fór biskup norðr til Grímseyjar. (Sturlunga.) ★ Auk þess er hér afdráttar- háttur, og hann ekki af lakara taginu: Semja ijóðin fljóðin fljót, flétta hróður löngum. (Siprður J. Gíslason, skíðamaður og skáld.) björgunarsveitirnar eftir báðum þessum leiðum. Það er einnig svo að ein gerð farartækja hentar ekki við allar aðstæður og til þess að koma vélsleðunum inn á þann snjó sem þeir gátu farið um varð að nota bæði trukka og framdrifs- dráttarvélar, sem gátu öslað metradjúpan og þaðan af dýpri krapa- og vatnselg. Þá skal þess Betra er of en van í búnaði, segir Reynir Ragnarsson, þegar björgunarsveit er að störfum. getið að þyrla hafði einnig verið send yfir svæðið, samkvæmt ákvörðun Landsstjórnar björgun- arsveita, en hún varð frá að hverfa vegna lágskýja og þoku. Þegar klukkan var orðin 15.30 og björg-i unarsveitir ekki enn komnar inn á neyðarsvæðið, var ég og aðrir, sem vorum í stjómstöðvum björgunar- sveitanna, farnir að spyija sjálfa okkur að því hvort við hefðum gert nóg og allt sem í mannlegu valdi væri hægt að gera til björg- unar. Þá var einnig farið að gæta kvíða frá þeim manni í Lands- stjórn bjsv. sem var í sambandi við okkur. Þangað voru komin skyldmenni þess sem sendi út neyðarkalið og okkur var bent á að nú færi að styttast í myrkur og jafnframt spurt hvort við þyrft- um einhveija aðstoð að sunnan frá þeim. Ég var í vafa hveiju ætti að svara þessu, eða hvort þegar væri búið að gera nægar ráðstaf- anir sem dygðu. Kl. 16.05 var tilkynnt að maður- inn væri fundinn, en síðan slitnaði fjarskiptasamband við þá björgun- armenn í einar 20 mínútur, án þess að við vissum hvort hann væri lífs eða liðinn. Það var erfíður tími fyrir okkur í stjórnstöðvum björgunarsveita SVFÍ hér á svæðinu og mér varð hugsað til þess hvernig þeim að- . standendum liði sem biðu frétta í Reykjavík. Síðan bárust fréttir um að ekk- ert alvarlegt amaði að manninum. Hann hafði haldið kyrru fyrir, gegnblautur, í gegnblautum svefn- poka sínum frá því kvöldið áður og verið kominn með lungnatak. Það líður hinsvegar aðeins skamm- ur timi frá þessu þar til fréttir birtast í fjölmiðlum um þessa björgun, en þá fer mest púðrið í að auglýsa ágæti neyðarsendisins og að í raun hefði verið nóg að senda tvo menn á vélsleðum til þess að sækja manninn á fyrirfram vitaðan stað eins og hann biði í strætisvagnaskýli eftir vagninum, tilbúinn að hoppa upp í. Að endingu vil ég geta þess að í þessari aðgerð tóku þátt fjórar björgunarsveitir SVFÍ. Alls fóru til leitar 34 menn með fímmtán vélsleða, tvo torfærutrukka, snjó- bíl, dráttarvél, fjórhjól og sex tor- færujeppa. Einnig var læknir með í ferðinni. Þá voru að auki menn á vakt á þrem stjórnstöðvum björgunarsveitanna. Fyrir mér og okkur björgunarsveitarmönnum var þessi viðbúnaður síst of mikill og hafa verður í huga að við höfum okkar metnað og viljum einnig geta sofið án samviskunags ef verr hefði farið. Þetta útkall er því í mínum huga ekkert sem við . eða sá sem bað um það þurfum að biðja afsökunar á, en alltaf má gera betur. Þrátt fyrir miklar æf- ingar og námskeið sem björgunar- sveitarmenn ganga í gegnum eru neyðarköll og önnur aðstoð, sem tekst að leysa giftusamlega, nokk- urs konar ávöxtur erfíðisins og fullvissa þess að ekki hafí verið til einskis æft. Ég vil því að endingu nota tæki- færið til þess að þakka björgunar- sveitunum þeirra starf, bæði fyrr og síðar og vona að þeir láti ekki fjölmiðlagagnrýni eða auglýsinga- skrum koma í veg fyrir að þeir noti allan sinn styrk og búnað til að tryggja sem öruggastan árang- ur þegar beðið er um aðstoð. Það hefur verið reynsla mín í gegnum árin að betra sé að fara af stað með of mikinn búnað en vanta eitthvað af honum í miðri aðgerð. Höfundur er umdæmisstjóri björgunarsveita SVFÍ í V-Skafta- fellssýslu og Rangárvallasýslu. SYNUM SAMUÐ Berum sorgar- og samúðarmerkin við minninearathafnir og jarðarrarir og almennt þegar sorg ber að nöndum. Sölustaðir: Kirkjuhúsíð, Laugavegi, bensínstöðvar og blómabúðir um allt land.t* ,«&. <3ír Þökkum stuðninginn. H 'QIý MALVERKAUPPBOÐ Á HÓTEL SÖGU SUNNUDAGSKVÖLD SÝNING UPPBOÐSVERKA í DAG OG Á MORGUN KL. 12-18. ANTIKVERSLUNIN OPIN Á SAMA TÍMA. BOEG við INGÓLFSTORG SÍMI552 4211

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.