Morgunblaðið - 20.04.1996, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 20.04.1996, Qupperneq 42
42 LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Björn Pálsson var fæddur á Snæringsstöðum í Svínadal í Austur- Húnavatnssýslu 25. febrúar 1905. Hann lést á sjúkrahúsinu á Blönduósi 11. apríl síðastliðinn. Foreldrar hans voru Páll Hannes- son, f. 2. janúar 1870, d. 2. febrúar 1960, bóndi á Snær- ingsstöðum og síð- ar á Guðlaugsstöð- um í Blöndudal, og kona hans Guðrún Björnsdótt- ir, f. 10. mars 1875, d. 1. apríl 1955. Foreldrar Páls á Guð- laugsstöðum voru Hannes Guð- mundsson bóndi og smiður á Eiðstöðum og síðar á Guð- laugsstöðum og kona hans Halldóra Pálsdóttir frá Hvassahrauni í Yatnsleysu- strandarhreppi. Systkini Björns eru öll látin en þau voru: 1) Hannes bóndi á Undir- felli og síðar fulltrúi í Reykja- vík, f. 18. apríl 1898, d. 15. janúar 1978. 2) Elinbergur, f. 5. júlí 1903, d. 1. nóvember 1932. 3) Guðmundur Jóhannes, bóndi á Guðlaugstöðum, f. 19. janúar 1907, d. 30. ágúst 1993. 4) Hulda, húsfreyja á Höllu- stöðum, f. 21. ágúst 1908, d. 9. janúar 1995. 5) Halldór, bún- aðarmálastjóri í Reykjavík, f. 26. apríl 1911, d. 12. apríl 1984. 6) Ardís, hárgreiðslukona, f. 25. nóvember 1916, d. 11. jan- úar 1985. Páll og Guðrún eign- uðust feiri börn en þau létust í frumbernsku. Björn varð bú- Þegar ég heyri góðs manns getið, minnist ég ætíð Björns á Löngu- mýri. Það finnst ef til vill einhverjum skrítið sem minna þekktu til Björns, en hann virtist í fljótu bragði fara sínar ótroðnu slóðir. Ég kom til Bjöms níu ára- gamall og var hjá honum í sex ár. Eg kom frá fátæku heimili sem misst hafði heimilisföð- urinn og þar af leiðandi tvístraðist heimilið og börnin fóru hvert í sína áttina, um annað var ekki að ræða í þá daga. Ég tel það eitt af stóru lánum í lífi mínu að hafa lent hjá Birni á mótunarárum mínum. Þar lærði ég að vinna, því næg voru verkefnin. Trúað gæti ég því að honum hafi ekki litist meira en svo á nýja vinnumanninn „sem vart stóð út úr hnefa“. Hann mun hafa heitið því að reyna að gera úr honum mann. Björn hóf búskap á Ytri- Löngumýri 1930 og var það ei- nyrkjabúskapur í fyrstu. Hann hafði keypt jörðina nokkru fyrr en leigt hana á meðan hann var erlendis. Björn var áhugasamur um að víkka fræðingur frá Hól- um 1923. Hann stundaði nám í Samvinnuskólan- um 1925. Stundaði nám I lýðháskóla í Noregi og ferðaðist um Noreg og Dan- mörku 1927. Hann ferðaðist umhverf- is hnöttinn og dvaldi á Nýja-Sjá- landi og í Astralíu 1928-29 til þess að kynna sér meðferð á kjöti og kjöt- markaði. Björn var bóndi á Ytri-Löngumýri í rúma sex áratugi, frá 1930 til dauða- dags. Hann var oddviti Svína- vatnshrepps í 24 ár, frá 1934 til 1958. Hann sat einnig í sýslunefnd um skeið. Hann var kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagstrendinga frá 1955- 1959. Hann stofnaði útgerðar- félagið Húnvetning hf. 1957 og Húna hf. 1962 og rak út- gerð í allmörg ár. Hann var alþingismaður fyrir Austur- Húnavatnssýslu sumarþingið 1959 og þingmaður fyrir Norð- urlandskjördæmi vestra sam- fellt frá 1959-1974. Hinn 24. maí 1945 kvæntist Björn eftirlifandi eiginkonu sinni, Ólöfu Guðmundsdóttur, f. 10. mars 1918. Hún er dóttir Guðmundar Jónassonar út- vegsbónda x Flatey á Skjálf- anda, f. 10. október 1886, d. 13. september 1958, og konu hans Þuríðar Elísu Pálsdóttur, f. 26. febrúar 1889, d. 8. janúar 1943. Börn Björns og Ólafar eru: 1) Áslaug Elsa, f. 1. júlí sjóndeildarhringinn, fór bæði til Danmerkur og Noregs til náms og síðast en ekki síst fór hann kringum knöttinn 1928 með viðdvöl í Nýja- Sjálandi, þar sem hann kynnti sér búskaparhætti og meðferð á frystu kjöti. Þegar hann hóf búskap fyrir alvöru fór hann ótroðnar slóðir. Hann byrjaði með reisn. Hann keypti fé í stórum stíl og hóf ræktun með miklum krafti, þurrkaði upp stór mýrarflæmi en þá þurfti að hand- grafa alla skurði, það var fyrir tíð skurðgrafanna. Plægja og herfa landið allt með orku þarfasta þjóns- ins. Björn var brátt orðinn.einn um- svifamesti bóndi sýslunnar. Einnig þurfti að byggja upp peningshús og íbúðarhús. Hann lét sér þó nægja gamla torfbæinn þar til 1939 er hann réðst í íbúðarbygginguna. Þar gætti einnig hans stórhuga og mynd- arskapar. Það var tveggja hæða steinhús í stærra lagi. Hann vílaði ekki fyrir sér þó flytja þyrfti alla mölina á klökkum neðan frá Blöndu, 1945, gift Pétri Þorkelssyni, f. 8. september 1951. Þau eiga tvö börn: Þorkel Mána, f. 21. desember 1976, og Árdísi Ýri, f. 19. júní 1982. 2) Guðrún, f. 14. janúar 1947, gift Einari L. Guðmundssyni, f. 12. desember 1951. Þau eiga tvær dætur: Ólöfu Evu, f. 7. maí 1982, og Tinnu, f. 11. mars 1987. 3) Páll, f. 22. október 1948, kvæntur Ólafíu Hansdóttur, f. 6. júlí 1948. Þau eiga þrjú börn: Ólaf, f. 16. desember 1977, Ásdísi Hönnu, f. 6. apríl 1981, og Björn, f. 28. desember 1986. 4) Guðmundur, f. 29. apríl 1950'. Hann var kvæntur Mette Haarstad, f. 2. apríl 1947. Þau eiga eina dóttur, Ingunni Haarstad, f. 21. mars 1979. Þau skildu. Sambýliskona Guð- mundar er Edda Snorradóttir, f. 1. september 1942. 5) Hall- dór, f. 9. apríl 1953. 6) Hafliði Sigurður, f. 19. apríl 1954. 7) Björn, f. 14. júlí 1955. Fyrri kona Björns er María Sigrún Hannesdóttir, f. 17. apríl 1957. Þau eiga tvö böm: Ólöfu Birnu, f. 2. febráar 1977, og Bjarka, f. 25. mars 1982. Þau skildu. Bara Björas og Lindu Maríu Magnúsdóttur, f. 10. júlí 1960: Steinn Örvar, f. 25. mars 1991. Seinni kona Björas er Oddný María Gunnarsdóttir, f. 15. apríl 1955. Þau eiga tvö börn: Brynhildi Unu, f. 26. júní 1994, og sveinbam, f. 18. mars 1996. 8) Þorfinnur Jóhannes, f. 18. nóvember 1956, kvæntur Aðal- heiði Bragadóttur, f. 18. maí 1960. Þau eiga þijú börn: Björa, f. 25. október 1979, Braga, f. 10. apríl 1981, og Þórdísi Björk, f. 10. april 1991. 9) Brynhildur, f. 19. mars 1958. 10) Böðvar, f. 2. desember 1959. Björn Pálsson á Löngumýri verður jarðsunginn frá Blönduóskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. það var mikið og erfitt verk. Af húsi þessu fóru ýmsar sögur um sveitina. Það var ekki vant því í sveitinni í þá daga að ganga á par- ketgólfum, því voru pijónaðar skó- hlífar fyrir þá sem ekki gáfu sér tíma tii að fara úr skónum meðan staldr- að var við, oft kom það fyrir að gestir gleymdu að taka af sér pijón- askóna þar til þeir voru komnir áleið- is heim, og það var hent gaman að. Birni voru snemma falin ýmis trúnaðarstörf fyrir sveit sína og hér- að og það er með ólíkindum hvað hann komst yfir. Hann var mjög mikið að heiman vegna þessara starfa, þrátt fyrir það stóra bú sem hann rak, sem var með stærstu búum í sýslunni. Hann var óhemju afkastamikill til allra verka, t.d. frá- bær sláttumaður. Hann var verk- hygginn og framúrskarandi heppinn og farsæll í sínum búskap. Það var eins og hann sæi langt fram í tím- ann. Hann rak t.d. refarækt um tíma og var með fyrstu mönnum með slík- an búskap og hann mun hafa hagn- ast nokkuð á því en hann hætti á hárréttum tíma, áður en halla fór undan fæti í þeirri grein. Að sjálf- sögðu varð hann fyrir ýmsum búsifj- um, s.s. eins og mæðiveiki í fénu o.fl. en alltaf reis Björn upp tvíefld- ur og allt varð að peningum í hönd- um hans. Hann gat verið harður í horn að taka, ef honum fannst geng- ið á hlut sinn eða bænda yfirleitt. Hann átti lítt í málaferlum og sum mál flutti hann sjálfur í dómsölum. Hann sagðist aldrei hafa tapað máli þó þau væru mörg nokkuð snúin. Sum mála hans urðu fræg um land allt, s.s. Skjónumálið, refamálið og baðmálið. Það var alltaf eitthvað að gerast í kringum Bjöm. Bjöm var mjög geðgóður maður og hafði unun af að vera í góðra vina hópi. Hann gaf ævisögu sinni nafnið „Ég hef lifað mér til gam- ans“. Hann hafði sem sagt gaman af að lifa og naut þess að hafa gam- anyrði á vörum. Aldrei hallmælti hann samferðamönnum sínum, þó hann stæði oft í ýmsum útistöðum. Hann gat illa þolað þunglynt og fýlu- gjamt fólk. Hann sneri öllu til betri vegar. Ég minnist þess að oft komu vinir hans stórbændurnir úr Vatnsd- alnum í heimsókn að Löngumýri og þá var glatt á hjalla. Hann endurg- alt þeim heimsóknina með því að fara á hveijum vetri þangað vestur og eiga þar glaðar stundir. Björn var mjög hjúasæll. Þeir sem einu sinni vom hjá honum vildu gjaman koma aftur. Á þessum ámm hafði Bjöm ráðskonur sem reyndust búi hans hliðhollar. Hann var vinmargur og það átti eftir að koma betur í ljós seinna. Björn var framúrskar- andi hjálpsamur maður þeim sem áttu í einhveijum erfiðleikum. Það fór leynt og fáir vissu um það nema þeir sem nutu. Hann var ekki að bera það á torg, en ég vona að ég uppljóstri ekki leyndarmálum með því að segja frá því núna, en þeir vom ófáir sem nutu hans aðstoðar. Ég hef áður greint frá ótrúlegri heppni Björns við bústörfin en ham- ingjuna höndlaði hann 25. maí 1945 þegar hann kvæntist Ólöfu Guð- mundsdóttur Jónassonar úr Flatey á Skjálfanda. Ólöf hafði verið á Kvennaskólanum á Blönduósi. Ég kynntist henni í gegnum systur mína sem var henni samtímis í skólanum. Svo var það fyrsta vetur minn á Siglufirði að Bjöm hringir í mig og spurði mig hvort ég gæti útvegað sér kaupakonu. Ég tjáði honum að ég skyldi reyna það. Þá var Ólöf í hússtörfum hjá Jóni Kjartanssyni bæjarstjóra. Ég færði þetta í tal við hana og það talaðist þannig til að hún fór í kaupavinnuna og síðan hefur hún staðið við stjómvölinn á Löngumýri eða í rúma hálfa öld. Ég þakkaði mér auðvitað þessa ráðn- ingu og sagði Birni að enginn hefði launað uppeldið jafn ríkulega og ég með því að útvega honum slíkan lífs- fömnaut. Bjöm vildi ekki gera minn hlut stóran í þessu máli. Ólöf reynd- ist Bimi óviðjafnanleg kona. Stórglæsileg kona, afburða dugleg og á herðum hennar hvíldi rekstur hins stóra heimilis að miklum hluta til. Eins og áður sagði var Björn langdvölum að heiman, sérstaklega eftir að hann tók við Kaupfélagsstjó- rastöðunni á Skagaströnd er hann stjómaði í fimm ár og alþingismaður í sextán ár. Það getur hver og einn gert sér í hugarlund að það er engin meðalmanneskja sem annar slíku. Þau hjón eignuðust tíu mannvænleg börn á ámnum 1945-1959, svo það hefur verið nóg að gera á þessum árum hjá þessari glæsilegu bónda- konu. Bjöm hafði ekki langa skólagöngu að baki, en í stað þess var hans sjálfsmenntun mikil. Hann var óhemju næmur á allt sem hann las og minnið með afbrigðum gott. Þrátt fyrir stutta skólagöngu kenndi hann nokkmm nemendum undir stúdents- próf, þar má m.a. telja Þorbjörn Sig- urgeirsson eðlisfræðing, Erlend Björnsson bæjarfógeta og Martein Bjömsson verkfræðing og þannig mætti fleiri upp telja. Björn var óvenju fróður maður og óvíða var komið að tómum kofunum hjá hon- um. Vinsældir hans náðu langt út fyrir sveitina og sýsluna. Það kom fram í kjöri hans til Alþingis, þegar hann felldi kempuna Jón Pálmason á Akri, sem talið var að enginn gæti fellt. Þrátt fyrir allt voru þeir góðir vinir og tjáði Bjöm mér að sú vinátta næði út yfir gröf og dauða. Björn var trúaður maður, þó að hann bæri það ekki á torg. Hann trúði að vísu ekki öllu sem í Bibl- íunni stóð en hann hafði sannfærst með draumum sínum og miðilsfund- um að lífinu væri ekki lokið við dauð- ann. Hann var sannfærður um að vinir hans, Jón Pálmason og Pétur Benediktsson og fleiri, tækju hlýlega á móti honum á ókunnri strönd. Bjöm var mjög berdreyminn hin síð- ari ár, eftir að hann uppgötvaði að draumar hans rættust, og gat hann oft sagt fyrir um ókomna atburði. Núna era kaflaskipti. Úr okkar augsýn er horfinn afburðamaður. Dalurinn okkar sem hann unni svo mjög, sveitin okkar og öll þjóðin hefur nú á bak að sjá góðum syni og samborgara, sem lét svo margt gott af sér leiða. Hans skarð verður vandfyllt. Við þökkum forsjóninni fyrir hann og einnig fyrir að hann skyldi fá kvöld áður en hann þyrfti á enn meiri umönnun að halda. + Sonur okkar, bróðir og barnabarn, BALDURSNORRASON, lést í Landspítalanum 13. apríl. Jarðarförin hefur farið fram. Snorri Guðjónsson, Ingibjörg Sandholt, Sæunn Snorradóttir. Eiginmaður minn og faðir okkar, DANÍEL ÁGÚSTÍNUSSON, Háholti 7, Akranesi, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju miðvikudaginn 24. apríl kl. 14. Þeir sem vildu minnast hins látna láti líknarstofnanir njóta þess. Anna Erlendsdóttir, Erlendur Danfelsson, Ingileif Danfelsdóttir. BJÖRN PÁLSSON Við, sem eftir stöndum, vottum Ólöfu og öllum börnum þeirra hjóna, | barnabörnum, tengdabörnum og samferðafólki hans djúpa samúð um leið og við óskum honum velfarnaðar á æðri ævistigum. Skúli Jónasson. Nú er tengdafaðir minn Björn Pálsson farinn yfir landamærin miklu og mig langar til að minnast hans með örfáum orðum. Ég man vei er fundum okkar bar saman í fyrsta sinn. Ég varð þá strax vör við eiginleika hans, sem hann lýsir svo vel í ævisögu sinni, þar sem hann segir: „Ég varð snemma upp- vöðslusamur og stríðinn, stundum hrekkjóttur, en alltaf glaðlyndur.“ Ég var að vinna við afgreiðslu og hann vildi fá mig til að skipta hárri ávísun. Ég bað um persónu- skilríki og hann sagði: „Persónuskil- ríki! Hvurs lags pappír er nú það?“ Svo leit hann kankvís á mig og sjxurði: „Veistu ekki hver ég er?“ Ég vissi það ekki þá en nú veit ég það. Hann var litríkur og skemmtileg- ur maður sem gaman var að þekkja. Hann var orðinn sjötugur er ég tengdist fjölskyldunni en átti samt eftir að koma mörgu í verk. Mér fannst hann aldrei gamall maður enda starfsþrekið óbilandi, lífsgleðin mikil og frásagnargáfan leiftrandi. Þær vora skemmtilegar stundirnar í eldhúskróknum á Löngumýri þar sem setið var og spjallað fram á nótt. Gott var að ganga með honum að allri vinnu því þó hann væri stjórnsamur og teldi sig best vita hvernig vinna ætti verkið þá var hann óspar á hrósið fyrir vel unnið verk. Það var líka svo ríkt í fari hans að umgangast vinnumenn sem oft vora unglingar sem jafningja sína, ræða við þá um lífið og tilver- una og fljúgast á við þá í gamni. Enda komu þeir margir sumar eftir sumar í vinnumennsku til hans. Að leiðarlokum er mér efst í huga þakklæti fyrir góðar stundir og þær dýrmætu minningar sem ég á og veit að börnin mín eiga einnig um afa sinn. I ævisögu sinni segir hann: ....en lífinu lýkur ekki þegar við deyjum, það heldur áfram en með hvaða hætti get ég ekki fullyrt neitt um frekar en aðrir.“ En nú veit hann með hvaða hætti lífið heidur áfram og vonandi eru græn tún og grösugir hagar þar sem hann er núna því þá veit ég að hann unir sér vel. Aðalheiður. - ( i ( ( ( I I I I Það var einkennileg tilfínning sem helltist yfir mig þegar mér bárust þær fregnir að afi á Löngu- mýri væri dáinn. Hann hafði átt við veikindi að stríða og sífellt dró af honum. Ég átti samt sem áður erf- itt með að trúa því að hann hefði látið í minni pokann fyrir hinu ill- ræmda krabbameini. Á sinni löngu og afdrifaríku ævi atorkaði hann miklu og lét sjaldan undan. En að þessu sinni var hann bugaður af því eina vissa í þessum heimi. Ég var orðin sæmilega stálpuð þegar ég fór að kynnast honum afa mínum af einhveiju viti. Ég uppgöt- vaði strax að þama var á ferðinni sérkennilegur karl sem gaman var að spjalla við. Hann var afar fróður og hafði frá mörgu skemmtilegu að segja. Á daga hans hafði margt drifið og var hann óspar að segja frá fyndnum uppákomum á þinginu, erfiðum dögum í útgerðinni, mála- þrasi við hina og þessa og svo auð- vitað frá sínum æskuáram. Þessar stórskemmtilegu sögur hans náðu strax athygli lítillar telpu. Ég held að það sé nánast ómögu- legt að lýsa honum afa á Löngu- mýri öðravísi en að hann var ákaf- lega sérstakur maður á allan hátt. Hann hafði mjög ákveðnar skoðanir og var þeim sjaldnast hægt að breyta með tiltali. Hann var nánast aldrei aðgerðarlaus og kom miklu í verk á þessum rúmlega 90 áram sem hann lifði. Ég á margar góðar minningar um afa Bjöm. Eitt sinn ætlaði hann að gefa mér gullfallegan mórauðan gemling en gemlingurinn var ekki

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.