Morgunblaðið - 20.04.1996, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996 45
Frímerki — umslög
UMSLAG með fágætum kórónustimpli, SELJALAND, sem bjarg-
aðist frá Sorpu, nánast fyrir tiiviljun, og prýðir nú ágætt safn
íslenzkra frímerkja og stimpla.
FRIMERKl
í hvcrju c r
fágæti fólgiö?
HVERJU OG HVERNIG
SKALSAFNA?
I hvívetna skal hafa aðgæzlu.
EINHVERN tíma mun hafa verið
vikið að því í frímerkjaþætti, að
menn skyldu gæta þess, ef þeir rækj-
ust á gömul umslög með frímerkjum
á, að halda þeim til haga og láta
fróða menn Iíta á þau. Og alls ekki
má fjarlægja frímerki af gömlum
umslögum. Því miður hefur það allt
of oft átt sér stað, þegar verið er
, að taka til á gömlum heimilum, ekki
sízt í gömlum dánarbúum, að að-
standendur hafa ekki verið nógu
| varkárir í þessum efnum. Þá hefur
mörgu verðmæti verið rutt á haug-
ana - því miður. Jafnvel munu heil
bréfasöfn, sem varðveitt höfðu verið
í umslögum, orðið fyrir slíkum örlög-
um. Er aldrei of brýnt fyrir fólki að
fara hér að með fullri gát
Því miður hafa mörg óhöpp átt
sér stað í þessum efnum, og kunna
frímerkjakaupmenn að segja frá
1 slíkum „slysum" eða réttara sagt
i athugunarleysi fólks. Kaupmaður
I hér í bæ sagði mér eitt sinn frá
því, að kona hefði hringt til sín og
spurt, hvort hann keypti gömul frí-
merki. Hann játaði því og sagði
henni að koma og sýna sér þau.
Eftir nokkurn tíma kom hún til hans
og var þá með töluvert af mjög göml-
um frímerkjum eða frá því fyrir og
um síðustu aldamót. Voru þau öll á
svonefndum afklippingum eða snyfs-
um. Þegar kaupmaðurinn innti hana
nánar eftir, kom í ljós, að hún hafði
verið með umslögin með frímerkjum
á, þegar hún hafði samband við
kaupmanninn , en setzt niður eftir
símtalið og kiippt öll frímerkin af
umslögunum. Að sjálfsögðu brá
kaupmanninum mjög við þetta, því
að hann hafði ekki vitað um umslög-
in. Sagði hann konunni sem var, að
hér hefði hún gert mikil mistök og
um leið orðið fyrir miklu tjóni. Frí-
merkin stök og jafnvel á snyfsum
eru yfirleitt að verðmæti til einungis
brot af því, sem það væri ósnert á
umslagi.
Þessi saga er hér sögð til þess
að vekja lesendur þessara þátta til
umhugsunar um þessi efni. En það
er vissulega ekki sama, um hvers
konar umslög er að ræða. Fyrr á
árum var söfnun heilla umslaga ekki
mjög almenn meðal frímerkjasafn-
ara. Það hafði það í för með sér,
að flestir rifu frímerki af bréfum
sínum og settu þau niður í skúffu.
Síðan voru þau oftast leyst af papp-
írnum og þannig seld söfnurum.
Þetta var hin venjulega söfnunarað-
ferð. Af þessu leiðir vitaskuld, að
heil umslög með áiímdum frímerkj-
um frá fyrri árum eru tiltölulega
sjaldgæf, og því fágætari sem nær
dregur upphafi frímerkja hér á landi.
Sjaldséðust eru hin svonefndu skild-
ingaumslög, enda skildingafrímerki
einungis í notkun í tæp fjögur ár,
þ. e. frá ársbyrjun 1873 og tii 1.
ágúst 1876. Þá tóku við aurafrí-
merki í samræmi við myntbreytingu
hér á landi 1875, þegar teknar voru
upp krónur og aurar í stað ríkisdals
og skildinga. Þau frímerki voru síðan
í notkun til burðargjalds til ársins
1902. Umslög með þessum frímerkj-
um eru einnig tiltölulega sjaldgæf.
Nú er það svo, að söfnun umslaga
hefur aukizt mjög á síðustu árum
og áratugum, erida þykja þau orðin
nauðsynleg í söfnum, þar sem safn-
arar leggja æ meiri áherzlu á sjálfa
póstsöguna með söfnun sinni. Af því
hefur enn fremur leitt, að menn eru
farnir að safna öllum gerðum
stimpla, sem hafa verið notaðir til
ógildingar íslenzkra frímerkja á
póststöðvum landsins. Ekki ýtir það
síður undir þessa söfnun, að talið
er nauðsynlegt að hafa slíkt efni í
þeim frímerkjasöfnum, sem send eru
á sýningar, hvort sem er innan lands
eða utan. Þetta hefur svo orðið til
þess, að eftirspurn eftir umslögum
og stimplum hefur aukizt verulega
á síðustu áratugum. Um leið hefur
verð þessa efnis að sjálfsögðu hækk-
að og það til muná, enda framboð
eldri stimpla og umslaga oft miklu
minna en eftirspurnin. Hins vegar
verður að hafa í huga, að ásigkomu-
lag efnisins skiptir að sjálfsögðu
miklu máli. Því fallegra sem frímerk-
ið, umslagið og stimpillinn er, þeim
mun hærra eru safnarar búnir til
að greiða fyrir. Þetta er auðvitað
eðlilegt markaðslögmál.
Umræður og oft fréttir um hátt
verð margra stimpla og umslaga
hafa svo orðið til þess, að menn eru
í seinni tíð farnir að halda umslögum
sínum til haga í von um verulegan
hagnað síðar meir. Af því leiðir hins
vegar, að framboðið verður miklu
meira en eftirspurnin, og þá veldur
söluverðið oft vonbrigðum manna.
Hér skiptir því verulegu máli, að
bæði umslög og frímerki séu í góðu
ásigkomulagi, enda eru safnarar þá
búnir til að borga meira fyrir þessa
hluti. Þess vegna er sjálfsagt að rífa
frímerki af illa stimpluðum umslög-
um og jafnvel henda frímerkjunum
líka, ef stimpillinn er ljótur. Vandlát-
ir safnarar láta aldrei þess konar
hluti í söfn sín.
Jón Aðalsteinn Jónsson
Lýst eftir
kvikmynda-
leikurum
ISLENSKA kvikmyndasamsteypan
er um þessar mundir að kvikmynda
Djöflaeyjuna í leikstjórn Friðriks
Þórs Friðrikssonar, eftir bókum
Einars Kárasonar.
í fréttatilkynningu frá íslensku
kvikmyndasamsteypunni segir
m.a.: „Á sunnudaginn kemur, 21.
apríl, verður tekið upp stórt hópat-
riði sem á að gerast á gamla Mela-
vellinum. Atriðið verður tekið upp
á svæðinu milli Hótels Sögu og
Þjóðarbókhlöðunnar.
Íslenska kvikmyndasamsteypan
hvetur alla sem vettlingi geta vald-
ið til þess að mæta og hjálpa til
við að endurvekja gömlu Melavall-
arstemmninguna og taka þátt í
kannski fjölmennasta hópatriði í
íslenskri kvikmyndasögu. Þeir sem
hafa áhuga eru beðnir að mæta á
sunnudaginn kl. 13, helst í dökkum
fötum (t.d. frakka) og enn betra
er að hafa með sér höfuðfat (t.d.
slæðu/hatt). Upptaka mun standa
í um það bil 3 klst.
í þessu atriði er Hreggviður kúlu-
varpari að slá heimsmetið í kúlu-
varpi, þótt síðar komi reyndar í ljós
að hann hafi beitt brögðum."
Kræklingaferð
í Hvalfjörð
I ÁR er Utivist með ferðaröð með
nýju sniði, náttúrunytjaferðir. Ferð-
ir þessar snúast um nýtingu á auð-
lindum náttúrunnar jafnhliða Úti-
vist.
Farið verður mánaðarlega fram
í september og ýmsar nytjar teknar
fyrir. Fyrsta ferðin verður farin
sunnudaginn 21. apríl. Farið verður
frá Umferðarmiðstöðinni kl. 10.30.
Við upphaf ferðarinnar verður stutt
fræðsla um kræklinginn, lifnaðar-
hætti hans og nýtingu. Síðan verður
farið upp í Hvalsfjörð og krækling-
ar týndir.
Hið óvænta
í Ævintýra-
Kringlunni
ÞÝSKI brúðuleikhúsmaðurinn
Bernd Ogrodnik kemur í dag, laug-
ardag, kl. 14.30 í Ævintýra-Kringl-
una og sýnir Brúður, tónlist og hið
óvænta. Þetta er í annað sinn sem
Bemd kemur í heimsókn, en har.n
starfar núna í New York og hefur
vakið mikla athygli fyrir brúðuleik-
hús sitt.
Sýningin hefst eins og fyrr segir
kl. 14.30 og er miðaverð 500 kr.
óg er þá barnagæsla innifalin.
Ævintýra-Kringlan er á 3. hæð í
Kringlunni og er opið frá kl.
14-18.30 virka daga og á laugar-
dögum er opið frá kl. 10-16.
Minjaganga
í Elliðaárdal
GENGINN verður annar hluti af
átta sunnudaginn 21. apríl kl. 13 í
nýrri raðgöngu Ferðafélags íslands,
minjagöngunni, er hófst í Laugar-
nesi fyrir viku. Mæting er við fé-
lagsheimili og skrifstofu FÍ, Mörk-
inni 6 (austast við Suðurlandsbraut-
ina), og gengið um Sogamýri í Ell-
iðaárdal í fylgd Bjama Einarssonar
fornleifafræðings sem sérstaklega
hefur rannsakað minjar í borgar-
landinu.
Bjarni mun segja frá rnerkum
minjum í Elliðaárdal frá tímum Inn-
réttinga Skúla Magnússonar. Geng-
ið verður áfram að efri Elliðaárbrú
og er rútuferð þaðan til baka um
kl. 16. Þetta er fróðleg ferð fyrir
alla aldurshópa. Þátttökuspjald í
minjagöngunni gildir sem happ-
drættismiði. Verð er 300 kr. og
ókeypis fyrir börn 15 ára óg yngri.
Síðasti áfangi raðgöngunnar verður
23. júní.
Kór ML
í Eyjum
KÓR Menntaskólans að Laugar-
vatni efnir til tónleika í safnaðar-
heimilinu í Vestmannaeyjum í dag,
laugardag, klukkan 18. Flutt verða
lög eftir innlenda og erlenda höf-
unda, blanda af sígildri og léttri
tónlist.
FÉLAGSLÍF
Verundarlindin
Heildræn ráðgjöf og meðferð.
Sími 562-3364.
FERÐAFÉLAG
# ÍSLANDS
MORKINNI6 - SlMI 568-2533
Sunnudagur 21. apríl
Kl. 13.00 Minjaganga í
Elliðaárdal
Gengin veröur annar hluti af 8 í
nýrri raögöngu Ferðafélagsins,
Minjagöngunni. Mæting viö fé-
lagsheimili og skrifstofu F.Í.,
Mörkinni 6 (austast við Suður-
landsbrautina) og gengið um
Sogamýri í Elliðaárdal í fylgd
Bjarna Einarssonar fornleifa-
fræðings sem sérstaklega hefur
rannsakaö minjar í borgarland-
inu. Hann mun segja frá merkum
minjum í Elliðaárdal frá tímum
Innréttinga Skúla Magnússonar.
Gengið verður áfram að efri Ell-
iðaárbrú og er rútuferð þaðan
til baka um kl. 16.00. Þetta er
fróðleg ferð fyrir alla aldurshópa.
Veriö með í öllum áföngunum.
Þátttökuspjald gildir sem happ-
drættismiði. Verð 300 kr., fritt
f. börn 15 ára og yngri.
Kl. 10.30 Skíðaganga f Bláfjöll-
um. Fararstjóri: Páll Ólafsson.
Brottför í ferðina er frá BSI, aust-
anmegin og Mörkinni 6. Verð
1.200 kr.
Feröafélag íslands.
KRISTIÐ SAMFÉLAG
Dalvegi 24, Kópavogi
Almenn samkoma í dag kl. 14 í
umsjón unglinga.
Allir eru hjartanlega velkomnir.
Aðalfundur MG-félags
Islands
MG-félag íslands heldur aðal-
fund laugardaginn 27. apríl 1996
kl. 14.00 aö Hátúni 10, Reykja-
vík, í kaffisal ÖBI.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Eiríkur Örn Arnarson, sál-
fræðingur flytur erindi.
MG-félag íslands er félag sjúkl-
inga með Myasthenia Gravis
(vöðvaslensfár) sjúkdóminn svo
og þeirra sem vilja leggja mál-
efninu lið.
Stjórnin.
í* J|
■■
ilifJ
Dagsferð sunnud. 21. apríl
Kl. 10.30 Ný ferðaröð: Nytja-
ferð, 1. áfangi, kræklingar tindir
i Hvalfiröi. Tilvalin fjölskylduferð
með fróðleik og skemmtun. Verð
1.500/1.300 og frítt fyrir börn.
Útivist.
Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson
SVIPMYND frá Bridsfélaginu Muninn í Sandgerði en þar stendur
sem hæst níu sveita keppni. Talið frá vinstri: Ævar Jónasson,
Guðjón Svavar Jensen, Björn Dúason og Randver Ragnarsson.
________Rrids___________
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Sveit Jóhannesar Sigurðssonar
félagsmeistari á Suðurnesjum
SPARISJÓÐSMÓTINU, sem er
aðalsveitakeppni Bridsfélags
Suðurnesja, lauk sl. mánudagskvöld
með sigri sveitar Jóhannesar Sig-
urðssonar. Sveitin hafði unnið alla
leiki sína í mótinu þar til sl. mánu-
dag að þeir töpuðu 10-20 fyrir sveit
Guðfinns KE, sem endaði í öðru
sæti. í sigursveitinni spiluðu auk
Jóhannesar, Gísli Torfason, Karl
Hermannsson og Arnór Ragnars-
son. í silfurliðinu spiluðu Karl Ein-
arsson, Karl G. Karlsson, Kjartan
Ólason, Óli Þór Kjartansson og
Gunnar Andrésson.
Lokastaða efstu sveita:
Jóhannes Sigurðsson 287
GuðfínnurKE 274
Gunnar Guðbjörnsson 231
Slökkviliðið Keflavíkurflugv. 218
Sigurjón Jónsson 215
Næsta mót félagsins verður að-
altvímenningur vetrarins, baromet-
er, með forgefnum spilum. Spilað
verður í fjögur kvöld og spilafjöldi
milli para ræðst af þátttöku. Keppn-
isstjóri verður ísleifur Gíslason.
Spilað er í nýjum spilasal félagsins
á Mánagrund. Skráning er á staðn-
um en lokað verður kl. 19.45.
Bridsfélag Hafnarfjarðar
Mánudaginn 15. apríl var spilað
fyrsta kvöldið af 3 í minningarmóti
félagsins um Stefán Pálsson. 16 pör
spila barómeter tvímenning og staðan
eftir 5 umferðir er:
Ragnar Hjálmarsson - Jón Haraldsson +60
Dröfn Guðmundsdóttir - Ásgeir Ásbjömsson +30
Erla Sigurjónsdóttir - Hulda Hjálmarsdóttir +21
BjömAmarson-GuðlaugurEUertsson +16
Guðlaugur Sveinsson - Pétur Sigurðsson +12
Bridsfélag SÁÁ
Þriðjudaginn 16. apríl var spilaður
eins kvölds tölvureiknaður Mitchell
með forgefnum spilum. 22 pör spiluðu
9 umferðir með 3 spilum á milli para.
Meðalskor var 216 og bestum árangri
náðu:
N-S:
Gunnlaugur Sævarsson - Sverrir Ólafsson 264
Jón ViðarJónmundsson - Agnar Kristinsson 246
Ormarr Snæbjömsson - Þorsteinn Karlsson "237
SigurðurJónsson-Georgísaksson 232
A-V:
Bjami Bjamason - Guðmundur Þórðarson 258
Unnstónn Jónsson - Siguijón Siggeirsson 237
ReynirGrétarsson-HákonStefánsson 234
Bergljót Aðalsteinsd. - Björgvin Kjartansson 232
Bridsfélag _SÁÁ spilar öll þriðju-
dagskvöld í Úlfaldanum að Ármúla
17A og byijar spilamennska kl. 19.30.
Spilaðir eru einskvölds tölvureiknaðir
Mitchell tvímenningar. Allir spilarar
eru velkomnir. Keppnisstjóri er Sveinn
R. Eiríksson.
Bridsfélag Reykjavíkur
Miðvikudaginn 17. apríl var spilað
2. kvöldið af 3 í Board a Match sveita-
keppni félagsins. Spilaðir eru 9 spila
leikir, 3 hvert kvöld. Staða efstu sveita
eftir 6 umferðir:
HIK 68 stig
Hjólbarðahöllin 64
VIB 64
Krækill 62
Brynjar Valdimarsson 62
Tralli 60
Rúnar Einarsson 58