Morgunblaðið - 20.04.1996, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996 47
■ KARL-
HEINZ Schu-
macher heldur
guðsþjónustu
nk. sunnudag kl.
10.30. í kirlq'u-
sal Nýju
postulakirkj-
unnar á ís-
landi, Armúla
23. Hann var vígður sem postuli
af höfuðpostula Nýju postulakirkj-
unnar í nóvember 1992 en fyrir
þann tíma hafði hann komið nokkr-
um sinnum hingað sem biskup í
kirkjunni. Guðsþjónustan verður
þýdd jafnóðum.
Opel Vectra
sýndur
BÍLHEIMAR hf. kynna nýjan Opel
Vectra á bílasýningu á laugardag
og sunnudag frá 14-17. Opel Vectra
2.0 er búinn ABS hemlalæsivörn,
tveimur líknarbelgjum, spyrnustýr-
ingu, spólvörn og þeirri nýjung að
þegar bíllinn er í kyrrstöðu fer sjálf-
skiptingin sjálfkrafa í hlutlausan
gír. Af öðrum öryggisbúnaði má
nefna tvöfalda hliðarárekstrarvörn,
bílbeltastrekkjara og fetilvörn en
hún er nýjung sem Opel hefur einka-
leyfi fyrir. Opel Vectra er fáanleg
með 1,8 og 2,0 lítra, 16 ventla bens-
ínvélum og dísilvél með forþjöppu.
Bíllinn kostar frá 1.950.000 kr.
120 kettir í
Perlunni
KATTASÝNING verður í Perlunni í
dag og á morgun. Sýningin verður
opin almenningi frá kl. 10-18 báða
daga. Um það bii 120 kettir keppa.
Aðgangseyrir er 400 kr. og 200 kr.
fyrir börn, aldraða og öryrkja.
A sýningunni verða allar tegundir
hreinræktaðra katta hér á landi
ásamt íslenskum húsköttum. Teg-
undirnar eru: Abyssinian, Balinese,
Exotic, Norskir skógarkettir, Persar,
Sómalí, Símas og Oriental.
♦ ♦ «-----
■ VORATSKÁK Taflfélagsins
Hellis verður 22. og 29. apríl kl. 20
í Menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi. Tefldar verða 6 umferðir
eftir Monrad-kerfi með 25 min-
útna umhugsunartíma. Þátttöku-
gjald er 400 kr. fyrir félagsmenn
og 600 kr. fyrir aðra. Unglingar
15 ára og yngri frá 50% afslátt.
■ BÓKÍS, notendafélag bóka-
safnskerfisins Fengs, heldur ráð-
stefnu 24. apríl í Menningarmið-
stöðinni í Gerðubergi. Fyrir há-
degi verða haldnir fyrirlestrar um
málefni Fengs s.s. þróun, samstarf
og millisafnalán. Eftir hádegi verða
fyrirlestrar um stefnu menntamála-
ráðuneytisins í upplýsingamálum,
notkun internetsins í bókasöfnum,
samstarf við Evrópubandalagið og
margmiðlun á bókasöfnun. Fyrirles-
arar verða m.a. Björn Bjarnason
menntamálaráðherra, Manfred
Michael sérfræðingur kerfísins frá
ELiAS í Leuven, Belgíu auk bóka-
safnsfræðinga, kennara og tölvu-
fræðinga. í tengslum við ráðstefn-
una verður haldin sýning í Borgar-
bókasafninu í Gerðubergi. Meðal
þess sem sýnt verður eru bækur,
myndbönd, geisladiskar, margmiðl-
unarefni, kennsluforrit, tölvur og
annar tölvubúnaður fyrir bókasöfn.
Ráðstefnan er frá 9-16.30 og er
ókeypis og öllum opin meðan hús-
rúm leyfir. Þátttöku þarf að til-
kynna í síma 569-5100.
Heimsklúbbur Ingólfs
kynnir Ferð ársins
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá Heimsklúbbi Ing-
ólfs:
„Heimsklúbbur Ingólfs hefur sér-
skipulagt ferðalög í allar álfur
heimsins og umhverfis hnöttinn á
undanförnum árum og með því
gefið fólki kost á að sjá mörg af
undrum heimsins, sem flesta ferða-
menn dreymir um að sjá. í áætlun
Heimsklúbbsins og Ferðaskrifstof-
unnar Príma hf. fyrir árið 1996 eru
sex mismunandi ferðáætlanir á eft-
irsótta staði.
Nýja leiðin í ár liggur til Austur-
landa undir nafninu: Töfrar 1001
nætur og verður hún sérstaklega
kynnt á Hótel Sögu á morgun,
sunnudaginn 21. apríl kl. 4 síðdegis
í þingsal A. Þar mun Ingólfur Guð-
brandsson forstjóri m.a. segja frá
Burma (nú Myanmar), sem til
skamms tíma var land lokað ferða-
mönnum og geymir fyrir bragðið
ótrúlega fegurð, sögu og menningu
óspillta af nútímanum, sem fyrst
og fremst birtist í íburðarmestu
musterisbyggingum heimsins og
sérkennilegum þjóðháttum. Við-
mótsþýðara og kucteisara fólk fyrir-
finnst varla en í Burma. Dvalist
verður í óvenjulegu og ævintýralegu
umhverfi við Kóngsvatn í höfuð-
borginni Rangoon (Yangon) þar
sem logagylltir turnar musteranna
speglast í vatninu, en búið verður
í nýju hallarhóteli á vatnsbakkan-
um, Kandawgyi Palace. í Mand-
alay, sem var höfuðborg Burma,
þegar Bretar lögðu hana undir sig
árið 1885 og þykir sérstæðust af
öllum borgum landsins, verður búið
á nýju Holiday Inn, á fegursta stað
undir Mandalay Hill, þar sem eitt
frægasta musterið trónar á fjalls-
toppnum.
I fyrsta sinn er eyjan Phuket
undan vesturströnd Tælands meðal
áfangastaða í heimsreisu, en hún
er rómuð fyrir náttúrutöfra lands
og sjávar og þykir ein fegursta
eyja heimsins, enda er hún nú með-
al vinsælustu staða í Austurlöndum.
Þar verður gist í átta daga við bestu
aðstæður á heimsfrægu hóteli, Phu-
ket Yacht Club, sem er í eigu Mand-
arín-hótelhringsins.
í ferðinni Töfrar 1001 nætur
verður að lokum dvalist þrjá daga
í enn öðrum menningarheimi, í
smáríkinu Bahrein í Persaflóa, sem
er afar forvitnilegt. Þar ríkir mikil
velmegun og höfuðborgin Manama
minnir mest á smækkaða Singapore
og telur m.a. sér til ágætis bestu
fríhöfn í heimi. Gist verður á nýju
glæsihóteli við strönd Persaflóans,
Le Royal Meridien. Ferðin stendur
í þrjár vikur og verður Ingólfur
Guðbrandsson sjálfur aðalfarar-
stjóri. Aðgangur að kynningunni
og myndasýningu er ókeypis, með-
an húsrúm leyfir."
Grafið fyrir gangamunnum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
FRAMKVÆMDIR við að grafa arins eru hafnar fyrir nokkru,
niður að gangamunna Hval- en verulegt magn af jarðvegi
fjarðarganga beggja vegna fjarð- þarf að fjarlægja áður en þama
verða steyptir upp vegskálar.
Aætlað er að komið verði niður
á lóðréttan hamravegg nálægt
mánaðamótunum maí-júní og
verður þá byijað að sprengja
fyrir göngunum sjálfum.
Arni Sigfússon borgarfulitrúi D-listans
Fyrirhugað húsnæði
Fræðslumiðstöðvar of lítið?
SJÁLFSTÆÐISMENN í Borgar-
stjórn héldu því fram í umræðum
þar sl. fimmtudagskvöld að upp-
sagnir allra starfsmanna Skóla-
skrifstofu Reykjavíkur hefðu verið
ólögmætar. Því hefðu þeir farið
fram á það í Borgarráði 2. apríl
sl. að borgarlögmaður skilaði um-
sögn um þær. Á fimmtudag hefðu
hins vegar fengist þær upplýsingar
frá borgarlögmanni að beiðnin
hefði ekki borist inn á borð til
hans. Ámi Sigfússon oddviti D-list-
ans spurði hvernig á þvi stæði.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri sagði ástæðuna vera
ósköp einfalda. „í þessu tilviki,"
sagði hún, „er borgarlögmaður
enginn óvilhallur þriðji aðili, sem
er til þess bær að gefa lögfræði-
lega umsögn óháð þeim borgaryf-
ii-völdum, sem hann vinnur fyrir.“
Ástæðuna fyrir því sagði hún
kannski ekki síst vera þá að borg-
arlögmaður hefði setið fund, þar
sem fjallað var um uppsagnirnar
og hvernig að þeim skyldi staðið.
Of lítið pláss í Miðbæjarskóla?
Uppsagnir starfsmanna Skóla-
skrifstofu komu til, vegna þess að
ný stofnun, Fræðslumiðstöð, á
m.a. að taka yfir starf Skólaskrif-
stofunnar þegar grunnskólinn
verður fluttur til sveitarfélaga í
haust. Nú hefur verið gefin út yfir-
lýsing um að þeir verði allir ráðnir
aftur á sömu kjörum til Fræðslu-
miðstöðvarinnar.
Árni Sigfússon sagði að upp
kæmi ákveðinn vandi, sem tengd-
ist Ijölda þeirra, sem hefja ættu
störf á Fræðslumiðstöðinni.
„Samkvæmt þeirri talningu [á
fjölda starfsmanna], sem hefur
verið kynnt í Skólamálaráði, þá
er ekki pláss fyrir alla starfsmenn-
ina í því húsnæði, sem ætlað er
undir Fræðslumiðstöð í Miðbæjar-
skólanum,“ sagði hann og bætti
við að þetta hlyti að vera enn ein
ástæðan til að endurskoða það að
gera úr Miðbæjarskólanum skrif-
stofur.
Sigrún Magnúsdóttir formaður
Skólamálaráðs og oddviti R-listans
í Borgarstjórn sagði að fullkom-
lega eðlilega hefði verið staðið að
öllu varðandi uppsagnir. „Varðandi
það að húsnæðið sé of lítið: ég
veit ekki hvaðan hann [Árni] fær
þær hugmyndir,“ sagði hún. „Eins
og við höfum sett tillögumar fram,
þá mótast þær af því að sameina
Skólaskrifstofu og Fræðsluskrif-
stofu og tekið er mið af þeim
starfsmannafjölda, sem er á þess-
um skrifstofum báðum.“ Sagði hún
að fimm starfsmenn yrðu eftir í
Lindargötu, þar sem Skólaskrif-
stofan er núna og eins myndu
starfsmenn fara til starfa í hverfa-
miðstöð í Grafarvogi, sem yrði til-
raunaverkefni.
Dýpst í árinni þetta kvöld tók
Gunnar Jóhann Birgisson borgar-
fulltrúi D-listans. „I upphafi var
full sátt um stofnun Fræðslumið-
stöðvarinnar en með framferði sínu
tel ég að meirihlutinn hafi grafið
undan því trausti, sem honum var
sýnt í þessu máli,“ sagði Gunnar
og bætti síðar við: „Meirihlutinn
hefur að mínu mati af einkennilegu
pólitísku ofstæki gert allt til þess
að bola starfsfólki skólaskrifstofu
burt, aftengja yfirmenn stofnunar-
innar eins og það er kallað á sama
tíma og pólitískum jábræðrum og
systrum er raðað á garðana skv.
nýju skipuriti R-listastjórnsýslunn-
ar.“
-----------------
Þingeyrar-
prestakall laust
BISKUP íslands hefur auglýst
Þingeyrarprestakall í ísafjarðar-
prófastsdæmi laust til umsóknar
og rennur umsóknarfresturinn út
10. maí nk.
Fimm sóknir eru í prestakallinu:
Hrafnseyrar-, Þingeyrar-, Mýra-,
Núps- og Sæbólssóknir. Sr. Krist-
inn Jens Sigurþórsson sóknar-
prestur hefur fengið veitingu fyrir
Saurbæ á Hvalfjarðarströnd.
Spordeguf og spennandi
-ogumleið rúmgóðurogþægilegur5maíinabíll!
Verð aðeins
kr. 1.317.ooo
OPIÐ FRÁ KL. 9-18, IAUGARDAGA 12-16
HF
SKÚLAGÖTU 59 - SÍMI 561 9550