Morgunblaðið - 20.04.1996, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 20. APRÍL 1996 49
BRÉF TIL BLAÐSINS
„Þau eru súr!“
sagði refurinn
Frá Gunnhildi Jónsdóttur:
í SÍÐASTA sunnudagsblaði Morg-
unblaðsins var þriggja blaðsíðna
viðtal við hæstvirtan forsætisráð-
herra, þar sem hann upplýsti þjóð-
ina um hvers vegna hann sjálfur,
hinn svo gott sem sjálfkjörni fram-
tíðarforseti, ætlaði ekki, þrátt fyrir
alla sína ótvíræðu hæfileika, að
bjóða sig fram í næstu forsetakosn-
ingum. Ástæðuna kvað hann vera
þá að hann væri ómissandi í stöðu
forsætisráðherra og sem formaður
Sjálfstæðisflokksins, að minnsta
kosti „um stundarsakir".
Davíð Oddsson hefur hingað til
ekki verið talinn til sérlega hæver-
skra eða lítillátra manna. Því fékk
þjóðin að kynnast á meðan hann
var borgarstjóri og lék með innlifun
hlutverkið „Palli var einn í heimin-
um“. Því fékk þjóðin líka að kynn-
ast þegar hann ýtti Þorsteini Páls-
syni út í horn í formannsslagnum
fræga fyrir 5 árum, til að komast
sjálfur að sem formaður og forsæt-
isráðherra. Það var ekki svo mikið
púður í að vera bara borgarstjóri
lengur þegar hann eygði möguleika
á einhverju ennþá meira og betra.
Með kænsku og klókindum tókst
honum ætlunarverk sitt. Hæverska
Þorsteins Pálssonar mátti sín ekki
mikils í hinni heiftarlegu og
hatrömmu valdabaráttu sem þar fór
fram. Síðan þá hefur hann mis-
kunnarlaust notað stimpilinn á
fiokksbræður sína. Gæðastimpill-
inn, sem flokkar menn í hlýðna og
óhlýðna, vonda og góða og gefur
jafnvel fyrirheit um bitlinga og
bjarta framtíð. Aðeins þeir yngstu
og reynslulausustu eins og Ingi
Björn Albertsson, eða þeir elstu sem
fyrir löngu voru hættir að klifra í
metorðastiganum eins og Matthías
Bjarnason, voguðu sér að hoppa af
lestinni og tala opinskátt á móti
formanninum. Hin fullkomna
gæðastjórnun hafði hafið innreið
sína í Sjálfstæðisflokkinn og virkaði
eins og henni var ætlað. Hljóðlátir
stuðningsmenn Þorsteins Pálssonar
þögnuðu alveg. Það borgar sig eng-
an veginn að halda með tapliðinu,
það vita jú allir.
Og nú hefur þjóðin upplifað hinn
fullkomna gæðastjórnanda og alla
hans ótvíræðu hæfileika í 5 ár.
Aldrei hefur hann sjálfur efast um
eigið ágæti eða reynt að þegja um
það. En skyldi hann vera ánægður
með hlutskipti sitt? Getur verið að
hann hafi langað í aðeins pínulítið
meira? Það er nú ekki svo mikið
púður í að vera bara forsætisráð-
herra þegar maður eygir möguleika
á að geta orðið forseti! Ja, það
mátti nú reyna!
Þegar Davíð Oddsson lagðist und-
ir feld fýrir um það bil 2 mánuðum
til þess að kanna möguleika sína til
forsetaframboðs, fékk hann í stuttu
máli sagt ekki þær undirtektir sem
hann hafði vænst. Hans eigin flokks-
menn voru tvístígandi, og skoðanak-
annanir sýndu það hreint út að þjóð-
in vildi ekki sjá hann í þessu emb-
ætti. Og þá var Bleik brugðið! Hva!
Ekkert lófaklapp? Enginn stuðning-
ur framyfir þá sem þegar höfðu
geyst fram á völlinn? Hvaða ómerki-
lega fólk var þetta sem var að troða
sér fram fyrir hann? Jú, einn ómerki-
legur allaballi, einn ómerkilegur
nuddari og tvær ómerkilegar konur.
í ofanálag var svo önnur ómerkilega
konan það ótrúlega ómerkileg, að
hún hafði stuðningsyfirlýsingu frá
Þorsteini Pálssyni upp á vasann, sem
sýndi bara það að hún hafði aldrei
fengið einn einasta gæðastimpil frá
sínum eigin flokksformanni! Og til
að kóróna allt hafði hún líka verið
á móti ráðhúsinu, hans eigin ráð-
húsi. Nei, nú var Davíð Oddssyni
ofboðið og hann tók til sinna ráða.
Ekkert minna en þriggja síðna
einkaviðtal í Mogganum um eigið
ágæti og annarra ómerkilegheit
dugði til. Og nú voru stóru orðin
notuð:
Eiginlega hafði hann aldrei lang-
að neitt sérstaklega í þetta emb-
ætti. Þetta var nú hálfpartinn
ómerkilegt og óþarft embætti og
þessir frambjóðendur höfðu byggt
á kolvitlausum forsendum þegar
þeir töluðu í fávisku sinni um stöðu
og valdsvið forseta og væru með
flónshætti sínum að ýta undir þau
sjónarmið að embættið væri óþarft.
Áð forseti gæti krafist þjóðarat-
kvæðagreiðslu í einhverjum málum?
Nei, af -og frá, það væri stríðsyfir-
lýsing við þingið og lýðræðið í land-
inu. Nei, þetta væri algerlega valda-
laust embætti en þyrfti þó í það
mann með stjórnmálareynslu. Já,
stjórnmálareynsla væri nauðsynleg
fyrir forsetaefni því stórnmálamað-
ur hefði þá reynslu sem býr að
baki stjórnmálastarfseminni sem
gæti gagnast honum í fosetaemb-
ættinu. Ekkert fýrir þá sem höfðu
ekki annað sér til ágætis en að
hafa verið á móti húsum! í hans
huga væri forsetaembættið fyrst
og fremst öryggisventill þjóðarinn-
ar! Og eiginlega alveg óþarfí að
hafa almennar kosningar til svona
valdalauss embættis!...
Hvemig getur það gerst að for-
sætisráðhera landsins skuli leyfa sér
að bjóða heilvita fólki upp á annan
eins dónaskap og virðingarleysi
gagnvart embætti forseta íslands
eins og við höfum nú séð? Og hvem-
ig dettur honum í hug að bjóða fólki
upp á annað eins fádæma bull sem
stangast svo gjörsamlega á hvað við
annað, að engu er líkara en að hon-
um hafi ekki verið alveg sjálfrátt
þegar viðtalið var tekið. Er virkilega
hægt að tala svona í mótsögn við
sjálfan sig og ætlast til að fólk bara
meðtaki það? Er hægt að dásama
þingræði og lýðræði í öðra orðinu
en slá því svo fram að lýðræðislegar
kosningar til forseta íslands séu
óþarfar? Þetta sé valdalaust og
ómerkilegt embætti en að það sé
samt í eðli sínu pólitískt og í það
þurfi menn með mikla reynslu af
stjómmálum? í öðra orðinu öryggis-
ventill þjóðarinnar en í hinu orðinu
óþarft! Og er hægt að slá þvi fram
bara sisona, að einn forsetafram-
bjóðandi hafi ekki annað sér til
ágætis en að hafa verið á móti hús-
um? Einfaldlega af því að sú mann-
eskja er honum sjálfum ekki þóknan-
leg? Ég vil leyfa mér að segja að
svona hrokafullar yfirlýsignar era
engum til sóma og síst af öllu for-
sætisráðherra landsins.
Sá sem aldrei þreytist á að tala
um eigið ágæti og hampar sjálfum
sér í þriggja síðan lofgjörðargrein
í stærsta blaði landsins, verður líka
að kunna að meta annarra verðleika
og þora að viðurkenna þá. Sá sem
lofsyngur frjálsa samkeppni í orði,
verður líka að lúta henni á borði.
Það vill svo til að mér er vel kunn-
ugt um mannkosti Guðrúnar Pét-
ursdóttur og ég veit að þeir eru
mun fleiri en „að hafa verið á móti
húsum!“ Menntun hennar, fram-
koma og fas, einlægni hennar og
allur trúverðugleiki þolir fullkom-
lega samanburð við þann sem hér
um ræðir og gott betur. Það skyldi
þó aldrei vera að hann hafi sjálfur
haft lúmskan gran um þá stað-
reynd, og þess vegna dregið sig til
baka í slagnum um embætti forseta
Islands? Eða voru berin virkilega
svona súr? Það væri nú satt að segja
gaman að vita!
GUNNHILDUR JÓNSDÓTTIR,
Hraunbæ 18, Reykjavík.
ákveðið aö lengja CHA*CHA
dagana fram á laugardag 20/4.
verslanir í Evrópu
hafa fengið nýtt
nafn, CHA # CHA jj
en CHA # CHA er vinsælasta
og mest selda vöru
verslananna.
I tilefni af nafnbreytingunni
bjóðum við nú 20% afslátt
af öllum CHAXCHA vörum.
/\ð auki eiga allir viðskiptavinir sem versla fyrir
kr. 1.500,- eða meira kost á að komast í CHA*k-CHA
pottinn þar sem dregið verður um þrjár fataúttektir.
1. Aðalvinningur:
30.000, - krðna fatáiíttékt
2. -3- Aukavinningar:
10.000 króna fataúuekt
CHA^fCHA • Borgarkringlunni • Sími 588 4848
:
IÐNSKÓLINN í HAFNARFIRÐI
Reykjavíkurvegi 74 og Flatahrauni
220 Hafnarfirði
Sími 555 1490 Fax 565 1494
Opið hús
Opið hús verður í verkdeildarhúsinu að
Flatahrauni laugardaginn 20. apríl kl. 13-17.
Kynning verður á starfsemi og
námsbrautum skólans, hár-, málm-,
raf- og tréiðnum ásamt hönnun.
Komið og kynnið ykkur verkmenntir
í Hafnarfirði.
Athugið: Kynningin fer öll fram að Flatahrauni
en ekki að Reykjavíkurvegi 74.
Verið velkomin.
Iðnskólinn í Hafnarfirði.
„Ahorí'endur risu á iœtur og lóiatakinu
œtlaái alárei aá linna, i>aá vará ljóst
aá þaá yrái engin keppni tim
Gullpólntann, hann iœri til Emir
Kusturica.“
„i!i Pellini heí'ái gert mynd um stríá
hefái hún líkst lleáanjaráar. Töirum
líkust svört kómidía, sannkallaáur
sirkus iyrir áhoriendur.“
„Máttug sinxónla gegn grœdgi, svikum og
stríái, seiámagnad ilœáiverk, vel vaiid
í kostulegum uppókomum.“
„Emir Kusturica skipar sér í iremstu
röá meá þessu stórkostlega myndrœna
meistaraverki. Keáanjaráar markar
þáttaskil í nútímakvikmyndum, nœr ad
draga fram xegurdina í miájixm
NE ÐÁXJ J ÁH DÁR
MYND EDTIR EMIR KUSTURICa
Sigurvegari
Camies 1995
CANNES
FILM
FESTIVAL
eru 1 ekkert 1 slor:
f
f
I
- kjarni málsins!
Eitt blab
fyrir alla!