Morgunblaðið - 20.04.1996, Page 60

Morgunblaðið - 20.04.1996, Page 60
MORGUNBLADID, KRINGLAN I, 103 REYKJA VÍK, SÍMI 569 1100, SlMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL^CENTRVMAS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 LAUGARDAGUR 20. APRÍL1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Bensín- verð hækk- ar um 1-2 krónur OLÍUFÉLAGIÐ OLÍS ákvað í gær að hækka verð á 95 og 98 oktana bensíni um tvær krónur á hvern lítra. Þá hyggst Skeljungur hækka bensínverðið um 1-2 krónur um helgina. Kristinn Björnsson, forstjóri Skeljungs, segir ástæðu þessarar hækkunar vera þá að eldsneytis- verð hafí hækkað á heimsmarkaði frá seinustu mánaðamótum, eða úr 180 dollurum í 230 dollara fatið. „Við erum ekki að sækjast eftir hærri álagningu, aðeins að fylgja markaðinum og munum reyna að halda niðri hækkunum á gasolíu," segir hann. Of lítil hækkun Einar Benediktsson, forstjóri Olís, segir að hækkunin sé í raun of lítil miðað við undangengna þró- un, en menn hafi ákveðið að taka þetta skref í þeirri von að heims- markaðsverð lækki innan skamms til að jafnvægi náist. Farmur af eldsneyti hafí komið til landsins í seinustu viku og annar sé væntan- legur í dag. Seinasta hækkun olíu- félaganna á bensíni var skömmu fyrir páska. Gunnar Skaptason, fram- kvæmdastjóri Bensínorkunnar hf., segir að til athugunar sé að breyta verði á bensíni hjá fyrirtækinu, og sé hægt að hækka það með litlum fyrirvara. Hann segir að fylgst sé grannt með sveiflum á bensínverði á heimsmarkaði, en engin ákvörðun hafi verið tekin um verðbreytingar enn sem komið er. Meint brot á siglingareglum á Rey kj aneshry gg Haft verð- ur sam- band við rússnesk stjómvöld HALLDÓR Ásgrímsson utan- ríkisráðherra segir að utan- ríkisráðuneytið muni hafa samband við rússnesk stjóm- völd vegna ásakana íslenzkra skipstjórnarmanna á hendur skipstjóra rússneskra togara á Reykjaneshrygg. Rússarnir eru sagðir hafa brotið sigl- ingareglur og togað yfir veið- arfæri íslenzkra skipa, þann- ig að þau hafi skemmzt. „Við höfum farið yfir þetta mál og við munum óska eftir því við Rússana að þeir beiti sér fyrir því að svona komi ekki fyrir. Ég tel þetta vera mjög alvarlegt mál og trúi að rússnesk stjórnvöld vilji vinna að því að svona um- gangist menn hvorki fiskimið né reglur á höfum úti,“ segir Halldór. Morgunblaðið/Ásdís Styttist í sumarkomu ÞAÐ er ekki að furða þótt leikir ungviðisins verði ærslafullir í þeirri vorblíðu, sem ríkt hefur í höfuðborginni undanfarið. Sum- ardagurinn fyrsti er líka skammt undan, svo ástæða er til að æfa sig aðeins fyrir langa sumardaga, .þegar leikið er úti fram á kvöld. Ný stöð sækir um sex rásir NÝTT fyrirtæki, Bíórásin hf., sem mikið til er í eigu sömu aðila og Islenska sjónvarpið hf., sem rekur Stöð 3, var stofnað í gær og sótti samdægurs um útvarpsleyfi til útvarpsréttarnefndar. Sótt er um sex örbylgjurásir til að endurvarpa erlendu sjónvarpsefni, fjórar til lengri tíma og tvær til bráðabirgða. Ráðgert er að hin nýja sjónvarpsstöð hefji útsendingar ekki síðar en 1. júlí næstkomandi. Guðmundur Hannesson hefur verið ráðinn útvarpsstjóri hins Guðmundur sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að sótt hefði verið um fjórar rásir til lengri tíma og tvær rásir til bráðabirgða. Fyrir- hugað sé að endurvarpa beint er- lendu sjónvarpsefni og stefnt að því að útsendingarnar hefjist ekki síðar en 1. júlí næstkomandi. Hann sagði að þegar væru hafnir samningar um útsendingamar við nokkra er- lenda aðila en vildi ekki láta uppi hveijir það væru á meðan samning- ar eru ekki frágengnir. Sjálfstæður lögaðili með sjálfstæðan rekstur Guðmundur sagði Bíórásina hf. vera sjálfstæðan lögaðila með sjálf- stæðan rekstur og lögheimili í Brautarholti 2. Fyrst um sinn yrði fyrirtækið hins vegar með aðsetur í Húsi verslunarinnar, þar sem Stöð 3 er til húsa. í tilkynningu til hluthafaskrár um stofnun félagsins kemur fram að stofnendur Bíórásarinnar hf. eru Sigurður G. Jóhannsson, Árni Samúelsson, Birgir Skaptason og Pétur Steingrímsson. í aðalstjórn em Sigurður G. Jóhannsson, Ingólf- ur Friðjónsson og Aðalsteinn E. Jónasson. Hlutafé er 10 milljónir króna. ■ Sótt um/4 nýja félags. Tollfrjáls kvóti á kryddsíld fullnýttur TOLLFRJÁLS kvóti fyrir krydd- og edikverkaða síld til Evrópusambandsins þetta ár er þegar fullnýttur, og ljóst að útflutningur á slíkri síld síðar á árinu verður tollaður um 10%. Aðeins er heimilt að flytja 2.400 tonn af þessari síld til ESB-landanna án tolla. í samningnum, sem gerður var við Evrópusambandið í framhaldi af inngöngu EFTA- ríkjanna þriggja í ESB, var samið um 1.750 tonna toll- frjálsan kvóta fyrir heilsaltaða og hausskorna síld og 2.400 tonna kvóta fyrir ýmsar teg- undir krydd- og edikverkaðrar síldar. ■ Tollfrjáls/17 Fyrsta fjölþjóðlega útboð varnarliðsframkvæmda Flugskýli endurnýjað fyrir 1 til 1,6 milljarða Morgunblaðið/Björn Blöndal FLUGSKÝLI 831 er notað fyrir flugvélar bandaríska flotans á Keflavíkurflugvelli. Gagnger endurbygging þess verður boðin út i öllum rikjum Atlantshafsbandalagsins. FORVAL vegna fyrsta fjölþjóðlega útboðsins á framkvæmdum fyrir varnarliðið á Keflavíkurflugvelli verður auglýst í næstu viku. Um er að ræða gagngera endurnýjun á stóru flugskýli bandaríska flotans, nr. 831, á Keflavíkurflugvelli. Kostn- aðaráætlun hljóðar upp á 15-20 milljónir Bandaríkjadala, eða 1 til 1,6 milljarða króna. Verktakafyrir- tæki í öllum aðildarríkjum Atlants- hafsbandalagsins (NATO), sem upp- fylla skilyrði í forvali, geta boðið í verkið. íslenzkir aðalverktakar höfðu lengi vel einkarétt á stómm verkefn- um af þessu tagi á Keflavíkurflug- velli. Önnur aðildarríki NATO gagn- rýndu þetta fyrirkomulag. í stjórn Mannvirkjasjóðs Atlantshafsbanda- lagsins, sem hefur fjármagnað stór- an hluta framkvæmda fyrir varnar- liðið á Keflavíkurflugvelli, var þrýst á ísland að bjóða framkvæmdir á vegum sjóðsins út. Síðasta ríkisstjórn gaf út yfirlýs- ingu þess efnis árið 1992 að verk á vegum Mannvirkjasjóðs yrðu boðin út frá árinu 1995 og hefur sú regla nú verið í gildi í rúmt ár. Nokkur smærri verk hafa verið auglýst, en leyfi hefur fengizt hjá sjóðnum til að bjóða þau út á innanlandsmark- aði eingöngu. Nýlega hefur til dæm- is verið gengið frá útboði á endurnýj- un girðingar um varnarsvæðið og fengu íslenzkir aðalverktakar verk- ið.. íslenzk stjórnvöld sóttu síðastlið- inn vetur um undanþágu til Mann- virkjasjóðsins til að bjóða fram- kvæmdirnar við flugskýlið eingöngu út á innanlandsmarkaði. Mann- virkjasjóðurinn féllst ekki á þá beiðni. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins telur sjóðurinn að verk, þar sem kostnaðaráætlun er hærri en u.þ.b. tíu milljónir dala, eða um 650 milljónir, eigi að bjóða út í öllum NATO-ríkjunum. Endurbygging flugskýlisins verð- ur því auglýst í öllum aðildarríkjum bandalagsins. Með forvali eru valin úr þau fyrirtæki, sem teljast hafa fjárhagsstyrk, reynslu og getu til að ráðast í svo stórt verkefni. Áætl- aður tími til að ljúka verkinu er 30 mánuðir. Nær engar fjárveitingar í fjögur ár Frá árinu 1991 og fram á síðasta ár samþykkti Mannvirkjasjóðurinn nær engar fjárveitingar vegna fram- kvæmda á Islandi. Eftir að útboðs- fyrirkomulag var tekið upp, hefur sjóðurinn hins vegar samþykkt all- mörg verk. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins verða alls fimm eða sex smærri verkefni boðin út hér á landi á þessu ári. Á næsta ári verð- ur sennilega stórt, alþjóðlegt útboð á byggingu þjónustubyggingar fyrir kafbátaleitarflugvélar flotans. Áuk þess verða samkvæmt heimildum blaðsins sex smærri verkefni boðin út innanlands á næsta ári.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.