Morgunblaðið - 21.04.1996, Síða 20
20 B SUNNUDAGUR 21. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
atvi nnua ugl ys inga r
Matreiðslumaður
Óskum eftir að ráða matreiðslumann til
starfa á vinsælan veitingastað í miðborginni.
Um er að ræða framtíðarstarf í góðu eldhúsi.
Umsóknir með uppl. um menntun og fyrri
störf sendist afgreiðslu Mbl. merktar:
„Matreiðsla - 4229“ fyrir 29. apríl.
Noregur „au pair“
Við óskum eftir „au pair“ til að passa tvo stráka
og sinna heimilisstörfum frá og með maí, frí
í júlí. Búum í úthverfi Ósló. Þarf að hafa öku-
skírteini.
Umsóknir sendist til Fam. Steen, c/o Adek
As, Lilleakervn. 4, 0283 Oslo, Noregi eða
hringið í síma 00 47 66791901.
Heilsugæslustöðin í
Laugarási
í Biskupstungum auglýsir lausa stöðu
rekstrar- og framkvæmdastjóra við heilsu-
gæslustöðina í Laugarási. Staðan er veitt frá
1. júlí 1996 að telja. Um er að ræða hálfa
stöðu og laun eru samkvæmt launakerfi opin-
berra starfsmanna. Umsókn ásamt upplýs-
ingum um aldur, menntun og fyrri störf
sendist til formanns Heilsugæslustöðvarinn-
ar í Laugarási, Axels Árnasonar, Tröð í Gnúp-
verjahreppi, 801 Selfossi fyrir 15. maí.
Frekari upplýsingar veitir formaður stjórnar
í síma 486 6057.
Sérkennsla
Sérkennara vantar í fullt starf í Garðaskóla
frá og með 1. ágúst 1996.
Leitað er að vel menntuðum kennara með
víðtæka reynslu.
í undirbúningi er átak til eflingar sérkennslu
í skólanum frá og með september 1996.
Einnig vantar kennara í heimilisfræði.
í Garðaskóla eru um 600 nemendur í 7.-10.
bekk. Starfsaðstaða nemenda og kennara
er til fyrirmyndar í rúmgóðu húsnæði.
Nánari upplýsingar fást hjá undirrituðum á
starfstíma skóla.
Skólastjóri Garðaskóla,
sími 565 8666.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Kennarar óskast
Eftirtaldar stöður við Fjölbrautaskóla Suður-
nesja eru lausar til umsóknar; danska, hálf
staða, eðlisfræði, hálf staða, hársnyrtigrein-
ar, íslenska, málmiðnir, hálf staða, sam-
skipti og tjáning, hálf staða, viðskiptagrein-
ar, vélritun, hálf staða, fatasaumur stunda-
kennsla, listgreinar, stærðfræði og tölvu-
fræði, líffræði, efnafræði, staða sérkennara.
Umsóknir um stöður þessar skulu berast
skólameistara eigi síðar en 15. maí.
Skólameistari.
Laus störf
1. Starfsmaður fasteigna hjá fasteignasölu
miðsvæðis í Reykjavík. Leitað er að
traustum og áhugasömum aðila með
haldbæra reynslu af sölustörfum.
2. Lager-/afgreiðslustarf hjá innflutnings-
og heildverslun miðsvæðis í Reykjavík.
Starfið felst að auki í útkeyrslu og öðrum
tilfallandi störfum. Leitað er að liprum og
áhugasömum starfsmanni. Reyklaus
vinnustaður. Æskilegur aldur 20-25 ára.
Umsóknarfrestur ertil og með 26. apríl 1996.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar
á skrifstofu Liðsauka, sem opin er kl. 9-14.
Lidsauki
Skólavörðustíg 1a -101 Reykjavík - Sími: 562 1355
Fax: 562 1311 - KI. 600182-0729
Synectics-Dantec samsteypan er alþjóðlegt fyrirtæki á sviði tölvu- og
hugbúnaðar fyrir læknavísindi er þróar og markaðssetur sjúkdómagreining-
arbúnað til að mæla lífeðlisfræðilegar breytur innan hagnýtrar sjúkdóms-
greiningar.
Við erum að færa út starfsemi okkar og leit-
um að fólki í störf hjá áætluðu þróunarfyrir-
tæki okkar í Reykjavík.
Starfsmaður við Windows hugbúnað
(Windows Software Engineers)
Þú munt starfa við hönnun og gangsetningu
greiningarhugbúnaðar í C++. Þú þarft að
hafa háskólagráðu í tölvunarfræði eða sam-
bærilega menntun.
Vinsamlegast sendu yfirlit yfir nám og fyrri
störf til Synectics Medical, Personnel Dept-
Software, Renstiernars gata 12, S-116 28
Stokkhólmi, Svíþjóð.
SYN€CTICS MCDICAL
Ráðningarþjónustan
auglýsir eftir:
Bifreiðastjóra
með meirapróf
Fyrirtækið: Rótgróið þjónustufyrirtæki.
Starfið: Akstur vöru- og kranabifreiða ásamt
öðrum tengdum störfum. Vaktavinna.
Kröfur: Framtíðarstarf fyrir duglegan og vanan
bílstjóra með meirapróf sem einnig hefur hald-
góða reynslu í bílaviðgerðum og þjónustu.
Upplýsingar: Umsóknablöð og frekari upp-
lýsingar fást hjá Ráðningarþjónustunni.
Umsóknarfrestur er til 26. apríl.
RAÐNINGARÞJONUSTAN
Jón Baldvinsson, Háaleltisbraut 58-60
Sími 588 3309, fax 588 3659
******
Hafnarfjöröur
Skóiaskrifstofa
Hafnarfjarðar
Þjónustudeild
Vegna yfirtöku grunnskólans 1. ágúst nk. og
aukinna verkefna því fylgjandi hefur verið
stofnuð þjónustudeild við Skólaskrifstofu
Hafnarfjarðar. Starfsfólk deildarinnar mun
sinna ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu við leik-
skóla og grunnskóla.
Auglýst er eftir starfsfólki í eftirtaldar stöður:
Kennslufulltrúi, ein staða (v/grunnskóla)
Skólasálfræðingar, tvær stöður (v/leik- og
grunnskóla)
Talkennari, ein staða (v/leik- og grunnskóla)
Ráðið verður í störfin frá og með 1. ágúst
nk. eða eftir nánara samkomulagi. Um kaup
og kjör er farið skv. samningum STH og
Hafnarfjarðarbæjar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf berist Skólaskrifstofu Hafnar-
fjarðar, Strandgötu 4 fyrir 3. maí nk.
Nánari upplýsingar veita skólafulltrúi (Magn-
ús Baldursson) í síma 555 3444 og deildar-
stjóri þjónustudeildar (Guðjón Ólafsson) í
síma 565 8011.
Skólafulltrúinn í Hafnarfirði.
Hjúkrunarfræðingar
Staða deildarstjóra við hjúkrunardeild Sjúkra-
húss Vestmannaeyja er laus til umsóknar frá
1. júní 1996.
Umsóknarfrestur er til 1. maí nk.
Deildin er 20 rúma, þar af eru 5 rúm fyrir
hvíldarinnlagnir. í sumar á sumarorlofstíma-
bilinu verða 12 rúm í notkun.
Upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri, sími
481 1955.
Sjúkrahús og heilsugæslustöð Vestmannaeyja.
Skrifstofustarf
Útflutningsfyrirtæki í Reykjavík óskar eftir
starfskrafti hálfan daginn, eftir hádegi. Við-
komandi þarf að hafa reynslu af almennum
skrifstofustörfum, tollapappírum o.þ.h. Starf-
ið krefst góðrar enskukunnáttu og einhver
þýskukunnátta er æskileg. Ef þú hefur áhuga
á að vinna hjá ört vaxandi fyrirtæki, þá sendu
inn umsókn til auglýsingadeildar Mbl. fyrir
1. maí, merkta: „M - 2403“.
Tollskýrslugerð
Verslunin 17 og Northern Trading Company
óskar eftir að ráða starfsmann á skrifstofu
í innflutningsdeild. Starfið felur í sér toll-
skýrslugerð, verðútreikninga, erlent við-
skiptamannabókhald og önnur tilfallandi
skrifstofustörf. Viðkomandi þarf að hafa
reynslu af tollskýrslugerð, bókhaldi og góða
enskukunnáttu.
Umsóknarfrestur er til 26. apríl nk. og skal
umsóknum skilað á skrifstofu verslunarinnar
á Laugavegi 91 þar sem umsóknareyðublöð
og nánari upplýsingar fást.
Kokkur
óskast undir Jökul
Óskum eftir að ráða matreiðslumann og
aðstoðarmanneskju í eldhús.
Upplýsingar í síma 896-8244.
Háskólamenntaður
nemi í prentsmfð
Morgunblaðið óskar að taka nema á samn-
ing í prentsmíð. Starfið er laust strax eða
samkvæmt nánara samkomulagi.
Tilskilið er að viðkomandi hafi háskólanám
að baki s.s. tæknifræði, tölvunarfræði, kerfis-
fræði eða verkfræði. Námið er tekur tvö ár,
fer eingöngu fram á vinnustað og lýkur með
sveinsprófi. Viðkomandi þarf að vera smekk-
vís og hafa auga fyrir hönnun auk þess að
hafa gott vald á íslensku.
Laun samkvæmt samkomulagi Félags bóka-
gerðarmanna og VSÍ.
Umsóknareyðublöð og allar nánari upplýs-
ingar fást eingöngu á skrifstofu Guðna
Jónssonar, og skal umsóknum skilað á
sama stað.
Umsóknarfrestur er til 27. aprfl.
GUÐNIJÓMSSQM
RÁDGIÖF U RÁDNINCARÞIÓNUSTA
HÁTEIGSVEGI 7,105 REYKJAVÍK, SÍMI5-62 13 22