Morgunblaðið - 24.05.1996, Qupperneq 1
80 SÍÐUR B/C
116. TBL. 84.ÁRG.
FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Leiðtogi Tsjetsjena fellst á friðarviðræður í Moskvu
„Fyrsta mikilvæga
skrefið 1 friðarátt“
Reuter
Bandaríkin
Kínverj-
ar staðnir
að vopna-
smygli
Washington. Reuter.
YFIRVÖLD í Bandaríkjunum hafa
upprætt kínverskan vopnasmygl-
hring, sem tvö kínversk vopnafyrir-
tæki eru viðriðin, og handtekið sjö
manns eftir að hafa gert 2.000
byssur upptækar. Aldrei áður hafa
svo margar byssur verið gerðar
upptækar í Bandaríkjunum.
Yfirvöld fyrirskipuðu handtöku
eins Bandaríkjamanns til viðbótar
og sex Kínveija. Embættismaður í
Washington sagði að meðal Kínveij-
anna væru háttsettir starfsmenn
tveggja kínverskra vopnafyrir-
tækja, Norinco og Polytech, sem
eru bæði ríkisrekin og framleiða
vopn fyrir kínverska herinn.
Polytech var í nokkur ár undir
stjórn He Pings, tengdasonar Dengs
Xiaopings, leiðtoga Kína, að sögn
heimildarmanna í bandaríska dóms-
málaráðuneytinu. Þeir sögðu að
hann væri ekki á meðal þeirra sem
voru handteknir eða eru eftirlýstir.
Fregnir hermdu í gærkvöldi að
Hammond Ku, sem talinn er hafa
samið um sölu vopnanna, hafi sagt
útsendurum bandarískra yfirvalda
að kínverska stjórnin hafi vitað af
smyglinu.
„Mjög alvarlegt mál“
Vopnasmyglið gæti valdið auk-
inni spennu milli Kínveija og
Bandaríkjamanna, sem hafa gagn-
rýnt Kínveija fyrir mannréttinda-
brot, sölu á kjarnavopnabúnaði til
Pakistans og sölu á bandarískum
hugverkum án leyfis og greiðslu til
höfundanna.
„Við teljum þetta mjög alvarlegt
mál,“ sagði Jamie Gorelick, næst-
æðsti lögfræðilegi ráðgjafi Banda-
ríkjaforseta.
Hætta á vax-
andi spennu
á Kóreuskaga
Alvarlegur matvælaskortur og
óánægja meðal forréttindastéttarinnar
Seoul, Tókýó. Reuter.
STJÓRNMÁLASKÝRENDUR og yfirmenn japanska heraflans óttuð-
ust í gær að flótti norður-kóresks orrustuflugmanns til Suður-Kóreu
kynni að leiða til vaxandi spennu á Kóreuskaganum og torvelda
tilraunir til að stuðla að friðsamlegri sambúð Kóreuríkjanna.
Talið er að flóttinn sé til marks
um alvarlega bresti í herafla Norð-
ur-Kóreu. Jafnframt endurspegli
hann vaxandi óánægju meðal norð-
ur-kóresku forréttindastéttarinn-
ar. Stjórnmálaskýrendur segja að
ráðamenn í höfuðborginni, Py-
ongyang, taki því afar illa að missa
orrustuflugmann með ofurstatign
til Suður-Kóreu og flóttinn muni
því ugglaust draga dilk á eftir sér
innanlands.
Fjöldi háttsettra Norður-Kóreu-
manna hefur flúið til Suður-Kóreu
á undanförnum mánuðum, þeirra
á meðal stjórnarerindrekar og
embættismenn. Hafa þeir skýrt frá
því að matvælaskortur og slæmt
efnahagsástand hafi sorfið að for-
réttindastétt kommúnista.
Matvæli á þrotum
Þá skýrðu starfsmenn hjálpar-
stofnana frá því að matvæli væru
á þrotum í Norður-Kóreu. Skortur-
inn hefði ekki verið meiri frá því
í Kóreustríðinu 1950-53 og næsta
uppskera ekki væntanleg fyrr en
í október. Matvælaskammtar væru
aðeins þriðjungur af lágmarksþörf.
Almenningur væri þreklítill vegna
næringarskorts, sem vart mætti
við þegar uppskerutíminn færi í
hönd því landbúnaður væri mann-
frekur sakir nær engrar vélvæð-
ingar.
Fæðu leitað á fjöllunum
Yfirmaður alþjóðlegrar hjálpar-
stofnunar í Hong Kong, Caritas,
hefur farið sjö sinnum tií Pyongy-
ang á árinu. Hún sagði í gær að
algengt væri að fólk gengi til fjalla
í von um að finna forðarætur sér
til matar. Slíkt hefði ekki gerst frá
því í Kóreustríðinu.
■ Alvarlegir brestir/20
Ólga í Albaníu
Reuter
SÍÐUSTU fundirnir vegna þing-
kosninganna í Albaníu á sunnudag
voru haldnir í gær og á myndinni
er Sali Berisha forseti á fundi
stjórnarflokksins, Demókrata.
Kosningabaráttan einkenndist af
mikilli ólgu og ofbeldisverkum og
Demókratar sökuðu helsta stjórn-
arandstöðuflokkinn, Sósíalista,
um að hafa beitt liðsmönnum
leyniþjónustu kommúnistastjórn-
arinnar fyrrverandi til að kynda
undir átökunum. Vestrænir
stjórnarerindrekar telja líklegt að
Demókrötum takist að halda völd-
um, þótt þeir kunni að neyðast til
að mynda samsteypustjórn með
hægriinönnuin.
Moskvu, Grosní. Reuter.
LEIÐTOGI aðskilnaðarsinna í
Tsjetsjníju, Zelimkhan Jandarbíjev,
hefur fallist á friðarviðræður við
Borís Jeltsín, forseta Rússlands, i
Moskvu fyrir forsetakosningarnar
16. júní. „Þetta er fyrsta mikilvæga
skrefíð í friðarátt," sagði Tim Guldi-
mann, formaður sendinefndar Ör-
yggis- og samjiinnustofnunar Evr-
ópu (ÖSE) í Grósní.
Guldimann sagði að Jandarbíjev
hefði staðfest að hann vildi ræða
við Jeltsín í Moskvu og færi þang-
að í fylgd fulltrúa stofnunarinnar
innan tveggja vikna.
„Isinn hefur verið brotinn. Það
er mjög mikilvægt," sagði Jeltsín
og kvaðst ætla að standa við lof-
orð sín um að fara til Tsjetsjníju
fyrir kosningarnar, en þó ekki fyrr
en að viðræðunum loknum.
Gæti styrkt stöðu Jeltsíns
Aðstoðarmenn Jeltsíns lýstu tíð-
indunum sem mikilvægum sigri
fyrir forsetann, sem hefur viður-
Boris Zelimkhan
Jeltsín .Jandarbyev
kennt að stríðið í Tsjetsjníju geti
orðið honum að falli í kosningun-
um. Þótt enn sé öldungis óljóst
hvort samkomulag náist um frið
gætu viðræðurnar einar bætt stöðu
hans fyrir kosningarnar.
Jandarbíjev er 44 ára rithöfund-
ur og tók við af Dzhokhar Dúdajev,
sem beið bana í flugskeytaárás
fyrr á árinu. Ekkert hefur bent til
þess að Jandarbíjev ljái máls á að
falla frá kröfunni um sjálfstæði
Tsjetsjníju.
Viktor Tsjernomyrdín, forsætis-
ráðherra Rússlands, sagði á mið-
vikudag að rússneska stjórnin viidi
vera sveigjanleg í þessu máli, en
gæti ekki fallist á að Tsjetsjníja
yrði sjálfstætt ríki. Samþykki
Jandarbíjev málamiðlunarlausn er
óvíst hvort allar skæruliðasveitirn-
ar í Tsjetsjníju fallist á að leggja
niður vopn.
Gratsjov vikið frá?
Grígorí Javlínskí, fijálslyndur
frambjóðandi, hefur sett friðarvið-
ræður við Tsjetsjena sem skilyrði
fyrir stuðningi við Jeltsín í kosn-
ingunum. Javlínskí hefur einnig
krafist þess að Pavel Gratsjov
varnarmálaráðherra verði vikið frá
og Jeltsín kynti undir vangaveltum
um að hann kynni að verða við
þeirri kröfu með því að ræða við
hugsanlegan eftirmann Gratsjovs,
Borís Gromov hershöfðingja.
■ Zjúganov í vanda/22
Samið um
frelsi í flugi
HELMUT Kohl Þýskalandskansl-
ari og Bill Clinton undirrituðu
samning um frelsi í flugi í Banda-
ríkjunum í gær. Samkvæmt hon-
um geta flugfélög annars landsins
flogið til allra flugvalla hins.