Morgunblaðið - 24.05.1996, Page 4

Morgunblaðið - 24.05.1996, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Halldór Blöndal samgönguráðherra kynnir opinbera stefnumótun í ferðaþjónustu í STEFNUMÓTUNINNI er gert ráð fyrir að gjaldeyristelcjur þjóðarinnar af ferðaþjónustu aukist að meðal- tali um 6% á ári og verði um 38 milljarðar árið 2005, en í fyrra voru gjaldeyristekjumar 18,7 milljarðar. Einnig er gert ráð fyrir að árleg meðaltalsflölgun gesta til íslands verði 6% til ársins 2005 og þannig heimsæki um 340 þúsund gestir landið árið 2005, en þeir voru 190 þúsund í fyrra. Í stefnumótuninni er tekið fram að um sé að ræða tillögur um stefnu stjómvalda gagnvart ferðaþjónustu og starfsumhverfi hennar, og hvatt er til þess að einstök fyrirtæki, sveitarfélög og hagsmunasamtök leggi til gmndvallar í sinni stefnu- mótun þá meginstefnu sem nú hef- ur verið mörkuð. Á blaðamannafundi þar sem Halldór Blöndal samgönguráðherra ásamt nefndarmönnum kynnti stefnumótunina sagði hann að raunhæft væri að gera ráð fyrir þeirri fjölgun ferðamanna og aukn- ingu gjaldeyristekna af ferðaþjón- ustu sem gengið er út frá í stefnu- mótuninni ef tækist að halda jafn- vægi í efnahagsmálum. I máli Halldórs kom fram að starfshópur á vegum samgöngu- ráðuneytis og íjármálaráðuneytis mun á næstunni fara ofan í kjölinn á skattalegu umhverfi ferðaþjón- ustunnar og það myndi vafalaust leiða til einhverra breytinga. Þá sagðist hann sannfærður um að á þessu kjörtímabili myndu nást fram nauðsynlegar lagabreytingar varð- andi rekstrarumhverfi ferðaþjón- ustunnar. „Þá er maður að velta fyrir sér hlutum eins og því hvaða leiðir séu færar til þess að lækka kostnað við bílaleigur. Þá er það mjög áber- andi að meðalaldur fólksflutninga- bfla er mjög hár hér á landi og Búist við 38 milljarða gjaldeyristekjum 2005 Samgönguráðherra kynnti í gær nýja opin- bera stefnumótun í ferðaþj ónustu, en stefnu- mótunin er afrakstur starfs nefndar sem samgönguráðherra skipaði í október síðast- liðnum. Þrisvar áður á síðastliðnum 20 árum hafa verið gerðar tilraunir til að móta opin- bera stefnu í ferðamálum, en þetta er í fyrsta sinn sem slík stefnumótun er gefin út. Morgunblaðið/Kristinn HALLDÓR Blöndal samgönguráðherra kynnti opinbera stefnu- mótun í ferðaþjónustu á blaðamannafundi í gær. maður hlýtur að velta fyrir sér hvernig staðið er að skattlagningu á þeim. í þriðja lagi getur maður velt fyrir sér framkvæmd virðis- aukaskattsins og maður getur líka velt fyrir sér hvort þetta ógnarlega háa bjórverð sé eðlilegt hér á landi. En þegar þetta er rætt þá verður líka að muna eftir því að það er ekki nóg að ríkið lækki hjá sér ef álagningin er óheyrilega há hjá þeim sem reiða fram vöruna," sagði Halldór. Þróun til frekari arðsemi og atvinnusköpunar Helstu niðurstöður í stefnumót- uninni eru m.a. þær að ferðaþjón- usta verði áfram ein af undirstöðu- atvinnugreinum þjóðarinnar og hún verði þróuð til frekari arðsemi og atvinnusköpunar. Markmiðið er að ársverk í ferðaþjónustu verði 7 þúsund árið 2005, en árið 1994 voru ársverkin um 4 þúsund, eða 3% af heilsársstörfum hér á landi. Ferðaþjónustuninni verði búið sambærilegt rekstrarumhverfi og í samkeppnislöndum til að auka framleiðní og arðsemi atvinnu- greinarinnar í heild, og rannsókn- arstarfsemi um rekstur og afkomu ferðaþjónustufyrirtækja verði efld og hagtölur gerðar aðgengilegar t.d. lánastofnunum og fjárfestum. Bæta á samkeppnisstöðu ís- lenskrar ferðaþjónustu með því að gæði hennar séu betri en í helstu samkeppnislöndum, boðið verði upp á menntun í ferðaþjónustu á háskólastigi og jafnframt menntun og starfsþjálfun á öðrum skólastig- um. Þá verði rannsóknastarfsemi á sviði ferðamála efld þannig að hún verði í fullu samræmi við þarf- ir atvinnugreinarinnar og styðji við stefnumótun, markaðsstarf, vöru- þróun og gæðaeftirlit í atvinnu- greininni. Markaðssókn og kynn- ingarstarfsemi verið aukin, jafn- framt því að efla skilvirkni mark- aðsstarfsins og auka arðsemi í ferðaþjónustu. Gengið er út frá því að tengsl við brottflutta íslendinga og af- komendur þeirra, m.a. Vestur- íslendinga, verði efld með það fyr- ir augum að vekja áhuga þeirra á að koma til íslands. Saga, menning og mannlíf íslendinga í fortíð og nútíð verði veigamikill þáttur í ferðaþjónustunni, og leggja skal áherslu á hið sérstaka og frá- brugðna í menningarsögu Islend- inga. Ferðamennska i tengslum við heilsubót og heilbrigði verði aukin og almenn heilbrigðisþjónusta markaðssett, og funda-, ráðstefnu- og hvataferðamennska utan há- annatíma verði jafnframt aukin. Stöðug endurskoðun og aðlögun að aðstæðum Magnús Oddsson, ferðamála- stjóri og formaður nefndarinnar sem vann að stefnumótuninni, sagði á blaðamannafundinum að það væri von þeirra sem að stefnu- mótuninni unnu að með henni væri búið að móta stefnu sem sátt næðist um í atvinnugreininni, en annars væru stefnumótunin einskis virði. Hann benti hins vegar á að stefnumótun væri aldrei endanleg og yrði hún að vera í stöðugri endurskoðun og aðlögun að breytt- um aðstæðum. Frestur til að tilkynna framboð rennur út á miðnætti FRAMBOÐSFRESTUR vegna for- setakosninganna 29. júní næst- komandi rennur út á miðnætti í kvöld. Skila á framboðum, ásamt tilskildum íjölda meðmælenda, til dómsmálaráðuneytisins ásamt nægilegri tölu meðmælenda og vottorðum yfirkjörstjóma um að meðmælendur séu á kjörskrá. Yf- irkjörstjóm i Reykjavík hefur lokið að fara yfir meðmælendalista fimm frambjóðenda. Samkvæmt stjómarskrá lýð- veldisins skal foretaefni hafa með- mæii minnst 1.500 en mest 3.000 kosningabærra manna. Fjöldi meðmælenda skiptist milli lands- fjórðunga í hlutfalli við fjölda kjós- enda. Samkvæmt því er lágmarks- Qöldi meðmælenda úr Suðurlands- fjórðungi 1.141 kjósandi. Yfírkjörstjómir í hinum átta kjördæmum landsins, hafa undan- fama daga unnið að því að yfir- fara meðmælendalista frambjóð- enda og gefið út vottorð um með- mælendur. Lokið við að yfirfara fimmta meðmælendalistann Að sögn Jóns Steinars Gunn- laugssonar, formanns yfirkjör- stjómar í Reykjavík, var í gær lok- ið við að fara yfir fímmta og síð- asta meðmælendalistann sem yfir- kjörstjóm í Reykjavík hefur borist. Það var listi frá Ástþóri Magn- ússyni og að sögn Jóns Steinars gaf yfirkjörstjóm út vottorð um 858 meðmælendur búsetta í Reykjavík og með kosningarétt þar. Jón Steinar sagði að yfirkjör- stjómir í Reykjaneskjördæmi, Suð- urlandskjördæmi og hluta Vestur- landskjördæmis, sem ásamt Reykjavík mynda Suðurlandsijórð- ung, mundu fjalla um og gefa vott- orð fyrir þá meðmælendur á listan- um sem búsettir eru utan Reykja- víkur. Stuðningsmenn Péturs Hafstein Utför Þór- arins Þórar- inssonar ÚTFÖR Þórarins Þórarinssonar, fyrrum ritstjóra og alþingis- manns, var gerð frá Dómkirkj- unni i Reykjavík í gær. Séra Ami Bergur Sigurbjömsson jarðsöng. Þeir sem báru kistuna voru samheijar Þórarins úr Framsókn- arflokknum, Halldór Ásgrímsson, formaður flokksins, Valgerður Sverrisdóttir, formaður þing- flokksins, Alfreð Þorsteinsson borgarfulltrúi, Jón Kristjánsson, ritstjóri Tímans, Guðmundur Bjarnason, varaformaður Fram- sóknarflokksins, Páll Pétursson félagsmálaráðherra, Ingvar Gíslason, fyrrverandi ráðherra, og Guðjón Ólafur Jónsson, for- maður SUF. Áhugi á myndun kosningabandalags JÓN Baldvin Hannibalsson, for- maður Alþýðuflokksins, sagði í ræðu á kjördæmisþingi flokksins á Norðurlandi eystra, að upphaf að sameiningu íslenskra jaftiað- armanna í eina öfluga hreyfingu ætti að felast í myndun kosninga- bandalags um sameiginlega stefnuskrá í næstu alþingiskosn- ingum. Jón Baldvin sagði að með stofnun kosningabandalags ættu jafnaðarmenn að setja sér það markmið að þingflokkur kosn- ingabandalagsins yrði a.m.k. sá næststærsti á Alþingi. Jón Baldvin sagði á kjör- dæmisþinginu að í raun væru Alþýðuflokkur, Alþýðubandalag og Þjóðvaki, sér í lagi yngra fólk- ið í þessum flokkum, sammála um meginstefnuna. Hann tók sérstaklega fram að afstaða Al- þýðuflokksins til aðildar að Evr- ópusambandinu myndi ekki verða hindrun í vegi fyrir því að flokkamir gætu sameinast um eina stefnuskrá. Alþýðuflokkur- inn myndi ekki hverfa frá stefnu sinni í málinu, en um væri að ræða langtímamarkmið og fylgi við það myndi aukast með tíman- um. Sagt er frá ræðu Jóns Bald- vins á kjördæmisþinginu í Al- þýðublaðinu. Morgunblaðið/Þorkcll i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.