Morgunblaðið - 24.05.1996, Síða 16

Morgunblaðið - 24.05.1996, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1996 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Þormóður rammi kaupir 20 % hlut í Sæbergi ÞORMÓÐUR rammi hf. á Siglu- firði hefur eignast 20%_ hlut í Sæ- bergi hf. á Ólafsfirði. Á aðalfundi Sæbergs í gær var samþykkt að auka hlutafé um 45 milljónir að nafnvirði og kaupir Þormóður rammi bréfín miðað við gengið 4,6 eða fyrir um 210 milljónir. Sam- hliða hlutafjárkaupunum var geng- ið frá samningi um samstarf fyrir- tækjanna. Sæberg er eitt af stærri út- gerðarfyrirtækjum landsins og hefur yfir að ráða ígildi 6 þúsund tonna af þorskkvóta. Hér er um að ræða lokað hlutafélag í eigu nokkurra fyrirtækja og einstakl- inga á Ólafsfirði. Það á fjóra frysti- togara ásamt dótturfyrirtækjum sínum, þ.e. frystitogarana Mána- berg og Hvannaberg og ísfisktog- arana Múlaberg og Sólberg. Auk þess á Sæberg 77% eignarhlut í Hraðfrystihúsi Ólafsfjarðar hf. Velta Sæbergs hf. og dótturfyrir- GRÆNLENSKA skipafélagið Roy- al Arctic Line áformar að hefja beinar og reglulegar siglingar á milli íslands og Grænlands allt árið. Að sögn Karstens Stock Andressen, forstjóra Royal Arctic Line, er ætl- unin að vera með beina flutninga frá Grænlandi til íslands og til baka frá júní til desember, en frá janúar og fram til maíloka muni félagið hins vegar hafa hér viðkomu á leið- inni til Álaborgar í Danmörku. „Með þessu vonumst við til þess að íslenskir útflytjendur muni nýta sér þessa þjónustu til þess að flytja ýmsan varning til Grænlands. í dag eru flestar nauðsynjar keyptar frá Danmörku en með þessum hætti sjáum við t.d. fram á það að geta flutt ferskar afurðir eins og mjólk á nokkrar hafnir á Grænlandi á síðari hluta ársins,“ segir Andress- en. Royal Arctic hefur jafnframt haft samninga við Eimskip um MICHEL CAMDESSUS hefur ver- ið endurkjörinn framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, IMF, þriðja kjörtímabilið í röð og á það sér ekki hliðstæðu. Camdessus var einróma endur- ÖLL hlutabréf í útboði Þróunarfé- lags íslands hf. seldust upp á fáum klukkustundum eftir að það hófst í gærmorgun og fengu færri en vildu. Utboðið var að nafnvirði 43 milljón- ir og voru bréfín seld á genginu 1,16. Heildarsöluverð nam því tæp- lega 50 milljónum. Tilgangur útboðsins var að fjölga hluthöfum um a.m.k. 150 þannig að félagið uppfyllti skilyrði um skráningu á Verðbréfaþingi. „Markmiðið með útboðinu náðist og fjölmargir einstaklingar og fagfjár- festar bættust í hluthafahópinn,“ tækja var alls 1.141 milljón á síð- asta ári og hagnaður um 32 millj- ónir. Þormóður rammi gerir út þrjú skip til rækjuveiða, Sunnu, Siglu- vík og Stálvík, ásamt því að reka rækjuverksmiðju, frystihús, salt- fískverkun og reykhús. Fyrirtækið hefur yfír að ráða kvóta sem var ígildi 6.150 tonna af þorski. Heild- arveltan nam alls um 1.971 milljón á sl. ári og hagnaður um 201,6 milljónum. „Mikill vinskapur milli stjórnenda" „Sæberg er fjárhagslega mjög sterkt og það var engin knýjandi þörf á hlutafjáraukningunni," sagði Róbert Guðfinnsson, fram- kvæmdastjóri Þormóðs ramma, í samtali við Morgunblaðið. „Það var hins vegar ákveðið að styrkja stöð- una ennfrekar með auknu hlutafé og ráðast í frekari uppbyggingu. framhaldsflutninga héðan til Norð- ur-Ameríku og fleiri staða. Félagið hefur flutt nokkurt magn vara hing- að frá Grænlandi til þessa og segir Andressen að framhald þessara flutninga velti því talsvert á því hvernig takist að útvega flutninga til baka til Grænlands. Þórður Sverrisson hjá Eimskip segir að félagið hafi verið að selja flutninga Royal Arctic til Græn- lands og hafí m.a. verið að kynna þennan möguleika fyrir ýmsum aðilum hér á landi, bæði hvað varð- ar útflutning á íslenskum fram- leiðsluvörum og einnig ýmsum inn- fluttum varningi. „Ég tel að það geti verið mjög áhugavert að tengja þessa markaði betur saman því það er sjálfsagt eitt og annað sem við gætum verið að kaupa frá Grænlandi, t.d. til frekari vinnslu hér á landi. Síðan er sjálfsagt eitt og annað sem við gætum selt þeim.“ kjörinn í embættið sjö mánuðum áður en þriðja fimm ára kjörtíma- bil hans rennur út. Litið er á óvænta endurkosn- ingu hins 63 ára Frakka sem traustsyfirlýsingu. sagði Halldór Friðrik Þorsteinsson, hjá Kaupþingi í samtali við Morgun- blaðið. „Eg held að kaupendur hafí trú á bréfunum vegna þess munar sem var á innra virði og sölugengi. Auk þess búast menn við að Þróun- arfélagið fylgi þeirri uppsveiflu sem Við höfum átt samstarf við þetta félag um að miðla hráefni og kvót- um og mikill vinskapur verið milli stjórnenda fyrirtækjanna. Núna höfum við miklar væntingar um að þessi samvinna á utanverðum Tröllaskaga geti treyst okkur frek- ar í sessi.“ Grandi hf. á um 23% hlut í Þor- móði rammi og hefur einnig skap- ast náin samvinna þar á milli á síðustu árum. Aðspurður um hvaða ávinningur fælist í slíkri samvinnu sagði Róbert að um leið og sjávar- útvegsfyrirtækin færu út á hluta- bréfamarkaðinn ykist mjög krafan til þeirra um hagkvæmni og arð- semi. „Ein leiðin til að ná þessari hag- kvæmni er að taka upp samstarf við önnur fyrirtæki. Hún felur í sér að láta einstaklinga sem þekk- ingu hafa á viðkomandi svæði stjórna fyrirtækjunum áfram, en reyna að byggja þau upp og styrkja DOMINO’S Pizza Inc. í Banda- ríkjunum veitti nýlega leyfishafa sínum á Islandi, Futura hf. marg- vísleg verðlaun og viðurkenning- ar fyrir góðan árangur. Voru verðlaunin afhent á árlega ráð- stefnu Domino’s Pizza Inc. í Las Vegas í Bandaríkjunum. Þar fór einnig fram kynning á nýjum tækjabúnaði, vöruþróun, auglýs- ingastefnu DPI o.fl., að því er segir í frétt. A ráðstefnunni var Þórarinn Ævarsson valinn besti verslunar- sjóri Domino’s Pizza Internation- al. Pizzastaðurinn á Grensásveg- ur 11 var með næst mestu velt- una hjá Domino’s pizzastöðum i heiminum, en mestu sölu í heimi ef tekið er tillit til fjölda pizza og meðalverðs. Þá varð mesta söluaukningin milli ára hjá Domino’s Pizza á Höfðabakka 1 og staðirnir þrír voru með næstbesta heildarár- angur í pizzakeðjunni ef tekið er í efnahagslífinu og bréfin séu því fýsilegur kostur.“ í útboðinu voru 25 milljónir seld- ar þannig að hver aðili mátti kaupa að hámarki bréf að nafnvirði 120 þúsund. Við sölu á 18 milljónum var miðað við að hver kaupandi fengi þau með auknu íjármagni. Hin leiðin er að sameina fyrirtækin. Reynsla okkar af samvinnunni við Granda var það góð að við töldum okkur geta gert svipaða hluti hér. Það hefur sýnt sig að þessi eign- artengsl sjávarútvegsfyrirtækja hafa skilað þeim verulegum rekstr- arbata þar sem samvinnan hefur tekist vel.“ Að sögn Róberts hefur samvinna tekist við Granda á ótal mörgum sviðum. Þannig kemur stærstur hluti af því hráefni sem er unnið í frystihúsi Þormóðs ramma frá togurum Granda um þessar mund- ir. Aðspurður um hvort til greina kæmi að bjóða hlutafé í Sæbergi til sölu á almennum hlutabréfa- markaði, sagði Róbert að það yrði skoðað í nánustu framtíð. í stjórn Sæbergs voru kjörnir Ásgeir Ásgeirsson, Jón Þorvalds- son og Róbert Guðfinnsson. er mið af sölu og söluaukningu o.s.frv. Það er Ijóst að árangur Futura hf. þykir einstakur, sérstaklega þegar tekið er mið af því að um 5.500 Domino’s Pizza staðir eru starfræktir í um 40 löndum. Starfsmönnum Domino’s Pizza á íslandi var tekið einstaklega vel í Las Vegas og litið var á þá sem fyrirmynd innan Domino’s Pizza- samsteypunnar, segir ennfremur í frétt frá fyrirtækinu. Árið 1995 var besta ár í sögu Domino’s Pizza Inc. og var rekstrarhagnaður fyrirtækisins um það bil 40 milljónir dollara. Ástæðurnar fyrir þessum góða árangri eru raktar til til stöðugra gæða og fyrirmyndarþjónustu. Domino’s Pizza er næststærsta pizzukeðja heims og fór á síðasta ári úr þrettánda sætinu í það fimmta á listanum yfir stærstu skyndibitakeðjur utan Banda- ríkjanna. að hámarki bréf að nafnvirði 2 millj- ónir. Þetta er annað hlutafjárútboð- ið hjá Kaupþingi sem lýkur á svo skömmum tíma, en öll bréf í útboði Sláturfélags Suðurlands seldust einnig upp samdægurs á þriðjudag. Þá er sala hlutabréfa ríkisins og Reykjavíkurborgar í Jarðborum langt komin hjá fyrirtækinu. Þar var um að ræða bréf að nafnvirði 90 milljónir sem boðin voru á geng- inu 2,25 eða fyrir 200 milljónir sam- tals. Síðdegis í gær höfðu selst bréf fyrir um 150 milljónir, að sögn Halldórs Friðriks. Tíðir árekstrar vegna Campari INGVAR Karlsson, fram- kvæmdastjóri Karls K. Karls- sonar, segir það rangt sem haft var eftir Svövu Bernhöft, inn- kaupastjóra ÁTVR, í Morg- unblaðinu í gær, að hann hafi ekki lækkað verð sitt fyrr en eftir að ÁTVR hófinnflutning á Campari frá Svíðþjóð. Hann segir að þessi verð- lækkun hafí orðið í mars, eða rúmum tveimur mánuðum áður en „sænska" Campariið hafi komið í verslanir ÁTVR. Leitað hafi verið eftir því við framleið- endur Campari að þeir lækkuðu söluverð sitt hingað til lands, þar sem ÁTVR hafí hækkað álagningu sína. Þessi leið hafi því verið farin til að koma í veg fyrir hækkanir hjá ÁTVR. Ingvar segir að verðið á Campari til veitingamanna sé nú t.d. lægra en áður vegna þessarar lækkunar. Svava Bernhöft, innkaupa- stjóri hjá ÁTVR, segir að fyrir- tækið hafí verið komið í sam- band við umræddan dreifingar- aðila í Svíþjóð áður en þessi verðlækkun hafi átt sér stað. Aðspurð hvers vegna svo langur tími hafi liðið frá því varan var keypt þar til hún var sett í sölu, segir Svava að gripið hafí verið til þessara birgða þar sem Campari hafi ekki fengist tíma- bundið hjá umboðinu. Ingvar segir það hins vegar rangt að varan hafi ekki feng- ist hjá þeim. Hún hafi allan tím- ann verið til á lager. Villeroy & Boch í Kringluna HEILDVERSLUN Jóhanns J. Ólafssonar hf. hefur tekið á leigu 80 fermetra verslunar- rými á efri hæð Kringlunnar, gegnt afgreiðslu Pósts og síma fyrir nýja verslun með postul- ínsvörur frá Villeroy & Boch. Stefnt er að því að verslunin verði opnuð í ágúst nk. Að sögn Sigurðar Ingimund- arsonar, framkvæmdastjóra Jó- hanns J. Ólafssonar, verður mikið úrval af ýmiskonar post- ulínsvörum á boðstólum í nýju versluninni, t.d. gjafavörur og borðbúnaður. Fyrirtækið hefur haft um- boðið fyrir þetta vörumerki um langt skeið en eingöngu annast dreifingu til annarra verslana hingað til. Sigurður segir engar breytingar fyrirhugaðar á heild- sölustarfseminni með vörur frá Villeroy & Boch. Nýju verslun- inni sé ætlað að styrkja þetta merki ennfrekar á markaðnum og hjálpa öðrum verslunum. Ráðstefna * Imarks í næstu viku RANGHERMT var í frétt við- skiptablaðs í gær að ráðstefna ímarks um svokallaða sam- skiptamarkaðssetningu yrði haldin í dag. Hið rétta er að ráðstefnan verður haldin föstudaginn 31. maí á Grand Hótel frá kl. 9. til 17. Fyrirlesari á ráðstefnunni verður Bandaríkjamaðurinn Terry G. Vavra. Hann hefur sérhæft sig í ráðgjöf á þessu sviði mörg undanfarin ár auk þess sem hann er höfundur bóka um þetta efni. Royal Arctíc Line eykur flutn- ingatilíslands Metsala hjáDomino’s Pizza á íslandi Michel Camdessus áfram framkvæmdastjóri IMF Washington. Reuter. Hlutafjárútboði Þróunarfélags íslands lauk á fáeinum klukkustundum Færri fengu hlutabréf en vildu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.