Morgunblaðið - 24.05.1996, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1996
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
-
Skyndi-
fundur um
Bosníu
FULLTRÚAR Bandaríkjanna,
Rússlands og Evrópuríkja
munu eiga fund með stjóm-
völdum í Bosníu, Króatíu og
Serbíu í Genf í byijun júní.
Þar munu fyrrnefndu þjóðirn-
ar lýsa yfir áhyggjum sínum
vegna framkvæmdar friðar-
samkomulagsins um Bosníu
sem náðist í Dayton, sérstak-
lega þann hluta þess sem varð-
ar óbreytta borgara.
Röð mistaka
á Viktoríu-
vatni
FJÖLDI þeirra sem fórust er
feija sökk á Viktoríuvatni fyrr
í vikunni er enn óljós. Sam-
göngumálaráðuneyti Tansaníu
fullyrðir að feijan hafi verið
yfirhlaðin og telur að um 660
manns hafí verið um borð, þar
af hafi 547 drukknað. Leyfi-
legur hámarksfjöldi var um
430 farþejgar. Aðeins 25 lík
hafa fundist og þarf að fara
með voldugar málmklippur
niður að flakinu til að ná líkun-
um út. Getgátur eru uppi um
að skipstjórinn hafi ekki verið
í brúnni, skipið hafi oltið mikið
í nokkra klukkutíma áður en
það sökk og að björgunarvesti
og bátar hafi verið af skornum
skammti.
Mladic í
ferðabann
DAGBLAÐ í
Belgrad full-
yrti í gær að
Slobodan Mi-
losevic Serb-
íuforseti
hefði komið í
veg fyrir að
Ratko
Mladic, yfir-
maður hers
Bosníu-
Serba, sem er eftirlýstur fyrir
stríðsglæpi, gæti snúið aftur
til svæðis Serba í Bosníu.
Hann var í Belgrad fyrr í vik-
unni til að vera viðstaddur
jarðarför eins hershöfðingja
Bosníu-Serba.
Abbas næst-
ráðandi Ara-
fats
MAHMOUD Abbas, einn
stofnenda Frelsissamtaka Pal-
estínu, PLO, tekur við af Yass-
er Arafat, leiðtoga Palestínu,
falli hann frá. Framkvæmda-
nefnd PLO hefur kosið Abbas,
sem þekktur er undir nafninu
Abu Mazen, framkvæmda-
stjóra sinn og þar með næst-
ráðanda Arafats.
Ráðherra
drepinn
ANATOLÍJ Stephanov, að-
stoðardómsmálaráðherra
Rússlands, fannst í gær látinn
á heimili sínu. Hafði hann ver-
ið sleginn í höfuðið með þung-
um hlut og útilokuðu talsmenn
innanríkisráðuneytisins ekki
að Stephanov hefði fengið
gesti í fyrrakvöld, sem hefði
sinnast við gestgjafann og
myrt hann.
Mladic.
Norður-kóreskur orrustuflugmaður flýr til Suður-Kóreu
Alvarlegir brestir í varn-
arkerfi Norður-Kóreu
Seoul. Reuter.
NORÐUR-kóreskur orrustuflug-
maður, sem flýði á afgamalli MiG-
þotu sinni til Suður-Kóreu í gær-
morgun kvaðst hafa verið búinn að
fá sig fullsaddan af aðstæðum heima
fýrir. Atburðurinn er talinn til marks
um alvarlega veikleika í landvömum
Norður-Kóreu.
Sex suður-kóreskar orrustuþotur
voru sendar á loft í mikilli flýti er
þotan nálgaðist vesturströndina utan
af Gula hafinu og viðbúnaður var
viðhafður í Seoul. Norður-kóreski
flugmaðurinn vaggaði vængjum er
þær birtust til marks um að hann
væri á flótta. Fylgdu suður-kóresku
þoturnar honum til lendingar á Suw-
on-herflugvellinum skammt suður
af Seoul. Þangað kom þotan klukkan
11:09 að staðartíma í gærmorgun.
Fréttaskýrendur sögðu að flóttinn
benti til þess að alvarlegir brestir
væru komnir í landvamir Norður-
Kóreu. „Það virðast vera veikleikar
í stjórnkerfi hersins," sagði Noriyuki
Suzuki hjá Radio Press sem hlerar
útsendingar norður-kóreskra út-
varpsstöðva. „Það hlýtur að angra
leiðtoga landsins að engar flugvélar
voru sendar á loft til þess að reyna
að hindra flóttann," bætti hann við.
Þotan var af gerðinni MiG-19,
silfurgrá með merki flughers Norð-
ur-Kóreu á báðum hliðum búksins
og með raðnúmerin 529.
Flugmaðurinn, Li Chol-su ofursti,
er þrítugur og hefur verið flugmaður
í flugher Norður-Kóreu frá 1986.
Hann hóf för sína í Onchon-herstöð-
inni suður af norður-kóresku höfuð-
borginni Pyongyang.
A blaðamannafundi, sem skotið
var á í hasti skömmu eftir lending-
una, sagðist hann ekki hafa þolað
lengur við í því stalíníska stjórnar-
fari sem ræður ríkjum í Norður-
Kóreu.
„Ég hélt suður því þolinmæðin var
Reuter
SUÐUR-kóreskir hermenn standa vörð um norður-kóresku MiG-
19 þotuna sem ofursti í flugher Norðanmanna flýði á til Suður-
Kóreu
á þrotum,“ sagði Li. Eftir skildi hann
eiginkonu sína og tvö börn. Suður-
kóresk stjórnvöld munu taka honum
vel og m.a. verðlauna hann með 250
milljónum won, jafnvirði 16,5 millj-
óna króna, en það fær hann aðallega
greitt í gullstöngum.
Atburðurinn jók ekki aðeins á
spennuna á Kóreuskaganum heldur
vakti einnig mikla athygli því her-
flugvél hafði ekki verið flogið til
Suður-Kóreu frá norðurríkinu frá
því í febrúar 1983.
Gagnkvæmar ásakanir um ögrun
á landamærum áttu sér stað milli
Kóreuríkjanna í gær. Nokkrum
klukkustundum áður en Li flýði
sigldu fimm norður-kóresk skip inn
í landhelgi Suður-Kóreu. Strand-
í gær.
gæsluskip stökktu þeim á flótta til
baka og var engum skotum hleypt
af, að sögn talsmanns varnarmála-
ráðuneytisins í Seoul.
Stjórnvöld í Pyongyang sendu frá
sér aðra útgáfu af atburðunum og
sögðu átta herskip hafa siglt langt
inn í vesturlögsögu Norður-Kóreu.
Fyrir stillingu norður-kóreskra yfir-
valda hefði verið komið í veg fyrir
vopnuð átök.
„Þetta er heilaspuni, tilbúningur
sem er ekki svaraverður," sögðu
sunnanmenn um þessar ásakanir.
Yfirstjórn gæslusveita Sameinuðu
þjóðanna (SÞ) fordæmdi landhelgis-
brot norðanmanna og sagði það
stríða alvarlega gegn anda vopna-
hléssamkomulagsins.
LI Chol-su ofursti
kampakátur á blaða-
mannafundi skömmu
eftir að hafa flúið á þotu
sinni frá Norður-Kóreu
til Seoul.
Ætla að útrýma
mengunarþokunni
London. Reuter.
UMHVERFISMÁLARÁÐHERRAR
átta ríkja Evrópusambandsins lýstu
því yfir á þriðjudag að sambandið
hygðist draga mjög úr loftmengun
og setja sér það markmið að útrýma
mengunarþoku sumarmánuðanna úr
borgum Evrópu fyrir árið 2005.
Bretland, Frakkland, Irland, Dan-
mörk, Lúxemborg, Holland, Þýzka-
land og Belgía hyggjast skiptast á
upplýsingum og spám um magn eitr-
aðs ózons í andrúmsloftinu, meðal
annars til þess að stjómvöld eigi
auðveldara með að gefa út viðvaran-
ir og grípa til fyrirbyggjandi ráðstaf-
ana áður en lofttegundin verður
mönnum hættuleg.
Jafnframt hyggjast ríkin minnka
útblástur lofttegunda, sem breytast
í ózon. Ráðherramir sögust myndu
hvetja Evrópusambandið til að setja
strangari reglur um útblástur bif-
reiða og sögðust fylgjast af áhuga
með tilraunaverkefni í Þýzkalandi,
þar sem bannað er að aka bflum án
hvarfakúta við ákveðin veðurskil-
yrði.
Loftmengun oft yfir
hættumörkum
Á heitum, lygnum sumardögum
getur eitruð ózonþoka lagzt yfír
stórborgir Evrópu og valdið íbúun-
um öndunarerfiðleikum og ýmiss
konar sjúkdómum. Þokan getur líka
valdið uppskembresti og skemmt
vefnaðarvöru og málningu.
Í fyrrasumar var óvenjulega heitt
í Bretlandi og fór loftmengun þá
fjórum sinnum yfir hættumörk,
samkvæmt reglum Evrópusam-
bandsins. Í Belgíu gerðist þetta 31
sinni.
Sú borg Evrópu, þar sem eitur-
þokan er þykkust, Áþena, fer um
sinn á mis við mengunarvarnaátak
ESB-ríkja, þar sem Grikkland á
ekki aðild að samkomulaginu.
♦ ♦ ♦------
Walesa vill
verða forseti
Evrópu
• LECH Walesa, fyrrverandi for-
seti Póllands, hélt ræðu í Cambridge-
háskóla síðastliðinn laugardag. Wa-
lesa sagðist ekki myndu sækjast
eftir forsetaembætti lands síns á
nýjan leik en sagðist telja sig geta
fengið miklu áorkað á alþjóðavett-
vangi, sem eins konar farandsendi-
herra. „Ég vil verða fyrsti forseti
Bandaríkja Evrópu,“ sagði Walesa.
Fjölmiðlar furða
sig á Bretum
Brussel. Reuter.
EVRÓPSK dagblöð lýstu í gær
yfir mikilli undrun sinni og jafnvel
hryllingi vegna þeirrar ákvörðunar
bresku stjórnarinnar að taka ekki
þátt í samvinnu innan Evrópusam-
bandsins þar til að lausn finnst á
kúariðudeilunni.
„Klikkun" sagði þýska dagblað-
ið Frankfurter Rundschau en hið
hollenska De Volkskrant taldi nær
að tala um „vitfirringu". í leiðara
blaðsins sagði að vissulega væri
reiði Johns Majors forsætisráð-
herra Breta, skiljanleg. Þær að-
gerðir sem hann væri að grípa til
gætu hins vegar haft mun alvar-
legri afleiðingar en kúariðudeilan
gæfi tilefni til. Það yrði „harmleik-
ur“ ef böndin milli Breta og vina-
þjóða þeirra í Evrópu myndu
bresta.
Flest dagblöð á meginlandi Evr-
ópu, sem yfirleitt eru mjög Evr-
ópusambandssinnuð, drógu þá
ályktun að John Major væri orðin
að strengjabrúðu Evrópuandstæð-
inga innan íhaldsflokksins.
„Þetta er mjög áhættusöm
stefnubreyting sem sýnir veikan
og afkróaðan stjórnmálamann,“
sagði hið franska Libération. Hið
portúgalska Publico sagði ákvörð-
un Majors hafa vakið upp vonir
hjá mörgum um að boðað yrði til
kosninga í Bretlandi þar sem að
íhaldsflokknum yrði loks bolað frá
völdum. Sum blöð greindu frá við-
brögðum bresku götublaðanna sem
flest hver fóru í þjóðernislegar
skotgrafir. Oftar en ekki var vísað
til sigurs Breta í heimsstyijöldinni
og gert lítið úr útlendingum. Gott
dæmi er The Sun sem hvatti les-
endur sína til að sniðganga erlend
matvæli og vera dónalega við þýska
ferðamenn. Hið belgíska Le Soir
sagði Breta velta sér upp úr „tryll-
ingslegu útlendingahatri“. Þýska
blaðið Bild sagði „æði“ hafa runnið
á Breta.
Af blöðum utan Evrópusam-
bandsins var það hið svissneska
Tribune de Géneve sem gagnrýndi
Breta hvað harðast. Sagði það
Major greinilega hafa komist að
þeirri niðurstöðu að hann hefði
engu að tapa með því að kynda
undir sjónarmið Evrópuandstæð-
inganna er „gubbuðu með ánægju
á allt sem á uppruna sinn handan
Ermarsunds."
Breskir stjórnarerindrekar á
meginlandinu lýstu yfir miklum
áhyggjum af framferði breskra
fjölmiðla og sögðu ummæli þeirra
hafa mjög móðgandi áhrif á vina-
þjóðir Breta og geta skaðað ímynd
Bretlands verulega sem og sam-
skipti þeirra við önnur ríki. Aðilar
í bresku viðskiptalífi og ferða-
mannaþjónustu lýstu einnig yfír
verulegum áhyggjum.
\
\
\
í
i
\
!
I
\
I
L
»
i
í
l
I
L
I
1
I
I
I
I