Morgunblaðið - 24.05.1996, Side 45

Morgunblaðið - 24.05.1996, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ1996 45 MINIMIINIGAR sögn. Honum var ekki hugað líf því hann hafnaði móðurmjólkinni. Meri nokkur kastaði á túninu heima í Goðdölum og honum var gefið að súpa á merarmjólkinni. Það varð honum til lífs því hann hélt henni niðri og braggaðist upp frá því. Skynsamlegt matarræði eða öllu heldur vísindalegar ákvarðanir í hollustu þess sem hann ákvað að láta ofan í sig er nærtækasta skýr- ingin á hárri elli Eggerts. Alltént gaf hann það í skyn á tíræðisafmæl- inu þegar hann skýrði frá því að hann hefði hætt að reykja og drekka fyrir níutíu árum. Eg veitti hinu vísindalega mataræði strax eftir- tekt þegar ég hitti hann í fyrsta sinn. Eggert drakk soðið vatn sem hann hafði geymt á brúsa og síðar frétti ég af kostulegum hafra- grautsrétti sem hann mallaði ofan í sig í ótal mál. Enginn annar er til frásagnar um hvernig þessi rétt- ur bragðaðist en það skipti Eggert mestu að hann var hollur og auð- velt að laga fyrir einsetumann. Meinlætalifnaður Eggerts átti sér ótal birtingarmyndir. Hann var til dæmis ekki til viðræðu um að end- urnýja jakkfötin sem hann var löngu búinn að olnboga sig út úr. Hann var orðinn gamall og fannst hann ekkert þurfa að fata sig upp. Frænkur hans, Hildur og Kristín Bjarnadætur, sem önnuðust hann síðustu árin, urðu að vonum stein- hissa þegar hann birtist á stofugólf- inu í spánnýjum flíkum frá toppi til táar. Hann gaf þá skýringu að hann gæti notað nýju fötin fram að dánardegi og frænkurnar þyrftu ekki að hafa áhyggjur af því að hann færi illa til fara á stefnumót við nýjan heim. Við Eggert kynntumst fyrir til- stilli frænda Eggerts, Bjarna Þor- bergssonar. Hann sagði mér frá Eggerti eina kvöldstund fyrir u.þ.b. sex árum. Ég hlustaði á Bjarna rekja lífshlaup frænda síns og þar kom meðal annars fram, að hann hefði smitast af spænsku veikinni. Hann hefði upplifað fyrri heims- styijöldina í Þýskalandi þar sem hann var við vélfræðinám. Hann minntist á að Eggert hefði fyrstur íslendinga lokið flugmannsprófi, lent í hremmingum kreppunnar, haft ofan af fyrir sér með grúski í eðlisfræði einkum pælingum í Af- stæðiskenningu Einsteins sem var verulega gölluð að hans mati. Hann sagði mér frá fæðingargallanum í nefinu sem einangraði hann frá samfélagi við fólk en í stað þess var hann meira upptekinn við tól og tæki ýmiss konar. Hann átti þó eftir að kvænast Catherine, ekkju húsráðanda í Pennsylvaniu, sem hann hafði unnið hjá um nokkurt skeið. Hann upplifði ást og um- hyggju eiginmannsins og föðurins, því hann gekk dóttur Catherine í föðurstað. En hann lifði þær báðar. Eggert var orðinn saddur lífdaga eftir hálfrar aldar dvöl í Bandaríkj- unum og kom heim til að deyja, en þá kynnist hann Þorbirni Sigur- geirssyni eðlisfræðingi. Þeirra kynni endurnýjuðu lífdaga Eggerts og hann helgaði sig vísindastörfum Þorbjarnar og félaga á Raunvís- indastofnun Háskóla íslands. Hann gerðist mikill velunnari þeirra og BORGAR APÓTEK Álftamýri 1-5 GRAFARVOGS APÓTEK Hverafold 1-5 eru opin til kl. 22 —&r~ Næturafgreiðslu eftir kl. 22 annast Borgar Apótek styrkti Háskólann af miklum rausn- arskap. En Eggert lifði Þorbjörn og brátt voru fæturnir orðnir það lúnir að hann átti bágt með gang frá heimili sínu að Raunvísinda- stofnuninni þar sem hann var au- fúsugestur. Þá knúði ég dyra að heimili Eggerts. Við Eggert náðum ágæt- lega saman; honum þótti ég vera stórskrítinn ungur maður að vera spá í svona gamlan kall eins og hann. Eggert var ekkert hrifinn af fortíðinni. Hann var maður nýj- unga og mér þótti það stórskrítið að svona gamall maður vildi ekki fyrir nokkurn mun tala um sjálfan sig heldur velti sér upp úr varma- fræði og jarðvísindum af sannri innlifun og áhuga. Ég vildi tala við hann um fortíðina en hann við mig um framtíðina. Við náðum sam- komulagi um að ég gerði leikna heimildarmynd um hann, en þá þyngdist þrautin, því sáralítið kom upp úr Eggerti um hann sjálfan nema yfirmáta hógværar lýsingar á látlausum atvikum. Það var mér til happs að Eggert leyfði mér að líta á einkabréfasafn hans sem var rakinn vitnisburður um ævintýra- legt lífshlaup. Þetta lífshlaup reyndi ég að festa á filmu og þeg- ar myndin var tilbúin var haldið látlaust frumsýningarhóf honum og aðstandendum til heiðurs, en Eggert lét ekki sjá sig. Ég frétti síðar að hann hafi horft á myndina fram að miðbiki hennar, þá hafi hann staðið upp, gengið inn í her- bergið sitt og haldið áfram að glugga í jarðvarmafræðina, minnst eitthvað á það að íslendingar ættu að kaupa landspildu í Sahara-eyði- mörkinni, því framundan væru miklir kuldar á jörðinni og þá væri gott fyrir íslendinga að flytja til Sahara þar til hlýnaði á ný. Þetta var það síðasta sem ég frétti af Eggerti. Hann sagði mér frá því að lengst af hafi hann ver- ið einn á ferð. Hann þekkti ekki alfaraleiðir. Hann fyrirskipaði lát- lausa athöfn og var jarðsunginn í kyrrþey. Það var eftir honum. Að- standendum og nánum vinum votta ég samúð mína. Eggerti þakka ég samfylgdina og óska honum frið- sældar á ferð sinni um nýjan heim. Sæmundur Norðfjörð. Eggert frændi minn er látinn, saddur lífdaga eftir langt og við- burðaríkt líf. Síðustu mánuðir voru honum erfiðir, einkum þótti honum sárt að vera upp á hjálp annarra kominn, maður sem alltaf hafði lagt áherslu á að bjarga sér sjálfur og hafði aldrei hugsað sér að leggj- ast í kör. Það má kannski segja, að þarna hafi lokast hringurinn, því að hann þótti ekki mjög lífvæn- legur þegar hann fæddist, gat engu haldið niðri, ekki einu sinni móður- mjólkinni og þótti ekki annað sýnt en að hann dæi úr hungri. Honum vildi það til lífs, að hryssa kastaði um haustið og var þá tekið til bragðs að gefa barninu kaplamjólk og við það braggaðist hann svo, að hann hélt upp á 100 ára afmæl- ið sitt í fyrrasumar. Eggert fæddist að Goðdölum í Skagafirði, en fluttist með foreldr- um sínum og fósturbróður, Sigurði Birkis, síðar söng'málastjóra Þjóð- kirkjunnar, að Staðarstað á Snæ- fellsnesi, þar sem faðir hans var prestur frá 1901-1911. Þegar Vil- hjálmur afi lét af prestsskap vegna heilsubrests fluttist fjölskyldan til Reykjavíkur og Eggert settist í Menntaskólann. En hann langaði í vélfræðinám og að ráði Eiríks Briem, föðurbróður síns, fór hann til Þýskalands árið 1913, því að þar var unnt að ljúka vélfræðinámi á fjórum árum án þess að taka fyrst stúdentspróf. Þetta þótti mik- ill kostur, því að enn var allt í tví- sýnu með heilsu Vilhjálms. En dvölin í Þýskalandi varð endaslepp. Steinunn amma hafði tekið loforð af syni sínum um að drífa sig heim, ef ófriður brytist út. Eggert fór því frá Þýskalandi, þegar heim- styrjöldin fyrri hófst og hélt vestur um haf til Bandaríkjanna og hóf nám í vélskóla þar. Þegar hann var kominn að lokaprófi árið 1918, veiktist hann hastarlega af Spönsku veikinni og kom þá heim til íslands, en var lengi að ná sér. Á árunum 1924-28 ferðaðist hann um landið, að mestu fótgang- andi, og varð þá ljóst, hve flugsam- göngur myndu verða til mikilla bóta í stijálbýlinu hér á landi. Hann hélt því enn til útlanda, en nú í því skyni að læra að fljúga. Fyrst fór hann til Þýskalands, en líkaði ekki þar, fannst Þjóðveijar hafa hug á að fara aftur í stríð og hefna ófaranna frá 1918 og flutti sig því til Bandaríkjanna. Þar lærði hann flug og lagði einkum áherslu á að æfa sig í erfiðum lend- ingum með tilliti til aðstæðna hér á landi. En þegar náminu var lok- ið, var kreppan mikla skollin á og litla atvinnu að hafa á þessu sviði þar vestra og alls enga á Islandi. Eggert dvaldist áfram í Bandaríkj- unum, vann við sitt af hverju til þess að halda sér uppi, en stund- aði annars sjálfsnám í eðlisfræði. Það gerði hann með því að sækja bókasöfn og að eigin sögn var það aðallega þeirra vegna, að hann ílentist vestra. Þegar Bandaríkin drógust inn í seinni heimsstyijöldina, vann Egg- ert fyrir herinn við smíði og við- gerðir á hergögnum. Eftir stríðið starfaði hann sem vélfræðingur í verksmiðju við að líta eftir sauma- vélum og auka hagkvæmni þeirra og fékk hann einkaleyfi á mörgum uppfinningum í sambandi við það. Eggert kvæntist bandarískri konu, Catharine Hall Multer að nafni og bjuggu þau í Wilkes- Barre í Pennsylvaníu. Catharine lést árið 1958 og skömmu síðar kom Eggert í heimsókn til íslands, þótt hann ætlaði sér að búa áfram í Bandaríkjunum. Þá komst hann í kynni við Þorbjörn Sigurgeirsson og starf það, sem þá var að hefj- ast á Eðlisfræðistofnun Háskólans. Er skemmst frá því að segja, að þarna hófst nýr kafli í ævi Eg- gerts. Hann hafði alla tíð haft áhuga á eðlisfræði og lesið sér mikið til um þau efni, en ekki kom- ist í kynni við fólk í Bandaríkjun- um, sem hann gæti talað við um þessi vísindi. Á Eðlisfræðistofnun- inni og seinna Raunvísindastofnun Háskólans kynntist hann mönnum, sem skildu hann og voru tilbúnir til þess að ræða skoðanir hans og sjónarhorn. Það varð því úr, að Eggert sett- ist aftur að í heimalandi sínu á gamals aldri og var hann síðan Háskólanum betri en enginn. Fljót- lega eftir að hann tók að venja komur sínar þangað sá hann, að fjárskortur hamlaði því, að unnt yrði að ráðast í ýmis verkefni og tilraunir, sem hann hafði áhuga á. Hann hafði haft töluverðar tekj- ur vegna einkaleyfa sinna og ávaxtað þær á verðbréfamörkuð- um. Hann bauðst. nú til þess að gefa tæki og kosta ýmsar rann- sóknir og hafði af því ómælda ánægju að sjá það fé, sem honum hafði áskotnast um ævina, verða Raunvísindastofnun Háskólans að gagni. Nýlega var stofnaður sjóð- ur, sem ber nafn hans, við Háskól- ann og lagði Eggert honum til dijúgt stofnfé, auk þess sem sjóð- urinn er aðalerfingi hans. Fleiri stofnanir nutu góðs af örlæti Eg- gerts, m.a. gaf hann Rannsókna- stofu í frumu- og sameindalíffræði á vegum Krabbameinsfélags Is- lands álitlega fjárhæð til tækja- kaupa í minningu konu sinnar, sem lést úr krabbameini. Eggert var hálfgerð þjóðsagna- persóna í augum okkar systkin- anna í Suðurgötu 16, þar sem við bjuggum í sambýli við afa og ömmu, foreldra hans. Við höfðum aldrei séð hann, en hann var ein- hvern veginn alltaf nálægur, amma talaði mikið um hann, við vissum nákvæmlega hvar hann bjó, því að við fórum á pósthúsið með Morgun- blaðið, sem honum var sent. Allt í einu var hann giftur konu með þetta merkilega nafn, Catharine, og hún fór að senda afa og ömmu gjafir. Það var því mikill spenning- ur þegar hann loksins kom til Is- lands og við fengum að sjá hann. Þá kom reyndar í ljós, að þetta var býsna skrýtinn náungi, talaði hægt, notaði einkennileg orð og var að öllu leyti framandi. En eftir að hann fór að koma hingað árlega og ekki síst eftir að hann settist hér að, kynntumst við honum bet- ur. í fyrstu var reyndar ekki laust við, að við hlægjum stundum að honum og lífsháttum hans, sem voru okkur gjörsamlega framandi, t. d. var það fjarri honum að eyða nokkru á sjálfan sig, hvort sem var í mataræði eða fatakaupum, þótt hann væri sterkefnaður og hefði vel ráð á að halda sig ríkmann- lega. Þetta var þó alls ekki sökum nísku, honum var bara í blóð borin nægjusemi fyrri kynslóða; að vera ekki að eyða fé í óþarfa. Sjálfsagt mættum við nútímafólk taka okkur þetta til fyrirmyndar. En smám saman varð okkur ljóst, hversu stórmerkilegur per- sónuleiki hann var og óendanlega vænn maður. Við höfum nú búið undir sama þaki í um það bil þijá áratugi, lengstum bjó Eggert á háaloftinu, þar sem Unnur systir hans hafði útbúið sér íbúð, en síð- ustu árin, eftir að hann gerðist hrumur og gat ekki séð um sig sjálfur, þá skiptu þeir um sama- stað, Éggert sonur minn og Egg- ert frændi, svo að sambýlið varð nánara, uns hann þurfti að flytjast á öldrunarlækningadeildina í Hát- úni fyrir rúmu ári. Eftir svona löng samskipti er því visst tómarúm, þegar frændi kveður, en hann var sjálfur farinn að verða langeygur eftir vistaskiptunum, svo að ég kveð hann að sinni, óska honum góðrar ferðar og vonast til að hitta hann og alla fjölskylduna einhvern tímann aftur. Kristín Bjarnadóttir. t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HÓLMFRÍÐUR SIGURLÍNA BJÖRNSDÓTTIR, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 23. þessa mánaðar. Guðríður Jónsdóttir, Benedikt Sveinsson, Gunnar Björn Jónsson, Sigriður Einvarðsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t BENEDIKT ÞÓRARINSSON, Stóra-Skógi, Miðdölum, andaðist ó Hrafnistu 17. þessa mánaðar. Jarðaförin auglýst síðar. Aðstandendur. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, INGIMAR BOGASON, Freyjugötu 34, Sauðárkróki, sem lést í Sjúkrahúsi Skagfirðinga sunnudaginn 19. maí, verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 25. maí kl. 14.00. Hörður Ingimarsson, Margrét Gunnarsdóttir, Bogi Ingimarsson, Birna Helgadóttir, Ólafur Ingimarsson, Veronika Jóhannsdóttir, ■ Sigurður Ingimarsson, Elenóra Jósafatsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, MARÍA S. JÓHANNSDÓTTIR, lést á Hrafnistu 18. maí. Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 28. maí kl. 13.30. Hrafnhildur Eyjólfsdóttir, Eyjólfur Rósmundsson, Elísabet Rósmundsdóttir, Unnur Rósmundsdóttir, og barnabarnabörn. Sigurður V. Hallsson, Sigurður J. Helgason, Maria Sigurðardóttir, Helga Sigurðardóttir, Jóhann Þór Sigurðsson t Ástkær eiginkona mín, móðir, tengda- móðir, amma og langamma, BÁRA VILBERGSDÓTTIR, Háaleitisbraut 97, Reykjavik, varð bráðkvödd á heimili sínu þann 22. maí. Útförin auglýst síðar. Bjarni ísleifsson, Svanlaug Júliana Bjarnadóttir, Gylfi Már Bjarnason, Kolbrún Lilja, Elsa Eiríksdóttir, Berglind, Petra Dís, Bjarni ísleifur, Bára Líf, Andri Már.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.