Morgunblaðið - 24.05.1996, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ
MIIMNINGAR
FÖSTUDAGUR 24. MAÍ1996 47
ÞÓRARINN
ÞÓRARINSSON
+ Þórarinn Þór-
arinsson fædd-
ist í Ólafsvík 19.
september 1914.
Hann lézt á Borg-
arspítalanum 13.
maí síðastliðinn og
fór útförin fram
frá Dómkirkjunni
23. maí.
í dag er jarðsung-
inn þjóðkunnur heið-
ursmaður, Þórarinn
Þórarinsson, fyrrver-
andi alþingismaður og
ritstjóri. Hann var al-
þingismaður í tvo áratugi og rit-
stjóri í nær hálfa öld. Átti sæti í
utanríkismálanefnd Alþingis og er
kunnur fyrir störf sín að utanríkis-
málum. Hann var í nefnd er vann
að undirbúningi að hafréttarráð-
stefnu Sameinuðu þjóðanna og sat
hafréttarráðstefnuna árin 1971 til
1982 eða í ellefu ár. Á þeim vett-
vangi lágu leiðir okkar saman og
þar var upphaf að kynnum okkar.
Góð vinátta varð á milli okkar
Þórarins, og konu hans, Ragnheiði
Þormar, kynntist ég einnig mjög
vel%
Á þessum árum má segja að
Þórarinn hafí verið í fylkingar-
bijósti utanríkismála þjóðarinnar.
Hann var í senn ötull og afkasta-
mikill, og ritaði mikið um utan-
ríkismál. Hann var mikill fræða-
þulur og hafði kynnst mörgu á
viðburðaríkri ævi. Þekking hans
var yfirgripsmikil á þjóðfélagsmál-
um. Hann var afar glöggur, hafði
lifandi áhuga á bókmenntum auk
margs annars. Eftir hann liggja
merkilegar ritgerðir, bæði sagn-
fræðilegar og menningarsöguleg-
ar.
Þórarni var lagið að greina á
milli þess sem var kleift að fram-
kvæma og hins óraunhæfa. Hon-
um var létt um að sjá kjarna hvers
máls. Hann var í senn góðgjarn,
geðfelldur og skilningsríkur, og
bjó yfir framsýni og rökfestu. Orð-
hagur var hann og hafði djúpa
innsýn í umhverfi sitt. Hann var
lítillátur og laus við framagirni að
því mér virtist. Mér var sagt að
aldrei hafi hann sóst eftir ráðher-
rastól. Framlag hans sem ritstjóra
var rikulegt og mun lengi verða
minnst. Áhrif hans voru mikil í
utanríkismálum, enda skorti hann
síst hugmyndaríki, og
viðburðaríkt var á
starfsdegi hans á þeim
vettvangi.
Þórarinn gat verið
spaugsamur og
brugðið á leik þegar
vel hagaði til. Minnist
ég margra góðra
stunda sem við áttum
saman á hafréttarráð-
stefnunni.
Þórarinn átti glæsi-
legri eiginkonu sinni,
Ragnheiði, mikið að
þakka. Hún stóð ætíð
við hlið hans og studdi
hann í lífi og starfi. Þau hjónin
voru mjög samlynd í hvívetna og
þau var gott heim að sækja. Þórar-
inn var alla tíð andlega hress en
síðustu árin hnignaði líkamlegri
heilsu hans eftir langan starfsdag.
Þá reyndist Ragnheiður sem jafn-
an áður hin trausta stoð og stytta
og annaðist hún mann sinn af
mikilli ástúð og umhyggju á heim-
ili þeirra.
Áð leiðarlokum kveð ég Þórarin
með þökk fyrir ánægjulega sam-
fylgd. Ég votta Ragnheiði, börnum
þeirra hjóna og barnabörnum inni-
lega samúð mína.
Jón L. Arnalds.
Með Þórarni Þórarinssyni er
genginn einn af frumkvöðlum
Sambands ungra framsóknar-
manna. Þórarinn var einn af for-
vígismönnum um stofnun samtak-
anna. Hann var formaður Félags
ungra framsóknarmanna í Reykja-
vík á árunum 1936-38 og beitti
sér þá snemma fyrir stofnun land-
sambands^ ungra framsóknar-
manna. Á fjölmennu stofnþingi
Sambands ungra framsóknar-
manna á Laugarvatni dagana
11.-14. júní 1938 var Þórarinn
kjörinn fyrsti formaður samtak-
anna og var hann það næstu árin.
Með Þórarni sátu í fyrstu fram-
kvæmdastjórn SUF Egill Bjarna-
son, Guðmundur V. Hjálmarsson,
Jón Helgason og Valdimar Jó-
hannsson.
Starfsemi Sambands ungra
framsóknarmanna fór af stað með
miklum krafti undir formennsku
Þórarins. Samtökin gáfu út ritverk
Jónasar frá Hriflu, blöð og þjóð-
málarit og héldu stjórnmálanám-
skeið. Þá var Þórarinn óþreytandi
í að halda fundi um land allt á
næstu árum til að kynna störf og
stefnu SUF og afla samtökunum
fylgismanna. Helsta baráttumál
ungra framsóknarmanna í upphafi
var sambandsmálið svokallaða og
börðust Þórarinn og félagar hans
fyrir lýðveldisstofnun og var Sam-
band ungra framsóknarmanna
fyrst stjórnmálahreyfinga til að
marka stefnu þar að lútandi.
Kraftur og áræðni einkenndu
störf Þórarins og formannstíð
hans. Hann lagði þá og jafnan síð-
an áherslu á að ungir framsóknar-
menn styddu flokkinn með upp-
byggilegri og heiðarlegri gagn-
rýni. Forystuhlutverk hans á upp-
hafsárum Sambands ungra fram-
sóknarmanna hefur verið þeim er
á eftir hafa komið gott fordæmi
og til eftirbreytni. Ungir fram-
sóknarmenn hafa jafnan kunnað
að meta störf Þórarins og frum-
kvæði hans að stofnun landssam-
bands þeirra og þá rækt sem hann
lagði við SUF alla tíð. Á 50 ára
afmæli Sambands ungra fram-
sóknarmanna árið 1988, sem líkt
og stofnþingið, var haldið á Laug-
arvatni, var Þórarinn gerður að
heiðursfélaga SUF.
í ræðu sinni á stofnþingi Sam-
bands ungra framsóknarmanna
lagði Þórarinn áherslu á samvinnu
og samheldni manna. Hann sagði
þá m.a.: „Við þurfum að kenna
einstaklingunum að vinna sainan
á réttan hátt, kenna þeim að taka
heilbrigt tillit til hagsmuna og rétt-
inda annarra, kenna þeim að
skipta afrakstri starfsins og nátt-
úrugæðanna réttlátlega á milli sín.
Slíkur skilningur og sú samheldni,
sem hann hlýtur að skapa, er hin
eina örugga vörn þjóðarsjálfstæð-
isins gegn aðsteðjandi hættum."
Þessi orð eiga að mörgu leyti
enn vel við í dag, 58 árum síðar.
Enn leggja ungir framsóknarmenn
áherslu á samvinnu og samheldni,
samhjálp og félagshyggju og rétt-
láta skiptingu lífsgæðanna. Orð
og gjörðir Þórarins eru þeim
hvatning í streði stjórnmála nútím-
ans. Það er því með mikilli virð-
ingu og þökk sem ungir framsókn-
armenn kveðja frumkvöðulinn og
foringjann Þórarin Þórarinsson.
Eftirlifandi eiginkonu Þórarins,
börnum og öðrum ættmennum
votta ég mína dýpstu samúð og
bið þeim Guðs blessunar í sorg
sinni.
F.h. Sambands ungra fram-
sóknarmanna. _
Guðjón Ólafur Jónsson,
formaður.
BERGÞÓRA
JÚLÍUSDÓTTIR
+ Bergþóra Júl-
íusdóttir fædd-
ist í Reykjavík, 21.
ágúst 1905. Hún
lést í Reykjavík 21.
apríl síðastliðinn.
Foreldrar: Ing-
veldur Jóhanns-
dóttir og Júlíus
Arason, skipsljóri,
fórst með Ingvari
1906. Fósturfaðir:
Magnús Björnsson,
skósmiður.
Bergþóra giftist
18.12. 1925, Jó-
hannesi S. Jóns-
syni, gjaldkera hjá Eimskip,
f. í Reykjavík 13.8. 1901, d.
27.10. 1970. Foreldrar: Sigur-
veig Guðmunds-
dóttir og Jón Einar
Jónsson, prentari.
Börn: Þorkell, f.
30.9. 1929, kvænt-
ur Ester Eggerts-
dóttur, börn Þor-
kels eru: Jóhannes,
Einar og Jón í
Danmörku, Berg-
þóra og Þorkell.
Ingveldur, f. 10.8.
1945, hennar sonur
er Jóhannes Bend-
er Bjarnason.
Barnabarnabörn
Bergþóru eru sex
að tölu.
Útför Bergþóru fór fram
frá Dómkirkjunni 30. apríl.
Vegna fjarveru minnar erlendis,
gat ég því miður ekki verið við-
stödd útför minnar góðu vinkonu
Bergþóru Júlíusdóttur, Begga,
eins og hún var kölluð meðal vina,
var búin að berjast við erfið veik-
indi um langan tíma. Dauðinn var
henni því líkn í þraut. Hún andað-
ist 21. apríl sl. Ég á margar góðar
endurminningar frá samveru-
stundum okkar á liðnum árum.
Ogleymanleg eru öll sumrin, sem
við ásamt fjölskyldum dvöldum í
bústöðum okkar við Vatnsenda.
í minningunni fannst mér eigin-
lega alltaf hafa verið gott veður
þessi sumur. Þegar við sóttum
mjólkina í brúsum að bænum, þar
sem Sigríður mágkona Beggu var
húsfreyja. Oft var þá drukkinn
kaffisopi í eldhúsinu hjá henni.
Ekki spillti fyrir ef Lárus bóndi
var heima, því hann gat komið
öllum í gott skap, svo fróður og
skemmtilegur var hann.
Þá var oft margt um manninn
niðri við vatnið, þar sem börnin
okkar ungu gátu leikið sér í
sandinum og buslað í volgu vatn-
inu. Þetta voru sæludagar.
Begga var glæsileg kona, há-
vaxin og teinrétt. Það sópaði að
henni hvar sem hún fór. Hún var
mörgum kostum búin, mikil hús-
móðir, frábær hannyrðakona, ljúf
í lund og félagslynd. í mörg ár
var hún félagi í Kvenfélaginu
Hringnum. Meðan heilsan leyfði
hlakkaði Begga alltaf til að taka
þátt í skemmtiferðum félagsins,
einnig lagði hún ávallt dijúgan
skerf til basars okkar með vel
unnum og fallegum munum.
Stórt og fallegt veggteppi -
gjöf frá Beggu, prýðir nú félags-
heimilið á Ásvallagötu 1. Við
Hringskonur þökkum henni sam-
veruna. Ég votta börnum hennar
og fjölskyldu samúð mína.
Blessuð sé minning hennar.
Ragnheiður Einarsdóttir.
HELGA
G UNNARSDÓTTIR
4- Helga Gunn-
* arsdóttir var
fædd á Akranesi
23. ágúst 1916.
Hún lést á sjúkra-
húsi Akraness 19.
maí siðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Gunnar Sig-
urðsson sjómaður
og síðar verkamað-
ur og Laufey
Gunnlaugsdóttir
húsmóðir og fisk-
verkakona. Systk-
ini Helgu voru Sig-
urður, Ingunn, Vil-
helmína, Gunnlaugur og
Gunnar. Gunnlaugur er einn
eftirlifandi þeirra systkina.
2. nóvember 1907 giftist
Helga eftirlifandi eiginmanni
sínum Sigurði Helgasyni húsa-
smíðameistara. Sigurður er
fæddur 6. marz
1907. Þau bjuggu
alla tíð á Akranesi.
Börn þeirra eru
tvö, Sigrún Erla
Sigurðardóttir,
húsmóðir, f. 30.7.
1937, gift Hauki
Ármannssyni og
eiga þau fimm
börn: Helgu, Ár-
mann, Sigurð,
Helga og Sigur-
björgu. Helgi Sig-
urðsson verslunar-
stjóri, f. 22.9.
1945, giftur Stef-
aníu Sigmarsdóttir og eiga
þau þijú börn: Guðríði, Helgu
(hún lést af slysförum) og Sig-
urð.
Útför Helgu verður gerð frá
Akraneskirkju i dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Elsku amma!
Nú þegar sumarið er gengið í
garð og móðir jörð að klæðast
kjóli gróandaiis og nýs lífs, þá er
sem veturinn sé í órafjarlægð. En
þegar grannt er skoðað þá eru
veturnir fleiri, því mannsævinni
má líkja við árstíðirnar. Og hjá
þér kom veturinn eftir blómlegt
sumar og erfitt haust.
Þú varst stóra sterka tréð í
garði þessarar fjölskyldu sem
skýldir græðlingunum þínum með
sterkum stofni og laufguðum
greinum. Líf þitt snerist um garð-
inn þinn. í honum var gott að
vaxa og þroskast í þínu skjóli. Þið
afi bjugguð okkur fallegan garð
þar sem sú eina regla gilti að allir
ættu að fá jafn gott beð að vaxa
í, og gættir þú þess ávallt að svo
væri. Vel var hlúð að beðunum
ykkar.
Ég er þakklát fyrir að hafa
fengið að vaxa í þessum garði og
veit að við búum vel að því sem
nutum. Ég er líka þakklát fyrir
að hafa náð að kveðja þig og sjá
þrautir þínar hverfa, og ég veit
að nú hefur þú vaknað til lífsins
á nýju vori í öðrum garði þar sem
tóku á móti þér blóm sem þú þráð-
ir að hitta á ný. Með söknuði kveð
ég þig amma mín, en minningin
veitir styrk.
Elsku afi. Missir þinn er mikill
og ég veit að nú er einmanalegt
í garðinum góða. Ég bið þess að
góður Guð veiti þér styrk á þessum
erfiðu tímum til að takast á við
þína miklu sorg.
Guðríður.
Amma fæddist á Akranesi í
ágúst 1916, elst af 6 systkinum
sem komust upp. Amma þurfti ung
að árum að bera ábyrgð á yngri
systkinum sínum og þannig hélt
það áfram. Það hafa alltaf verið
börn í kringum ömmu. Þótt amma
og afi eignuðust aðeins tvö börn
sjálf urðum við barnabörnin þeim
mun fleiri og flest okkar bjuggu
um lengri eða skemmri tíma í sama
húsi og afi og amma. Við barna-
börnin nutum þess í ríkum mæli
að hafa ömmu og afa svona ná-
lægt. Til ömmu og afa var alltaf
hægt að fara og ávallt var vel
tekið á móti okkur. Otæmandi
dunkar af kleinum, heimabökuð-
um vínarbrauðum og jólakökum
að ógleymdum hveitikökunum. Við
systkinin áttum það til að fara
yfirum til ömmu og kíkja í pottana
hjá henni til að athuga hvoru
megin væri betra að borða.
Amma var ánægðust þegar sem
flestir komu við hjá henni og hún
tók vel á móti öllum. í miðri
hringiðunni vildi hún helst vera.
Amma hafði mikla lífsorku og kom
það ekki minnst fram í þrautseigju
hennar síðustu árin eftir að heilsan
var farin að bila. Hún hélt sínu
striki fram undir það síðasta og
lét engan bilbug á sér finna þótt
líkaminn hefði átt að hafa gefist
upp fyrir löngu. Baráttu ömmu er
lokið núna og hún hefur fengið
hvíld. Afa mínum votta ég dýpstu
samúð mína. Eftir 60 ára hjóna-
band er erfitt að kveðja lífsföru-
nautinn, en við sem eftir lifum
vitum að amma er í góðum hönd-
um. Hvíl í friði, elsku amma mín.
Þín,
Helga.
Tóniistarvor í Fríkirkjunni
Negrasálmokvöld þriðjudaginn 28. moí kl. 20.30.
Kór kirkjunnar syngur.
Einsöngvarar. Davíð Ólafsson, Ólðf Ásbjörnsdóttir,
Svava Kr. Ingólfsdóttir og Þuríður G. Sigurðardóttir.
Stjórnandi: Pavel Smid.
t
I
L. q~ í s í ffi ffi ffi ffi
t
Innilegar þakkir til ykkar allra, sem auð-
sýndu okkur vináttu og samúð vegna
andláts föður míns, tengdaföður, afa
og langafa,
GUÐNA GRÍMSSONAR
fyrrum skipstjóra
og útgerðarmanns,
Herjólfsgötu 14,
Vestmannaeyjum.
Sigurður Guðnason, Lilja Ársælsdóttir,
Laufey Sigurðardóttir, Gunnar Rafn Einarsson,
Lovísa Sigurðardóttir, Guðmundur Sv. Hermannsson,
Guðni Sigurðsson, Olga Sædfs Bjarnadöttir
og barnabarnabörn.