Morgunblaðið - 24.05.1996, Side 64

Morgunblaðið - 24.05.1996, Side 64
Jtemáí -setur brag á sérhvern dag! MORGUNBLAÐID, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85 FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Morgunblaðið/Júlíus HLUÐ að hinum slösuðu á bílastæði við hús Krabbameinsfélags- ins áður en þau voru flutt á slysadeild. Alvarlegt slys í fallhlífarstökki Tveir stökkvar- ar féllu stjórn- laust til jarðar KENNARI í fallhlífarstökki og kona sem var farþegi hjá honum slösuðust í gærkvöldi eftir að fall- hlifar sem þau voru í flæktust sam- an og þau féllu stjórnlaust til jarð- ar á malbikað bílastæði við hús Krabbameinsfélagsins norðan Bú- staðarvegar. Kennarinn sem á að baki hátt í tvö þúsund fallhlífarstökk slasað- ist ekki alvarlega en meiðsli kon- unnar sem var í sínu fyrsta stökki voru mun meiri. Æfðu stökk með farþega Að sögn Þóijóns Péturssonar fallhlífarstökkvara varð óhappið þegar hann og félagar hans í Fall- hlífarklúbbi Reykjavíkur voru að æfa stökk með farþega á Reykja- vikurflugvelli, en það hefur verið gert í fjölda ára við kennslu í fall- hlífarstökki. Stokkið var úr 9 þús- und feta hæð og þegar opna átti fallhlifarnar í 4-5 þúsund feta hæð flæktist aðalfallhlífin. Þóijón sagði að ef þetta kæmi fyrir ætti fólk að losa sig við aðal- fallhlífina og opna varafallhlíf, en í gær hefði varafallhlífin opnast of snemma og flækst við aðalfall- hlífina. Rannsókn stendur yfir á orsökum slyssins. Slökkviliðinu barst beiðni um aðstoð kl. 21.46 í gærkvöldi og var fólkið þá enn í loftinu en ljóst að hveiju stefndi. Það var með með- vitund þegar það var flutt á slysa- deild eftir óhappið. Rannsókn á meiðslum fólksins stóð enn yfir seint í gærkvöldi að sögn vakthaf- andi læknis á slysadeild Sjúkra- húss Reykjavíkur í Fossvogi. Óhappið átti sér stað um svipað leyti og leik Vals og Grindavíkur í 1. deildinni í knattspyrnu lauk að Hlíðarenda og dreif nokkurn fjölda fólks að slysstaðnum. Endurtaka þarf kosningu til sambandsstjórnar Alþýðusambands Islands Tæplega 7 0% full- trúa skiluðu auðu TÆPLEGA 70% fulltrúa á þingi Alþýðusambands íslands skiluðu auðu í kosningu um fulltrúa í átján manna sambandsstjórn ASÍ í gær- kvöldi. Þar með féll tillaga kjör- nefndar um fulltrúa í sambands- stjórnina þar sem að minnsta kosti helming atkvæða þarf til að vera löglega kjörinn í stjórnina og verður að endurtaka kjörið í dag. Með því að skila auðu vildu þing- fulltrúar sýna samstöðu með full- trúum verslunarmanna á þinginu, sem neituðu að gefa kost á sér í sambandsstjórn vegna þess að þeir töldu að í fyrri kosningum á þinginu hefði kerfisbundið verið stillt upp gegn þeim með þeim afleiðingum að fulltrúar verslunarmanna náðu naumlega kjöri eða féllu. Beindist einkum gegn VR Magnús L. Sveinsson, formaður Verslunarmannafélags Reykjavík- ur, sagði í samtali við Morgunblað- ið að þetta hefði einkum beinst gegn fulltrúum VR. Hann hefði því tilkynnt eftir samráð við fulltrúa VR á þinginu að hann segði sig úr kjörnefnd og fulitrúar VR myndu ekki taka þátt í sambandsstjórnar- kjörinu eða gefa kost á sér í það, enda væri tilgangslítið að taka þátt i störfum kjörnefndar eða gefa kost á sér þegar stillt væri upp gegn tillögum hennar kerfisbundið til að fella fulltrúa verslunarmanna. Þetta hefði endurtekið sig ítrekað og raunar- bytjað strax og kosið var um kjörnefndina. Fulltrúar verslun- armanna á landsbyggðinni hefðu einnig lýst því yfir að þeir myndu ekki taka þátt í atkvæðagreiðslunni og í kjölfarið hefði um helmingur þingfulltrúa gengið yfir að borði verslunarmanna og staðið þar og sýnt með því stuðning sinn. Magnús sagði að þetta sýndi að hluti þingfulltrúa vildi ekki að þing- ið væri á þessu plani sem það hefði verið fært niður á með þessum vinnubrögðum. Það lægi alveg ljóst fyrir að það væru fulltrúar úr Verkamannasambandinu sem hefðu staðið fyrir þeim. Hann hefði látið þá skoðun í ljósi að ef þessi afstaða gagnvart verslunarmönn- um væri spegilmynd af vilja manna í Alþýðusambandinu væri ekki hægt að taka það öðru vísi heldur en að Alþýðusambandið myndi klofna. „Það mun hins vegar ekki standa á okkur að taka þátt í starfí Alþýðusambandsins ef menn vilja standa heilshugar og faglega að því að efla Alþýðusambandið, en við verðum náttúrlega að njóta sann- mælis og hafa eðlileg áhrif miðað við okkar styrk,“ sagði Magnús. Harma atburðarásina Grétar Þorsteinsson, nýkjörinn forseti ASÍ, sagði í gærkvöldi að tilkynnt yrði á þinginu í dag hver niðurstaða hefði orðið í atkvæða- greiðslu um sambandsstjórnina. „Auðvitað harma ég hvernig at- burðarásin varð hér undir lok þessa dags. Ég vona hins vegar að okkur takist að snúa því til rétts vegar á morgun,“ sagði Grétar. HLUTI þingfulltrúa gekk yfir að að borði verslunarmanna og stóð þar við vegginn til að sýna afstöðu verslunarmanna stuðning. Þjóðveijar lofa hlutafé verði af byggingu magnesíumverksmiðju á Reykjanesi Kostir tvöfalt stærri verk- smiðju athugaðir FYRRI hluta hagkvæmniathugunar vegna magnesíumverksmiðju á Reykjanesi er nú lokið og benda niðurstöður hennar til þess að slík verksmiðja sé hagkvæm í rekstri. í framhaldinu hefur verið ákveðið að kanna hagkvæmni þess að reisa tvöfalt stærri verksmiðju en upp- haflega var áætlað. Framleiðslu- geta hennar yrði um 50 þúsund tonn á ári, eða sem nemur röskum 15% af heimsmarkaðsframleiðslu á magnesíumi. Ef af byggingu verk- smiðjunnar verður liggur fyrir hlutafjárloforð frá dótturfyrirtæki þýska stórfyrirtækisins Preussag Anlagenbau. Upphaflegur byggingarkostnað- ur var áætlaður 16-17 milljarðar króna en ekki liggur fyrir hver kostnaður við verksmiðju af þessari stærðargráðu yrði. Að sögn Júlíusar Jónssonar, forstjóra Hitaveitu Suð- umesja, sem hefur unnið að undir- búningi þessa máls, sé hins vegar umtalsverð hagkvæmni fólgin í því að byggja verksmiðjuna í þessari stærð, sérstaklega í ljósi þess að upphaflegar áætlanir hafi gert ráð fyrir stækkun síðar meir. Júlíus segir að fyrri hluti könnun- arinnar hafi fyrst og fremst snúið að því að kanna hvort sú tækni sem Rússar hefðu beitt við framleiðslu magnesíums henti hér á landi og hvort hún sé hagkvæm. Það hafi verið niðurstaðan að svo væri. Þessi aðferð er frábrugðin þeim aðferðum sem þekktar eru á Vesturlöndum, meðal annars þar sem jarðvarmi nýtist betur við framleiðsluna. Nauðsynlegt að hið opinbera komi inn í fjármögnun Þegar hefur verið stofnað hluta- félag um hagkvæmniathugun á magnesíumframleiðslu á Reykja- nesi. Hluthafar eru Hitaveita Suð- urnesja með rúmlega 70% eignar- hlut, Byggðastofnun með tæp 17%, Reykjanesbær með 7,5% og At- vinnuþróunarfélag Suðurnesja með rúm 4%. Undirbúningur hefur verið unn- inn í samstarfi við þýska fyrirtæk- ið Saltzgitter Anlagenbau, sem annast hagkvæmniathugunina, rússneska fyrirtækið Consortium Magnyi, sem leggur til framleiðslu- tæknina, og Amalgmet Canada, sem sinnt hefur markaðsöflun. Júlíus segir að næsta skref verði að fjármagna síðari hluta hag- kvæmniathugunarinnar. Fyrir liggur að kostnaður við hana muni nema rúmum 50 milljónum króna. Hluti þess kostnaðar mun falla á erlendu samstarfsaðilana en Júlíus segir ljóst að leitað verði eftir hlutafjárframlögum frá hinu opin- bera og fleiri innlendum aðilum til þess að fjármagna það sem upp á vanti. Kaupa 20% í Sæbergi ÞORMÓÐUR rammi á Siglu- firði hefur keypt 20% hlut í Sæbergi á Ólafsfirði fyrir um 210 milljónir. Aðalfundur Sæ- bergs samþykkti að auka hluta- fé fyrirtækisins um 45 milljónir og kaupir Þormóður rammi bréfin á genginu 4,6. Sæberg hf. hefur yfir að ráða ígildi 6.000 tonna af þorsk- kvóta. Fyrirtækið gerir út fjóra frystitogara ásamt dóttur- fyrirtækjum sínum. Samhliða kaupum Þormóðs ramma á hlutabréfunum var gengið frá samningi um sam- starf fyrirtækjanna. Grandi hf. á um 23% hlut í Þormóði ramma - og hefur skapast náin samvinna þar á milli. ■ Þormóður rammi/16

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.