Morgunblaðið - 26.05.1996, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 26. MAÍ1996 35
I
I
I
i
i
I
I
1
i
9
8
I
J
9
I
-!
9
9
tl
9
9
ANTON
KRISTJÁNSSON
+ Anton Krist-
jánsson var
fæddur á Hellis-
sandi 3. október
1917. Hann lést í
Reykjavík 1. maí
siðastliðinn. Faðir
Antons var Krislján
Jónsson, f. 1861, d.
1919, bóndi á Vað-
stakksheiði í Nes-
hreppi utan Ennis,
sonur Jóns Arason-
ar bónda á Litla-
Lóni undir Jökli og
móðir hans var Sig-
urveig Björnsdóttir,
f. 1877, d. 1967,
dóttir Björns Jónssonar frá
Gerðubergi í Eyjahreppi. Anton
var yngstur fimm systkina sem
voru Elsa Krisljánsdóttir, Aðal-
heiður Bniun, Matthildur Pet-
ersen og Óskar Kristjánsson og
eru þau öll látin.
Anton kvæntist Esther Jó-
hannsdóttur, þau slitu samvist-
um. Börn Antons og Estherar
eru Kristján Haukur, Anna
Ruth, hún er gift Þorvaldi
Kristjánssyni og eiga þau þrjú
börn, Esther, Gísla og Anton,
og Guðrún, hún er í sambúð
með Jóni Rúnari og eiga þau
einn son, Daða Rúnar. Fyrir átti
Guðrún eina dóttur, Astrós.
Utför Antons var gerð frá
Víðistaðakirkju 9. maí.
Afi fæddist á Hellissandi 1917,
en eftir fráfall föður síns, þá aðeins
tveggja ára gamall, fluttist hann
með fjölskyldunni til Reykjavíkur.
1938 lauk afi verslunarskólaprófi frá
Verslunarskóla íslands, þá 21 árs
gamall. í kjölfarið hlaut
hann löggildingu sem
skjalaþýðandi og dóm-
túlkur í ensku. Eftir
útskrift hóf hann störf
sem blaðamaður hjá
„Vísi“, síðan starfaði
hann m.a. hjá Upplýs-
ingaþjónustu Banda-
ríkjanna, Verslunarráði
íslands, Sendiráði
Bandaríkjanna, en síð-
ustu 20 árin vann hann
hjá Dynjanda ehf. eða
þar til hann lést.
íþróttir og útivera
áttu hug hans allan alla
tíð. Á yngri árum spil-
aði hann með meistaraflokki Vals í
fótbolta og stundaði jafnframt fim-
leika, tennis og fleiri íþróttir ásamt
sundi sem hann stundaði daglega
þar til hann lést. Hann hafði mikið
dálæli á dansi og tónlist og lærði
bæði steppdans, saxófón- og fiðlu-
leik. Hann var mjög víðlesinn og
fróður, ekki síst um andleg málefni.
Það sem einkenndi afa var hóg-
værð og lítillæti og hann hafði mikla
þörf fyrir að styðja þá sem minna
máttu sín, og var örlátur í garð líkn-
arfélaga. Hann lét lítið á sér bera
og krafðist einskis af öðrum.
Það er skrítið afi, að þú skulir
ekki koma lengur í heimsókn um
helgar, eins og þú gerðir alltaf. Þú
komst alltaf með eitthvað með þér
og var forvitnilegt að kíkja í pokann
þinn. Til dæmis var harðfiskurinn
sem þú komst með mjög vinsæll, og
vasaljósin. Einnig var gott að fá
ráðleggingar hjá þér með heima-
námið. Og þú sast og last sögur
fyrir okkur áður en við fórum að
sofa. Afi, þér fannst mjög gaman
STEINGRÍMUR
ELÍASSON
+ Steingrímur Elíasson fædd-
ist á Oddhóli á Rangárvöll-
um 7. maí 1920. Hann lést í
Reykjavík 5. maí síðastliðinn og
fór útförin fram frá Árbæjar-
kirkju 14. maí.
Þegar fregnin um andát vinar
mins, Steina Elías, bárust mér yfir
hafið, sóttu að mér margar góðar
minningar. Ég kynntist Steina á
hestamannamóti á Vindheimamelum
í Skagafirði 1982. Upp frá því var
Steini og Hulda mínir bestu vinir.
Eitt árið fórum við saman til Malj-
orka í fjórar vikur. Nutum við þess
að vera þar í sólinni. Mikið hafði ég
gaman af þegar við fórum út að
borða, þá var pöntuð besta nauta-
steik, en þegar hún kom á borðð
voru franskar kartöfiur með, og
neitaði þá Steini að borða sína steik,
nema hann fengi soðnar kartöflur,
sem ekki var hægt að fá. Eftir þessa
fyrstu kvöldmáltið okkar hafði
Hulda alltaf soðnar kartöflur í tösk-
unni, þegar við fórum út að borða,
þá borðaði Steini steikina með bestu
lyst. Höfðu þjónarnir gaman af
þessu uppátæki þeirra hjóna.
Nokkrar fórum við hestaferðirnar
saman félagarnir. Riðum við oft
Þjórsárbakkanna að heimsækja
bóndann á Eiríksbakka, var þá kátt
í koti. Eða þegar við fórum síðla
sumars ríðandi austur úr. Var ákveð-
ið að fara yfir Rangá og tók Steini
það að sér að kanna vaðið deginum
áður en lagt var í hana. Fór maður
með honum sem þekkti ána, og sýndi
honum vaðið. Næsta morgun var lagt
af stað frá Breiðabakka og var frek-
ar kalt í veðri. Steini í fararbroddi
yfir ána, ég næstur á efti rhonum.
Treysti honum eins og nýju neti í
þessa helför. Samferðamenn okkar
fylgdust með okkur í góðri fjarlægð.
Allt í einu fórum við á bólakaf, að-
eins nasirnar á hestunum stóðu upp
úr ánni, og var þverhníptur bakkinn
fyrir framan okkur, heyrði ég þá
Einar tengdason Steina kalla. Svenni
vertu viðbúinn.karlinn er ósyndur.
Brá mér heldur betur að heyra þetta,
við báðir upp í háls í ánni, en geislaf-
ákarnir okkar björguðu okkur yfir
ána. Þar sem við sátum á bakkanum
og heltum úr stígvélum okkar, horfð-
um við á samferðamenn okkar fara
yfír ána, náði áin rétt upp í hófskegg
á klárum þeirra. Við hresstumst fljótt
við eftir vænan slurk af „slævara“.
Gekk ferðin vel eftir þetta.
Margar góðar stundir áttum við
saman austur á Breiðabakka eða
vestur á Öldugötu við spil eða söng.
Hef aðeins gripið í bfrot hafsjó góðra
minninga.
Ég votta þér Hulda mín, bömum
og barnabörnum dýpstu samúð okk-
ar hjóna. Megi hæsti höfuðsmiður
himins og jarðar geyma þig kæri
vinur.
Sveinjón Jóhannesson.
Formáli
minningargr e ina
ÆSKILEGT er að minningargreinum fylgi á sérblaði upplýsingar
um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hve-
nær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka, og börn, skólagöngu
og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar
upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en
ekki í greinunum sjálfum.
MINNINGAR
að horfa á margt í sjónvarpinu og
skemmtilegast var þegar við horfð-
um saman á góðar grínmyndir, þá
hlóst þú svo mikið að allir í kring
voru líka farnir að hlæja.
Afi, við vitum að þú ert kominn á
góðan stað núna, staðinn sem þú
hafðir mikinn áhuga á að vita meira
um og talaðir oft um við okkur. Elsku
afí, við þökkum fyrir þær skemmti-
legu stundir sem við höfum átt með
þér og þær stundir munu lifa áfram
með okkur í minningunni um þig.
Með þessum fallegu línum biðjum við
Guð að geyma þig fyrir okkur.
Yndislega ættaijörð,
ástarkveðju heyr þú mina,
þakkarklökkva, kveðjugjörð,
kveð ég líf þitt móðir jörð.
Móðir bæði mild og hörð,
mig þú tak í arma þína.
Yndislega ættaijörð,
ástarkveðju heyr þú mína.
Faðir lífsins, faðir minn,
fel ég þér minn anda í hendur,
foldin geymi fjötur sinn.
Faðir lífsins, Drottinn minn,
hjálpi mér í himinn þinn.
heilagur máttur, veikum sendur.
Faðir lífsins, faðir minn
fel ég þér minn anda í hendur.
Esther Ruthj Gísli Haukur,
Anton Orn, Ástrós Osk og
Daði Rúnar.
Gróðurvinin
er í Mörkinni
Stjúpur
24 stk. aðeins
790,-
Opnunartímar:
• Virkadagakl. 9-21
• Umhelgarkl. 9-18
GRÓÐRARSTÖÐIN
Tré og runnar
Lauftré • Skrautrunnar • Barrtré
Þriggja ára
skrautrunnar
mikið úrval
STJÖRNUGRÓF 18, SÍMl 581 4288, FAXSSl 2228
Sækið sumariö til okkar
• Biðjið um vandaðan
garðræktarbækling
með plöntulista
Húsib og garburinn
Sunnudagsblaði Morgunblaðsins, 9. júní nk., fylgir blaðauki sem
heitir Húsib og garburinn. í blaðaukanum verður ýmis fróðleikur
fyrir áhugamenn um garðrækt, fjallað um umönnun garðsins, trjá-,
blóma- og matjurtarækt og garðskreytingar. Einnig verða upplýsingar
fyrir þá, sem vilja byrja að rækta garðinn sinn, fjallað um viðhald húsa,
sumarbústaða o.m.fl.
Þeim, sem áhuga hafa á ab auglýsa í þessum blabauka, er
bent á ab tekib er vib auglýsingapöntunum til kl. 12.00
mánudaginn 3. júní.
Anna Elínborg Gunnarsdóttir og Arnar Ottesen,
sölufulltrúar í auglýsingadeild, veita allar nánari
upplýsingar í síma 569 1171 eba meb símbréfi 569 1110.
- kjarni málsins!
Gísli B.