Morgunblaðið - 26.05.1996, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1996 43
Hlutavelta
saumavélar
í úrvali
(fi) Husqvarna
brother
ÁRA afmæli. Á
morgun, mánudag-
inn 27. maí, verður sjötugur
Ámi Guðjónsson, hæsta-
réttarlögmaður, frá
Breiðholti í Vestmanna-
eyjum, Bergstaðastræti
3, Reykjavík. Maki hans
er Edda Ragnarsdóttir.
Þau hjón eru að heiman um
þessar mundir.
BRIDS
Bmsjón (iuömundur l’áll
Arnarson
Lesandinn er í austur, í
vörn gegn þremur grönd-
um.
Norður gefur; allir á hættu.
Norður
♦ K92
V K3
♦ KG10865
♦ 93
Austur
♦ D73
V ÁDG5
♦ D
♦ 108642
Vestur Norður Austur Suður
Pass Pass 1 grand*
Pass 3 grönd Pass Pass
Pass
* 15-17
Útspil: Spaðasexa, flórða
hæsta.
Sagnhafi lætur lítinn
spaða úr borði og drottning
austurs heldur. Góð byijun,
en hvemig að ljúka verkinu?
Makker á spaðaásinn, en
ekki prik þar fyrir utan.
Komist sagnhafi að, þá tekur
hann tíu slagi: sex á tígul
og ijóra á lauf. Þú ert hins
vegar inni og sérð að vömin
getur tekið fimm slagi. En
þá þarf makker að drepa
strax á spaðaás og skipta
yfir í hjarta. Er hægt að
treysta honum til þess?
Norður
♦ K92
t K3
♦ KG10865
♦ 93
Austur
♦ D73
I t ÁDG5
111111 ♦ D
* 108642
Suður
♦ G5
t 10974
♦ Á94
+ ÁKDG
Vestur hefur allt annað
sjónarhorn á spilið og hann
gæti freistast til að gefa
næsta spaðaslag í þeirri von
að þú eigir innkomu á tígul-
ás og einn spaða til. Og lík-
lega er það besta vörnin,
ef þú spilar spaðasjöu til
baka. Þegar svarað er upp
í lit makkers, er venjan að
spila hærra spilinu frá tvílit
(af því sem eftir er) og
þriðja/fimmta frá lengd.
„Rétta“ spilið frá D73 er
því sjöan, en þristurinn
væri heiðarlegt spil frá
D753 eða D3.
Hér verður að blekkja
makker og spila spaðaþristi
um hæl. Makker gerirráð
fyrir að þú hafír byrjað með
D3 og sér þá enga framtíð
í spaðanaum. Hann mun því
drepa og gera það eina rétta
- skipta yfir í hjarta.
Vestur
+ Á10864
V 862
♦ 732
* 75
Hef opnað tannlæknastofu
í Hamraborg 11
(2. hæð, fyrir ofan Kópavogs Apótek).
Tímapantanir í síma 554 32 52.
SUMARBÚÐIRNAR VATNASKÓGI
Flokkaskrá sumarið 1996
Flokkur: Tími: Aldur: Verð:
1 - 4 FULLT!
5 1. - 10. júlí 12-13 ára 18.900
6 • 8 FULLT!
9, ungl. 6.-14. ág. 14-17 ára 16.900
10 14.-22. ág. 10 13 ára 16.900
11, íþr. 22.-30. ág. 9-12 ára 16.900
12, feðgar 30/8-1/9 7 - 99 ára 4.100
13, karlar 5.-8. sept. 17-99 ára 7.000
Skráð er í síma 588 8899 kl. 8-16
alla virka daga.
Ath: 10% afsláttur er fyrir systkini sem fara í
sumarbúðir KFUM og K.
Húsnæðisnefnd Reykjavíkur
Suðurlandsbraut 30
Húsnæðisnefnd Reykjavíkur auglýsir breytt
fyrirkomulag á úthlutun félagslegra íbúða.
Tekið er á móti umsóknum allt árið og þær
afgreiddar mánaðarlega.
Umsækjendur þurfa m.a. að uppfylla eftiifarandi
skilyrði:
1 Vera innan eigna- og tekjumarka
Húsnæðisstofnunar ríkisins, sem eru meðaltekjur
áranna 1993-1995.
Meðaltekjur einstaklinga kr. 1.500.000.
Meðaltekjur hjóna kr. 1.875.000,
Viðbót fyrir hvert bam kr. 250.000,
Eignamörk eru kr. 1.900.000,
2. Sýna fram á tiltekna greiðslugetu, sem er metin
hjá Húsnæðisnefnd Reykjavíkur.
3. Eiga lögheimili í Reykjavík.
Nánari upplýsingar fást hjá skrifstofu Húsnæðisnefndar
Reykjavíkur, Suðurlandsbraut 30, sími 568 1240, fax 588
9640, frá kl. 08-16 alla virka daga.
/VÁRA afmæli. Á
Dl/morgun, mánudag-
inn 27. maí, verður fimm-
tug Sigríður Björnsdóttir,
kennari, Hafnarfirði. Hún
og eiginmaður hennar Egill
Friðleifsson taka á móti
gestum í Þrastasalnum
v/Flatahraun á afmælis-
daginn kl. 20.
A rkÁRA afmæli. í dag,
TC vlsunnudaginn 26.
maí, er fertug Snæfríður
Karlsdóttir, Tjarnargötu
11, Sandgerði.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um af-
mæli, brúðkaup, ættarmót'
o.fl. lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingarnar þurfa að berst
með tveggja daga fyrir-
vara virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir helg-
ar. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í
bréfsíma 569-1329 sent á
netfangið:
gusta@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Dagók
Morgunblaðsins,
Kringlunni 1,
Morgunblaðið/Jónas Haraldsson
ÞESSAR duglegu stelpur héldu hlutaveltu til styrktar
sundlaugarsjóði í Vík í Mýrdal og söfnuðu þær 8.700
krónum. Þær heita talið frá vinstri Sigrún Bjarnadótt-
ir, Kolbrún Magga Matthíasdóttir, Solveig Sigríður
Gunnarsdóttir, Helena Smáradóttir, Berglind Guð-
mundsdóttir, Ilfa Birgisdóttir, Elísabet Ásta Magnús-
dóttir og Birgitta Hrund Kristinsdóttir.
TVIBURAR
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert hjálpfús
og hefur mikinn
áhugaá
mannúðarmálum.
Hrútur
(21. mars - 19. ápríl)
Taktu enga mikilvæga
ákvörðun í fjármálum í dag,
því ekki er allt sem sýnist.
Ástvinir leysa smá vandamál
með sameiginlegu átaki.
Naut
(20. apríl - 20. maí) If^
Gættu þess að særa engan
ef þú þarft tíma útaf fyrir
þig til að sinna einkamálun-
um. Þú sækir mannfagnað í
kvöld með ástvini.
Tvíburar
(21. mai - 20. júní)
Margt skemmtilegt er að
gerast í félagslífinu um helg-
ina, en þú ættir að varast
þátttöku í vafasömum við-
skiptum.
Krabbi
(21. júní — 22. júli)
Þótt fjármálin hafi þróast til
betri vegar, er óþarfi að eyða
strax nýfengnum gróða.
Hafðu hemil á skemmtana-
fýsninni.
Ljón
(23. júlí — 22. ágúst)
Þú þarft ekki að hlusta á ráð
annarra í íjármálum þar sem
þú ert vel fær um að taka
eigin ákvarðanir. Vináttu-
böndin styrkjast.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Þú skemmtir þér með góðum
vini í dag. En láttu ekki
freistast til að taka hliðar-
spor í ástarmálum. Of mikið
er í húfi.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Nú er tækifæri til að losa
sig við óþarfa drasl, sem
fyllir geymslurýmið og þú
notar ekki lengur. Blandaðu
geði við vini í kvöld.
Sporódreki
(23. okt. - 21. nóvember) ®Hj0
Þú færð góða ábendingu í
dag, sem getur auðvelþað
þér að bæta fjárhaginn. Ást-
vinur þarfnast umhyggju og
tillitssemi í kvöld.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember)
Þótt þú hafir ákveðna skoð-
un í deilumáli, sem upp kem-
ur, væri ekki úr vegi að
hlusta á það, sem aðrir hafa
um það að segja.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar) m
Þú tekur daginn snemma,
því það er margt sem bíður
þín í dag. Vertu ekki með
óþarfa hlédrægni þegar álits
þíns er leitað.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) öh
Dómgreind þín er góð, og
þú þarft ekki að efast um
hvort þú sért fær um að taka
mikilvæga ákvörðun. Þú rat-
ar á rétta svarið.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars)
Aðlaðandi framkoma opnar
þér nýjar dyr þegar þú hittir
áhrifamenn i mannfagnaði í
dag. Framtiðin lofar góðu.
Stjömuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Faxafeni14 Reykjavík sími 588 9505 Miðbæ Hafnarfirði sími 565 0165
Ljósmyndarinn Lára Long
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 7_. apríl sl. í Áskirkju
af sr. Árna Bergi Sigur-
björnssyni Heiða Mjöll
Stefánsdóttir og Hörður
Helgason. Heimili þeirra
er í Löngubrekku 9, Kópa-
vogi.
Ljósm. MYND Hafnarfirði
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 18. maí sl. í Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði af sr.
Einari Eyjólfssyni Þórhild-
ur Þórðardóttir og Haf-
steinn P. Kjartansson.
Heimili þeirra er í Álfa-
skeiði 102, Hafnarfirði.
9
mUSTElNN
Ljósm. MYND Hafnarfirði
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 16. maí sl. í Garða-
kirkju af sr. Braga Friðriks-
syni Elín Björg Ragnars-
dóttir og Sindri Grétars-
son. Heimili þeirra er í
Fagrabergi 58, Hafnarfirði.
Ljósmyndarinn Lára Long
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 30. mars sl. í Há-
teigskirkju af sr. Helgu
Soffíu Konráðsdóttur Lilja
Björk Baldursdóttir og
Kjartan Norðdahl. Með
þeim á myndinni er dóttir
þeirra Karen Ösp. Heimili
þeirra er á Háteigsvegi 20,
Reykjavík.
I DAG
Arnað heilla
STJÖRNUSPA
HARALDUR ARNGRÍMSSON,
tannlæknir