Morgunblaðið - 16.06.1996, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996 D 7
SUMARFRÍ Á ÍSLANDI
Fjallahjól í öllum stærðum og
mikið úrval fylgihluta. Komdu
við, kíktu á hjól og aukabúnað
og fáðu þér eintak af nýjum
fylgihlutabæklingi! Við getum
einnig sent þér bæklinginn i
pósti.
CÚP
leiðandi á sinu swiÖi
Spilaó og
lesió í f ríinu
ÞAÐ tilheyrir undirbúningi sum-
arfrísins hjá mörgum að birgja sig
upp af bókum og spilum til afþrey-
ingar. Reyndar er það svo að í dag-
legu amstri hefur bóklestur víða
þurft að láta í minni pokann og oft
er sumarfríið eini tíminn sem fólk
hefur til þess að njóta lesturs. Fjöl-
skyldur njóta þess líka að eyða tím-
anum saman við spil í fríinu, nokk-
uð sem kannski gefst ekki tími til
alla jafna.
Þegar blaðamaður leit ásamt ljós-
myndara inn í spilabúðina Genus í
Kringlunni, kom í ljós að spurninga-
spilið Trivial Pursuit nýtur enn mik-
illa vinsælda, en spilið kom fyrst á
markað hér á landi árið 1985.
Nokkrum árum síðar komu auka-
spurningar og svo komu nýjar
spumingar um síðustu jól. Spilið
kostar um fímm þúsund krónur.
Þau eru fleiri íjölskylduspilin sém
em vinsæl í sumarfríið. Sum höfða
til allrar fjölskyldunnar, önnur
höfða frekar til bama og unglinga
og enn önnur til fullorðinna. Meðal
þeirra spila sem hafa verið vinsæl
undanfarin ár má nefna krossgátu-
spilið Scrabble sem kostar rúmlega
fjögur þúsund, orðaleikinn Rummi-
kub sem er á um 2.500 krónur og
stríðsleikinn Risk á um 4.600 krón-
ur. Þar er barist um heimsyfirráð.
Krakkarnir eru spenntir fyrir
nýju Pocahontasspili, en þá sem
ekki vita er rétt að upplýsa að spil-
SPIL af ýmsu tagi eru líka vinsælt afþreyingarefni.
ið er nefnt eftir teiknimyndahetju
úr Walt Disney mynd. Púsluspil
alls konar em líka vinsæl fyrir
krakka á öllum aldri. Svo em það
alltaf spilastokkamir gömlu og
góðu sem þurfa að fylgja með í
farangrinum.
Of fáar göngulei Aabækur
„ Vegahandbókin er tvímælalaust
vinsælasta bók sumarferðalanga,"
segir Bryndís Loftsdóttir, hjá Ey-
mundssyni. „Af öðru íslensku les-
efni má nefna tímarit ýmiskonar
og krossgátublöð em mjög vinsæl.
Við verðum ekki vör við sérstaklega
mikla hreyfíngu á íslenskum bók-
um, nema helst íslendingasögun-
um. Fólk virðist gjarnan fara á
söguslóðir og kiljur eins og Egils-
saga, Laxdæla og Grettissaga eru
þar vinsælastar."
Bryndís sagði líka að Flóran seld-
ist alltaf vel yfír sumarið, sem og
þær allt of fáu gönguleiðabækur
sem til væra.
Þær erlendu kiljur sem eru á
mestri hreyfingu nú í upphafi sum-
ars em samkvæmt upplýsingum
Eymundssonar: The Green Mile eft-
ir Stephen King, Let Me Call You
Sweetheart eftir Mary Higgings
Clark, Games of State eftir Tom
Clancy og Horse Whisperer eftir
Nicholas Evans. Ennfremur A Place
Called Freedom eftir Ken Follet,
The Lost World eftir Michael Cric-
hton og Coming Home eftir Rosa-
mund Piccher. ■
...og eitt af því er vandað reiðhjól sem hentar við íslenskar aðstæður.
Mongoose alvöru fjallahjól hafa fyrir löngu sannað sig, hvort sem um er
að ræða notkun að sumri eða vetri og um það geta mörg þúsund eigendur
vitnað. Reiðhjólahjálmar eru nauðsynlegir til að verja höfuð þeirra sem
ferðast á hjóli og leggjum við hjá GÁP Fjallahjólabúðinni mikla áherslu á
það atriði með því að bjóða viðskipavinum okkar að velja úr úrvali
öryggishjálma á góðu verði. Jafnframt vekjum við sérstaka athygli á
kvenhnakka og kven- hjólafatnaði frá Bandaríska fyrirtækinu Terry. Komdu
við og ræddu við sölumenn okkar um verðtilboð og greiðslukjör.
A LVOR U FJALLAHJÓL
ALVÖRU FJALLAHJÓL
r-j—
..
iSli
/. :í '
%
/ *! i'
■ ^ ^ \ j
Moo.joose Sycamore, alvöru fjallahjól hlaðið ýmsum
aukabimadi. A litlu myiulmoi neðst til vinstri á siðunni getur
aó llta sams konar hjol an aukabúnaðar.
ÞUÁTT SKILIÐ ÞAÐ BESTA
Morgunblaðið/Sverrir
MARGIR nota sumarfríið til
bókalesturs.
A-Skaftafellssýsla
Færa út
kvíarnar í
þjónustu
Ferðaþjónustuaðilar í A-
Skaftafellssýslu eru að færa
út kvíarnar í þjónustu við
ferðamenn og hafa gefið út
gönguleiðakort. Nýtt far-
fuglaheimili er að opna að
Vagnstöðum í Suðursveit, I
Árnanesi í Hornafirði eru að
fara í gang skipulagðar he-
staferðir auk hefðbundinnar
hestaleigu. Miðað er við að
ferðirnar séu við flestra hæfi.
Hægt er að fá skjólfatnað
og öryggishjálmar eru að
sjálfsögðu fyrir alla.
í Árnanesi er einnig rekið
handverks- og listagallerí.
Hönnuðir eru allt þekktar
íslenskar leirlistakonur.
Skipulagðar ferðir eru í
Lónsöræfí í allt sumar og
ennfremur eru bátsferðir á
Lóninu. Jöklaferðir sjá um
ferðir upp á Skálafellsjökul.
Ýmist eru það vélsleða- eða
snjóbílaferðir. Hægt er að
gista í skálanum Jöklasel
uppi á jökli og njóta þar góðr-
ar þjónustu en skálinn hefur
vínveitingaleyfi. Frá Fagur-
hólsmýri eru ferðir út í Ing-
ólfshöfða. Farið er á hey-
vagni og fuglalíf skoðað í
höfðanum.
■
A1
FJALLAHjdLABÚDIW • FAXÁFEIUI 14 - REVKJAVIR - S: S68 5580 - netfang: gap@centrum.is
ALVÖRU FJALLAHJÓL ALVÖRU FJALLAHJÓL