Morgunblaðið - 16.06.1996, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 1996 D 21
SUMARFRÍ Á ÍSLANDI
. .en Björgvin reif allt úr,
meira að segja gólfið.
EFTIR eins árs vinnu birtist húsbíll út úr „rúmgóða" bílskúrnum.
könnuna í hendinni til að mála á
henni hliðarnar.“
Átta manna húsbíll
Rútan er núna skráð fyrir átta
manns, svo Björgvin og Ingibjörg
Svala geta farið með allan
krakkahópinn sinn í útilegu í einu.
Bör'nin eru nefnilega orðin fimm,
elsta dóttirin er 23 ára, þá kemur
önnur 17 ára, sú þriðja er 10 ára,
fjórða fimm ára og prinsinn í fjöl-
skyldunni er þriggja ára. „Við
ferðumst mjög mikið á bílnum,
bæði í styttri og lengri
ferðir,“ segir Ingibjörg
Svala. „Elsta dóttir okk-
ar, tengdasonurinn og
þeirra börn slást stundum
í för með okkur en oftast
erum við með þau þrjú
yngstu.“
Lakkið var ekki þornað
á „Bollunni“ þegar fjöl-
skyldan var gengin í Fé-
lag húsbílaeigenda. „Við
fórum í fyrstu ferðina
með félaginu um hvíta-
sunnuna 1986. Þá þótti
bíllinn mjög sérstakur, af
því að hann var svo stór,
en núna eru margir jafn
stórir. Okkur finnst mjög
þægilegt að vera með svo
stóran bíl, enda tekur
fjölskyldan sitt pláss. Það er líka
gott að hafa svo mikið rými, að
krakkarnir geta til dæmis leikið
sér inni þegar það er rigning úti.“
í húsbílnum er nóg geymslu-
pláss, skápar upp við loft, hirslur
undir sætum og ekki má gleyma
ísskápnum, með frystihólfi. „Við
kaupum allan mat fyrir ferðina
áður en við leggjum af stað, svo
við lendum aldrei í neinum vand-
ræðum á ferðalaginu. Það er mjög
þægilegt að geta gengið að þessu
öllu vísu.“
Barnafólkið á Bollunni
Frá fyrstu hvítasunnuferðinni
hafa Björgvin og Ingibjörg Svala
verið virk í húsbílafélaginu og
farið fjölmargar ferðir á vegum
þess. „Við erum enn svona í yngri
kantinum af félagsmönnum, því
það er mjög algengt að fólk fái
sér húsbíl eftir að börnin eru kom-
in á legg. Það er því oft fátt
barnafólk í ferðunum og stundum
erum við þau einu í lengri ferð-
um.“
Þegar þau hjón hófu húsbíla-
ferðir sínar var dóttirin Heiðrún
aðeins fjögurra mánaða, en frá
þeim tíma hafa bæst við þau El-
ísa Björg, fimm ára og Björgvin
Guðmundur, þriggja ára. „Ég
verð að viðurkenna að nafngiftina
á bílnum má rekja til þessa,“ seg-
ir Ingibjörg Svala og brosir við.
„Einn ferðafélaga okkar hafði á
orði að hann sæi mig aldrei öðru-
vísi en ólétta og bollunafnið fest-
ist á bílnum."
Borgar slg ekkl að yngja upp
Eftir ellefu ára sambúð með
„Bollunni" eru þau Björgvin og
Ingibjörg Svala ekkert að velta
fyrir sér að eignast nýjan húsbíl.
„Þessi hentar okkur mjög vel. Þar
að auki er mjög hagstætt að eiga
svona gamlan bíl. Bifreiðagjöld á
svona stóran bíl eru 46
þúsund á ári, en þessi
er svo gamall að bif-
reiðagjöldin eru fallin
niður. Það borgar sig því
ekki að yngja upp.
Tryggingaiðgjöld eru
aðeins 20 þúsund á ári,
en þá er miðað við að
bílnum sé aðeins ekið 8
þúsund kílómetra á ári.
Fyrstu árin sem við átt-
um bílinn tókum við
hann alltaf af númerum
á haustin og settum þau
aftur á á vorin, en núna
þarf ekki þessar tilfær-
ingar. Við notum bílinn
eftir sem áður aðeins í
um fjóra mánuði á ári.“
Notagildi Bollunnar
er ekki eingöngu bundið við sum-
arfrí fjölskyldunnar, enda á hún
myndarlegan sumarbústað. „Það
er alltaf hægt að nýta svona bíl,“
segir Björgvin. „Hann er til dæm-
is fyrirtaks veiðikofi. Það er ekki
amalegt að skreppa að fallegu
vatni, renna fyrir silung og búa
í bílnum, sem er alveg jafn rúm-
góður og mörg veiðihúsin."
HÚSBÍLL Björgvins og Ingibjargar Svölu er skráð-
ur fyrir 8 manns og honum er nánast hægt að
breyta í eina stóra flatsæng.
ferðamannastöðunum er að-
staðan að verða góð, til dæm-
is á Akureyri, í Laugardal og
í Keflavík."
Því fer fjarri að húsbílaeig-
endur láti sér nægja að semja
um iðgjöld og bifreiðagjöld,
því Félag húsbílaeigenda út-
vegar félagsmönnum sínum
afslátt hjá fjölda fyrirtækja
og skipuleggur ferðir vítt og
breitt um landið. í sumar eru
sex slíkar ferðir, sú fyrsta var
farin um hvítasunnuna, þar
sem 84 bílar söfnuðust saman
og um þessa helgi eru áreið-
anlega ekki færri í Þjórsár-
dalnum. En er ekki óhemju
dýrt að eiga húsbíl?
Frá „rúgbrauði" í höll
„Það fer nú eftir því hvern-
ig á það er litið,“ segir Björn
formaður. „Svona bíll kostar
kannski tvær til þrjár milljón-
ir. Sumir kaupa druslu og gera
hana upp, en aðrir kaupa nýrri
bíla. Þetta er ótrúlega misjafnt
og húsbílar eru allt frá litlum
Volkswagen-rúgbrauðum upp
í heilu hallirnar. Stærsti bíll-
inn innan okkar vébanda er
tíu metra langur.“
Húsbílaeigendur, sem inn-
rétta bíla sína sjálfir, hafa all-
ar klær úti til að verða sér úti
um hentuga hluti. „Hér á landi
er eitt fyrirtæki sem sérhæfir
sig í að flylja inn húsbílavörur
og ég reikna ekki með að það
sé grundvöllur fyrir fleiri slík-
um, enda ekki margir að inn-
rétta bíla á hvetju ári. Þá er
líka hægt að finna ýmislegt í
byggingaverslunum og gas-
búnaður í bílana fæst hjá olíu-
félögunum.“
Björn segir misjafnt hvert
húsbílaeigendur ferðist.
„Fyrri bíllinn minn var með
drifi á öllum hjólum og komst
upp um fjöll og firnindi ef því
var að skipta. Núna á ég Benz,
sem er ekki fjórhjóladrifinn,
en hann kemst alla helstu fjall-
vegina. Það er mjög misjafnt
hvort fólk fer fjallaleiðangra
eða heldur sig á láglendinu.
Sumir fara með bílinn sinn til
útlanda og ég hef til dæmis
farið þrisvar út með Norrænu
með minn bíl.“
Fjölskyldufólk
á fjórum hjólum
Húsbílaeign er nær ein-
göngu bundin við fjölskyldu-
fólk. „Meirihluti félagsmanna
er fullorðið fólk, sem er laust
úr mesta baslinu og getur leyft
sér að reka aukabíl, líkt og
jafnaldrar þess geta leyft sér
að eiga sumarbústað. Þetta
fólk vill gjarnan hafa öll þæg-
indi, en samt njóta ferðalaga
og útivistar. Ég verð að við-
urkenna að púkinn kemur
stundum upp í okkur þegar
við höfum það notalegt inni í
bíl, en allt um kring eltir fólk
tjöldin sín í roki og rigningu.
Þá er gott að eiga húsbíl,“
segir Björn Þorbjörnsson, hús-
bílaeigandi. ■
Dömuskór ^^1
Frábærir
U leðurgönguskór, |j
|ÉjL léttir, þægilegir og “
|jpi% vatnsþolnir.
Litur: Ljósbrúnir
Cantiliver hæll - Stærðir 35 1/2 - 41
Verð aðeins kr.
VERSLANIR
Skeifunni 19 S. 568-1717 • Laugavegi 51 S. 551-7717
Stefnumót
v i ð í s I a n d
Njóttu þess að dvelja á Hótel Eddu í sumar og eigðu stefnu-
mót við landið þitt í hlýlegu og heimilislegu umhverfi. Boðið
er upp á fjölbreyttar veitingar frá morgni til kvölds þar sem
veittur er sérstakur barnaafsláttur. Hægt er að velja milli
gistingar í uppbúnum herbergjum eða svefnpokaplássi.
í næsta nágrenni hótelanna eru ótal möguleikar á skemmti-
legri útivist þar sem öll fjölskyldan getur fundið eitthvað við
sitt hæfi.
Fimmta nóttin er frí!
s Ef dvalið er ( uppbúnu herbergi í fjórar nætur
l á Hótel Eddu í sumar er fimmta nóttin án
“ endurgjalds sem jafngildir 20% afslætti af
? hverri gistinótt. Tilboðið gildir út árið 1996.
Ferðaskrifstofa Islands • Skógarhlið 18 • 101 Reykjavlk • Sími 562 3300
- Heimasíða: http://www.artic.is/itb/edda