Morgunblaðið - 28.06.1996, Page 1

Morgunblaðið - 28.06.1996, Page 1
80 SIÐUR B/C/D 144. TBL. 84. ÁRG. FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Lebed veitist að vestrænni menningn Moskvu. Reuter. ALEXANDER Lebed, yfirmaður rússneska Öryggisráðsins, sagði í gær að héðan af yrði ekki snúið af braut umbóta og réðst um leið að vestrænum gildum og menning-u. Lebed sagði stuðningsmönnum sínum í ræðu, sem kemst næst því að teljast kosningaávarp fyrir Borís Jeltsín Rússlandsforseta frá því hann komst inn í innsta hring stjórnar hans eftir að hafa hreppt þriðja sætið í fyrri umferð forseta- kosninganna, að hann vildi endur- reisa mikilfengleika Rússlands og það yrði ekki gert með kommún- isma. Jeltsín væri ekki hinn full- komni forseti, en eini kosturinn. Lebed sagði að vestræn menn- ingarleg og trúarleg útþensla, sér- staklega erlendra trúarhópa, væri ógnun við rússneska öryggishags- muni. Leyfa mætti hefðbundin trú- arbrögð á borð við rétttrúnaðar- kirkjuna, íslam og búddatrú, en „allir þessir mormónar eru myglan og óþrifnaðurinn, sem er kominn til að eyða rikinu. Ríkið ætti að gera þá útlæga. Þeir ættu ekki að þrífast á okkar landi.“ Vísar fréttum um öryggisáætlun á bug Lebed vísaði því á bug í gær að hann hefði lagt fram fullgerða áætl- un um öryggismál í Rússlandi. Fréttastofan Interfax hélt því fram að samkvæmt áætluninni ætti að grípa til harðra pólitískra og efna- hagslegra ráðstafana, sem minntu fremur á hugsunarhátt sovét- tímans, en pólitískar og efnahags- legar umbætur undanfarinna fjög- urra ára. Lebed sagði að aðeins væri verið að vinna að hugmyndum, umrædd drög að áætlun hefðu verið gerð af fyrirrennurum hans í ráðinu. Seinni umferð kosninganna milli Jeltsíns og Gennadís Zjúganovs, leiðtoga kommúnista, verður 3. júlí, eða á miðvikudag, og kosningabar- áttan er í aigleymingi. Jeltsín skoraði í gær á þá, sem studdu Zjúganov í fyrri umferðinni, að kjósa ekki „gegn hinum nýju lífs- háttum". Jeltsín hefur i sjónvarps- auglýsingum lagt áherslu á ógnir Sovétríkjanna, þar á meðal aftökur, þrælkunarbúðir, borgarastyijöld og hungursneyð. í kosningaherbúðum Zjúganovs er því staðfastlega neitað að sigur hans myndi hafa í för með sér bið- raðir og tómar hillur. Zjúganov veittist einnig að vest- rænni menningu í gær og hét því að uppræta „siðleysi" í fjölmiðlum og endurreisa andleg rússnesk gildi. Zjúganov sagði á fundi með fulltrú- um rússnesku rétttrúnaðarkirkj- unnar að flokkur hans hefði horfið frá guðleysi á vegum rikisins. Reuter. TVEIR lögreglumenn fylgjast með Clinton Bandaríkjaforseta þar sem hann gengur í gegnum mannfjöldann er tók á móti honum í bænum Perouges. Hvalveiðar Falla frá undan- þágn- beiðni London. Reuter. BANDARÍKIN drógu í gær tilbaka beiðni sína á ársfundi Alþjóðahval- veiðiráðsins um undanþágu frá banni hvalveiðibanniráðsins fyrir indíana af ættbálkinum Makah. Farið hafði verið fram á undan- þágu þannig að indíánarnir gætu fellt fimm dýr samkvæmt reglum ráðsins um frumbyggjaveiðar. Nokkrir fulltrúar á ársfundinum drógu í efa að Makah-indíánar upp- fylltu skilyrðin fyrir slíkar veiðar, þar sem að þeir hefðu lifað af án hvalveiða í sjö áratugi. Þá báðu fulltrúar um nánari upplýsingar um hvernig til stæði að veiða hvalina. James Baker, leiðtogi bandarísku sendinefndarinnar, sagði að beiðnin um undanþágu yrði dregin tilbaka tímabundið þannig að hægt yrði að veita ættbálknum tækifæri til að svara þeim fyrirspurnum er hefðu borist. Yrði hún lögð fram að nýju á næsta ársfundi. í dag verða greidd atkvæði um svipaða undanþágubeiðni frá Rúss- um vegna íbúa á Chukotska-skaga. Arnór Halldórsson, sem er áheyrnarfulltrúi íslands á ráðstefn- unni, sagði í samtali við Morgun- blaðið að tillaga Japana um að fá kvóta fyrir 50 hrefnur hefði verið felld í gær með 16 atkvæðum gegn 8 en sambærileg tillaga hefur verið felld með sama atkvæðamun á fyrri fundum ráðsins. Arnór sagði að búast mætti við átökum um nokkr- ar tillögur sem kæmu til atkvæða á fundinum í dag, m.a. gegn hval- veiðum í Kanada. Þar er um að ræða beiðni um undanþágu fyrir indíánaættbálk í Kanada til að fella eitt dýr. Fundur sjö helstu iðnríkja heims hefst í Lyon Heita hertri baráttu gegn hryðjuverkum Lyon. Reuter. LEIÐTOGAR sjö helstu iðnríkja heims samþykktu í gærkvöldi álykt- un þar sem hryðjuverk eru fordæmd og því er heitið að baráttan gegn þeim verði hert. Catherine Colonna, talsmaður Jaeques Chiracs Frakk- landsforseta, sagði að tilgangur ályktunarinnar væri ekki að leggja til sértækar aðgerðir í baráttunni gegn hryðjuverkum, heldur senda skýr skilaboð þar sem hermdarverk í allri sinni mynd eru fordæmd. Chirac sagði á blaðamannafundi með Bill Clinton Bandaríkjaforseta að ráðherrar iðnríkjanna myndu hittast aftur eftir þijár vikur til að ræða baráttuna gegn hryðjuverkum. Clinton sagði í ræðu er hann hélt fyrr um daginn í bænum Perouges að hryðjuverk væru ein helsta ógn- unin við frelsi í heiminum að kalda stríðinu loknu. Bærinn var frelsaður sameiginlega af bandarískum her- mönnum og frönsku andspyrnu- hreyfingunni í lok síðari heimsstyij- aldarinnar og sagði Clinton að nú yrðu menn að taka saman höndum á sama hátt til verndar frelsi í heim- inum. „Við verðum að sameina krafta umburðarlyndis og frelsis í barátt- unni gegn hryðjuverkum, rétt eins og við beijumst fyrir friði í Bosníu undir öflugri forystu Frakka og Chiracs forseta," sagði Clinton. Hann sagðist vona að á fundinum yrði samþykkt áætlun í fjörutíu lið- um er miðaði að því að beijast gegn hryðjuverkum, skipulagðri glæpa- starfsemi, eiturlyfjasölu og kjarn- orkusmygli. Hafa sérfræðingar unn- ið að smíði áætlunarinnar frá síðasta leiðtogafundi, er haldinn var í Hali- fax í Kanada. Að sögn stjórnarerindreka er helst búist við deilum um það, hver afstað- an til ríkja á borð við íran, Líbýu og Sýrlands eigi að vera. Banda- ríkjastjórn sakar þessi riki um að styðja hryðjuverk og vill beita þau hörðum refsiaðgerðum. Onnur ríki í hópnum eru því andvíg. Upphaflega átti baráttan gegn hryðjuverkum ekki að vera megin- efni fundarins en dagskrá hans var breytt í kjölfar sprengjutilræðis í bandarískri herstöð á þriðjudag, þar sem nítján féllu. Meðal annarra mála, sem rædd eru á fundinurp, er alþjóðavæðing efnahagslífsins og áhrif þess á at- vinnu, velferðarkerfi, fjármálamark- aði og þróunarríki. Þá verður á fundinum rædd áætl- un um stuðning við 40 fátækustu ríki heims. Efnahagsályktun fundarins verð- ur samþykkt síðdegis í dag skömmu áður en viðræður leiðtoganna við Viktor Tsjernómyrdín, forsætisráð- herra Rússlands, hefjast. Búa sig undir efnavopnaárás Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gær áætlun um að búa Bandaríkin undir árás hryðjuverka- manna er myndu beita efnavopnum eða lífrænum vopnum. Sam Nunn, einn flutningsmanna tillögunnar, sagðist telja miklar líkur á að árás af þessu tagi myndi eiga sér stað á næstu árum. „Við viljum ekki þurfa að svara fyrir það af hveiju við vorum ekki undir slíkt búnir. Við viljum ekki Pearl Harbour hér innanlands,“ sagði Nunn. Reuter Burt með eiturlyfin KÍNVERSKIR lögreglumenn brenna 896 kíló af blönduðum eiturlyfjum í borginni Putian. Lögregla hafði lagt hald á eit- urlyfin frá árinu 1994 og var þeim tortímt í tilefni af bar- áttudegi Sameinuðu þjóðanna gegn eiturlyfjum. Að minnsta kosti 110 menn, er gerst höfðu brotlegir við eiturlyfjalöggjöf Kína, voru einnig teknir af lífi. Gagnleg- ustu málin Hnissi'l. Rciitor. ENSKA og rússneska eru þau tungumál sem flestir Evrópubú- ar tala eða skilja, samkvæmt nýrri skoðanakönnun ESB. Einn af hveijum þremur að- spurðum sagðist telja sig tala skiljanlega ensku, 15% skilja frönsku og 9% þýsku. Ef A-Evr- ópu væri 'oætt við er rússneska liins vegar það tungumál sem flestir skilja eða alls 35%. Port- úgalska, finnska og gríska voru af flestum nefnd sem mál er ekki væri hagur af að kunna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.