Morgunblaðið - 28.06.1996, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1996 9
FRÉTTIR
ERU ÞEIR AÐ FA’ANN?
22 punda flugu-
lax úr Vatnsdalsá
VEIÐI gekk með miklum ágætum
í Vatnsdalsá er veiðimenn mund-
uðu þat' stangir í fyrsta sinn á
þessu sumri. Hófst veiðin á mið-
vikudagsmorgun og á hádegi í
gær, eftir einn og hálfan dag voru
komnir 17 laxar á land, allt stór-
laxar, 10 til 22 pund. í Vatnsdalsá
er nú veitt samkvæmt kerfinu
„veiða-sleppa“ og verður svo til
17. ágúst.
Að sögn Gylfa Ingasonar, sem
var meðal veiðimanna við Vatns-
dalsá, verður nú allur lax merktur
og fylgst nákvæmlega með endur-
veiddum fiskum er leyft verður að
drepa lax á ný í ágúst. Næstu þrjú
sumur verður síðan öllum laxi
sleppt.
22 punda flugulax...
Gylfi veiddi sjálfur stærsta lax-
inn í gærmorgun, 22 punda hæng
í Hnausastreng á Black Sheep
númer 8. Flestir laxarnir veiddust
á Black Sheep, en einnig gaf svört
Frances aðeins. Sagði Gylfi þyngd
ákvarðaða samkvæmt reynslu
manna. Hængurinn hans hefði ver-
ið 101 sentimetri á lengd og akfeit-
ur. Það hefði verið mál manna að
hann væri 22 pund. Auk þess
veiddust í opnuninni tveir 17 punda
og einn 15 punda. Hnausastrengur
hefur gefið flesta láxana en í gær-
morgun veiddust fyrstu laxarnir
fyrir ofan Flóðið.
Rífandi opnun í Álftá
Álftá á Mýrum opnaði eftir há-
degi á þriðjudag og var strax
hörkuveiði. Þeir sem veiddu fyrsta
daginn fengu 7 laxa og 7 sjóbirt-
MARGUR hefur byijað ver-
tíðina verr en Hafsteinn Orri
Ingvason. Hann renndi í
Langá og fékk þessa 13 og
17 punda fiska, þann stærri á
maðk í Krókódíl, en þann
smærri á flugu í Stangarhyl
sem er í baksýn.
inga og gátu þeir þó lítið athafnað
sig á morgunvaktinni vegna flóðs
og gruggs sem hljóp í ána í stór-
rigningu um nóttina. Laxinn var
allur smár, 4-6 pund og sjóbirting-
arnir upp í 4 pund. Laxarnir veidd-
ust mest í Hrafnshyl og á Kerfoss-
svæðinu, en menn sáu lax miklu
víðar. Allur laxinn kom á maðk,
en margir sjóbirtingana tóku flugu.
Glaðnandi veiði víða
Fjórir laxar voru komnir úr Sog-
inu í gær, þrír úr Bíldsfelli og einn
úr Alviðru. Stærstur 13 punda.
Hafa menn að sögn séð nokkuð líf
í ánni, einkum í Bíldsfellinu og
bæði þar og á Ásgarðssvæðinu
hafa menn auk þess fengið ljóm-
andi bleikjuveiði. Hafa veiðst
bleikjur allt að 5 punda, en þorrinn
er þó 1-2,5 pund.
Hlutirnir gerast hratt í Norðurá,
þar lauk holl veiðum í gærdag með
76 laxa og voru þá komnir 380
laxar á land. Er áin langefst. Lax
er upp um alla á, meira að segja
fyrir ofan Króksfoss. Miklar smá-
laxagöngur eru á ferðinni og fara
hratt yfir.
Gljúfurá er einnig að lifna aft-
ur. Fyrst var hún opnuð með 8
löxum, en næsta holl náði aðeins
einum fiski. Þriðja hollið fékk hins
vegar 11 laxa og sá laxa víða,
ekki síst á neðri svæðunum þar
sem auðsjáanlega voru góðar
göngur á ferðinni.
Um 50 laxar voru komnir úr
Víðidalsá í gærdag, að sögn Ragn-
ars Gunnlaugssonar á Bakka í
Víðidal, og er fiskur kominn alla
leið inn í Kolugljúfur. Þá er sjó-
bleikja farin að reytast á land á
silungasvæði árinnar og þar hefur
einnig veiðst einn lax.
Það gengur vel í Langá að sögn
Ingva Hrafns Jónssonar, eins
leigutaka árinnar, rúmlega 100
laxar hafa veiðst á neðstu svæðun-
um og algeng dagsveiði þar er 8
til 15 laxar. Á miðsvæðunum voru
komnir 35 laxar í gærdag og menn
eru að fá 3 til 8 fiska á dag á
þeim slóðum. Þá hafa nokkrir lax-
ar veiðst í hyljum neðan Sveðju-
foss á efstu svæðunum.
Loks er að geta Rarígánna, um
20 laxar eru komnir úr Ytri Rangá,
flestir stórir, 10 til 13 pund. Þá
eru fyrstu laxarnir komnir úr
Eystri-Rangá, tveir af svæði 4 og
aðrir tveir af svæði 9, sem kennt
er við Bergsnef. Annar laxanna
þar var rúmlega 14 pund.
Kosiðum pENT.UM Á
RIPIlö’lS" ■ ■■■ « ■ ■ w IVI Mr^k
utsoiu BESSASTAÐI
KOSIÐ verður um hvort áfengisút-
sölur skuli opnaðar á Dalvík og Þórs-
höfn, um leið og menn velja einn
frambjóðenda til embættis forseta á
laugardag.
Einnig verður kannað í Suður-
Þingeyjarsýslu hvort vilji sé hjá kjós-
endum fyrir því að ræða hugsanlega
sameiningu sveitarfélaga á svæðinu,
segir Olafur Birgir Árnason formað-
ur yfirkjörstjórnar Norðurlands
eystra.
------♦ ♦ ♦-----
Ónýtir eftir
árekstur
HARÐUR árekstur varð á mótum
Kringlumýrar- og Miklubrauta í
gærdag klukkan tvö. Tveir fólksbílar
skullu saman og þurfti að draga þá
af slysstað.
Ökumennirnir voru einir í hvorum
bíl um sig og var annar þeirra flutt-
ur á slysadeild með sjúkrabíl vegna
eymsla í fæti. Hinn var fluttur á
slysadeild með lögreglubíl. Slökkvi-
liðið var einnig kallað til og hreins-
aði upp olíu af götunni.
Pentium 100 MhZ
Intel 100MHZ örgjörvi
8mb innra minni
14" lággeisla litaskjár
1280 mb harður diskur
Cirrus Logic 1 mb skjákort
Win'95 lyklaborð
Þriggja takka mús
256kb skyndiminni
Plug&Play Bios
PCI gagnabrautir
3.5" disklingadrif
6 hraða geísladríf
16 bita hljóðkort
- Grensásvegur 3 - Sími: 5885900 -
- kjarni málsins!
Morgunblaðið/Golli
ENDURBÓTUM á Einarshúsi í Hafnarfirði er að ljúka.
Nýjar verslanir
í fornfrægu húsi
ENDURBÓTUM á húsinu við
Strandgötu 49 í Hafnarfirði er nú
að mestu lokið og hafa verslanir í
húsinu verið opnaðar. Að utan hef-
ur húsið verið fært í upprunalegt
horf, og í öðru verslunarplássinu á
jarðhæð eru innréttingar frá því
húsið var byggt árið 1907. Þær eru
einhveijar elstu upprunalegu versl-
unarinnréttingar hérlendis.
Fyrirtækin á jarðhæð hússins eru
Vort daglegt brauð og Einarsbúð.
Vort daglegt brauð er útsölustaður
frá Kökubankanum, sem er í eigu
Þorsteins Stígssonar og Þóru
Hauksdóttur. Þar verða innrétting-
arnar upprunalegu. Einarsbúð er
vinnu- og útilífsfatabúð og er hún
í eigu Elsu Aðalsteinsdóttur og Ing-
vars Árnasonar.
Þorgils Óttar Mathiesen keypti
húsið fyrir tæpu ári ásamt unnustu
sinni, Bertu G. Guðmundsdóttur,
en það var langafi Þorgils Óttars,
Einar Þorgilsson útgerðarmaður og
kaupmaður, sem byggði húsið árið
1907.
Þorgils Óttar og Berta fluttu fyr-
ir um tveimur mánuðum inn í íbúð
á 2. hæð sem áður var um 60 fm
skrifstofuhúsnæði en þau stækkuðu
það og gerðu úr því um 80 fm íbúð.
Þau eiga síðar möguleika á að gera
risið íbúðarhæft. Enn er ófrágengið
um 100 fm pláss á 2. hæð.
Þorgils Óttar segir húsið alveg
að verða tilbúið að utan, aðeins eigi
eftir að mála hluta bakhliðar og
ganga frá nokkrum smáatriðum.
Fólk er alltaf
að vinna
íGullnámunni:
70 milljónir
Vikuna 20. - 26. júní voru samtals 69.779.930 kr.
greiddar út í happdrættisvélum um allt land. Þetta voru
bæöi veglegir Silfurpottar og fjöldinn allur af öörum
vinningum. Silfurpottar í vikunni:
Dags. Staöur Upphæö kr.
21. júní Kringlukráin 53.576
21. júní Catalina, Kópavogi 268.804
22. júní Hard Rock Café 109.290
22. júní Mónakó 135.956
23. júní Háspenna, Hafnarstræti... 105.381
23. júní Háspenna, Hafnarstræti... 58.307
24. júní Pizza 67, Hafnarfirði 197.611
Staöa Gullpottsins 26. júní, kl. 23.30
var 9.185.000 krónur.
Q
Q
Silfurpottarnir byrja alltaf i 50.000 kr. og Gullpottarnir i 2.000.000 k!
og hækka síöan jafnt og þétt þar til þeir detta.