Morgunblaðið - 28.06.1996, Qupperneq 10
10 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FORSETAKJOR ’96
STEFÁN Ólafsson, forstöðumaður
Félagsvísindastofnunar, segir að
skipting úrtakshópsins í skoðan-
könnun Félagsvísindastofnunar
sem birtist í Morgunblaðinu í gær
bendi til þess að fylgi Ólafs Ragn-
ars Grímssonar kunni að vera van-
metið, en fylgi Péturs Kr. Hafsteins
og Guðrúnar Agnarsdóttur ofmetið.
Samkvæmt könnuninni hefur
fylgi Ólafs Ragnars lækkað úr
41,7% í könnun, sem gerð var 22.
og 23. júní, niður í 36,4%. Fylgi
Péturs lækkar úr 33,3% í 32,6%,
fylgi Guðrúnar hækkar úr 20,1% í
27% og fylgi Ástþórs Magnússon
fer úr 4,9% í 4%.
Ekki eins skipting
Skoðanakannanir hafa sýnt að
Ólafur á mikinn stuðning meðal
framsóknarmanna og Pétur nýtur
mikils stuðnings meðal sjálfstæðis-
manna. Það kann þess vegna að
hafa haft einhver áhrif á niðurstöðu
þeirrar könnunar sem birtist í
Fylgi Ólafs Ragnars
líklega vanmetið
Morgunblaðinu í gær, að færri
framsóknarmenn eru í svarenda-
hópnum en í fyrri könnun, en sjálf-
stæðismenn eru hins vegar fleiri. í
könnuninni sem gerð var 22.-23.
júní svöruðu 151 framsóknarmað-
ur, en í þeirri könnun sem gerð var
25.-26. júní svöruðu 117 framsókn-
armenn. 283 sjálfstæðismenn svör-
uðu í síðustu könnun en 243 í könn-
uninni sem gerð var 22.-23. júní.
Stefán sagði að leiða mætti líkur
að því að fylgi Ólafs Ragnars væri
vanmetið um allt að 2% og fylgi
Péturs ofmetið um 1-2%. Fylgi
Guðrúnar væri hugsanlega einnig
ofmetið.
Ungir skipta um skoðun
í tveimur skoðanakönnunum sem
Félagsvísindastofnun gerði í síðustu
viku mældist fylgi Ólafs Ragnars
rúmlega 40% á Reykjanesi, en í
þeirri könnun sem gerð var 25.-26.
júní mældist fylgi hans á Reykja-
nesi 31,2%. Pétur nýtur mests fylg-
is frambjóðanda á Reykjanesi. Ólaf-
ur Ragnar, Pétur og Guðrún mæl-
ast með svipað fylgi í Reykjavík
eða um 30%.
1. Hvem af eftirtöldum frambjóðendum vildir þú helst fá sem næsta forseta íslands?
2. Þau sem sögöu „veit ekki“ vom spurð áfram: En hvern telurðu líklegast að þú munir styðja?
Þau sem tóku afstöðu 30. maí-5. júní 14.-17. júní 22.-23. júní 25.-26. júní
1. spurning 69,7% 64,1% 73,1% 74,8%
32 6%I 1. og 2. spurning 83,6% 84,8% 86,7% 87,2%
36,9%
3
05
.c
E
3
S-
1
36,4% 1 +/,
35/
34,2%
25,0%
Ólafur Ragnar
Grimsson
PéturKr.
Hafstein
Guðrún
Agnarsdóttir
Ástþór
Magnússon
Oráðnir, skila
auðu, kjósa ekki,
neita að svara
25,1%
12,8%
Fylgi einstakra frambjóðenda skipt eftir búsetu þátttakenda
Ólafur Ragnar Grímsson
Niðurstöður eftir
1. og 2. spumingu
Pétur Kr. Hafstein
Guðrún Agnarsdóttir
Astþór
Magnússon
Allt landið
136,4%
132,6%
127,0%
Reykjavík
Reykjanes
Landsbyggðin
133,6%
331,2%
j 43,0%
30,6%
38,6%
30,6%
5,2%
30,6%
25,4%
24,2% 02,3%
Fylgi einstakra frambjóðenda skipt eftir kyni og aldri
Ástþór
Guðrún Agnarsdóttir Magnússon
Niðurstöður eftir
1. og 2. spumingu
Ólafur Ragnar Grímsson Pétur Kr. Hafsteín
Karlar
Konur
| 41,6%
31,6%
135,9%
129,7%
116,5%
36,6%
|6,0%
Q2,1%
60-75 ára | ........42,6%
35-44 ára I ..........131,1 %
25-34 ára l 132,0%
18-24 ára I 136,9%
43,4%
|13,1%
334,7%
321,4%
125,1%
330,5%
330,7%
□ 35,0%
10,8%
13,3%
□ 6,6%
02,7%
□ 6,8%
í könnun Félagsvísindastofnunar
kemur fram að fylgi Ólafs Ragnars
meðal eldri kjósenda minnkar.
Stuðningur við hann meðal kjós-
enda í aldurshópnum 45-59 ára fer
úr 50% í 40,4% og í aldurshópnum
60-75 ára úr 54,4% í 42,6%. Hann
styrkir hins vegar stöðu sína meðal
yngsta kjósendahópsins þar sem
fylgið fer úr 27,4% í 36,9%. Fylgi
Péturs meðal þeirra sem eru á miðj-
um aldri breytist lítið, en fylgi hans
meðal þeirra sem eru 18-24 ára fer
úr 39,8% í 21,4%. Stuðningur við
hann meðal þeirra sem eru 60-75
ára fer hins vegar úr 33% í 43,4%.
Fylgi við Guðrúnu Agnarsdóttur
eykst í öllum aldurshópum, en mest
þó í yngri aldurshópunum. Stuðn-
ingur við hana meðal þeirra sem
eru 18-24 ára fer úr 24,8% í 35%.
Rétt er að leggja áherslu á að
sú könnun sem hér er gerð grein
fyrir var gerð 25.-26. júní, en sú
könnun sem sagt er frá í dag á
baksíðu blaðsins var gerð í gær og
í fyrradag.
Breyting á fylgi frambjóðenda til embættis
forseta íslands á milli skoðanakannana
30. maí-5. júní 14.-17. juní 22.-23. júní 25.-26. júní Niðurstöður úr
44,1% 4n 4o/. 41,7% 1. og 2. spurningu
28,5%
33,3% _Q 7^i 36,4% Ólafur Ragnar Grímsson
* 32,6% Pétur Kr. Hafstein
27,0% Guðrún Agnarsdóttir
14,0%1
Guðrún Pétursdóttir
4,0% Ástþór Magnússon
Hvaða frambjóðanda hyggjast menn kjósa sem næsta forseta
íslands?, greínt eftir því hvað menn kusu í síðustu Alþingiskosningum
Niðurstöður úr 1. og 2. spurningu
I I ÁstþórMagnússon I I Ólafur Raonar Grimsson
þÚxl Guðnin Agnarsdóttir I---1 Pétur Kr. Hafstein
Kusu Alþýðuflokk
4,9%
29,6%
Kusu Sjálfstæðisflokk Kusu Kvennalista
2^8% 19,1% 2,6%
40,7%
24,7%
18,4%
59,7%
Kusu Framsóknarflokk Kusu Alþýðubandalag Kusu Þjóðvaka
1^L21,5%
55,6%
15,4% 2,5%
38,5%
74,7%
38,5%
15,4%
Flókagata - Reykjavík
Vorum að fá til sölu 3ja herb. íbúð á 1. hæð á þessum
vinsæla stað. Samþ. teikning fyrir 36 fm bílsk.
Heimas. Sigurður551 7253 og Valhús, sími 565 1122.
Skúlaskeið - Hafnarfirði
Falleg 3ja herbergja íbúð á 2. hæð auk herbergis í kjall-
ara. Ibúðin er öll endurnýjuð. Góð lán. Góð staðsetning
í nágrenni við Hellisgerði.
Upplýsingar gefur Þórdís í síma 565 5488 og Valhús í
síma 565 1122.
Mosfellsbær - raðhús
Bein sala eða skipti á ódýrari eign í Hafnarfirði eða
Garðabæ. 145 fm raðhús á tveimur hæðum ásamt bíl-
skúr. 4 svefnherb. Góð lóð og nýr sólpallur. Áhvílandi
góð lán 6,7 millj. Verð 10,7 millj.
Upplýsingar hjá Sverri í síma 565 3503
eða Valhús í sfma 565 1122.
RÚV og Stöð 2
Sameiginleg
útsending
RÍKISSJÓNVARPIÐ og Stöð 2
munu sameiginlega standa fyrir sjón-
varpsfundi forsetaframbjóðenda í
kvöld og kosningavöku að kvöldi
kjördags.
Sjónvarpsstöðvarnar verða með
beina útsendingu frá fundi frambjóð-
endanna fjögurra milli kl. 21.20 og
22.50 í kvöld. Að kvöldi kjördags
hefst sameiginleg kosningavaka kl.
21.30, þar sem fylgst verður með
talningu atkvæða.
Gallup-könnun
> ____
Fylgi Olafs Ragnars
minnkar um 5%
FYLGI Ólafs Ragnars Grímssonar
minnkar en Pétur Kr. Hafstein og
Guðrún Agnarsdóttir bæta við sig,
samkvæmt könnun Gallups sem
gerð var á þriðjudag og miðvikudag.
39,3% þeirra sem spurðir voru
kváðust ætla að kjósa Olaf Ragnar
eða töldu líklegast að hann yrði
fyrir valinu. Samsvarandi hlutfall
hjá Pétri er 30,7%,,25,7% hjá Guð-
rúnu og 4,3% hjá Ástþóri Magnús-
syni. Þegar þetta er borið saman
við síðustu könnun Gallups sem
gerð var þremur dögum fyrr sést
að fylgi Ólafs Ragnars hefur minnk-
að um rúmlega 5% sem telst mark-
tæk minnkun, að því er fram kemur
hjá Gallup. Á móti eykst fylgi Pét-
urs um 2% og Guðrúnar um 2,7%
en aukning þeirra telst ekki mark-
tæk.
Fram kemur að þetta er í fyrsta
sinn í Gallup-könnun, frá því fram-
boðsfrestur rann út, sem fylgi Ólafs
Ragnars fer niður fyrir 40% mark-
ið. Þá hefur fylgi Péturs og Guðrún-
ar ekki mælst eins mikið fyrr. Sam-
kvæmt könnuninni hefur Ólafur
Ragnar marktækt meira fylgi en
aðrir þá daga sem könnunin var
gerð en munur á fylgi Péturs og
Guðrúnar nær því ekki að vera
marktækur. Fylgi Ástþórs er svipað
og áður.