Morgunblaðið - 28.06.1996, Síða 11

Morgunblaðið - 28.06.1996, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1996 11 Auglýsing Trúmál og forseti íslands Af þeim sem nú eru í kjöri til forseta íslands, hefur aðeins einn frambjóðandi gefið tilefni til umræðna um trúarlega afstöðu sína fyrr og nú. Sú umræða hefur farið fram í fjölmiðlum og því auðvelt að festa hendur á því sem sagt hefur verið og mestu máli skiptir. Sá frambjóðandi sem hér er átt við er Ólafur Ragnar Grímsson. Það sem hann hefur sagt um viðhorf sitt til trúmála á erindi til kjósenda. Rétturinn til að velja og hafna er í þeirra höndum. Það val á að byggjast á þekkingu. Sá fróðleikur sem hér fer á eftir er upprifjun á eigin orðum Ólafs Ragnars Grímssonar. Trúarviðhorf í 15 ár í október sl. var rætt við Ólaf Ragnar Grímsson í þættinum Þriðja manninum á Rás 2. Rifjað var upp að hann hefði sagt í viðtali í Helgarpóstinum 15 árum áður að hann væri „nokkuð sannfærður um að guð væri ekki til.“ Síðan var Ólafur spurður: „Ertu enn þeirrar skoðunar?“ Svar Ólafs: ,Já ég er það nú eiginlega.“ í framhaldi af þessu svari ræddi Ólafur um kynni sín af trúarbrögðum framandi þjóða sem trúa á marga guði og einnig á stokka og steina og sagði síðan að eftir þessi kynni „er voðalega erfitt að sannfæra mig um að einhver einn af þessum guðum sé hinn eini rétti þ.e.a.s. sá sem ríkir í kirkjunum hér heima.“ Síðan var Ólafur spurður beinni spurningu: „Á hvað trúir þú?“ Svar Ólafs: „Ég veit það eiginlega ekki. Ég held að þrátt fyrir allt að þá trúi ég svona einna helst á manninn.“ 10. júní1996 í viðtali við Elínu Hirst á Stöð 2 hinn 10. júní sl. sagði forsetaframbjóðandinn Ólafur Ragnar Grímsson: „Auðvitað er ég kristinn maður eins og þorri þjóðarinnar og hef verið í þjóðkirkjunni, skírður og fermdur og trúi á þann guð sem að sérstaklega amma mín kenndi mér að trúa á.“ Og einnig: „Víst trúi ég á guð, Elín.“ Svo til öll íslenska þjóðin tilheyrir þjóðkirkjunni og öðrum kristnum söfnuðum. Það er hennar að meta hverjum hún treystir í trúmálum. ÓHÁÐIR ÁHUGAMENN UM FORSETAKJÖR 1996

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.