Morgunblaðið - 28.06.1996, Síða 20

Morgunblaðið - 28.06.1996, Síða 20
20 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1996 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ i Vaclav Klaus áfram við völd Prag. Reuter. STJÓRNARFLOKKARNIR í Tékk- landi undirrituðu í gær nýjan stjórn- arsáttmála en þeir misstu meirihlut- ann naumlega í þingkosningum nýverið. Mun hægrimaðurinn Vaclav Klaus forsætisráðherra nú mynda minnihlutastjórn og er búist við að hún njóti stuðnings jafnaðar- mannaflokks Milos Zemans sem vann mjög á í kosningunum. Klaus varð á síðustu stundu að sætta sig við að fiokkur hans fengi aðeins helming ráðherraembætta en ekki meirihluta þeirra. Tékk- neska þingið gerði í gær Zeman að þingforseta og hefur þá eitt af skil- yrðum hans fyrir stuðningi verið uppfyllt en að auki er búist við að jafnaðarmenn fái forystu í nokkrum þingnefndum. Vaclav Havel forseti mun hafa átt mikinn þátt í að mála- miðlun náðist. Zeman er svarinn andstæðingur Klaus sem margir saka um hroka og yfirgang. Stjórnin hefur aðeins 99 af 200 sætum á bak við sig og búist er við að samskiptin við jafn- aðarmenn verði oft erfið. Þeir ætla að reyna að knýja fram ýmsar breytingar á stefnunni í félags- og heilbrigðismálum áður en gengið verður til atkvæða um traust á stjórnina. Klaus er í forystu fyrir Borgara- lega lýðræðisflokknum og er nú eini eindregni hægrisinninn við völd í fyrrverandi kommúnistaríkjum Mið- og Austur-Evrópu. „Ég tel að á grundvelli þessa sáttmála getum við haldið áfram næstu mánuði og ár,“ sagði Klaus er hann skálaði við samstarfsmenn sína í hinum fiokkunum tveim sem mynda stjórnina,. Reuter VACLAV Klaus (fyrir miðju) forsætisráðherra horfir á leiðtoga samstarfsflokka Borgaralega lýð- ræðisflokksins takast í hendur í gær eftir að hafa samið um myndun minnihlutastjórnar. Bildt gefur lítið fyrir kröfur Karadzics Pale í Bosníu. Reuter. Skipverj- ar á Ordz- honíkídze skutu Crabb TALIÐ er að dularfullt hvarf breska froskmannsins Lionels Crabbs í höfninni í Portsmouth fyrir um 40 árum sé nú upp- lýst, segir í Berlingske Tidende nýverið. Crabb var sendur til að njósna um sovéska herskip- ið Ordzhoníkídze og er nú full- yrt að skipvetjar hafi skotið hann. Skipið var í vináttuheim- sókn og um borð var m.a. Ník- íta Krústsjov, valdamesti leið- togi Sovétríkjanna. Hann mun hafa haldið teiti um borð sama kvöld og Crabb hvarf í höfn- inni. Breska leyniþjónustan, MI6, sendi froskmanninn á vettvang til að njósna um ör- yggisbúnað á skipsskrokkn- um, Maðurinn hvarf og fannst líkið ári síðar, þá vantaði á það höfuð og hendur. Hvarf Crabbs kom af stað aragrúa sögusagna, hann var sagður hafa sést í París og einnig í sovésku fangelsi, ein- hveijir fullyrtu meira að segja að hann hefði verið sovéskur njósnari og orðið liðsforingi í Sovétflotanum. Leynd á skjölum um málið verður ekki aflétt í Bretlandi fyrr en árið 2057 en ísraelskur blaðamaður, Yigal Sema, hef- ur spurt fyrrverandi yfirmann leyniþjónustu Sovétflotans, Jósef Zverkín, um örlög Crabbs. Zverkín býr nú í ísra- el. „Varðmaður um borð í skip- inu kom auga á Crabb. Tveir skipvetjar, annar óbreyttur sjóliði, hinn liðsforingi, fengu skipun um að kanna málið og voru þeim fengin létt skotvopn í hendur. Þegar Crabb kom upp á yfirborðið varð liðsfor- inginn honum að bana, skaut hann í höfuðið og hann sökk til botns“, segir Zverkín. CARL Bildt, sáttasemjari í Bosníu, gaf í gær lítið fyrir kröfur harð- línusinnaðra Bosníu-Serba um að komið verði til móts við „forseta" þeirra, Radovan Karadzic, sættist hann á að láta af völdum. Talsmaður Bildts sagði við fréttamenn að engir samningar yrðu gerðir, og að Bildt vænti þess að Karadzic hyrfi af vett- vangi innan skamms, og myndi á endanum verða dreginn fyrir her- dómstól í Haag, eins og allir sem hafa verið ákærðir fyrir stríðs- glæpi. Slobodan Milosevic, forseti Serbíu, gerði í raun út um mögu- leika Karadzic á að standa af sér ákafan þrýsting Vesturlanda um að hann segi af sér, með því að krefjast afsagnar Karadzics, til þess að ekki kæmi til efnahags- þvingana gegn Serbíu. Kom á óvart Valdaafsal Karadzics og réttar- höld yfir honum voru meðal grund- vallaratriða í friðarsáttmálanum í Dayton, og var Milosevic meðal þeirra sem undirrituðu hann. Krafa Serbíuforseta, sem hann lagði fram á mánudaginn, kom ráðamönnum Bosníu-Serba á óvart, og á miðvikudag krafðist forsætisráðherra þeirra, Goran Klickovic í raun uppstokkunar á friðarsamningunum, gegn því að Karadzic segði af sér. Óháða fréttaritið VIP sem gefið er út í Belgrad, hefur eftir heim- ildamönnum í Pale að Milosevic sé hlynntur sumum kröfum Bosn- íu-Serba. Stjórnarerindrekar telja þó ólíklegt að Milosevic reyni að standa uppi í hárinu á Vesturveld- unum, sem þverneita því, að frið- arsamningarnir verði endurskoð- aðir. í forseta- framboð? Karadzic sagði í gær, að ef ekki yrði orðið við kröfum Bosníu- Serba myndi hann bjóða sig fram til forseta í kosningunum sem fram eiga að fara í Bosníu í sept- ember. Gaf Karadzic ennfremur í skyn, að leiðtogar Bosniu-Serba myndu ekki láta undan, þrátt fyr- ir að Milosevic krefðist þess. Áhersla íra á EMU Dublin. Reuter. ÍRAR, sem taka við forystunni í ráðherraráði Evrópusambandins um mánaðamótin, sögðu í gær að á sex mánaða formennskutímabili sínu myndu þeir leggja áherslu á að brýna fyrir einstaklingum og fjármálamörkuðum að hinn pen- ingalegi samruni Evrópuríkja myndi eiga sér stað samkvæmt áætlun. Þá hyggjast írar gera baráttuna gegn spillingu og sköpun nýrra atvinnufyrirtækja að forgangs- verkefni. Ruairi Quinn, fjármálaráðherra írlands, sagði næstu sex mánuði skipta gífurlegu máli varðandi sam- eiginlegu myntina. Aðildarríki ESB EVRÓPA^ eru nú að Ieggja lokahönd á fjárlög fyrir árið 1997 og því ættu línur að skýrast í árslok um það, hvaða ríki uppfylla skilyrði vegna EMU. Stefnt er að því að taka upp sameiginlegu myntina 1. janúar 1999 og verða hagtölur ársins 1997 lagðar til grundvallar þegar ákveð- ið verður hvaða ríki geta tekið þátt. A fjármálamörkuðum hallast æ fleiri að því að lokaákvörðunin um það hvort að Frakkar og Þjóðveijar uppfylli skilyrðin verði pólitísk en ekki byggð á strangri túlkun skil- yrða Maastricht-sáttmálans. Maurice O’Connell, seðlabanka- stjóri írlands, virtist sömuleiðis hallast því er hann sagði við blaða- menn í gær að ákvörðunin myndi ekki byggjast á „stærðfræði". í bréfi til starfsbræðra sinna í öðrum ESB-ríkjum lagði O’Connell áherslu á að leggja yrði ríka áherslu á það í allri umræðu að allt benti til að EMU myndi eiga sér stað samkvæmt áætlun. Blaðakona myrt á götu Dublin. Reuter. VERONICA Guerin, þekktasti glæpafréttamaður á írlandi, var myrt í bíl sínum í Dublin á miðviku- dag og er talið að útsendarar glæpaforingja hafi verið að verki. Ráðamenn landsins hörmuðu örlög Guerin sem unnið hefði ötullega að því að svipta hulunni af skipulagðri glæpastarfsemi. Tveir menn á mótorhjóli óku upp að bíl Guerin er hún beið við um- ferðarljós í úthverfi borgarinnar og skutu þeir allt að sex sinnum. Guer- in, sem var 33 ára gömul, lést sam- stundis en morðingjarnir flýðu í skyndingu inn í miðborgina. Lög- reglu grunar að einn af helstu glæpaforingjum í Dublin hafi verið á bak við morðið. vÆg STUTT Simitis hótar afsögn COSTAS Simitis forsætisráð- herra Grikklands sagðist í gær myndu segja af sér næði hann ekki kjöri sem flokksleiðtogi sósíalistaflokksins (PASOK) nk. sunnudag. Sagðist hann þurfa á leiðtogavaldi að halda til að koma í kring nauðsyn- legum umbótum í flokknum. Stefnir í uppgjör milli Simitis og Akis Tsohatzopoulos innanríkisráðherra. Vildu refsa Andreotti ÍTALSKA mafían hugðist hefna þess að Giulio Andre- otti forsætisráðherra snerist gegn henni með því að myrða eitthvert barna hans, að sögn mafíósans Gioachino La Barbera, sem vitnar gegn forsætisráð- herranum fyrrverandi í réttarhaldi í Palermó. Barbera sagði Andreotti hafa liðsinnt mafíunni og veitt leiðtogum hennar pólitíska vernd allt þar til 1992 er áfrýjunarréttur staðfesti langa fangelsisdóma yfir fjölda mafíósa. Kenndu þeir honum um að dómarnir voru ekki mildaðir og þar sem erfitt yrði að klekkja á honum hugðust þeir sýna afkomend- um hans banatilræði. Jafntefli í 11. skákinni ANATOLÍJ Karpov og Gata Kamskí gerðu jafntefli í 11. skák einvígis þeirra um heimsmeistaratign Alþjóða- skáksambandsins (FIDE) í gær. Skákinni lauk eftir 67 leiki en hún fór í bið á mið- vikudag. Karpov hefur sjö vinninga gegn fjórum og þarf 3,5 vinninga úr níu skákum sem eftir eru til að halda titl- inum. Aðgátar er þörf í nær- veru fíla NEPALSKUR bóndi beið bana er fíll traðkaði á honum eftir að hánn og félagi hans höfðu truflað ástarleik fíla- pars á Chitaun-verndarsvæð- inu í Nepal. Trylltist karldýrið og veitti bændunum eftirför. Bændurnir voru að koma heim úr eldiviðarsöfnunarleið- angri er þeir gengu fram á fílana og styggðu þá. Kínverskur piltur með þrjúnýru LÆKNAR í borginni Hangz- hou í Zhejiang-héraði í Kína urðu agndofa er þeir fundu út að 10 ára piltur þar í borg var með þrjú nýru. Það þriðja var hálfu minna en hin, sem voru fullvaxin, og leyndist bak við hægra nýrað, Skemmdist það er drengurinn hlaut innvortis meiðsl er hann varð fyrir slysi. Var aukanýrað fjarlægt með skurðaðgerð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.