Morgunblaðið - 28.06.1996, Side 37

Morgunblaðið - 28.06.1996, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1996 37 MINNINGAR ULFHILDUR GUÐMUNDSDÓTTIR + Úlfhildur Guð- mundsdóttir var fædd á Þyrli á Hvalfjarðarströnd 13. nóvember 1904. Hún lést á heimili sínu á Hlaðhömrum 2 í Mosfellsbæ 21. júní síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðmundur Magnússon frá Þyrli á Hval- fjarðarströnd og Kristín Einarsdótt- ir frá Flekkudal í Kjós. Úlfhildur var næstyngst i röð sjö systkina. Bræður hennar voru Magnús, Hermann, Kristján, Jón Einar, Kristmundur og Olafur. Hinn 25. maí 1929 giftist Úlfhildur Jóhannesi Grímssyni, f. 17. jan- úar 1890, d. 2. júní 1945. Þau eignuðust einn son, Guðmund, f. 10. janúar 1931, d. 26. janúar 1995. Hann og eig- inkona hans, Anna Jóna Ragnarsdóttir, f. 18. janúar 1937, eignuðust fjögur börn. Þau eru: 1) Úlfhildur, gift Sveini Val Sigvalda- syni. Þeirra dætur eru Anna Ýr, Ing- veldur og Karitas. 2) Sigrún, gift Pétri U. Fenger. Þeirra börn eru Úlfhildur, Geir Torfi og Krist- jana. 3) Jóhannes og 4) Ólafur, kvæntur Önnu Björk Jónsdóttur. Þeirra barn er Rakel Ýr. Úlfhildur bjó áður á Bergþórugötu 7 í Reykjavík en hin síðari ár á Dvalarheimili aldraðra á Hlað- hömrum í Mosfellsbæ. Útför Úlfhildar fer fram frá Lága- fellskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan kl. 10.30. Nú er hún amma mín sofnuð svefninum langa. Hún var farin að óska sér hvíldarinnar fyrir löngu þó hún kæmi okkur og jafnvel sjálfri sér oft á óvart með að rísa upp úr veikindum og elli aftur og aftur. Þannig var það þegar hún reis upp úr flensu og lungnabólgu 91 árs gömul til að koma til mín á aðfanga- dagskvöldið síðasta og gaf mér þar með þá bestu jólagjöf sem ég hef fengið. Úlla amma hefði orðið 92 ára í haust, búin að vera ekkja í rúm 50 ár. Hún og Jóhannes afi höfðu eign- ast yndislegan son, hann pabba minn Guðmund, sem ásamt henni Önnu Jónu mömmu minni veittu henni umhyggju sína og stóra og samhenta flölskyldu sem hún unni öllu fremur og var svo stolt af. Við hlógum oft með henni að því hve henni fannst við vera fallegust og best og hún sagði þá gjarnan stolt: „Hveijum þykir sinn fugl fagur þótt hann sé bæði ljótur og magur.“ Hún missti mikið þegar hún sá á eftir einkasyni sínum í fyrravet- ur. Það er þung raun að horfa á eftir baminu sínu sama hversu gamall maður er. En hún var ekki ein. Hún átti okkur að og yndislegt starfsfólk Dvalarheimilis aldraðra á Hlaðhömrum 2 í Mosfellsbæ og Heilsugæslunnar að Reykjalundi, sem við fáum seint fullþakkað fyrir kærleiksríka umhyggju til síðustu stundar. Ekki má gleyma bræðra- bömunum hennar sem sýndu henni ræktarsemi og virðingu á ýmsa vegu í gegnum tíðina. Elsku amma mín, mér þótti svo undur vænt um þig og veit að það var gagnkvæmt. Eins og ég var búin að segja þér þá mun ég aldrei gleyma þér. Sama er að segja um bömin mín sem eru lánsöm að hafa fengið að kynnast þér, langömmu sinni. Nú er hönd að hægum beði hnigin eftir dagsins þrautir. Signt er ýfir sorg og gleði, sæst við örlög. — Nýjar brautir. Biðjum þess á blíðam tónum berast megi þreyttur andi endurborinn ljóss að landi lofandi dag með ungum sjónum. (J. Har.) Eins og við kvöddumst að undan- förnu þá segi ég nú „Guð geymi þig“- Eg veit Hann gerir það. Sigrún. Kveðja til tengdamóður og ömmu. Harmið mig ekki með tárum, þó að ég sé látinn. Hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta. Ég er svo nærri að hvert ykkar tár snertir mig og kvelur, en þegar þér hlæið og syngið með glöðum hug, lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og ég, þótt látin sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu. (Höf. óþ.) Við þökkum þér gefandi sam- fylgd og samgleðjumst þér að fá að hvílast eftir langa ævi. Við sjáum þig fyrir okkur hamingjusama við fagnaðarfundi ykkar afa og pabba, þegar litla fjölskyldan sameinaðist á ný. Blessuð sé minning þín. Tengdadóttir og bamabörn. Ég kvaddi ’ana í síðasta sinni, er sólin skein fegurst á vori. Þá blasti við sumar og sæla, en samt var mér þungt í spori. í rekkjunni hóglát hún hvíldi og horfði út í §arskann með ró. Ég vissi ’ún var þreytt og þjáðist - en þó var hún glöð og hló. Hún hafði svo lengi leitað að lifandi guði í hæðum, - með bamshug leitað í litum, lögum, kvæðum og ræðum. Og nú var markið svo nærri, að ná í sannindin stór. - Hún þrýsti hönd mína og þagði, ég þagði líka - og fór. - Og næst, er ég gekk inn gólfið var gráhærða konan farin. En rúmið stóð autt þar inni og yfir þvi minningaskarinn. - Ég settist þá, hugsandi og hljóður, og horfði út í loftin blá: Hvort mætumst við aldrei aftur í einni og sömu þrá? (Jóhannes úr Kötlum.) Hjartans þökk, vinkonan mín. Guðrún Eiðsdóttir. Hver minning dýrmæt peria á liðnum lífeins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Mnn kærieikur i verid var gjöf sem gleymist eigi, og gæfa var það öilum er fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Hafðu þökk fyrir allt og allt. Þín Júlíana Grímsdóttir. SIG. SVEINBJORNSSON ehf Skemmuvegur 8 - 200 Kópavogur Sími: 544 5600 - Fax: 544 5301 plöntusalan í Fossvogi Fossvogsbletti 1 (fyrir neðan Borgarspítala) Opið kl. 8-19. helgar kl. 9-17. Sími 564 1777 Plöntur og ra eftir þínum Stéttin erfyrsta skrefið inn... Mikiðúrval afhellum og stemum. Mjöggottverð STÍTT HELLUSTEYPA HYRJARHÖFÐI 8 112 REYKJAVÍK SÍMI 577 1700-FAX 577 1701

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.