Morgunblaðið - 28.06.1996, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1996 43
ég hef ekið með út á land og efast
| ég um að ég geri víðreist að vetrar-
lagi hér eftir.
Alltaf var það Bjössi sem stóð
fyrir öllum uppákomum. Þó að mér
verði tíðrætt um okkar kæra Bjössa,
þá gleymum við ekki hans elskulegu
eiginkonu, Lollý sem alltaf hvatti
til samfundar við okkur hin. Ekki
má láta hjá líða að minnast á sælu-
i reit þeirra hjóna í Hálsakoti í
Hrunamannahreppi, þar fengum við
’ einnig að njóta sveitasælunnar með
| þeim. Öllum var boðið að taka þátt
í gleði þeirra og allir nutu góðs af.
Þau voru alltaf veitendur, að höfð-
ingjasið. Svo þóttumst við fara í
heilsubótargöngur, einu sinni í
mánuði, en þær voru aðallega til
þess að hittast og fá okkur kaffi-
sopa hvert hjá öðru og rabba sam-
an._
Á kveðjustund þökkum við, með-
limir Helgidómsins, Bjössa allt það
sem hann var okkur og kærleikann
I sem hann umvafði okkur með og
biðjum Lollýju, börnum þeirra,
tengdabörnum og barnabörnum
Guðs blessunar og huggunar. Minn-
ingin um góðan dreng mun ætíð
lifa í hjarta okkar.
Deyr fé,
deyja frændur,
I deyr sjálfur ið sama.
En orðstír
deyr aldregi
| kveim sér góðan getur.
(Ur Hávamálum)
Guðfinna.
Það er með sárum söknuði og
trega að við kveðjum nú forstjóra
okkar, félaga og vin, Björn Guð-
. mundsson, sem lést á Sjúkrahúsi
Reykjavíkur hinn tuttugasta þessa
^ mánaðar, 58 ára að aldri.
| Það þurfti ekki að hafa löng
kynni af Birni til að vita að þar fór
réttsýnn og góður maður sem af
fremsta megni reyndi að greiða
götu þeirra sem til hans leituðu.
Við sem hjá honum störfuðum og
leituðum til hans með vandamál
okkar urðum þess vör jafnt í
smáum málum sem stórum. Gilti
| þá einu hvort beðið var um breyt-
ingu á vinnutíma vegna t.a.m.
skólagöngu barna, óskað eftir sum-
| arvinnu fyrir börn okkar, eða hvort
um var að ræða tilhliðrun vegna
veikinda, frís eða annars, Björn
bæði gat og vildi setja sig í spor
þeirra sem í hlut áttu og leysa úr
málum á sem farsælastan hátt. Var
hann af þeim sökum mjög ástsæll
yfirmaður. Langur starfsaldur
margra í fyrirtækinu vitnar enn
| frekar um að gott var að vinna
* undir hans stjórn. Vísaði hann
gjarnan til þess að starfsfólkið
I væri eins og ein stór fjölskylda, og
þannig stjórnaði hann okkur. Umg-
ekkst hann okkur af velvild og hlýju
en jafnframt mátulegri festu.
Björn var líka mjög líflegur og
skemmtilegur maður og mikill
höfðingi heim að sækja. Minnumst
við í því sambandi starfsmanna-
ferða fyrirtækisins þar sem Björn
var potturinn og pannan í öllu.
| Skipulagði ferðirnar, keyrði rútuna
■ og fræddi okkur um það sem fyrir
’ augu bar. Og árshátíða fyrirtækis-
ins minnumst við þar sem Björn
var hrókur alls fagnaðar sem og á
heimili þeirra hjóna fyrir árshátíð-
irnar, en Björn var bæði mikill
húmoristi og frábær dansari. Einn-
ig minnumst við þess er þau hjónin
buðu öllu starfsfólki og mökum í
| sumarbústað sinn til að vígja fána-
stöng sem við höfðum gefið honum
á fímmtugsafmæii hans, og njóta
| veitinga, þó okkur hefði á sínum
tíma verið boðið í sjálft afmælið.
Af mildi og réttsýni annaðist
Björn fjölskyldu sína og bar hana
á höndum sér. Velferð konu sinnar
og barna bar Björn ávallt mjög
fyrir brjósti, þeim og öllu sínu fólki
var hann einstakur bakhjarl. Missir
konu hans, barna og annarra ijöl-
skyldumeðlima er því mjög mikill,
h ekki síst sé til þess horft, sem eng-
L um sem til þekkti duldist, að Björn
I og Lollý voru óvenju sarnrýnd hjón
og fjölskyldan alla tíð mjög sam-
hent og samhuga í öllu því sem
hún tók sér fyrir hendur, oftar en
ekki með Björn í broddi fylkingar.
Björn var mikill mannkostamað-
ur. Um það vitna blómlegt fyrir-
tæki og ekki síður fimm uppkomin,
mjög vel gerð börn sem Björn dáði
mikið. Persónuleiki Björns aflaði
fyrirtækinu velvildar jafnt innan-
lands sem utan, og bast hann mörg-
um vináttuböndum á lífsleiðinni.
Andlát Björns er reiðarslag fyrir
alla þá sem hann þekktu. Eftir lif-
ir minning um skemmtilegan og
umfram allt hlýjan mann. Að leið-
arlokum þökkum við Birni allar
góðu stundirnar og mikinn hlýhug
í garð okkar starfsfólksins. Við
biðjum Guð að styrkja Lollý, börn
og aðra aðstandendur í þeirra miklu
sorg.
Guð veri með þér, hvíl þú í friði.
Starfsfólk hjá
Ásbirni Ólafssyni ehf.
Kveðja frá
Lionsklúbbnum Þór
Það er skarð fyrir skildi hjá Li-
onsklúbbnum Þór þegar Björns
Guðmundssonar nýtur ekki lengur
við. Frá upphafi veru sinnar í
klúbbnum helgaði hann líknarmál-
unum krafta sína og þar komst
enginn annar í hálfkvisti.
Björn gekk í klúbbinn árið 1964
og byrjaði þá strax að fara, ásamt
þeim Haraldi Á. Sigurðssyni og
Brynjólfi Jóhannessyni, á barna-
deildir sjúkrahúsanna í Reykjavík
með jólagjafir til þeirra barna sem
þar lágu um jólin. Að eigin sögn
var Björn aðeins aðstoðarmaður
gömlu mannanna á þessum tíma,
en hann tók síðan upp merki þeirra
þegar þeir drógu sig í hlé. Fyrst
hélt hann áfram að færa inniliggj-
andi börnum gjafir á jólum, en síð-
ar uppgötvaði hann hversu illa var
búið að leikstofum sjúkrahúsanna
hvað leikföng og leiktæki áhrærði.
Þá var haft samband við aðila um
að gefa leikföng og síðan keypt
það em ekki fékkst gefins. Þegar
fóstrur barnadeildanna uppgötv-
uðu þennan bandamann, fóru þær
að benda á að ýmis þroskaleikföng
vantaði á leikstofurnar. Björn
sendi þeim þá stóra verðlista til
þess að panta eftir. Síðan sá hann
um að flytja inn leikföngin og út-
deila þeim á rétta staði. Þær eru
ófáar vinnustundirnar, sem í þetta
fóru hjá Birni og var það þó aðeins
hluti starfa hans að líknarmálum
hjá Þór. Drengirnir í Tjaldanesi
nutu ekki síður umhyggju hans og
hlýju. Þar var einnig fastur liður
á aðfangadag jóla að færa þeim
gjafir og þess utan fóru margar
gjafirnar til Tjaldaness frá Birni
og margar þeirra hvergi tíundaðar
í bókum klúbbsins eða á fundum.
Björn var aldrei áberandi í störf-
um klúbbsins. Hann kom sér undan
því að starfa sem formaður en var
formaður Líknarnefndar mestan
sinn aldur í klúbbnum. Hann vann
sín störf mest í kyrrþey heima og
á skrifstofu sinni. Við vitum að
þar lagði kona hans Ólafía Ás-
bjarnardóttir honum lið á margan
hátt. Fyrir það erum við innilega
þakklát.
Björn var Melvin Jones félagi,
en það er mesta viðurkenning sem
Lionshreyfingin veitir.
Það var ekki einungis á vegum
Lionshreyfingarinnar, sem Bjöm
lét gott af sér leiða. Margir bæði
óskyldir og vandabundnir nutu
hugulsemi hans og hjartahlýju. Þar
munu margir sakna vinar í stað.
Við Þórsfélagar kveðjum góðan
vin og félaga. Hans skarð verður
vandfyllt.
Við sendum Ólafíu og fjölskyldu
hennar okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Fh. Lionsklúbbsins Þórs,
Gunnar Már Hauksson.
• Fleirí minningargreinar um
Björn Guðmundsson bíða birtíng-
ar og munu birtast í blaðinu næstu
daga.
JONAS ÞORARINN
ÁSGEIRSSON
+ Jónas Þórarinn
Ásgeirsson
fæddist á Húsavík
25. ágúst 1920.
Hann lést á heimili
sínu í Kópavogi 14.
júní síðastliðinn og
fór útför hans fram
frá Fossvogskirkju
24. júní.
Genginn er góður
vinur, Jónas Ásgeirs-
son. Minnist ég þess
er við hittumst fyrst,
tíu ára gamlir, á Norð-
urgötunni á Siglufirði.
Vinskapur okkar hefur haldist æ
síðan. Við höfðum í nógu að snú-
ast á þessum árum, bæði við skíða-
iðkun, íþróttir og veiðiskap. í
fyrstu vann Jónas við hin ýmsu
störf í síldinni og fleiru. Síðar var
hann póstafgreiðslumaður og vann
við verslunarstörf. Hann gerðist
síðan kaupmaður og rak matvöru-
verslun í mörg ár með dyggri að-
stoð ágætrar konu sinnar, Margr-
étar Ólafsdóttur. Síðan fluttist fjöl-
skyldan til Reykjavíkur árið 1968.
Þar starfaði Jónas sem sölumaður
bifreiða hjá fyrirtæki Þóris Jóns-
sonar.
Jónas var mikil íþróttamaður og
var einn af bestu skíðamönnum
þjóðarinnar og keppti í öllum grein-
um skíðaíþróttarinnar, sérstaklega
í stökki og stökk af stórbökkum
erlendis, þar á meðal Holmenkollen
í Noregi og einnig í Svíþjóð og á
Ólympíuleikunum 1948 í St. Mo-
ritz. Einnig var hann góður knatt-
spyrnumaður og keppti víða með
liði sínu, KS. Það voru mörg góð
ferðalög sem farin vpru í sambandi
við knattspyrnuna.
Jónas var léttur og skemmtileg-
ur félagi og sagði vel frá og krydd-
aði oft frásagnir sínar með glettni
á góðum stundum. Hann gat þann-
ig oft lífgað upp á samkvæmi og
fundi.
Ég kveð Jónas með þökk fyrir
liðnar samverustundir og votta frú
Margréti, börnum hennar, tengda-
börnum og barnabörnum einlæga
samúð.
Eldjárn Magnússon.
Hinsta kveðja frá
Skíðafélagi Reykjavíkur
Skíðakappinn Jónas Þ. Ásgeirs-
son er látinn. Margs er að minnast
frá langri og viðburðaríkri ævi.
Jónas var mjög fjölhæfur skíða-
maður og keppti hann um árabil
bæði hér heima og á erlendri
grundu, með góðum árangri. Sunn-
lendingar höfðu séð og heyrt um
þennan mikla norðlenska skíða-
kappa yfir heiðar. Þegar Jónas
fluttist suður þá var það Skíðafé-
lagi Reykjavíkur mikill heiður að
hann gekk til liðs við félagið. Jón-
as þjálfaði lengi vel skíðamenn
Skíðafélags Reykjavíkur, sat í
mörg ár í stjórn þess og árið 1975
var hann kosinn formaður. Skíða-
menn sunnan heiða þakka Jónasi
fyrir langt og farsælt samstarf og
senda fjölskyldu hans innilegar
samúðarkveðjur.
Stjórn Skíðafélags
Reykjavíkur.
Jónas Ásgeirsson var einn úr
hópi vaskra skíðamanna frá Siglu-
firði, sem settu mest mark sitt á
skíðaíþróttina í upphafi. Árið 1938
*fer nafn Jónasar að birtast í af-
reksskrá skíðamanna, en það ár
vinnur hann til verðlauna bæði í
svigi og skíðastökki, en Jónas var
afar fjölhæfur íþróttamaður.
Árið 1939 vinnur Jónas í fyrsta
sinn hinn svokallaða „skíðakóngs-
t.itil“, sem var æðsta tign skíða-
keppenda þess tíma. Þennan titil
vann Jónas oftast allra, þar til
hann hætti keppni.
Jónas var einn af
keppendum íslands á
fyrstu vetraj'ólympíu-
leikum sem íslending-
ar tóku þátt í, árið
1948 í St. Moritz.
Árið áður keppti Jón-
as í skíðastökki á
Holmenkollen í Nor-
egi, ásamt félaga sín-
um Jóni Þorsteinssyni
frá Siglufirði. Þetta
var frumraun ís-
lenskra skíðamanna í
keppni á erlendri
grund.
Siglufjörður fyrirstríðsára var
þekktastur fyrir síld og frækna
skíðamenn. Jónas tók þátt í hvoru-
tveggja.
Lengstan tíma ævi sinnar starf-
aði Jónas við verslun og sölustörf.
Hann rak verslun á Siglufirði árum
saman, við góðan orðstír. Jónas
hóf störf hjá Ford-umboðinu Sveini
Egilssyni sem sölumaður bifreiða
árið 1969. Sölumennska var í blóð-
inu hjá Jónasi. Þeir sem með hon-
um störfuðu og ekki síst viðskipta-
vinir kunnu að meta þá gleði og
þann anda er fylgdi með í kaupun-
um. Það var engin lognmolla í
kringum Jónas. Hversdagsleg við-
skipti urðu að stórkostlegum
vangaveltum um lausn heimsmál-
anna.
Allir viðskiptavinir Jónasar
fundu fyrir hjálpsemi hans og góð-
um vilja en leiðarljós hans var að
allir skildu hafa sitt, og fyrir það
var hann reiðubúinn að leggja allt
í sölurnar. Það leiddist engum í
návist Jónasar. Hann var frábær
sögumaður með leiftrandi sýn, er
gat komið öllum til að kætast.
Hinn venjulegi viðskiptamaður
fékk venjulega lausn lífsgátunnar
í kaupbæti.
Að leiðarlokum þakka ég 20 ára
samstarf sem aldrei féll skuggi á
og um leið votta ég eftirlifandi
ástvinum innilegustu samúð.
Þórir Jónsson.
• Fleirí minningargreinar um
Jónas Þórarin Asgeirsson bíða
birtingar og munu birtast í blað-
inu næstu daga.
Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni.
Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár.
Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld I úrvinnslu. Senda má
greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar
um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki
yfir eina örk A-4 miðað við meðallinubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög.
Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
11A PPDRÆTTI
ae
Vinningaskrá
8. útdráttur 27. júní 1996.
íbúðarvinningur
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
10125
Ferðavinningar
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvðfaldur)
16817
36629
43646
75912
Kr. 50.000
Ferðavinningar
4516 14178 21998 25863 64477 72320
5036 15263 22099 31259 65455 76530
Kr. 10.000
Húsbúnaðarvinningar
365 11771 22795 32213 42136 52073 63221 71894
558 11790 22891 32269 42557 52154 63442 71906
668 12780 23219 32501 43078 52726 63508 73027
754 12811 23263 33075 43374 53023 63630 73342
1441 13283 23371 33491 43585 53720 64037 73694
2097 13521 23498 33584 44656 53977 64565 73717
2308 13795 23503 33783 45147 54301 64637 73766
2431 13989 23818 34083 45467 54621 64829 73831
2437 14675 24087 34317 45736 54738 64980 74063
2452 15469 24374 34332 46118 54810 65531 74150
3889 15598 24529 34399 46136 54902 65887 74208
5837 16006 25385 34771 46186 55152 66210 75663
6262 16017 25480 35011 46187 55403 66592 75970
6813 17951 25589 35036 46510 55438 66646 76942
7206 18022 26230 35243 46527 55637 67073 77278
8027 18043 26544 35824 46599 55868 67552 77405
8183 18281 26788 35968 46708 56314 67666 77432
8641 18429 26937 36464 47023 56606 67680 77904
8736 19135 27044 36535 47868 57004 68427 77906
9027 19679 27115 36850 48398 58082 68620 77956
9179 19774 27507 37379 48457 58308 68637 78339
9584 19971 27512 37783 48800 59180 68715 78563
10747 20502 27536 38084 49038 60363 68737 78872
10830 20543 27719 38556 49509 60840 68774 78922
10930 20552 27876 39467 49807 60940 69132 79104
11067 21312 28902 39649 50589 61170 69278 79538
11226 21375 30267 40425 50614 61525 69910 79747
11323 21628 31501 40835 51003 61895 70312 79919
11508 21878 32093 41617 51646 62367 70358
11590 22676 32186 42006 51958 62989 71850