Morgunblaðið - 28.06.1996, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ1996 45
I
I
I
)
I
í
1
!
!
i
1
I
I
I
!
!
:
<
;
(
;
i
(
i
1
i
Norðurlandamótið í brids
tímamótabílnum frá Chrysler.
Mikil spenna í
lokaumfer ðunum
BRIDS Austur gefur, AV á hættu
Blað allra landsmanna!
- kjarni málsins!
Faaborg, Danmörku
NORÐURLANDAMÓTIÐ
Norðurlandamótið í brids er haldið
í Faaborg á Fjóni dagana 22.-27.
júní, bæði í opnum flokki og
kvennaflokki.
ÞAÐ ríkti mikil spenna fyrir loka-
umferðirnar á Norðurlandamótinu
í brids, því í opnum flokki voru
þijár þjóðir nánast jafnar eftir 8
umferðir af 10. Svíar höfðu 152,5
stig, íslendingar 146 og Norðmenn
144. Aðrar þjóðir gátu ekki ógnað
þeim því Danir komu í 4. sæti með
99 stig, Finnar voru í 5. sæti með
94,5 og Færeyingar ráku lestina
me_ð 74,5 stig.
í kvennaflokki var einnig spenna
því Svíar höfðu 163 stig og Norð-
menn 153 en Danir komu í 3.
sæti með 129,5. Finnar höfðu 122,
íslendingar 89 og Færeyingar 52 .
Norðmenn komu nokkuð á óvart
í Faaborg. Liðið í opna flokknum
var skipað ungum spilurum, sem
Norðmenn virðast eiga óþijótandi
uppsprettu af, og þeir spiluðu sér-
lega vel gegn íslendingum í síðari
leiknum sem þeir unnu 18-12.
Þetta spil kom fyrir í fyrri leik
þessara þjóða sem íslendingar
unnu 20-10.
Norður
♦ G6
♦ K75
♦ ÁKD10
+ G765
Vestur Austur
♦ D82 ♦ 107543
♦ DG1043 ♦ Á6
♦ 9 ♦ 87643
♦ D943 +10
Suður
♦ ÁK9
♦ 982
♦ G52
♦ ÁK82
Bæði lið spiluðu 3 grönd í suð-
ur. Bræðurnir Sam Olai Hoyland
og Sam Inge Hoyland voru í vörn-
inni gegn Þorláki og útspilið var
hjartadrottning sem fékk að eiga
slag. Næst kom hjartagosi og Þor-
lákur stakk upp kóng og austur
fékk á ásinn. Hann skipti í spaða
og Þorlákur stakk upp ás.
Þorlákur spilaði næst laufi á
ásinn og 10 austurs var nokkuð
grunsamleg. Nú tók Þorlákur tíg-
ulslagina og Sam Inge í vestur
þurfti að finna þijú afköst. Hann
henti fyrst spaða, síðan laufi en
varð loks að henda hjarta.
Það dugði Þorláki sem tók
spaðakóng, og spilaði vestri inn á
hjarta. Hann átti tvo hjartaslagi
en varð síðan að spila laufi og
þegar Þorlákur stakk upp gosa var
spilið unnið.
Við hitt borðið var Egil Sælens-
minde sagnhafi með Jón Baldurs-
son og Sævar Þorbjörnsson í vörn-
inni og spilið þróaðist á svipaðan
hátt, svo það féll.
Færeyingar í framför
Færeyingar eiga ýmislegt ólært
í bridslistinni en þeir eru þó í
greinilegri framför. Þeir unnu tvo
leiki í fyrri umferðinni hér í Faa-
borg, gegn Danmörku og Finn-
landi, en fram að því höfðu þeir
aðeins unnið einn leik á Norður-
landamótum. íslenska liðið átti þó
ekki í erfiðleikum með Færeying-
ana og vann fullnaðarsigur í báð-
um leikjunum við þá.
I fyrri umferðinni hafði íslenska
liðið forystu, 94-10, í hálfleik en
síðari hálfleiknum byijuðu fær-
eysku spilararnir Marner Joensen
og Árni Dam vel gegn Sævari
Þorbjörnssyni og Jóni Baldurssyni
og þeir vöru ekki óánægðir með
þetta spil:
Norður
♦ 987
♦ DG832
♦ 2
♦ ÁG98
Vestur Austur
♦ 1043 ♦ D652
♦ K10765 ¥4
♦ K106 ♦ 8743
♦ K6 ♦ 10752
Suður
♦ ÁKG
♦ Á9
♦ ÁDG95
♦ D43
Færeyingarnir lentu í spurnar-
sagnafrumskógi og náðu ekki að
fóta sig fyrr en í 5 hjörtum. Sæv-
ar í vestur var harla ánægður með
þróun mála og spilaði út spaða,
sem Dam drap heima. Hann svín-
aði laufagosa, spilaði tígli á ás og
síðan hjartaás og meira hjarta á
drottningu þegar Sævar gaf. Jón
henti spaða og útlitið var því ekki
gott hjá sagnhafa.
En hann fór heim á spaða, spil-
aði tíguldrottningu og trompaði í
borði þegar Sævar lagði kónginn
á. Síðan fór Dam aftur heim á
spaða og spilaði tígulgosa og þeg-
ar Sævar fylgdi með tíunni fór
landið að rísa. Dam spilaði áfram
tíglum þar til Sævar trompaði en
þá gat Dam yfirtrompað og Sæv-
ar fékk aðeins tvo slagi á tromp.
Slétt staðið og 450 til Færeying-
anna.
En samanburðurinn við hitt
borðið var ekki sérlega ánægjuleg-
ur. Þar hætti Egil Sondum í vest-
ur sér inn á sagnir eftir að Þorlák-
ur Jónsson í suður opnaði á sterku
laufi. Þorlákur og Björn Eysteins-
son, sem leysti Guðmund Pál Arn-
arson af í hálfleiknum, byijuðu
strax að dobla og sögnum lauk í
1 spaða dobluðum í vestur. Og
sagnhafi fékk aðeins 2 slagi en
íslendingarnir 1.400 og 14 impa.
Spilamennska Dams við hitt borð-
ið bjargaði því aðeins þremur imp-
um.
EINSTAKT TÆKIFÆRI!
Chrysler Neon
Timamot fra Ameriku
M
2,0 lítra, 16 ventla, 133 ho., sjaltskiptur, loftpúði fyrir ökumann og farþega í framsæti, samlæsing, rafmagn í rúðum
Verð
aðeins
780
000
kr
Komdu og reynsluaktu
Vorum að taka heim ný stórglæsileg fyrsta flokks
sófasett alklædd leðri.
Sófasett 3+1+1 aðeins stgr. kr. 159.000
Sérstakt kynningarverð með ÞKmiiHlTH afslættl.
utir: Svart, brúnt, Hornsóffasett 2+horn+2
grænt, rautt, Alklætt leðrÍITHLlHlIlIllStar.
vínrautt, bleikt og Ijósbrúnt.
Ath. Takmarkað magn.
Greiðslukjör við allra hæfi.
Valhusgögn
ÁRMÚLA 8, SÍMAR 812275, 685375