Morgunblaðið - 28.06.1996, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ ly96 47
Mynd/Bjarni Atlason
Lúðrasveit Akureyrar
Tvennir tónleikar
á Austurlandi
LÚÐRASVEIT AJcureyrar held-
ur tónleika í Egilsbúð á Nes-
kaupsstað næstkomandi laugar-
dag, 29.júní kl. 15.
Auk lúðrasveitarinnar leikur
Dixilandhljómsveit skipuð hljóð-
færaleikurum úr lúðrasveitinni
sem og einnig Léttsveit Lúðra-
sveitar Akureyrar. Á efnis-
skránni er lúðrasveitartónlist
sakamann sem Skúli hét og komst
á hesti sínum undan vörðum lag-
anna. Kvæðið er því ekki um
Skúla fógeta. En fógetinn, sem
setti svo mikinn svip á Viðey, var
lengi léttur á fæti. Því var talið
rétt að kenna þetta fjölskyldu-
hlaup við hann og nýta hið þekkta
nafn Skúlaskeið", segir í fréttatil-
kynningu.
Á sunnudag verður að venju
staðarskoðun í Viðey kl. 14.15.
Ljósmyndasýning í Viðeyjarstofu
er opin alla daga og hestaleigan
að starfi. Veitingar eru í Viðeyjar-
stofu og á sunnudögum er þar
sérlega gott kaffihlaðborð. Al-
mennar bátsferðir eru á klukku-
stundarfresti frá kl. 13.
Námskeið
í plöntu-
greiningu
HIÐ íslenska náttúrufræðifélag
efnir til námskeiðs í plöntugrein-
ingu laugardaginn 6. júlí kl.
13-18. Þátttakendur mæti við
Náttúrufræðistofnun Islands á
Hlemmi 3 v/Hlemmtorg.
Ekið verður um Mosfellsheiði
til Þingvalla og staðnæmst í mis-
munandi gróðursamfélögum til að
æfa sig að þekkja plöntur. Æski-
legt er að fólk hafi plöntugrein-
ingahandbók með sér. Leiðbein-
andi verður Eyþór Einarsson
grasafræðingur.
Væntanlegir þátttakendur eru
beðnir um að skrá sig á skrifstofu
JÓHANNES Elíasson eigandi rakarastofunnar.
Ný rakara- og hársnyrtistofa
af ýmsu tagi, dixiland og djass,
m.a. eftir Ellington og Hoagy
Carmiachel og fleiri.
Þessar hljómsveitir koma
einnig fram á lokatónieikum
Djasshátíðar á Egilsstöðum á
sunnudag, 30. júní kl. 15 í Vala-
skjálf.
Sljórnandi er Atli Guðlaugs-
son.
HÍN á Hlemmi 3. Hún er opin á
þriðjudögum og fimmtudögum kl.
9-12. Þátttakan er öllum heimil
og hún kostar 1.500 kr. fyrir full-
orðna.
Geðfatlaðir
á Norður-
landamóti
HÓPUR geðfatlaðra fór sl. laug-
ardag á Norðurlandamót í Finn-
landi sem er árlegur viðburður á
hverju ári.
Þetta eru einu samskipti geð-
fatlaðra á Norðurlöndum og
styrkti Geðhjálp hópinn til farar-
innar. Þessa vikuna koma geðfatl-
aðir með sitt framlag sem er söng-
ur, skemmtiatriði o.fl.
Fararstjórar í ferðinni með ís-
lenska hópnum eru Karl Valdi-
marsson og Sigurður Gunnarsson.
LEIÐRÉTT
Nafn vantaði
í GREIN Ingiríðar Lúðvíksdóttur,
„íbúar í Laugarneshverfí, opnið
augun“ sem birtist í blaðinu í
gær, vantaði síðustu setninguna.
Hún átti að vera eftirfarandi:
„Vanti ykkur undirskriftalista haf-
ið þá samband við undirritaða,
Sigurð Þorbergsson, Laugames-
vegi 104 eða Karl Lúðvíksson,
Otrateigi 52.“
Morgunblaðið biðst velvirðingar
á mistökunum.
Hj ólreiðahátíðin
á Hvolsvelli er
orðin föst í sessi
Hellu. Morgunblaðið.
Almenna
mótið í
Vatnaskógi
KRISTNIBOÐSSAMBANDIÐ
gengst fyrir almennu kristilegu
móti í Vatnaskógi um næstu helgi,
frá föstudegi til sunnudags. Al-
mennu mótin hafa verið haldin í
50 ár og verður þetta hið 51. í
röðinni.
KFUM rekur sumarbúðir fyrir
drengi í Vatnaskógi og hefur að-
sókn verið mikil í sumar. Gert er
hlé á drengjastarfinu meðan mót-
ið stendur yfir.
Yfirskrift mótsins er Ham-
ingjuleiðin og er þar vitnað til ritn-
ingarorðs. Mótið hefst kl. 21.30
föstudaginn 28. júní og lýkur með
samkomu sem byijar kl. 14
sunnudaginn 30. júní. Sérstök
fjölskyldusamkoma verður á laug-
ardeginum í umsjón tvennra hjóna
sem starfað hafa í Afríku.
Mikill almennur söngur verður
á mótinu og lífleg tónlist. Ræðu-
menn verða Ragnar Gunnarsson,
Hrönn Sigurðardóttir, Skúli Svav-
arsson, Susie Bachmann, Sigurð-
ur Pálsson og Kjartan Jónsson.
Jafnan er leitast við á þessum
mótum að fljdja einfaldan og
skýran boðskap og hvetja fólk til
þátttöku í útbreiðslu kristinnar
trúar.
Hægt verður að tjalda í Vatna-
skógi eða fá svefnpokapláss inni
í skálum. Einnig eru veitingar á
boðstólum. Rúmur tími er á milli
samverustunda svo fólk getur
notið útivistar í fögru umhverfi.
Leitað að
„herra Islandi“
FEGURÐARSAMKEPPNI ís-
lands stendur nú fyrir því að velja
Herra Island 1996 og munu und-
ankeppnir fara fram í öllum lands-
hlutum í júlí og ágúst í sumar.
Úrslitakeppnin verður síðan hald-
in á Hótel Íslandi 13. september
nk. og mun Stöð 3 sýna beint frá
henni.
Sigurvegarinn hlýtur auk fjölda
glæsilegra verðlauna þátttökurétt
í keppnini Mr. Europe sem fram
fer í Kaupmannahöfn í október
og verður sýnd í Eurosport. Sigur-
vegari þeirrar keppni fær m.a.
eins árs módelsamning við PH-
One-módelskrifstofuna í París.
Leitað verður eftir sportlegum
herrum á aldrinum 18—36 ára,
184 sm eða hærri og er tekið á
móti ábendingum á Hótel íslandi.
Skúlaskeið,
fjölskyldu-
hlaup í Yiðey
EFNT verður til fjölskylduhlaups
í Viðey laugardaginn 29. júní. Það
hefst kl. 14 en bátsferðir verða á
20 mínútna fresti frá kl. 12. Þátt-
tökugjald er ekki annað en feiju-
tollurinn sem er 400 kr. fyrir full-
orðna og 200 kr. fyrir börn. Skúla-
skeiðið er hugsað sem allt í senn,
ganga, skokk eða hlaup. Vega-
lengdin er 3 km.
Farið verður frá Viðeyjarstofu
austur fyrir skólann og þar beygt
yfír á suðurströndina. Henni verð-
ur fylgt heim undir Stofu en það-
an verður haldið vestur að grill-
skálanum Viðeyjarnausti þar sem
hlaupið endar. Þar fá allir þátttak-
endur verðlaunapening með mynd
af innsigli Skúla fógeta. Einnig
verður boðið upp á grillaðar pyls-
ur og kalda drykki til að hressa
sig á.
Ferðir í land aftur hefjast upp
úr kl. 15. Öll skipulagning og
umsjón Skúlaskeiðs er í höndum
Reykjavíkurmaraþons.
„Nafnið Skúlaskeið er dregið
af kvæði Gríms Thomsen um
JÓHANNES Elíasson, hár-
skurðarmeistari, hefur opnað
nýja rakara- og hársnyrtistofu
að Starmýri 2 (áður Hársnyrti-
stofa Úlfar). Boðið er upp á
vandaða alhliða hársnyrtingu.
Opið er alla virka daga frá kl.
9-18.
UM helgina fer fram í fjórða sinn
hjólreiðahátíðin „Tour de Hvols-
völlur“, en dagskrá hátíðarinnar
hefst á laugardagmorgun með 14
km götuhjólreiðum frá Hellu til
Hvolsvallar. Keppnin er haldin í
samvinnu við Hjólreiðafélag
Reykjavíkur og er hluti af Bik-
armeistaramóti íslands.
Hjólað um Njáluslóðir
á Fljótshlíðarvegi
Að lokinni mótssetningu á
Hvolsvelli hefst bikarmeistaramót
á götuhjólum og fjallahjólum, þar
sem m.a. verður hjólað um Njálu-
slóðir á Fljótshlíðarvegi. Sex ára
börn hjóla Dagrenningarrall, en
slysavarnadeildin Dagrenning ætl-
ar að færa öllum sex ára börnum
í sýslunni reiðhjólahjálma. Þá má
nefna Torfærukeppni barna og
Bjallaklifur sem er 4 km hringur
og er hluti af Bikarmeistaramóti
á fjallahjólum. Keppt verður í
fimm flokkum, unglinga, kvenna
og meistara.
Um kvöldið verður grillveisla
við markaðstjald en í tjaldinu
FÉLAGAR í Lionsklúbbnum
Nirði í Reykjavík voru á ferð í
Önundarfirði 19. júní sl. Færðu
þeir Lionsklúbbi Ónundarfjarð-
ar að gjöf 500.000 kr. sem varið
skal til uppbyggingar á Flat-
eyri. Gestimir vom viðstaddir
helgistund í Holtskirkju þar
sem rifjaðir vom upp þættir úr
sögu byggðarlagsins. Á mynd-
munu fyrirtæki og félagasamtök
sýna og selja framleiðslu sína. Þá
verður fjölbreytt skemmtidagskrá
fyrir alla fjölskylduna, varðeldur
og hljómlist að hætti heimamanna.
Á sunnudag verður Krappa-
keppni á fjallahjólum 35 km, auk
þess sem fram fer tvíkeppni í
fjallahjóireiðum, en stigahæsti
keppandi hlýtur titilinn Hvolsvall-
armeistari í íjallahjólreiðum 1996
ásamt peningaverðlaunum.
Búist við
að 300 keppendur
mæti til leiks
Að sögn Sóleyjar Ástvaldsdótt-
ur hjá Ferðaþjónustu Sælubúsins
á Hvolsvelli, sem sér um fram-
kvæmd hátíðarinnar, er búist við
a.m.k. þijú hundruð þátttakendum
og enn fleiri áhorfendum, en mik-
ið er lagt uppúr að gera keppnina
spennandi fyrir þá. Hjólreiðahátíð-
inni lýkur um hádegi á sunnudag
með mótsslitum og verðlaunaaf-
hendingum, en að þeim loknum
verður farið hjólandi í fjölskyldu-
ferð að Tumastöðum í Fljótshlíð.
inni, sem tekin var undir kirkju-
vegg í Holti, eru f.h. Ólafur J.
Straumland, Sigfús Almarsson,
Sigurður Sigurdórsson, formað-
ur Lionsklúbbs Önundarfjarðar,
Úlfar Eysteinsson, formaður
Lionsklúbbsins Njarðar, Daníel
Þórarinsson, Gunnlaugur Mel-
steð og Gunnar Björnsson, stað-
arprestur.
LOKAÐIR FJALLVEGIR 27. JÚNÍ 1996
Vegagerðin og Náttúruverndarráð hafa sent frá sér upplýsingar um hvaða
svæöi á hálendinu eru lokuð allri umferð vegna snjóa og/eða aurbieytu.
Vegir á skyggðu svæðunum eru lokaðir allri umferð þar til annaö verður
auglýst. Símar vegagerðarinnar eru: 563-1500 og grænt númer, 800-6315.
Hálf milljón til Flateyrar