Morgunblaðið - 28.06.1996, Qupperneq 48
48 FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Ljóska
■iiWiooxccaM8*
JUNE 6, l<?^¥ 1 TO REMEMPEK
O 1996 UnHed Feature Syndlcate, Inc.
6. júní 1944 „til minningar".
BREF
ITL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reylgavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: lauga@mbl.is
Jesú myndi gráta
Frá frá Guðrúnu K. Magnúsdóttur.
FYRIR hluta íslensku þjóðarinnar
er þúsund ára kristniafmælið mikill
sorgarviðburður. Réttsýnir menn
gráta allt það sem gert hefur verið
í nafni kirkjunnar í aldir: menn
voru teknir af lífi fyrir skoðanir
sínar, innankirkjumenn hálshjuggu
hver annan, Þingvellir voru vanvirt-
ir og vanhelgaðir með aftökum,
menn og konur voru brennd lif-
andi. Menn harma alla þá grimmd,
sem þessum massastilltu trúar-
brögðum fylgir, enda voru þau
valdatæki, sem við neyddumst til
að kalla yfir okkur til þess að kom-
ast hjá því að vera drepin. Innfluttu
trúarbrögðin voru aðeins valda-
tæki. Það var alið á ótta og gamla
herbragðiðnotað: Sameiginlegur
óvinur lýðsins notaður til að sam-
eina hana. Þessi innfluttu trúar-
brögð byggjast á sauðahjarðar-
hlýðni. Massastillt trúarbrögð eru
að auki gróðrarstía fyrir ofstæki,
valdníðslu og hroka.
Einstaklingar sem skilja verð-
mæti menningararfsins, trúar-
bragða okkar norrænu forfeðra,
sem kom hingað heim fyrir kristni,
eru illrækir sem fénaður. Þess
vegna voru gömlu trúarbrögðin
upprætt með vopnavaldi, kúgun,
hótunum og brennum. Menningar-
arfurinn var og er nefnilega ónot-
hæfur sem valdatæki, hlýðnitæki.
Síst er ég sammála því að íslensk
tunga hafi haft gott af þessum inn-
fluttu trúarbrögðum. Málsaurgun
varð mikil af þeirra völdum. Var
ekki einhver ráðherra að viðra eitt-
hvað um þennan þátt málsins um
daginn?
Voða húllumhæ —
en hver á að borga?
Nú ætla kristnir að hafa voða
húllumhæ á afmælinu og það er
þeirra einkamál. En hver á að
borga? Peningarnir okkar eru í
höndum Alþingis og það er allra
Islendinga mál. Þetta er ekki þjóð-
hátíð, ekki lýðveldishátíð, ekki al-
þingishátíð, ekki fullveldishátíð,
heldur er hluti landsmanna vel
heilaþveginn að því leyti, að hafa
aldrei heyrt talað um annað en
kostnaðarsama Hebrea-guðinn.
Skólakerfið og peningar skattborg-
aranna eiga mesta sök á því nú á
tímum. Hluti þjóðarinnar er mjög
sorgmæddur yfir öllum þeim hrika-
legu, svimandi íjárhæðum, fríðind-
um og forréttindum sem ausið er í
þetta apparat, sem prestar kalla
nátttröllið. Sá hluti þjóðarinnar er
ekki reiðubúinn til að borga húllum-
hæið í ofanálag.
í nýrri bók, sem heitir Óðsmál,
er bent á að þau trúarbrögð sem
hér voru fyrir, er sú ógæfa dundi
yfir að valdatækið náði ægitökum
hér, eru miklu mannúðlegri, tærari,
upprunalegri trúarbrögð, ómeng-
aðri og fallegri en valdatækið inn-
flutta.
Ég hvet menn til að lesa þessa
bók, Óðsmál (útg. Freyjukettir).
Hún er falleg og skemmtileg, lýsir
á hleypidómalausan, einfaldan og
aðgengilegan hátt um hvað trúar-
brögð snúast og sýnir fram á þá
misnotkun, sem trúarbrögð verða
fyrir í höndum valdafíkinna, óráð-
vandra manna. Það er víða mjög
mjög hættulegt hvernig trúarbrögð
eru notuð. Þetta fer hæglega út í
andlegt ofbeldi. Það er kannski
sýnu hættulegra en líkamlegt of-
beldi. Góður Jesú myndi gráta.
Ég vona að þeir sem vilja fagna
sínum hjarðar- og massastýritrúar-
brögðum með sviðsetningu verald-
legrar skrautsýningar hafi ekki
aðgang að einum einasta eyri úr
ríkiskassanum.
Sparaður rekstrarkostnaður
og sala þjóðareigna
Mér finnst meira að segja að
við, þjóðin, ættum að selja þeim
einstaklingum, sem vilja kaupa all-
ar kirkjurnar, skrautið sem þeim
fylgir og orgelin. Ekki ætti eitt
einasta embætti heldur að vera til
í trúarbragðageiranum árið 2000.
Raunar er kominn tími til að fella
niður klausur í stjórnarskránni
okkar, þar eð þær eru ekki í anda
þeirra ákvæða er kveða á um jafn-
rétti og frelsi, og misnotkun al-
mannafjár til sérhagsmunahópa.
Þessi ákvæði tilheyrðu tímum fá-
fræði og heilaþvottar. Að ríkisvald
styðji og verndi eitt peningagírugt
sértrúarbákn er tímaskekkja á
upplýstri öld. Lesið tímamótaverk-
ið Oðsmál.
GUÐRÚN K. MAGNÚSDÓTTIR,
Skarphéðinsgötu 2.
Að gefnu tilefni
Frá Ólafi Ólafssyni:
LAUGARDAGINN 22. júní sl.
skrifar Óskar Jóhannsson formaður
íþróttafélags fatlaðra í Reykjavík
grein undir fyrir-
sögninni „Styðjum
íþróttastarf fatl-
aðra“. Þar segir, að
á kosningadaginn
þann 29. júní eigi
að fara fram ijár-
söfnun til styrktar
starfseminni. Sú
söfnun sem þar fer
fram er eingöngu á
vegum Iþrótta-
félags fatlaðra í Reykjavík sem er
ekki heildarsamtök fatlaðra heldur
aðeins eitt af mörgum aðildarfélög-
um innan íþróttasambands fatl-
aðra. Þessi söfnun nær því ekki til
þroskahefts íþróttafólks í Reykja-
vík. Það er vegna þessa sem við
hjá íþróttafélaginu Ösp, sem er
íþróttafélag þroskaheftra og fjöl-
fatlaðra finnum okkur knúin til að
bera fram nánari skýringu á þess-
ari grein, þar sem fyrirsögnin er
villandi.
Þessi söfnun fer fram á sama
tíma og íþróttasamband fatlaðra
er að afla fjár fyrir alla fötlunar-
hópa vegna Ólympíuleikanna í Atl-
anta í ágúst nk. en það stendur
alfarið undir kostnaði þeirrar ferðar
með aðstoð dyggra stuðnings-
manna.
ÓLAFUR ÓLAFSSON,
formaður íþróttafélagsins Aspar.
Ólafur
Ólafsson
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt f
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.