Morgunblaðið - 28.06.1996, Blaðsíða 60
JteWii£cL
-setur brag á sérhvern dag!
HEIMILISLÍ NAN
- Heildarlausri ájjármálum
einstaklinga
(fy BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUOCENTRUM.IS / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85
FÖSTUDAGUR 28. JÚNÍ1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Ný skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar um fylgi forsetaframbjóðenda
Ólafur 39,5%, Pétur
31,2% og Guðrún 26%
ÓLAFUR Ragnar Grímsson nýtur
fylgis 39,5% kjósenda sem afstöðu
taka, Pétur Kr. Hafstein 31,2%,
Guðrún Agnarsdóttir 26% og Ástþór
Magnússon 3,3%, samkvæmt nýrri
skoðanakönnun Félagsvísindastofn-
unar fyrir Morgunblaðið sem gerð
var í gær og fyrradag.
—’Ekki er marktækur munur á fylgi
Guðrúnar og Péturs, en munurinn á
fylgi Ólafs og Péturs er marktækur
að mati Félagsvísindastofnunar.
Fylgi Ólafs Ragnars er nú heldur
meira en í síðustu könnun Félagsvís-
indastofnunar sem gerð var 25. og
26. júní en þá mældist fylgi hans
36,4%. Ekki er þó um marktækan
mun að ræða. Fylgi annarra fram-
bjóðenda hefur dregist lítillega sam-
Nemandi
í starfskynningu
Spari-
skírteini
í pappírs-
tætara
BÚNAÐARBANKI íslands
hefur höfðað mál fyrir héraðs-
dómi Reykjavíkur, þar sem
þess er krafist að átta spari-
skírteini ríkissjóðs verði ógilt
með dómi.
Forsaga málsins er sú að
eigandi spariskírteinanna
hafði óskað þess að bréfin yrðu
geymd í útibúi Búnaðarbank-
ans í Borgarnesi.
Atti að taka ljósrit af
skírteinunum
Daginn sem útibúið tók við
skírteinunum til vörslu var
nemandi í 10. bekk Grunn-
skóla Borgarness í starfskynn-
ingu í bankanum. Honum
hafði verið falið að taka ljósrit
af spariskírteinunum. Þegar
nemandinn hugðist Ijósrita
spariskírteinin lagði hann þau
frá sér á pappírstætara. Ekki
tókst betur til en svo að tætar-
inn fór sjálfkrafa í gang og
skar öll spariskírteinin í tætlur
án þess að nokkuð yrði að gert.
Spariskírteinin voru frá ár-
inu 1990 og var höfuðstóll
hvers um sig 100 þúsund krón-
ur._
í auglýsingu frá dómstjóra
Héraðsdóms Reykjavíkur, sem
birtist í Lögbirtingablaðinu 26.
júní sl., er hverjum þeim er
kann að hafa framangreind
verðtryggð spariskírteini ríkis-
sjóðs undir höndum stefnt til
að mæta á dómþing héraðs-
dóms Reykjavíkur 5. septem-
ber næstkomandi.
an frá seinustu könnun en þær
breytingar eru líka innan skekkju-
marka. í þeirri könnun mældist fylgi
Péturs 32,6%, fylgi Guðrúnar 27%
og fylgi Ástþórs 4%.
Spurt var hvern af frambjóðend-
unum svarendur ætluðu að kjósa og
sögðust þá 20,4% óákveðin, 4% ekki
ætla að kjósa eða skila auðu eða
ógildu, og rúm 2% neituðu að svara.
Hinir óákveðnu voru þá spurðir
áfram hvern þeir teldu líklegast að
þeir myndu kjósa. Eftir seinni spurn-
ingunna fór hlutfall óráðinna niður
í 6,9% sem er svipað hlutfall og í
síðustu könnun.
Af þeim sem afstöðu tóku eftir
fyrri spurninguna sögðust 41,2%
LOÐNUVEIÐAR eru heimilar frá
og með næstkomandi mánudegi,
1. júlí, og er meirihluti loðnuveiði-
skipa að halda á miðin í dag og
næstu daga að leita loðnu, skv.
upplýsingum Morgunblaðsins.
„Útlitið núna er gott og kvótinn
mikill og menn eru bjartsýnir," seg-
ir Sveinn Jónsson, hjá Félagi ís-
lenskra fiskimjölsframleiðenda.
Víða um land standa nú yfir
miklar endurbætur fiskimjölsverk-
smiðja og bygging nýrra verksmiðja
sem áætlað er að verði komnar í
styðja Ólaf, 33,1% Pétur, 22,3%
Guðrúnu og 3,4% Ástþór. Eftir síð-
ari spurninguna minnkaði fylgi Ólafs
í 39,5%, og fylgi Péturs í 31,2%,
fylgi Guðrúnar jókst í 26% en fylgi
Ástþórs mældist 3,3%.
Konur skiptast nær jafnt milli
Guðrúnar, Ólafs og Péturs
Frambjóðendurnir njóta nú svo til
sama stuðnings meðal kvenna en
verulegur munur er á fylgi þeirra
meðal karla. Er marktækur munur
á svörum þessara hópa að mati Fé-
lagsvísindastofnunar. 16,1% karla
og 33,7% kvenna segjast styðja
Guðrúnu, 47,3% karla og 33,4%
kvenna styðja Ólaf, 30,7% karla og
32% kvenna styðja Pétur og 6%
gagnið á næstu vetrarvertíð. Skv.
upplýsingum blaðsins mun afkasta-
geta loðnuverksmiðja aukast um
2.500-3.000 lestir á sólarhring með
þessari viðbót eða um nálægt 20%
af heildarafkastagetu mjölverk-
smiðja á landinu í dag.
Stærsta framkvæmdin er bygg-
ing nýrrar loðnuverksmiðju SR-
mjöls hf. í Helguvík en reiknað er
með að hægt verði að prufukeyra
hana fyrir áramót. Afkastageta
verksmiðjunnar verður um 800 tonn
á sólarhring. Heildarkostnaður við
karla og 0,8% kvenna styðja Ástþór.
Ólafur Ragnar nýtur nú stuðnings
35,5% kjósenda í Reykjavík, 36,8%
á Reykjanesi og 46,7% meðal lands-
byggðarkjósenda. Pétur nýtur
stuðnings 34,3% kjósenda í Reykja-
vík, 33,5% á Reykjanesi og 27,2% á
landsbyggðinni. Guðrún nýtur 26,7%
fylgis í Reykjavík, 26,5% á Reykja-
nesi og 23% á landsbyggðinni. Ást-
þór hefur stuðning 3,2% kjósenda á
Reykjanesi, 3,1% á landsbyggðinni
og 3,6% í Reykjavík.
Við gerð könnunarinnar var
stuðst við slembiúrtak úr þjóðskrá
sem náði til 1200 manna á aldrinum
18-75 ára, af öllu landinu. Alis feng-
ust svör frá 70% úrtaksins. Nettó-
svörun var 71,1%.
bygginguna er áætlaður 700-750
millj. kr.
Gott útlit á mörkuðum
Upphafskvóti loðnu fyrir íslensk
skip á sumar- og haustvertíðinni
er 737 þús. lestir. Hlynur Jónsson,
framkvæmdastjóri hjá SR-mjöli hf.
segir að ef haustvertíðin verði
þokkaleg stefni í metár hjá verk-
smiðjum SR-mjöls. „Menn hafa orð-
ið varir við mikið magn loðnu í sjón-
um,“ sagði hann. „Það virðist því
vera nóg af loðnu og kvótinn er
REYKKAFARI að störfum á
Kirkjusandi í gærkvöldi.
Laugarnes
Ammón-
íaksleki
AMMÓNÍAK lak frá kjötvinnslu
Goða við Kirkjusand í gærkvöldi.
íbúi við Hrísateig varð var við lykt
á níunda tímanum og gerði viðvart.
Lögregla fór á staðinn og staðfesti
að um leka frá Goða var að ræða.
Marteinn Geirsson, varðstjóri í
Slökkviliðinu í Reykjavík, segir
slökkviliðið hafa komið á staðinn
rétt fyrir kl. hálfníu og hafi þá verið
mikil ammóníakslykt á svæðinu.
Svæðinu var strax lokað fyrir um-
ferð og reykkafarar i eiturefnagöll-
um sendir inn í húsið tib að leita
uppsprettu ammóníaksins. Marteinn
segir að það hafi þó ekki verið fyrr
en vélstjóri í vélasal kom á staðinn
og hann sendur inn í galla og með
reykköfunartæki að tókst að loka
fyrir iekann.
Vatni úðað yfir ammóníakið
Á meðan Iekans var leitað reyndu
slökkviliðsmenn úti fyrir að minnka
fnykinn með því að úða vatni yfir
ammóníakið sem lak út um túðu í
um tveggja og hálfs metra hæð á
suðurgafli hússins. Þannig tókst að
minnka svæðið sem ammóníakið
dreifðist um.
Marteinn segir óþægilegt þegar
fólk andar að sér ammóníaki og það
getur verið lífshættulegt ef það er
gert inni í lokuðu rými. Við aðstæð-
ur sem þessar hafí íbúunum í kring
ekki verið hætta búin. Nokkrir þeirra
hafi þó hringt í neyðarnúmerið til
að leita upplýsinga um hvort hætta
væri á ferðum.
mjög rúmur. Ég vona að haustver-
tíðin bregðist ekki þriðja árið í röð,“
sagði hann.
Horfur á mörkuðum eru ágætar
að sögn Sveins Jónssonar. Verð á
mjöli hefur haldist nokkuð stöðugt
en lýsisverð hefur hins vegar lækk-
að nokkuð „Vegna aðgerða um-
hverfisverndarsinna virðast kaup-
endur vera farnir að minnka notkun
á lýsi. Þessa gætir ekki enn á heims-
markaði en menn hafa áhyggjur
af þessu,“ sagði hann.
Morgunblaðið/Sigurgeir
í VESTMANNAEYJUM voru menn í gær að gera loðnuskipin klár til loðnuveiða en sumarvertíðin
hefst á mánudaginn. Reiknað er með að fleiri loðnuskip haldi í loðnuleit í sumar en oft áður. Þrátt
fyrir óvissu um stærð veiðistofnsins og hversu dreifð loðnan er er rikjandi bjartsýni.
Nálægt 20% aukning á af-
kastagetu loðnuverksmiðja