Morgunblaðið - 18.07.1996, Page 1
72 SÍÐUR B/C
Gripið til „neyðaraðgerða“ eftir tilræði í Ukraínu
Segja öfgamenn ógna
sjálfstæði landsins
Kíev. Reuter.
RÁÐAMENN í Úkraínu hafa
ákveðið að grípa til „neyðarað-
gerða“ til að tryggja öryggi lands-
ins eftir að reynt var að ráða Pavlo
Lazarenko forsætisráðherra af
dögum í fyrradag. Kváðu þeir
kommúnista og bandamenn þeirra,
þjóðernisöfgamenn og glæpasam-
tök, stefna sjálfstæði landsins í
hættu.
Volodymir Horbulin, formaður
Þjóðaröryggisráðs Úkraínu, sagði
að efnt yrði til skyndifundar í ráð-
inu til að ræða aðgerðirnar. Ráð-
gert væri meðal annars að víkja
embættismönnum frá, herða eftirlit
með notkun ríkisfjármuna og auka
öryggisviðbúnað til að vernda
æðstu embættismenn landsins.
„Ég get ekki sagt að þetta sé
neyðarástand en gripið verður til
neyðaraðgerða. Við stöndum nú
frammi fyrir alvarlegri ógnun við
öryggi landsins," sagði Horbulin.
„Verkefnið sem við eigum fyrir
höndum er ekki auðvelt. En ef við
tökum ekki á þessu vandamáli get
ég ekki verið viss um að hægt verði
að tala um Úkraínu sem sjálfstætt
ríki í haust.“
Vilja uppræta vopnaða hópa
Horbulin sagði að úkraínskir
ráðamenn yrðu að gera ráðstafanir
til að uppræta vopnaða hópa
stjórnarandstæðinga.
Hann sagði að ekki yrði þó gripið
til aðgerða sem græfu undan
prentfrelsinu eða öðrum mannrétt-
indum.
Lazarenko forsætisráðherra
slapp ómeiddur þegar fjarstýrð
sprengja sprakk á vegi nálægt flug-
vellinum í Kíev í þann mund sem
hann ók hjá á leið til náma í Don-
bass, þar sem um 200.000 náma-
menn hafa verið í verkfalli. Ráð-
herrann sagði „glæpamenn" úr röð-
um stjórnarandstæðinga, sem legð-
ust gegn áformum stjórnarinnar
um að loka gömlum námum, hafa
staðið fyrir sprengjutilræðinu.
Júrí Kravtsjenko innanríkisráð-
herra sagði að 3.000 lögreglumenn
væru að leita að tilræðismönnun-
um, þeirra á meðal 500 óeirðalög-
reglumenn í Kíev einni.
ÖLDRUÐ kona í þorpinu Shalazi í Tsjetsjníju bendir á hús sitt
sem hún segir að rússneskar herþyrlur hafi eyðilagt.
Tsjetsjenar bera Rússa þungum sökum
Sagðir ráðast
á friðsöm þorp
Kjarninn
snýst
hraðar
New York. Reuter.
VÍSINDAMENN við Columb-
ia-háskóla í New York hafa
leitt í ljós með mælingum á
jarðskjálftabylgjum, að hinn
efnisfasti innri kjarni jarðar,
sem er úr járni og á stærð við
tunglið, snýst hraðar en jörðin.
Greint er frá uppgötvuninni
í vikuritinu Nature í gær. Víst
þykir að hún muni auka skiln-
ing á alheiminum og leiða til
nýrra rannsókna sem útskýrt
gætu breytingar á segulsviði
jarðar.
Einnig mun uppgötvunin
gefa vísbendingar um hitastig
í miðju jarðar og hitaflæði í
jörðinni, sem leiðir til jarðhniks
eða plötuhreyfinga á yfirborð-
inu. Þær hreyfingar valda
landreki og jarðskjálftum og
myndun fjalla og hafsvæða.
Jarðarkjarninn er tveimur
þriðju úr sekúndu fljótari að
ljúka heilum snúningi en jörðin.
Það jafngildir því að hann fari
fjórðungi úr snúningi fram úr
jörðinni á 100 árum sem telst
mikill hraði í jarðvísindum.
Christopher
ræðir Kúbu
Washington. Reuter.
WARREN Christopher, utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði í
gærkvöldi að ýmsir bandamenn
Bandaríkjamanna hefðu sagst fúsir
til samvinnu um að beita stjórn
Kúbu þrýstingi til að hún virti mann-
réttindi og tæki upp lýðræði.
Christopher kvaðst hafa rætt við
sjö utanríkisráðherra, sem allir vildu
„taka þátt í þessu . . . Ég heid að
í því felist skuldbinding".
■ Geta brotið/22
Moskvu. Reuter.
TALSMENN aðskilnaðarsinna í
Tsjetsjníju sökuðu í gær rússneska
herinn um að hafa gert árásir á
fjölda friðsamra sveitaþorpa með
þungavopnum og þyrlum undan-
farna daga. Heimildarmenn í hérað-
inu skýrðu frá vaxandi ókyrrð og
andúð á rússneska herliðinu.
Víktor Tsjernomýrdín, forsætis-
ráðherra Rússlands, sagði í gær að
árásir uppreisnarmanna væru orsök
þess að friðarviðræður færu ávallt
út um þúfur. Hann tók þátt í fundi
nefndar sem fjallar um málefni
Tsjetsjníju, en í henni sitja margir
helstu ráðamenn Rússlands og full-
trúar stjórnar sem Rússar hafa
komið á fót í Kákasushéraðinu.
Niðurstaða fundarins varð sú að
halda bæri áfram friðarumleitunum
en Tsjernomýrdín sagði að um víta-
hring væri að ræða. Uppreisnar-
menn brytu stöðugt ákvæði friðar-
samninga, sem Borís Jeltsín forseti
gerði í maí við Zelímkhan Jand-
arbíjev, leiðtoga uppreisnarmanna,
og réðust á herflokka Rússa.
Tsjetsjenar segja að Rússar
standi ekki við fyrirheit um að flytja
herliðið á brott frá héraðinu.
Flóttamenn
frá A-Tímor
mótmæla
Árásir múslima á Bosníu-
Serba færast í aukana
TUTTUGU ár eru liðin fráþví
að Austur-Tímor var inniimað í
Indónesíu og i gær var haldið upp
á svokallaðan „samrunadag" í
Dili, höfuðborg Austur-Tímor.
Engar fregnir bárust af mótmæl-
um þar. Austur-Tímor var portú-
gölsk nýlendatil 1975. Indónesísk
stjórnvöld sendu herlið þangað i
desember sama ár og rúmu hálfu
ári síðar var landið innlimað í
Indónesiu. Hafði þá öll mótspyma
verið brotin á bak aftur með mikl-
um blóðsúthellingum.
Flóttamenn frá Austur-Tímor
sjást hér mótmæla á torgi einu í
Lissabon í Portúgal og brenna
vörur frá Indónesíu.
Sareyevo. Reuter.
TALSMAÐUR Sameinuðu þjóðanna
í Bosníu sagði i gær að árásir músl-
ima á Bosníu-Serba í Sarajevo hefðu
færst í aukana og að stjórn lands-
ins, sem er að mestu skipuð múslim-
um, gerði ekkert til þess að veita
fólkinu vemd.
Um 50.000 Serbar flúðu þau
hverfi Sarajevo, sem þeir höfðu búið
í þar til múslimar og Króatar tóku
yfir stjórn borgarinnar samkvæmt
ákvæði Dayton-friðarsamkomulags-
ins í vetur. Á milli 8.000 og 10.000
manns ákváðu hins vegar að vera
um kyrrt þar sem stjórnvöld lofuðu
því að þeim yrði vel tekið í hinni
fjölþjóðlegu Bosníu sem reisa ætti
úr rústum þriggja ára styijaldar.
Ekki leið á löngu þar til múslimar
hófu að flytja inn í hverfi Serba í
Sarajevo og ofbeldi í garð þeirra sem
eftir sátu jókst enda margir músli-
manna fullir haturs og beiskju í
garð Serba. Hafa hús þeirra og kirkj-
ur verið brennd, Serbum hótað lífl-
áti, ógnað með sífelldri skothríð og
grafir vanhelgaðar.
Löggæslumenn SÞ hafa aukið
eftirlit í hverfum Serba og hvað eft-
ir annað kvartað við bosnísk stjórn-
völd vegna ofsóknanna. Segist tals-
maður SÞ telja að bosnísk stjórn-
völd „geri alls ekkert í málinu".
Þá hafa SÞ sagt frá dæmi um að
múslimar séu að styrkja varnir þorpa
sem þeir hafí átt að afhenda Serbum
í mars samkvæmt friðarsamkomu-
laginu. Um er að ræða þorpið Dugi
Dio, þar sem grafnar hafa verið
skotgrafir, vegatálmar reistir og hús
víggirt. Sögðu eftirlitsmenn SÞ að
um helmingi fleiri karlmenn á her-
skyldualdri væru í þorpinu en þar
hefðu búið fyrir stríð. Serbar hafa
ekki gert tilraun til að snúa aftur
til Dugi Dio.
■ Segir niðurstöðu/22
■ Varar við upplausn/20