Morgunblaðið - 18.07.1996, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 18. JÚLÍ 1996 9
FRÉTTIR
STJÓRN félagsins skipa nú: Sitjandi f.v. Borghildur Fenger, vara-
formaður, Elísabet G. Hermannsdóttir, formaður og Guðrún Kr.
Jörgensen, ritari. Aftari röð f.v.: Ragnheiður Sigurðardóttir í
varasljórn, Herdís Guðmundsdóttir, meðstjórnandi, Asta Tryggva-
dóttir í varastjórn, Unnur Einarsdóttir, meðstjórnandi, Astrid
Kofoed-Hansen í varasljórn og Esther Valdimarsdóttir, sem á
sæti í varastjórn.
Aðalfundur Kvenfélagsins Hringsins
Fimm milljónir í gjafir
KVENFÉLAGIÐ Hringurinn
hélt aðalfund sinn 17. apríl sl. í
Grand Hótel Reykjavík og kom
fram að félaginu bárust rúmar
5 milljónir króna í gjafir á síð-
asta ári.
I fréttatilkynningu segir:
„Eins og áður rennur öll fjáröfl-
un félagsins í Barnaspítalasjóð
Hringsins og einnig bárust
sjóðnum á síðasta starfsári
margar veglegar gjafir.
Happdrætti Háskólans, (Happ
í hendi) 1,5 millj., DAS (Bingó
lottó), 1 millj., gjöf frá Minning-
arsjóði Sigríðar Halldórsdóttur
og Jóhannesar Ö. Oddssonar,
500 þús., minningargjöf frá Hö-
skuldi Ágústssyni og frú, 500
þús., styrkur frá Newman’s Own
found, 1.261.800 kr., minning-
argjöf frá Þórði Guðbrandssyni,
100 þús., gjöf frá nemendum í
Tjarnarskóla, 100 þús., gjöf frá
Sigríði og Ottari Ellingsen, 100
þús., gjöf frá ískraft, 150 þús.,
styrkur frá Mjólkursamsölunni,
66 þús., gjöf frá velunnurum,
50 þús., gjöf frá Þorsteini Jóns-
syni v/frumsýningar á Skýja-
höllinni, 25.500 kr., gjöf frá
Þórunni Jónsdóttur, 10 þús.,
gjöf frá Árnýju Kristjánsdóttur,
2 þús., gjöf frá N.N., 4.707 kr.,
lokauppgjör v/söfnunar Callý-
ar, 143 kr.
Á starfsárinu gaf félagið
Barnaspítala Hringsins öndun-
armæli, öndunarvél og hita-
kassa að verðmæti 3,6 miiy. kr.
Einnig styrkti félagið sjúk börn
fyrir samtals 268 þús. kr.
Félagið þakkar öllum velunn-
urum góðar gjafir."
Skólaárið 1996-1997
Borgin mun reka
sérskóla á
grunnskólastigi
REYKJAVÍKURBORG, Samband
íslenskra sveitarfélaga og Jöfnun-
arsjóður sveitarfélaga hafa gert
með sér samkomulag um að
Reykjavíkurborg taki að sér rekst-
ur allra sérskóla og -deilda á
grunnskólastigi, sem starfandi eru
í borginni skólaárið 1996-1997.
Um er að ræða sérdeildir fyrir
sjónskert börn, hreyfihamlaða,
einhverf börn, Öskjuhlíðarskóla,
Safamýrarskóla, Dalbrautarskóla,
Einholtsskóla og Vesturhlíðar-
) skóla. Innritaður nemendafjöldi
næsta ár er 241.
í bókun borgarráðs segir að
ráðið samþykki fyrir sitt leyti drög
að samningnum en með fyrirvara
um að viðunandi samkomulag ná-
ist við BHMR og BSRB um réttar-
stöðu annarra starfsmanna en
kennara.
Kennsla með
sama hætti
í samningnum kemur fram að
I gengið er út frá að kennsla nem-
endanna verði með sama hætti
næsta skólaár og undangengið ár,
þar með talin ráðgjafarþjónusta
stofnana við nemendur í öllum
almennum grunnskólum. Umsam-
in greiðsla Jöfnunarsjóðs mun
greiða allan kostnað við rekstur
skólanna þar með talinn stjórnun-
arkostnað.
Gert er ráð fyrir að með göngu-
deildarnemendum sem sækja Dal-
brautarskóla fylgi greiðsla frá því
sveitarfélagi sem nemandinn á
lögheimili í eða 12.500 krónur á
viku á meðan hann dvelur í skólan-
um. Fyrir rekstur sérskóla og sér-
deilda greiðir Jöfnunarsjóður
borginni rúmar 307,9 milljónir.
Verði nemandi frá sveitarfélagi
sem notið hefur sérstaks auka-
framlags úr Jöfnunarsjóði, vegna
fötlunar, vistaður í ofangreinda
sérskóla skal jöfnunarsjóðsfram-
lagið renna til borgarinnar á með-
an þeirri skólavist sendur.
Samningurinn er gerður vegna
næsta skólaárs og skal ákvörðun
tekin um framtíðarfyrirkomulag
eigi síðar en 15. apríl 1997.
Siþ'a Aðal-
steinsdóttir
Fréttastjóri
menning-
arefnis DV
SILJA Aðalsteinsdóttir hefur ver-
ið ráðin fréttastjóri menning-
arefnis hjá síðdegisblaðinu DV frá
og með 1. september næstkom-
andi. Hún er
cand.mag. í íslensk-
um bókmenntum
frá Háskóla Islands,
hefur starfað við
kennslu og blaða-
mennsku og var rit-
stjóri tímarits Máls
og menningar og
Þjóðviljans. Eftir hana liggja þýð-
ingar og bækur um ýmis málefni.
I samtali við Morgunblaðið
sagði Si(ja að ráðning hennar
sýndi aukna áherslu DV á menn-
ingarefni. „Menningin hefur verið
dálítið úti í horni síðastliðin ár hjá
DV. Efninu hefur verið dreift um
allt blaðið og það vantað ákveðinn
prófíl. Eg held að þetta verði
skemmtilegt verkefni. Það er
skemmtilegra að reisa eitthvað við
sem hefur verið í ólagi en að taka
við því sem er vel á vegi statt.“
Silja taldi ekki að stjórnmála-
skoðanir hennar eða fortíð sem
ritsljóri Þjóðviljans yrðu henni
fjötur um fót. „Eg er í raun ekki
pólitísk skepna. Eg hef alla mína
starfsævi verið við menningar-
skrif og menning er að mínu áliti
ekki pólitísk. Síðastliðin fjögur ár
hef ég skrifað fyrir DV og það
hefur verið vandræðalaust." Silja
sagðist þegar hafa rætt við ákveð-
ið fólk sem hún vildi hafa með sér
til samstarfs en vildi þó ekki nefna
nein nöfn.
háel
edda
Sumarleikur
1996
Vinningsnúmerið
þann 16. júlí var:
5873
UTSALA
hef§t í dag, fínmitudag
\Týtt kortaixniabll
VERSLUNIN
ennar
Opið kl. 12-18. Sími 552 4800
Skólavörðustíg 6b, gegnt Iðnaðarmannahúsinu.
REIAIS &
CHATEAUX,
ÞRIGGJA
RÉTTA
ÁDEGISVERÐUR
*
m
AÐ EIGIN VALI
FYRIR AÐEINS
BORÐAPANTANIR
í SÍMA552 5700
utsala - utsala
Nýtt kortatímabil
Pils, dragtir,
blússur, buxur,
bolir og jakkar
ÖÓuntu,,
tískuverslun v/Nesveg, Seltjarnarnesi, s. 561 1680.
POLO 3-1-1 kr. 62.200
HÚSGÖGN í SUMARHÚSIÐ
Ath.: Sófasett 3.1.1 frá kr. 51.900.
Hornsófi furu 2H2 frá kr. 69.900.
VISA - EURO raðgreiðslur.
_______Sk__________________________
□□□□□□
HÚSGAGNAVERSLUb
Reykjavíkurvegi 66, Hafnarfirði, sími 565 4100