Morgunblaðið - 11.09.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 11.09.1996, Síða 1
72 SÍÐUR B/C/D/E PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS 206. TBL. 84. ARG. MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1996 Netanyahu hnýt- ir í Sýrlendinga Reuter Irakar ögra Bandankj- unum þrátt fyrir hótanir New York, París. Reuter. BENJAMIN Netanyahu, forsætis- ráðherra ísraels, sagði í gær að hann væri bjartsýnni á það að samningar tækjust við Palestínu- menn en að friður kæmist á við Sýrlendinga. „Sýrlendingar vilja . . . hefja samninga á ný með því að segja við okkur „Við þurfum að semja um framtíð Gólan-hæða og því verðið þið að verða við kröfu okk- ar um að þið látið Gólan-hæðir af hendi“,“ sagði Netanyahu á fundi í New York með athafnamönnum úr bandaríska viðskiptalífinu. ísraelar og Sýrlendingar hafa ekki ræðst við frá því að gengið var að kjörborðinu í ísrael í maí og stjórn Netanyahus, sem er and- víg því að láta „land fyrir frið“, komst til valda. Sýrlenska blaðið al-Baath sagði að Netanyahu stæði í vegi fyrir viðræðum með því að virða að vettugi fimm ára tvíhliða samn- inga og bætti við að forsætisráð- herra Israels hefði „rekið nagla í líkkistu friðarferlisins þegar hann Hálf öld frá kölluninni MÓÐIR Teresa flutti í gær ræðu í tilefni af því að hálf öld er lið- in frá því að hún fékk þá köllun að starfa í þágu fátækra. Þetta er fyrsta ræða hennar frá því að hún var útskrifuð af sjúkra- húsi í vikunni sem leið eftir 18 daga baráttu við hjartasjúkdóm og lungnabólgu. Móðir Teresa ávarpaði nunnur í trúboðsreglu, sem hún stofnaði árið 1949, í Kalkútta. „Þið hafið heitið að fórna ykkur í þágu fá- tækra og verðið að halda því áfram. Þetta er besta leiðin til að þjóna Guði,“ sagði hún í höf- uðstöðvum reglunnar. Móðir Teresa hefur lýst 10. september 1946 sem „innblást- ursdeginum". Þá hafi hún fengið þá köllun frá Guði að helga líf sitt líknarstörfum. Regla hennar rekur nú 544 heimili fyrir börn og fátæka í rúmlega 80 borguin víða um heim. setti fleiri hindranir og ómöguleg skilyrði“. Netanyahu ræddi á mánudag við Bill Clinton Bandaríkjaforseta í Washington og skoraði að því loknu á Sýrlendinga að hefja frið- arviðræður skilyrðislaust. Bandarískir embættismenn sögðu að verið væri að leita leiða til að fá ísraela og Sýrlendinga að samningaborðinu. Útspil Frakka Frakkar vilja leika stærra hlut- verk í Miðausturlöndum og buðust í gær til að aðstoða ísraela við að hefja friðarviðræður við Sýrlend- inga á ný. David Levy, utanríkis- ráðherra ísraels, ræddi í gær við Jacques Chirac, forseta Frakk- lands, og Hervé de Charette utan- ríkisráðherra og kvaðst hafa beðið þá að koma boðum til Sýrlendinga og Líbana. Farouq al-Shara, utanríkisráð- herra Sýrlands, var í Frakklandi í síðustu viku og Chirac heldur í næstu viku til Miðausturlanda. Ba^dad, Washington. Reuter. ÞUSUNDIR Kúrda í írak flúðu í gær í átt til írans í kjölfar þess að borg- in Sulaimaniya féll i hendur Kúrdum hliðhollum Saddam Hussein, forseta íraks, á mánudag. Margir ákváðu þó að snúa aftur til síns heima í norðurhluta íraks. Stjórn Saddams lýsti yfir því í gær að allir Kúrdar, sem hefðu búið undir verndarvæng Vesturlanda í norðurhéruðum íraks, hlytu náðun og sagði sigur Kúrda niðurlægingu Bandaríkjamanna. Bandaríkjamenn vöruðu íraka við því að reyna að gera við loftvarnir, sem skemmst hefðu í árásum bandaríska flughersins í síðustu viku, og hótuðu frekari árásum. Yfirlýsingin um náðun er talin hafa verið gerð til að undirstrika að írakar hafi endurheimt ítök sín í norðurhéruðunum eftir landvinninga Lýðræðisflokks Kúrdistans (KDP), sem þeim er hliðhollur. Saddam Hus- sein missti völdin í norðri eftir Persa- flóastríðið 1991. írakar gera við loftvarnir Bandaríkjamenn sögðu í gær að írakar hefðu gert við að minnsta kosti fjórar af loftvarnastöðvunum, sem Bandaríkjamenn skutu á sprengiflaugum fyrir viku til að refsa írökum fyrir að láta íraska herinn liðsinna þeirri fylkingu Kúrda, sem þeir styðja, í sókninni innan verndar- svæðisins í norðri. Hótuðu þeir nýrri árás héldu Irakar uppteknum hætti. íraska fréttastofan ÍNA greindi frá því í gær að þremur loftvarna- flaugum hefði verið skotið að banda- rískum flugvélum í eftirlitsflugi og hefðu þær forðað sér. Bandaríkjamenn lýstu yfir því í gær að skærist íraski herinn í leikinn í norðri gæti það orðið afdrifaríkt. Þjóðemisbandalag Kúrdistans hafði hins vegar þá þegar tapað viðureign- inni og Lýðræðisflokkur Kúrdistans náð völdum í lykilborginni Sulaimani- ya. Flóttamannastraumur til írans Þegar borgin féll á mánudag hófst flóttamannastraumurinn til írans fyrir alvöru. Sameinuðu þjóðirnar sögðu að búist væri við að 75 þúsund manns myndu flykkjast til landa- Kosninga- barátta í Bosníu YFIRMAÐUR liðsaHa Atlants- hafsbandalagsins í Bosníu, bandaríski aðmírállinn Joseph Lopez, sagði í gær að allt yrði gert til að koma í veg fyrir of- beldi vegna kosninganna í Bosníu um helgina. Haris Silajdzic, fyrrverandi forsætisráðherra Bosniu, skoraði í gær á alla aðilja að leggjast á eitt um sameiningu Bosníu. „Bosnía er sögulegt samfélag þriggja þjóða [Serba, múslima og Króata] og verði einhver þeirra undanskilin verður engin Bosn- ía,“ sagði Silajdzic á kosninga- fundi flokks síns í gær. Ekki hafa allir verið málsvarar einingar og skipuleggjendur kosninganna, Öryggis- og sam- vinnustofnun Evrópu (ÖSE), sekt- uðu í gær þjóðernisflokkinn, sem er við völd á yfirráðasvæði Serba, um 50 þúsund dollara (3,3 milljón- ir króna) fyrir að reka áróður fyrir aðskilnaði og samruna við Serbíu. A myndinni sjást stuðnings- menn Serbans Vojislavs Seseljs, öfgamanns og þjóðernissinna, á kosningafundi i Banja Luka. mæranna. íranskir embættismenn sögðu að gera mætti ráð fyrir 200 þúsund manns og fóru fram á hjálp alþjóðastofnana. Vitni sögðu hins vegar að mörg hundruð bifreiðar með Kúrda hefðu snúið aftur til Sulaimaniya og hefði fólkið greinilega talið að íraskir her- menn mundu ekki leggja borgina undir sig. íraska stjórnin var kokhraust eftir sigur KDP þrátt fyrir aðgerðir Bandaríkjamanna. „í dag flagga írakar í heila stöng en Bandarikjamenn í hálfa," sagði í dagblaði stjórnarinnar, al-Jumhouri- ya, og var Bill Clinton Bandarikjafor- seta líkt við „hýenu í búri, sem hleyp- ur um í leit að útleið". SÞgegn kjarnorku- sprengingum Sameinuðu þjóðunum. Reuter. ALLSHERJARÞING Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gær, eftir fjörutíu ára umræðu, sáttmála um að banna kjamorkuspreng- ingar. Atkvæðagreiðslan í gær dugar þó ekki til. Undirskrift 44 þjóða með „kjarnorkugetu“ þarf til og sögðu Indvetjar, sem eru þar á meðal, að þeir mundu aldr- ei undirrita sáttmálann. 158 ríki greiddu atkvæði með sáttmálanum, þijú á móti. Borís Jeltsín færir völd til Tsjemomýrdíns Moskvu. Reuter. BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, lét umsjón nokkurra lykilráðuneyta að hluta til í hendur Víktors Tsjerno- mýrdíns forsætisráðherra, en í yfir- lýsingu stjórnarinnar sagði að for- setinn mundi áfram bera ábyrgð á „rauða hnappnum", sem stjórnar kjarnorkuvopnum landsins. Þessar ráðstafanir eru hluti af undirbúningi Jeltsíns undir hjartaaðgerð, sem hann mun gangast undir á næstunni. Fréttaskýrendur sögðu að með þessu virtist Jeltsín vera að hefta uppgang Alexanders Lebeds örygg- isráðgjafa, sem hafði leitað eftiryfir- ráðum yfir „valdamestu" ráðuneyt- unum. Sergei Yastrzhembskí sagði að varnarmálaráðuneytið, innanríkis- ráðuneytið og önnur ráðuneyti, sem allajafna gæfu forsetanum skýrslu, mundu bera sín mái undir Tsjerno- mýrdín, sem samkvæmt stjórnar- skránni er staðgengill forsetans. Jeltsín hefur verið í fríi frá 26. ágúst og hefur ekki verið sagt hve- nær því ljúki. Hann tilkynnti í sjón- varpsviðtali í síðustu viku að hann gengist undir aðgerð á hjarta í lok þessa mánaðar. SÞgegn kjarnorku- sprengingum Sameinuðu þjóðunum. Reuter. ALLSHERJARÞING Sameinuðu þjóðanna samþykkti í gær, eftir fjörutíu ára umræðu, sáttmála um að banna kjamorkuspreng- ingar. Atkvæðagreiðslan í gær dugar þó ekki til. Undirskrift 44 þjóða með „kjarnorkugetu“ þarf til og sögðu Indveijar, sem eru þar á meðal, að þeir mundu aldr- ei undirrita sáttmálann. 158 ríki greiddu atkvæði með sáttmálanum, þijú á móti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.