Morgunblaðið - 11.09.1996, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1996
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Nýjar reglur um innkaup
á tóbaki væntanlegar
BREYTT fyrirkomulag á innflutningi og sölu
tóbaks tekur væntanlega gildi á næstunni, en
fjármálaráðuneytið fól stjóm Áfengis- og tóbaks-
verslunar ríkisins fyrr í sumar að setja reglur
um innkaupin. Munu reglurnar taka mið af þeim
reglum sem gilda um sölu áfengis og opna mögu-
leika fyrir nýjar tegundir á markaðnum.
Að sögn Höskulds Jónssonar, forstjóra ÁTVR,
voru drög að reglunum send heilbrigðisráðuneyt-
inu og Tóbaksvamanefnd til umsagnar og liggja
þær umsagnir nú fyrir, en Höskuldur sagði í
samtali við Morgunblaðið að engin tímasetning
væri komin á það hvenær reglurnar tækju gildi.
Sambærilegar reglum um innkaup á
áfengi
„Héðan færu svona reglur samþykktar af
stjóm til staðfestingar fjármálaráðuneytis, en
þessari vinnu er ekki að fullu lokið hér. Þetta
em reglur sambærilegar að formi til við reglur
um innkaup á áfengi," sagði Höskuldur.
Samkvæmt þessu mun innflutningur á tóbaki
skiptast í þijá flokka eins og innflutningur á
áfengi, þ.e. kjarna, reynsluflokk og sérpantanir.
í kjarna verða þær tegundir sem nú eru seldar
hér á landi, og í reynsluflokk fara nýjar tegundir
í ákveðnu hlutfalli við fjölda þeirra tegunda sem
eru í kjarna. Þær tegundir sem ná tiltekinni sölu
á ákveðnu tímabili færast síðan í kjarna, og þær
tegundir sem ekki ná ákveðinni lágmarkssölu á
ári detta út.
Meðal þeirra sem sóst hafa eftir því að koma
tóbakstegundum sínum á markað hér á landi
er bandaríski tóbaksframleiðandinn Philip Morr-
is, sem Íslensk-ameríska verslunarfélagið hf.
hefur umboð fyrir. Þekktar vindlingategundir
sem Philip Morris framleiðir eru Marlboro, Me-
rit, Virginia Slims, Benson & Hedges, L&M og
Chesterfield.
Nýnemar vígðir í FB
Morgunblaðið/Ásdís
BUSAVÍGSLUR hafa staðið
sem hæst undanfarna haust-
daga í samræmi við upphaf
skólastarfs í framhaldsskól-
um víða um Iand. Fjölmenn-
asti framhaldsskólinn er Fjöl-
brautaskólinn í Breiðholti og
þar voru nýnemar leiddir inn
í heim innvígðra í gær með
tilþrifum. Til allrar lukku eru
öfgar þær sem voru við lýði
í busavígslum í mörg ár liðin
tíð, og þurftu busar í FB ekki
að ganga í gegnum stórfelld-
ar hremmingar. Létu eldri
nemendur sér nægja að lita
þá í framan með tússlitum,
gera fáeinar kúnstir og
syngja barnagælur áður en
vígslu lauk.
Vilja banna kvöld-
umferð um Gijótaþorp
Framkvæmdastjóri SÍF
Troms Fisk vissi
um kaup SIF
Hertar kröfur
í ökunámi
Mun meira
fallí
verklegum
prófum
FALL í verklegum ökuprófum hefur
aukist úr um 4 prósentum í 8-15
prósent síðan í vor. Þá voru teknar
upp nýjar viðmiðunarreglur um öku-
próf. Fall í skriflegum prófum hefur
verið á bilinu 28-39 prósent frá árinu
1995, en reglur voru hertar árið áður.
Það er umtalsverð hækkun frá því
sem áður var.
Holger Torp, deildarstjóri öku-
námsdeildar hjá Umferðarráði, segir
að ökutímum á nemanda hafí fjölgað
að meðaltali um 3-5 tíma síðan í
vor. Hann segir að fallprósentan sé
ekki há miðað við það sem gengur
og gerist í öðrum Evrópulöndum, til
dæmis sé fallprósenta hjá Norðmönn-
um um 17 prósent, og þykir hún þó
lág.
„Með því að efla og auka öku-
kennsluna og auka prófkröfumar
stefnum við auðvitað að því marki
að útskrifa betri ökumenn og draga
úr slysum. Það er þó erfitt að segja
til um árangurinn af þessu eftir svo
skamman tíma og auk þess hefur
rannsóknum á þessu sviði ekki verið
nægilega sinnt."
Holger segist ekki hafa orðið var
við mikla óánægju vegna aukinna
krafna. „Það eru alltaf á kreiki ein-
hveijar sögur um gríðarlegt fall í
skriflegu prófunum. Til dæmis spurði
nemandi mig fyrir skömmu hvort það
væri rétt að 70 prósent fall væri í
þeim. Þetta er fjarri lagi, og sem
dæmi get ég nefnt að fallið það sem
af er þessum mánuði hefur verið um
23 prósent."
BORGARRÁÐI hefur borist erindi
frá íbúum í Gijótaþorpi þar sem
farið er fram á að Gijótagötu verði
breytt í einstefnugötu, jafnframt
því sem fram kom tillaga um að
umferð óviðkomandi aðila yrði
bönnuð inn í Gijótaþorp á kvöldin.
Baldvin Baldvinsson forstöðu-
maður umferðardeildar Reykjavík-
urborgar segir þetta óframkvæm-
anlegt, en þó komi einhverjar tak-
markanir til greina. Það sé hins
vegar mál sem komi til kasta nefnd-
ar sem vinnur að skipulagi miðbæj-
arins, en báðum erindum íbúa var
vísað þangað til umfjöllunar.
Bifreiðastæði og lagfæringar
Borgarráð hefur samþykkt til-
lögur um endurbætur við Vestur-
hlíð vegna gangandi vegfarenda,
og felast þær í uppsetningu hraða-
hindrana, uppsteypu gangstéttar
og öðrum lagfæringum .
Jafnframt hefur verið samþykkt
að lagfæra horn Ránargötu og
Ægisgötu vegna verslunar sem
þar er, að sögn Baldvins Baldvins-
sonar.
Verslunareigendur telja að við-
skiptavinir komist ekki nógu auð-
veldlega að búðinni, og óskuðu eft-
ir að fá stæði til umráða. Ekki var
hægt að verða við því, en afmörkuð
verða tvö stæði undir langtíma-
notkun fyrir miðbæ, að sögn Bald-
vins.
Borgarráð hefur jafnframt sam-
þykkt bann við bifreiðastöðum við
Frostaskjól, en á sínum tíma bár-
ust mótmæli frá íbúum vegna auk-
innar umferðar í tengslum við
byggingu íþróttahúss KR. Umferð-
ardeild lagði til að banna bílastæði
við Frostaskjól, þar sem gatan sé
fullmjó fyrir bílastæði beggja
vegna.
„Þetta hús kemur þarna þannig
að málið er varla leyst,“ segir Bald-
vin.
Ennfremur var samþykkt upp-
setning hraðahindrunar við Unufell
að ósk íbúa þar og samþykkt gerð
miðeyjar á Hofsvallagötu í sam-
ræmi við ósk íbúasamtaka Vestur-
bæjar. Baldvin segir þessar fram-
kvæmdir koma til nánari útfærslu
á næsta ári, í samræmi við fjárveit-
ingar.
GUNNAR Örn Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri SÍF, segir að stjórn-
endur norska fyrirtækisins Troms
Fisk hafi sent SIF símbréf 19. ágúst
sl. þar sem þeir óska eftir upplýsing-
um um kaup SÍF á saltfiskverk-
smiðju La Bacladera á Spáni, sem
þá voru nýlega um garð gengin.
Hann segir að norska fyrirtækinu
hafi þess vegna verið fullkunnugt
um kaupsamninginn.
Gunnar sagði að í símbréfl Troms
Fisk til SÍF væri óskað eftir upplýs-
ingum um yfirtöku SÍF á La Baclad-
era og þau rök færð fyrir fyrirspurn-
inni að Troms Fisk ætti fisk í
geymslum hjá fyrirtækinu.
„Þeim var því fullkunnugt um
þessa hluti alla. Fulltrúar SÍF voru
á Spáni 26.- 28. ágúst að ganga frá
lausum endum í sambandi við yfir-
tökuna á fyrirtækinu. Norðmennirn-
ir voru þarna á sama tíma og báðu
okkur að hitta sig. Þeir vissu því
allt um kaupsamninginn," sagði
Gunnar Örn.
Svo virðist sem Norðmennirnir
hafi verið að semja við eigendur La
Bacladera um kaup á fyrirtækinu
þessa sömu daga sem SÍF var í við-
ræðum við Spánveijana. Gunnar Örn
sagði engan vafa leika á að lög hefðu
verið brotin á SÍF í þessu máli. Það
væri ekki hægt að selja sömu eign-
Sláturfélagfið
Barði á Þingeyri
1600 lömb
fluttá
Hvamms-
tanga
SLÁTURFÉLAGIÐ Barði á
Þingeyri mun flytja 1.600
lömb til slátrunar á Hvamms-
tanga vegna útflutnings til
Noregs. Eykur það mjög tekj-
ur bænda á félagssvæðinu.
Slátrun hefst á Þingeyri
næstkomandi föstudag. Að
sögn Birgis Jóhannssonar
framkvæmdastjóra hefur fé-
lagið beðið eftir niðurstöðu
um það frá yfirdýralækni
hvort svæðið teldist riðulaust
og ætti þar með möguleika á
útflutningi til Noregs. Þegar
það lá fyrir hafi náðst samn-
ingar við Kaupfélag Vestur-
Húnvetninga á Hvamms-
tanga um slátrun lambanna
því hún þarf að fara fram í
húsi sem leyfi hefur til slátr-
unar á Evrópumarkað. Ekki
liggur enn fyrir hvenær vest-
firsku lömbunum verður
slátrað en Birgir leggur
áherslu á að það gerist sem
fyrst.
Að sögn Birgis hefur kom-
ið til tals að taka upp sam-
starf við Kaupfélag Stein-
grímsfjarðar, sem einnig er á
riðulausu svæði, til að minnka
flutningana.
Skilar hærra verði
Birgir Jóhannsson segir að
útflutningur lambakjöts til
Noregs skili bændum -mun
meiri tekjum en útflutningur
á aðra markaði. Bændum sé
almennt skylt að flytja út 19%
framleiðslunnar og því hafi
þessi leið verið valin til að
tryggja sem best hagsmuni
þeirra.
ina tvisvar. Norðmennirnir gætu
heldur ekki borið fyrir sig að þeim
hefði verið ókunnugt um samning
La Bacladera við SIF.
Gunnar sagði að SÍF myndi fara
með þetta mál fyrir dómstóla. Hann
útilokaði þó ekki að viðræður yrðu
teknar upp við aðra málsaðila á síð-
ari stigum.
Morgunblaðinu í dag fylgir fjögurra
síðna auglýsingablað frá BYKO.
i
I
i
I
I
1
í
I
I