Morgunblaðið - 11.09.1996, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1996 7
FRETTIR
Með full-
fermi til
Póllands
Eskifirði. Morgunblaðið.
LOÐNUSKIPIÐ Guðrún Þorkels-
dóttir fer í dag frá Eskifirði
áleiðis til Póllands. Þar verður
skipið lengt og endurbætt. Um
borð var ýmis varningur sem
nota á við endurbætur skipsins
og einnig í Hólmaborg sem nú
er verið að stækka í sama slipp.
Meðal þess sem fer út með Guð-
rúnu er rör til að leggja nótina
hjá Hólmaborginni og var mynd-
in tekin þegar það var híft um
borð. Einnig 25 bretti af máln-
ingu og parket svo nokkuð sé
nefnt.
Morgunblaðið/Benedikt Jóhannsson
Vísitasía biskups í Barða-
strandarprófastsdæmi
yíSITASÍA biskups íslands, herra
Ólafs Skúlasonar, í Barðastrandar-
prófastsdæmi hefst í dag.
Vísitasían hefst með fundi bisk-
ups og prófasts á Bíldudal. A
morgun vísiterar biskup Bijáns-
lækjarkirkju og Hagakirkju. Á
föstudag vísiterar hann Breiðavík-
urkirkju, Sauðlauksdalskirkju og
Saurbæjarkirkju en á laugardag
Selárdalskirkju og Bíldudalskirkju.
Á sunnudag 15. september verða
Stóra-Laugardalskirkja og Pat-
reksfjarðarkirkja heimsóttar og á
mánudag Skálmarnesmúlakirkja,
Gufudalskirkja, Staðarkirkja og
Reykhólakirkja.
Þann 17. september lýkur svo
vísitasíu biskups í Barðastrandar-
prófastsdæmi með heimsókn í
Garpsdalskirkju. Gert er ráð fyrir
guðsþjónustum í öllum ofantöldum
kirkjum þar sem staðarprestur
þjónar fyrir altari og skipuleggur
helgihaldið. Biskup mun prédika.
Ekki er gert ráð fyrir að Flateyj-
arsókn verði vísiteruð þar sem
biskup endurvígði kirkjuna þann
28. júlí sl. Ekki verður helgihald í
Sauðlauksdals- og Selárdalskirkj-
um vegna viðgerða á kirkjunum.
Með biskupi í för verður eigin-
kona hans, frú Ebba Sigurðardótt-
ir, og prófastur Barðastrandar-
prófastsdæmis, sr. Flosi Magnús-
son á Bíldudal.
♦ ♦ ♦
Lykilstaða
VES milli
NATO
o g ESB
FRAMKVÆMDASTJ ÓRI Vestur-
Evrópusambandsins (VES), var
væntanlegur í gærkveldi til íslands
í opinbera þriggja daga heimsókn í
boði Halldórs Ásgrímssonar utanrík-
isráðherra.
í tilkynningu frá
utanríkisráðuneyt-
inu segir að meðan
á dvöl Cutileiros
standi ræði hann
ásamt því að eiga
fund með utanríkis-
ráðherra við Ólaf
Ragnar Grímsson
José Cutile.ro forseta> Davíð
Oddsson forsætisráðherra, utanrík-
ismálanefnd Alþingis og þingmenn,
sem sitja þingmannafundi Vestur-
Evrópusambandsins.
Cutileiro, flytur erindi á sameigin-
legum fundi Samtaka um vestræna
samvinnu (SVS) og Varðbergs í
Skála á II. hæð Hótel Sögu í dag
kl. 17. Með í för er Richard Tibbeis,
yfirmaður þeirrar deildar VES sem
fer með stefnumótun í öryggismálum
samtakanna.
José Cutileiro ætlar að fjalla um
stöðu VES með tilliti til Evrópusam-
bandsins (ESB) og Atlantshafsbanda-
lagsins. Menn deila nú um það hvort
VES eigi einvörðungu að vera vamar-
samtök ESB eða Evrópu allrar.
Cutileiro fæddist árið 1934 í Evora
í Portúgal, lauk háskólaprófi í mann-
fræði árið 1968. Hann stundaði
fræðimennsku i St. Athony’s College
í Oxford 1968-71 og var lektor við
London School of Economics
1971-74. Cutileiro hóf störf í port-
úgölsku utanríkisþjónustunni 1974
og var m.a. sendiherra í Maputo
1980-83, formaður sendinefndar
Portúgals á afvopnunarráðstefnu
Evrópu (CDE) í Stokkhólmi 1984-86
og yfirmaður stjórnmáladeildar utan-
ríkisráðuneytisins í Lissabon
1986-88. Cutileiro varð aðalfram-
kvæmdastjóri VES í nóvember 1994.
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG
ÍSI I VSK V SJ VVAIU IM (.SSVMMiI\
1996
W21 SEPTEMBER1996
Luugnrdalshull, Reykjavík, Iceland.
Vikulega birtir sérblaðið
Úr verínu yfirlit yfir afla
íslenskra fiskiskipa, sölu á
innlendum fiskmörkuðum,
kvóta og dreifingu skipa á
miðunum. Útflutningi og
helstu mörkuðum erlendis
eru gerð góð skil auk allra
helstu frétta af sjávar-
útveginum, s.s. af fiskverkun,
markaðsmálum og víðtækum
þjónustuliðum útvegsins.
íslenska sjávarútvegssýnmgin
í Laugardalshöll
18.-21. september
í tilefni af íslensku sjávarútvegssýningunni verður sérblaðið
Úr verinu sérprentað þann 18. september nk. og aukaupplagi
dreift á sýningunni sjálfri.
í þessari sérútgáfu verður sýningin kynnt í máli og myndum og greint
frá helstu nýjungum. Þá verða ýmis fyrirtæki kynnt og viðtöl birt við
fjölmarga aðila sem að sýningunni standa. Jafnframt mun Morgunblaðið
greina daglega frá helstu viðburðum á meðan á sýningunni stendur.
Petta er í 5. sinn sem íslenska sjávarútvegssýningin er haldin og 1 ár
verður hún stærri en nokkru sinni. Sýnendur verða um 700 talsins og
búist er við allt að 14.000 gestum. Af þessu tilefni býðst auglýsendum
sérstakt auglýsingaverð í Úr verinu þennan dag, auk þess sem sýnendum
gefst kostur á að tilgreina staðsetningu sína í sérstökum „sýningar-
gluggum." Pá má geta þess að 62,4% þjóðarinnar lesa Morgunblaðið
daglega og á miðvikudögum lesá 81,2% allra stjómenda, atvinnurekenda
og sérfræðinga blaðið.
_j
Birting 101
JBpVöunXiIaíiiti
+ 5.000-6.000 eintök á sýningu.
í boði eru sérauglýsingar og „sýningargluggar“
Allar nánari upplýsingar veita Anna Elínborg Gunnarsdóttir
og Arnar Haukur Ottesen, sölufulltrúar í auglýsingadeild,
í síma 569 1171 eða með símbréfi 569 1110.
Skilafrestur auglýsingapantana er til kl. 16.00
fimmtudaginn 12. september.