Morgunblaðið - 11.09.1996, Side 9

Morgunblaðið - 11.09.1996, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1996 9 FRÉTTIR Annatími fer í hönd hjá sauðfjárbændum í Húnaþingi Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson ÓSKAR Magnússon, forstjóri Hagkaups, ásamt fylgdarliði. Hvammstanga. Morgunblaðið. MIÐFIRÐINGAR og Hrútfirðing- ar smðluðu heiðalönd sín um helgina í ágætu veðri, sunnanátt og hlýju. Eru þetta tveggja daga göngur. Sífellt færra fé er rekið á afrétt, bæði hefur fækkað veru- lega í bústofni bænda og einnig hafa nokkrir bændur Iagt af hefð- bundinn búskap. Enn fremur nýta sumir heimalönd jarða sem komnar eru úr ábúð. Umsvif í göngum og réttum eru því leikur einn í svo góðri tíð sem nú er. í tilefni viðskiptasamnings milli Hagkaups og vestur-hún- Fj allskil tókust vel vetnskra sauðfjárbænda mætti forstjóri Hagkaups, Óskar Magn- ússon, með fylgdarliði við heiðar- girðingu á Aðalbólsheiði og tók þátt í að reka safnið til safngirð- ingar í Austurárdal. Mæltist þessi heimsókn vel fyrir og fannst gest- unum afar gaman að kynnast störfum bændanna á svo lifandi hátt. Gestirnir tóku svo þátt í réttarstörfum í Hrútafirði og Miðfirði. Aðspurður kvaðst Óskar Magn- ússon vera ánægður með við- skiptasamninginn og framkvæmd hans væri hnökralaus. Þessi ný- breytni í sölu dilakjöts virtist falla neytendum í geð því allt kjöt seldist ferskt. Nú verður slátrunin aukin úr 250 i 400 dilka á viku og standa vonir til að ferskt lambakjöt verði á boðstól- um allt fram í desember. Lögreglan varar við sveppaáti SVEPPIR voru teknir af manni, sem afskipti þurfti að hafa af í veitinga- húsi við Laugaveg á laugardag. Að sögn lögreglu hefur talsvert verið um það að undanförnu að foreldrar hafi hringt í lögreglu til að lýsa áhyggjum sínum vegna sveppatínslu unglinga á umferðareyjum og öðr- um stöðum þar sem sveppir vaxa utan dyra. Foreldrar hafa haft áhyggjur af því að börnin noti sveppina til þess að reyna að komast í vímu. Ómar Smári Ármannsson, aðstoðaryfir- lögregluþjónn, segir að þrátt fyrir að sveppir hafi oft verið sendir í rannsókn hér á landi hafi einungis einu sinni fundist virkt eiturefni í þeim. Hins vegar séu sumar tegund- ir sveppa hættulegar til neyslu og enginn ætti að tína eða neyta villtra sveppa nema hafa til þess næga þekkingu. „Fíkniefni það sem hægt er að rækta í ákveðinni tegund sveppa fyrirfinnst yfirleitt ekki í villtum sveppum hér á landi,“ segir Ómar Smári. CLARINS ---P A R I S- CLARINS dagar verða miðvikudag, fimmtudag, og fdstudag í Sigurboganum. Kynnt verður meðal annars nýja dagkremið LIFT JOUR ANTI-RIDES. Morgunblaðið/Arinbjörn Sigurgeirsson FRÁ réttunum í Austurárdal. •SS í 37 ár Hressingarleikfimi kvenna hefst mánudaginn 16. september nk. Kennslustaðir: Leikfimisalur Laugarnesskóla og íþróttahús Seltjarnarness. Fjölbreyttar æf ingar - músík - dansspuni - þrekæf ingar - slökun. Verið með frá byrjun. Innritun og upplýsingar í síma 553-3290. Ástbjörg S. Gunnarsdóttir, íþróttakennari. Orugg ávöxtun sparifjár Spariskírteini ríkissjóðs með mismunandi gjalddaga • Við bjóðum eldri flokka spariskírteina ríkissjóðs með gjalddaga eftir 'h ár, Vh ár, 2'h ár, 3'h ár og 4'h ár. • Þú getur raðað saman mismunandi flokkum spariskírteina þannig að þú sért alltaf með laust fé þegar þú þarft á því að halda. • Spariskírteini eru tæki til að skapa þann hreyfanleika sem þú þarfnast. Helstu flokkar spariskírteina: 1992 1D5 Gjalddagi 1/2 1997 1993 1D5 Gjalddagi 10/4 1998 1994 1D5 Gjalddagi 10/2 1999 1995 1D5 Gjalddagi 1/2 2000 1990 2D10 Gjalddagi 1/2 2001 Fjölmargir aörir flokkar spariskírteina eru einnig til sölu. Hafa skal í huga aö spariskírteini ríkissjóös eru markaðsverðbréf sem eru skráö á Verðbréfaþingi íslands, og eru því auðseljanleg á lánstímanum. Kynntu þér möguleika spariskírteina ríkissjóðs. Hafðu samband við ráðgjafa Þjónustumiðstöðvar ríkisverðbréfa og fáðu nánari upplýsingar. Sími 562 6040. ÞJONUSTUMIÐSTÖÐ RÍKISVERÐBRÉFA Hverfisgötu 6,2. hæð (neðsta húsið við Hverfisgötu) sími 562 6040, fax 562 6068. Hvaö sem þú gerir - sparaðu með áskrift að spariskírteinum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.