Morgunblaðið - 11.09.1996, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 11.09.1996, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Ráðning fréttamanna hjá Sjónvarpi á síðasta ári Útvarpsráð átti að rökstyðja tillögur UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að annmarkar hafi verið á skipun í stöðu þriggja fréttamanna hjá Sjónvarpinu 1. september 1995. Þeir annmarkar geti hins vegar ekki valdið ógildingu umræddra stöðuveitinga. Sigrún Stefánsdótt- ir, lektor í Háskóla íslands, var einn umsækjenda en útvarpsráð gerði það að skilyrði að hún segði stöðu sinni hjá Háskólanum lausri til þess að umsókn hennar um stöðu fréttamanns yrði tekin til greina. Sigrún leitaði til umboðs- manns Alþingis út af þessu máli. Tekið var fram þegar stöðurnar voru auglýstar 19. júlí 1995 að háskólapróf eða reynsla í frétta- eða blaðamennsku væri nauðsyn- leg. Samkvæmt því sótti Sigrún um starfið. 26 manns sóttu um stöðurnar þijár og mælti frétta- stjóri Sjónvarpsins með ráðningu þriggja þeirra, þar á meðal Sigrún- ar. Heimir Steinsson útvarpsstjóri hafði síðar samband við hana og tjáði henni vilja útvarpsráðs að hún yrði að gefa skriflega stað- festingu þess efnis að hún segði upp stöðu sinni sem lektor í hag- nýtri fjölmiðlun við Háskóla Is- lands til þess að koma til greina í stöðuna. Afstaða lögmanns Ríkisútvarpsins Sveinbjörn Björnsson háskóla- rektor taldi lagalega ekkert því til fyrirstöðu að Sigrún gegndi fullu starfi fréttamanns og væri jafn- framt í hálfu starfi hjá Háskóla íslands. Studdi hann ósk hennar um að gegna þessum tveimur stöð- um. Lögmaður Ríkisútvarpsins mælti gegn ráðningu hennar þar sem lagaákvæði sem hún vísaði til, þ.e. 26. grein laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, ijalli eingöngu berum orðum um þá aðstöðu að einn starfsmaður gegni tveimur heilum stöðum. A fundi útvarpsráðs 13. septem- ber 1995 var bókuð sú afstaða formanns ráðsins að hann sé sömu skoðunar og lögmaður Ríkisút- varpsins að ekki væri lögmætt að mæla með Sigrúnu til fastra starfa. Sigrún óskaði ásamt þremur öðrum umsækjendum eftir að út- varpsráð rökstyddi umsagnir sínar um umsækjendur frá 23. ágúst og 13. september 1995 með vísun til stjórnsýslulaga. í svarbréfi for- manns útvarpsráðs til Sigrúnar er ósk hennar um rökstuðning hafn- að. Hún leitaði þá rökstuðnings hjá útvarpstjóra. I svarbréfi hans frá 15. nóvember 1995 sagði m.a.: „í stuttu máli eru aðalatriðin þessi: Umsóknin var ekki talin samræm- ast þeirri meginreglu laga um rétt- indi og skyldur starfsmanna ríkis- ins að starf skuli vera aðalstarf og ríkisstarfsmanni beri að helga krafta sína því aðalstarfi. Þær sérstöku heimildir til að gegna aukastörfum sem getur að líta í 26. gr. starfsmannalaga og í öðr- um lögum um Háskóla Islands voru ekki taldar eiga við.“ Málsmeðferð áfátt Niðurstaða umboðsmanns Al- þingis var sú að útvarpsráð hefði í samræmi við almennar reglur stjórnsýsluréttar átt að rökstyðja tillögur sínar til útvarpsstjóra um skipun í stöður fréttamanna sem um ræðir í þesu máli. „Þá tel ég málsmeðferð Ríkisút- varpsins áfátt að því leyti að A [Sigrúnu] var ekki gerð skrifleg og skýr grein fyrir þeirri afstöðu útvarpsins að ekki yrðu teknar til greina umsóknir umsækjenda sem því skilyrði væru bundnar að um- sækjandi fengi að gegna samtímis annarri stöðu hjá ríkinu enda bar þá jafnframt að ganga eftir skýr- um svörum A að þessu leyti. Að mínum dómi geta þessir annmark- ar hins vegar ekki valdið ógildingu umræddra stöðuveitinga.“ Fimm menn sakfelldir í Héraðsdómi Vestfjarða Dæmdir fyrir auðg- MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1996 11 ■ RÝMINGARSALA' BUTASALA IFI ‘%1 Bútar og gluggatjaldaefni í metratali - allt að 50% afsláttur "í ÍjLUGGATJOED Skipholti 17a v 83 a unar- o g fíkni- efnalagabrot ísafirði. Morgunblaðið FIMM menn voru á mánudag sak- felldir í Héraðsdómi Vestfjarða fyrir fjölmörg auðgunar- og fíkni- efnalagabrot, framin í Reykjavík, á ísafirði og í Bolyngarvík á síð- ustu tveimur árum. Einn hinna ákærðu, 27 ára gamall ísfirðingur, var dæmdur í sex mánaða óskilorðsbundið fang- elsi fyrir þátttöku í tveimur inn- brotum, annars vegar í verslunina Vöruval í Hnífsdal í desember á síðasta ári og hins vegar í Shell- skálann í Bolungarvík í janúar á þessu ári. í báðum innbrotunum höfðu þjófar á brott með sér pen- ingaskápa með talsverðu reiðufé, auk annarra verðmæta. Þá voru í seinna innbrotinu unnin talsverð spjöll á innanstokksmunum. Um- ræddur maður á að baki langan afbrotaferil og er þekktur í fíkni- efnaheiminum. Þá var félagi mannsins og jafn- aldri frá Bolungarvík dæmdur fyr- ir aðild að sömu innbrotum, auk nokkurra skjalafals- og fíkniefna- brota og gert að sæta fangelsi í fimm mánuði þar af þrjá mánuði óskilorðsbundið. Þriðji vitorðsmað- urinn í hinu svokallaða „Shell- skálamáli“, 26 ára Bolvíkingur, hlaut þriggja mánaða skilorðs- bundinn fangelsisdóm fyrir aðild sína að því máli. Fjórði sakborn- ingurinn, sem dæmdur var í hér- aðsdómi á mánudag, 46 ára Bol- víkingur, fékk fjögurra mánaða fangelsisdóm, þar af þrjá mánuði skilorðsbundið, fyrir hlutdeild í innbrotinu í Vöruval, en maðurinn kom á innbrotsvettvang að beiðni þjófanna tveggja og aðstoðaði þá við að flytja umræddan peninga- skáp til ísafjarðar þar sem lögregl- an kom að þeim er þeir voru að bijóta skápinn upp. Sakfelldur fyrir ranga skýrslugjöf Sami maður var einnig sakfelld- ur fyrir kaup á tæplega 20 grömm- um af amfetamíni ogtæplega 100 grömmum af hassi en lögreglan handtók hann í bifreið í ísafjarðar- djúpi á marsmánuði sl. Loks var fimmti sakborningurinn, 28 ára gamall maður, sem búsettur var í Hnífsdal, sakfelldur fyrir ranga skýrslugjöf hjá lögreglu, en mað- urinn mun að beiðni innbrotsþjóf- anna í Shellskálann hafa skýrt lögreglu visvítandi frá því að þjóf- arnir hefðu haft næturstað hjá sér umrædda nótt og því ekki getað verið viðriðnir innbrotið. Mannin- um var gert að greiða 50.000 kr. sekt fyrir ósannsöglina. Dóminn kvað upp Jónas Jó- hannsson héraðsdómari. werzalitr, giugga SÓLBEKKIR Þola fyrirliggjandi vatn ÞP SENDUM I PÓSTKRÖFU Þ. ÞORGRÍMSSON &CO &CO Ármúla 29 • Reykjavík • Sími 553 8640

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.