Morgunblaðið - 11.09.1996, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1996 13
________AKUREYRI_____
Ferðamannastraumur
til Grímseyjar eykst
Grímey. Morgunblaðið.
TÖLUVERT fleiri ferðamenn lögðu
leið sína til Grímseyjar á nýliðnu
sumri en í fyrra. Margir ferðalangar
nýttu sér þann möguleika að koma
með flugi til eyjarinnar að morgni,
notuðu daginn til að skoða sig um,
en fóru svo með feijunni Sæfara
til lands síðdegis.
í sumar eða frá því fyrri part
júnímánaðar og fram til 18. ágúst
síðastliðinn hét Flugfélag Norður-
lands uppi kvöldflugi til Grímseyjar.
Ekki liggja enn fyrir nákvæmar
tölur um fjölda þeirra ferðamanna
sem komu með flugi, en Friðrik
Adolfsson hjá Flugfélagi Norður-
lands segir að meira hafi verið að
gera í Grímseyjarfluginu í sumar
en áður. „Það viðraði vel í sumar
og var sjaldan ófært. Við höfum
verið að flytja svipaðan fjölda ferða-
menna til eyjarinnar ár frá ári, en
aukningin í sumar liggur í fleiri
komum skemmtiferðaskipa. Tilfinn-
ingin fyrir sumrinu er því sú að það
hafi gengið vel í Grímsey í sumar
og framhaldið lofar góðu,“ segir
Friðrik.
Óskar Óskarsson, útgerðarstjóri
Sæfara á Dalvík, segir menn vera
ánægða með útkomuna í sumar.
„Þetta var heldur betra en við
bjuggumst við,“ sagði hann.
í sumar flutti Sæfari 553 farþega
til Grímseyjar en frá eynni fóru 653
farþegar. Til samanburðar má geta
þess að í fyrra komu með Sæfara
til Grímseyjar 576 farþegar en 506
fóru.
Morgunblaðið/Guðmundur Þór
PÁLL og Guðmundur voru að vonum ánægðir með verkið og sögðu að ekki
spillti fyrir gott veður og gott fólk.
Minningarreit-
ur í kirkjugarði
Ólafsfjarðar
Ólafsfjörður. Morgunblaðið.
ÞESSA dagana er verið að gera
sérstakan minningarreit í Kirkju-
garði Ólafsfjarðar til minningar um
ástvini sem hvíla annars staðar en
í garðinum. Það eru Samtök um
sorg og sorgarviðbrögð og sóknar-
nefnd Ólafsfjarðarkirkju sem í
samvinnu standa að gerð þessa
minningarreits.
6 tonna steinn
í minningarreitnum er sérvalinn
6 tonna steinn sem klofinn er í
sundur. Myndar hann tvær
hálfopnar hendur sem halda á fugli
og fiski. I kringum steininn er
göngustígur og hlaðinn garður.
Verkið er unnið af Páli Guðmunds-
syni myndhöggvara frá Húsafelli
og Guðmundi Rafni Sigurðssyni
landslagsarkitekt hjá Skipulags-
nefnd kirkjugarða.
Að sögn þeirra félaga kom hug-
myndin að verkinu fram þegar Páll
dvaldi í tjaldi í Ólafsfirði fyrir um
ári. Sögðu þeir að samvinnan hefði
gengið mjög vel, en þetta er í fyrsta
skipti sem þeir vinna saman og var
það lærdómsríkt fyrir báða aðila.
Þá kom einnig fram að báðir lærðu
þeir hleðslu hjá sama hleðslumann-
inum, Sveini Einarssyni.
Dalvík
Slökkviliðs-
menn fá
hærri laun
BÆJARRÁÐ Dalvíkurbæjar hef-
ur samþykkt að greiða slökkviliðs-
mönnum í bænum eftir taxta
Landssambands slökkviliðsmanna
en breyting á launataxta þeirra
tók gildi 1. september síðastliðinn.
Fyrir fund bæjarráðs á dög-
unum lágu upplýsingar um laun
slökkviliðsmanna í sjö sveitarfé-
lögum fyrir 5 stunda útkall og
kom í ljós að þau voru verulega
hærri en á Dalvík. Þau voru hæst
á Húsavík, 987,30 á klukkustund,
en á Dalvík voru greiddar 549,55
á klukkustund. Nú hefur bæjarráð
Dalvíkur samþykkt að hækka laun
þeirra sem sinna slökkivliðsstörf-
um og verður greidd 871 króna á
klukkustund.
Tvö skip Samheija í Smugunni en veiðin dræm
Hjalteyrin á leið til Póllands
HJALTEYRIN EA, frystitogari Sam-
herja hf., hélt áleiðis til Póllands í
gærkvöld en þar fer togarinn í sand-
blástur, málningu og minni háttar
stálviðgerðir. Verkið verður unnið í
skipasmíðastöðinni í Szczecin og tek-
ur um 30 daga, að sögn Kristjáns
Vilhelmssonar hjá Samheija.
Hjalteyrin hefur verið á rækjuveið-
um og fryst um borð. Togarinn er
kominn á B-skráningu og hefur því
ekki veiðileyfi í íslenskri landhelgi
en hefur farið til veiða á móti Þor-
steini EA. Aðspurður sagði Kristján
það ekki á döfinni á þessari stundu
að selja Hjalteyrina.
Tvö skip Samheija, Margrét EA
og Þorsteinn EA eru í Smugunni og
fiska lítið, að sögn Krisjáns. Hann
segir að skipin komi fljótlega heim
fari veiðin ekki að glæðast. Baldvin
Þorsteinsson EA og Akureyrin EA
eru á karfaveiðum og Víðir EA er
við þorskveiðar á Vestfjarðamiðum.
Nótaskipið Oddeyrin EA er við
bryggju á Akureyri. Skipið er hætt
loðnuveiðum en heldur að öllum lík-
indum til síldveiða um næstu mán-
aðamót.
Risatogarinn Esther sem Fram-
heiji, dótturfyrirtæki Samheija í
Færeyjum, keypti fyrir nokkru hefur
að undanförnu legið við bryggju á
Akureyri. Kristján segir togarann til
sölu og að nokkrar fyrirspurnir hafi
borist en ekkert sé þó frágengið í
þeim efnum. Esther er um 2.500
tonna frystitogari, smíðaður árið
1965.
Uppselt 26. sept.
30. sept. - 18 sæti
3. okt. - 21 sæti
frá kr.
19.930
Flug og hótel
kr. 24.930
London - vinsælasta borg Evrópu
London hefur aldrei notið jafn mikilla vinsælda og
í vetur, og nú hafa á annað þúsund farþega bókað
ferðina sína til þessarar skemmtilegustu heimsborgar
Evrópu og fyrstu ferðimar uppseldar.
Hér finnur þú glæsilega gististaði, spennandi kynnis-
ferðir, frábærar verslanir og íslenskir fararstjórar
Heimsferða tryggja þér ánægjulega dvöl í heims-
borginni sem á þriðja þúsund íslendinga heimsóttu
á vegum Heimsferða síðasta vetur.
Bókaðu meðan enn er laust.
Bailey's hólelið - stórglæsilegt.
Verð kr.
19.930
Flugsæti til London með flugvallar-
sköttum í miðri viku.
Verð kr.
Helgarfargjald til London,
fimmtudagur til mánudags.
22.530
Verð kr.
24.930
M.v. 2 í herbergi, Butlins Grand,
3 nætur, 30. sept., 14. og 21. okt.
íslenskir fararstjórar
Heimsferða í London.
VISA
Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 562 4600