Morgunblaðið - 11.09.1996, Síða 15

Morgunblaðið - 11.09.1996, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1996 15 VIÐSKIPTI Franskur banki býður út skuldabréf hérlendis VERÐBRÉFAFYRIRTÆKINU Handsali hf. hefur verið falið að annast útboð hérlendis á skulda- bréfum að fjárhæð 250 milljónir fyrir franska bankann Société Gén- érale. Bréfin eru í íslenskum krónum og bera 20% ávöxtun á fjórum árum. Þau eru vísitölutryggð miðað við sérstaka vísitölu sem saman- stendur af bandarísku S&P500 hlutabréfavísitölunni, japönsku Nikkei 225 vísitölunni, Eurotrack 200 og Templeton Emerging Mar- kets-hlutabréfasjóðnum. I Temple- ton-sjóðnum eru hlutabréf frá SA- Asíu, Afríku, Suður Ameríku og Austur-Evrópu. Höfuðstóll skulda- bréfanna breytist einungis ef vísi- talan hækkar, en stendur í stað ef vísitalan lækkar. Þetta er í fyrsta sinn sem slík bréf eru boðin hérlend- is eftir því sem næst verður komist. Pálmi Sigmarsson, fram- kvæmdastjóri hjá Handsali hf., sagði í samtali við Morgunblaðið borist hefði kynningarbréf frá bankanum fyrir skömmu og fulltrú- ar hans komið hingað til lands í kjölfarið. „Þessi bréf hafa verið vin- sæl meðal lífeyrissjóða og trygg- ingafélaga á Norðurlöndum á und- anförnum árum. Við vildum gefa íslenskum fjárfestum kost á að fjár- festa í þeim í íslenskum krónum. Þannig geta þeir dregið úr gengis- áhættu en jafnframt tekið þátt í hlutabréfaviðskiptum heimsins á mjög öruggan hátt. Viðtökur §ár- festa hafa verið mjög góðar og þeg- ar er komin af stað sala á ríflega helmingi bréfanna." Að sögn Pálma gerði franski bankinn gjaldeyrisskiptasamning við íslandsbanka vegna útboðsins. Société Généale er 19. stærsti banki heims með 45 þúsund starfs- menn og skrifstofur í 70 löndum. Bankinn hefur sömu áhættuflokkun og íslenska ríkið á alþjóðlegum markaði. Vélsmiðja Húnvetninga Greiðslustöðvun framlengd VELSMIÐJA Húnvetninga á Biöndu- ósi hefur fengið framlengda greiðslu- stöðvun fyrirtækisins til þriggja mánaða, en fyrirtækið fékk greiðslu- stöðvun til þriggja vikna þann 1. ágúst sl. Að sögn Tryggva Gíslason- ar, framkvæmdastjóra Vélsmiðjunn- ar, verður þessi tími notaður til að endurskipuleggja rekstur fyrirtækis- ins. Að sögn Tryggva var skuldastaða fyrirtækisins orðin það slæm að það gat ekki lengur staðið við skuldbind- ingar sínar. Hann segir að margir samverkandi þættir hafí valdið þess- ari erfiðu greiðslustöðu fyrirtækisins. Þar vegi þó þyngst það slæma ár- ferði sem verið hafi í járniðnaði hér á landi undanfarin ár. Tryggvi segir þó að útlitið fram- undan sé talsvert bjartara. „Við telj- um að forsendur séu fyrir áframhald- andi rekstri fyrirtækisins, enda stæð- um við ekki í þessum aðgerðum ef svo væri ekki.“ Um 75 hluthafar standa að baki Vélsmiðju Húnvetninga. Þeirra stærstir eru Kaupfélag Húnvetninga og Olíufélagið, en aðrir eigendur eru starfsmenn fyrirtækisins, einstakl- ingar og bændur í héraðinu. Starfs- mannaijöldi VH er um 20 í dag en fyrirtækið rekur bifreiða-, rafmagns- og vélaverkstæði ásamt verslun. Stóraukin velta hjá Borgey á fyrri árshelmingi en saltfiskvinnsla veldur vonbrígðum Hagnaður nam 33 millj. króna HAGNAÐUR Borgeyjar hf. á fyrri árshelmingi nam tæpum 33 milljón- um króna og er þetta rúmlega tvö- falt meiri hagnaður en varð af rekstri fyrirtækisins á sama tíma í fyrra. Rekstartekjur fyrirtækisins hafa nærri tvöfaldast á sama tíma- bili og námu þær 1.130 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Nánari útlistun á milliuppgjöri félagsins má sjá í meðfylgjandi töflu. Þrátt fyrir stóraukinn hagnað frá sama tímabili í fyrra veldur afkoma fyrirtækisins á fyrri árshelmingi nokkrum vonbrigðum, að sögn Hall- dórs Árnasonar, framkvæmdastjóra Borgeyjar. Segir hann að slæm af- koma í saltfiski hafi rýrt afkomu fyrirtækisins nokkuð. Þar hafi fyrst og fremst valdið lakari nýting en gert hafi verið ráð fyrir. Þá hafi humarvertíðin einnig verið slök. Borgey er í dag með umsvifa- mikla vinnslu saltfisks, síldar og loðnuafurða. Boifisksfrystingu var hins vegar að mestu hætt hjá félag- inu á síðasta ári en þess í stað hefur verið lögð aukin áhersla á vinnslu afurða úr kola. Kaup á 50% hlut í Húnaröst tryggð Borgey hefur nú tryggt sér 50% eignaraðild að Húnaröst ehf., sem gerir út nótaskipið Húnaröst SF 550. Saman eiga þessi tvö fyrirtæki 80% hlut í Oslandi ehf., sem rekur fiskimjölsverksmiðju í Hornafirði. Rekstur þessara fyrirtækja kemur ekki fram í rekstrarreikningi Borg- eyjar að þessu sinni en stefnt er að gerð samstæðureiknings fyrirtækj- anna um næstu áramót. Borgey hefur einnig fjárfest mikið á þessu ári, að sögn Halldórs. Þann- ig hafi fyrirtækið lokið við uppbygg- ingu nýrrar kolavinnslu sem sé að komast í fulla notkun. Þá segir hann að unnið sé að uppbyggingu nýrrar vinnslulínu í loðnu og síld sem muni gjörbreyta aðstæðum og afköstum við löndun, flokkun og frystingu. Borgey hf,, mJ Úr milliuppgjöri 1996 Jan.iúní Jan..iúní Rekstrarreikningur Miiijónir króna 1996 1995 Breyting Rekstrartekjur 1.130,8 630,5 +79,3% Rekstrargjöld 1.065.2 574.6 +85.4% Rekstrarhagn. f. fjármagnsl. og skatta 65,6 25,9 +153,3% Fjármagnsliðir -31,1 -37,2 -16,4% Skattar -1,6 -2.8 -42.9% Hagnaður tímabilsins 32,9 15,9 +106,9% Efnahagsreikningur Miiijónir króna 30/6 ‘96 31/12'95 Breyting l Eignir: \ Veltuf jármunir 606,6 372,8 +62,7% Fastaf jármunir 768,3 688,3 +11,6% Eignir samtals 1.374,9 1.061,1 +29,6% I Skuldir og eipið fé; I Skammtímaskuldir 480,7 222,1 +116,4% Langtímaskuldir 313,0 340,2 -8,0% Eigið fá 581,2 498,8 +16.5% Skuldir og eigiö fé samtals 1.374,9 1.061,1 +29,6% Kennitölur 1996 1995 Eiginfjárhlutfall 42,3% 47,0% Veltufjárhlutfall 1,26 1,68 Veltufé frá rekstri Miiijónir króna 76,7 54,3 +41,2% Metárá Verðbréfa- þingi HEILDARVELTA viðskipta á Verð- bréfaþingi íslands nam 74 milljörð- um króna fyrstu átta mánuði þessa árs og er það um 3 milljörðum króna meira en velta alls síðastliðins árs. Því er talið líklegt að árið 1996 verði metár í viðskiptum á Verðbréfaþingi íslands, en mestu viðskipti til þessa urðu árið 1994, er heildarveltan nam 86,5 milljörðum króna, að því er fram kemur í fréttabréfi Verðbréfa- þings. Nýtt viðskiptakerfi í gagnið Þá kemur fram í fréttabréfi Veró- bréfaþings að ákveðið hafi verið að nýtt viðskiptakerfi verði formlega tekið í gagnið þann 27. september nk. Þingaðilar eru hins vegar þegar farnir að nota kerfið til skráningar á utanþingsviðskiptum. Samkvæmt núgildandi reglum ber að skrá þessi viðskipti fyrir hádegi næsta viðskiptadag á eftir en boðað hefur verið að þessi frestur verði styttur í skrefum þannig að í fram- tíðinni liggi fyrir upplýsingar um utanþingsviðskipti skömmu eftir að þau hafa átt sér stað. Þjóðverjar reyna að uppfylla skilyrði myntbandalags Aðhaldsaðgerðir framundan Bonn. Reuter. ÞÝSKA ríkisstjórnin lagði fjár- lagafrumvarp sitt fyrir árið 1997 fram á þýska þinginu í gær. Frumvarp þetta mun skipta sköp- um um hvort Þýskaland nái að uppfylla þau skilyrði sem sett eru fyrir þátttöku í evrópska mynt- bandalaginu (EMU). í ræðu sinni í þinginu sagði Theo Waigel, fjármálaráðherra Þýskalands, að Þýskaland gæti aðeins uppfyllt þessi skilyrði með aðhaldsaðgerðum í ríkisfjármál- um. Sagði hann ríkisstjórnina vera staðráðna í því að nalda rík- isútgjöldum innan 440 milljarða marka, eða sem samsvarar um 19.000 milljörðum íslenskra króna, en það er rúmum 460 millj- örðum minna en útgjöld þýska ríkisins á yfirstandandi fjárlaga- ári. Sagði Waigel að fjárlagahallinn yrði 56,5 milljarðar marka, eða um 2.500 milljarðar íslenskra króna. Sagði hann að engar aðrar leiðir væru færar en að skera nið- ur opinber útgjöld og létta skatt- byrðar. Aukið atvinnuleysi eykur á fjárlagahalla Hins vegar hefur hægur vöxtur í þýsku efnahagslífi og mikil aukn- ing atvinnuleysis sett strik í reikn- inginn hjá Waigel hvað varðar fjárlög þessa árs. Gætu þessir þættir valdið því að fjárlagahallinn fari í 4% af landsframleiðslu í ár. Skilyrði Maastricht sáttmálans fyrir þátttöku í myntbandalagi Evrópusambandsins (ESB) segja hins vegar til um að fjárlagahalli megi ekki fara yfir 3% af lands- framleiðslu. Þrátt fyrir að sáttmálinn leyfi nokkuð svigrúm hvað þetta varð- ar, segir Waigel að líta verði á 3% sem efri mörk. Fjárlagafrumvarp hans gerir ráð fyrir því að hallinn fari niður í 2,5% af landsfram- leiðslu, en fáir virðast hafa trú á því að þær áætlanir nái fram að ganga. Reglur um yfirfæranlegt tap Gætu hraðað samruna- þróun fyrirtækja TÍMATAKMARKANIR, sem eru á nýtingu eftirstöðva rekstrartaps frá árinu 1991, gætu örvað fyrirtæki í samrunahugleiðingum til að samein- ast fyrir árslok. Með sameiningu gætu þau hagnýtt sér uppsafnað tap til frádráttar skattskyldum tekjum og þannig sparað sér umtalsverðar fjárhæðir. Sum félög gætu einnig forðað tapi sínu „frá skemmdum“ með því að mynda söluhagnað með sölu eigna og nýta tapið í formi af- skrifta. Þetta kemur fram í grein eftir Sigurð Sigurgeirsson endur- skoðanda í Landsbréfi, fréttabréfi Landsbréfa. Reglur skattalaga um yfirfæran- legt tap í atvinnurekstri fela í sér að verði halli á rekstri fyrirtækis á tilteknu rekstrarári sé því heimilt að draga tapið frá hagnaði næstu árin á eftir eða þar til tapið hefur verið jafnað að fullu á móti hagn- aði. Kemur tapið til frádráttar skatt- skyldum tekjum á því tímabili. Tap í þann veginn að fyrnast Hinn 1. janúar 1992 gengu í gildi ný ákvæði um nýtingu rekstrartaps. Þá var sett inn fimm ára takmörkun á nýtingu taps en tap sem til var í árslok 1990 er þó heimilt að nýta allt til rekstrarársins 1996. Það rekstrartap, sem myndaðist árið 1991, fellur því niður ef ekki tekst að nýta það til frádráttar tekjum á árinu 1996. Mörg fyrirtæki eiga því án efa umtalsvert yfirfæranlegt tap frá gamalli tíð, sem er í þann veginn að fyrnast. Verslunarráð Islands hefur skorað á stjórnvöld að breyta reglunni þann- ig að skattalegt tap í atvinnurekstri verði yfirfæranlegt í tíu ár í stað fimm ára nú. Tapi forðað með söluhagnaði Sigurður bendir á að forsenda þess að félög geti nýtt yfirfæranlegt rekstrartap sé sú að þau hafi nægan hagnað. í mörgum tilfellum sé hins vegar ljóst að hagnaðurinn á þessu ári verði ekki nægur til að fulinýta það tap, sem aðeins hafi geymsluþol til ársloka. „Sum félög eru þó í að- stöðu til að forða tapi sínu frá skemmdum, t.d. með því að selja eignir, sem þegar hafa verið fyrndar að mestu og mynda þannig sölu- hagnað. Söluverð eignanna er síðan notað til að íjárfesta í nýjum fyrnan- legum eignum, sem mynda nýjan fyrningastofn. Með þessu nýtist tap- ið, sem annars hefði fallið niður, í formi afskrifta, á afskriftatíma hinna nýju eigna," Tap nýtt með samruna Sigurður segir að í sumum tilvik- um hátti þannig til að hægt sé að hagnýta tap með samruna félaga. Þessi möguleiki hafi þó verið þrengd- ur mjög í skattalögum á síðustu árum til að stemma stigu við mis- notkun. Þannig verði að uppfylla ýmis skilyrði til að þessi möguleiki á yfirfærslu rekstartaps við samruna félaga sé fyrir hendi. Þær tímatakmarkanir, sem eru á nýtingu eftirstöðva rekstartaps gætu stuðlað að því að þau fyrir- tæki, sem fullnægja ofangreindum skilyrðum skattalaga fyrir yfirfærslu skattréttarlegra réttinda, hugleiði samruna við önnur fyrirtæki. Þessar takmarkanir gætu einnig örvað þau fyrirtæki sem eru í samrunahugleið- ingum til að Ijúka samruna fyrir árslok 1996.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.