Morgunblaðið - 11.09.1996, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1996 17
Átti Ju-
an Peron
dóttur?
Buenos Aires. Reuter.
KONA, sem kveðst vera dóttir
Juans heitins Perons, forseta
Argentínu, segist búast við
því, að kista hans verði opnuð
svo unnt sé að sanna eða af-
sanna fullyrðingu hennar með
DNA-rannsókn.
Marta Holgado, sem er rúm-
lega sextug og kveður sitt rétta
nafn vera Lucia Virginia Peron,
segir, að Peron, sem var for-
seti á árunum 1946-’55 og
1973-’74, og móðir sín hafi átt
í leynilegu ástarsambandi
snemma á fjórða áratugnum.
Hefur hún fengið dómsúrskurð
fyrir því, að líkamsleifar Perons
verði teknar upp og rannsakað-
ar en þær eru í grafhýsi í
kirkjugarði í Buenos Aires.
Fæðingarvottorðið
eyðilagt
Marta og sonur hennar,
Horacio, þykja mjög lík Peron
en hún segist ekki hafa komist
að því fyrr en 1953, þegar hún
var 19 ára gömul, að hann
væri faðir sinn. Segir hún einn-
ig, að útsendari Evitu Peron,
hinnar frægu eiginkonu Per-
ons, hafi rænt sér og misþyrmt
1971 og einnig reynt að ræna
Horacio. Hafi útsendarinn
einnig eyðilagt fæðingarvott-
orðið, sem sannaði hvers dóttir
hún væri.
Ekki arfsvon
Holgado neitar því, að það
sé arfsvonin, sem fyrir henni
vaki, en orðrómur er um, að
Peron hafi átt mikið fé á leyni-
legum reikningum í Sviss.
Ýmsir peronistar hafa lýst
yfír vanþóknun á því, sem þeir
kalla enn eina tilraunina til að
vanvirða grafhýsi Perons, en
Carlos Menem forseti þegir.
Holgado hefur útlitið með
sér í þessu máli og í útvarpsvið:
tali á mánudag sagði hún: „í
hvert skipti, sem ég horfí í
spegil, sé ég pabba.“
Reuter
Papaya
slær á kyn-
hvötina
Manila. Reuter.
STARFSMÖNNUM fílippeyska
vinnumálaráðuneytisins erlendis
hefur verið ráðlegt að borða sem
mest af papaya-ávextum, eigi þeir
í erfiðleikum með að hafa stjórn
á kynhvötinni.
Yfirmaður vinnumálaskrifstof-
unnar brá á þetta ráð þegar honum
bárust til eyma fréttir um að
starfsmenn hans hefðu átt í ástar-
sambandi við skjólstæðinga stofn-
unarinnar. Sagði hann papaya
innihalda efnið papase, sem virtist
slá mjög á kynlífslöngun fólks.
Sukarnop-
utri yfir-
heyrð
MEGAWATI Sukarnoputri, ein af
leiðtoguni stjórnarandstæðinga í
Indónesíu, var í gær yfirheyrð í
ellefu klukkustundir á skrifstofu
ríkissaksóknara í Jakarta. Hún
var yfirheyrð sem vitni vegna
máls verkalýðsforingja og leið-
toga vinstriflokks, sem hafa verið
sakaðir um tilraun til að steypa
stjórninni með því að æsa til
óeirða í júlí.
Myndin var tekin þegar Suk-
arnoputri mætti til yfirheyrslunn-
ar, en hún hefur höfðað mál gegn
stjórnvöldum vegna aðildar þeirra
að því að steypa henni sem leið-
toga stærsta stjórnarandstöðu-
flokksins.
Barist gegn
skaðabótum
Bretar vilja breyta Rómarsáttmálan-
um tll að koma í veg fyrir kvótahopp
London. Reuter.
YFIRVÖLD í Bretlandi ætla að
berjast gegn miklum skaðabóta-
kröfum spænskra útgerða en þær
hafa höfðað mál vegna þess, að
þeim var um tíma bannað að veiða
innan bresku fiskveiðilögsögunnar.
Dómstóll í Bretlandi ákvað hins
vegar í gær, að málið yrði ekki tek-
ið fyrir fyrr en um mitt næsta ár.
Lögfræðingar spænsku útgerð-
arfélaganna krefjast þess á grund-
velli úrskurðar Evrópudómstólsins,
sem dæmdi breska bannið ólöglegt,
að þeim verði greiddir meira en
átta milljarðar ísl. kr. í bætur en
Tony Baldry, sjávarútvegsráðherra
Bretlands, sagði í viðtali við BBC,
breska ríkisútvarpið, að hann teldi
enga ástæðu vera til bótagreiðslna.
Baldry sagði, að breska stjórnin
ynni að því að fá í gegn verulegar
breytingar á Rómarsáttmálunum
með það fyrir augum að koma í veg
fyrir „kvótahopp" en með því er átt
við, að erlendar útgerðir skrái skip-
in í Bretlandi og veiði síðan úr
breska kvótanum.
Breskur fiskur fyrir Breta
„Við munum aldrei sætta okkur
við, að veiðarnar innan breskrar
lögsögu verði stundaðar af öðrum
en breskum fiskimönnum. Því fyrr
sem komið verður í veg fyrir kvóta-
hoppið, því betra,“ sagði Baldry.
Breskir sjómenn eru ævareiðir
vegna framferðis spænsku útgerð-
anna en auk þess hafa þeir orðið
að skera niður kvótana vegna fisk-
verndarstefnu Evrópusambandsins.
Jim Portus, talsmaður fiskframleið-
enda í Suðvestur-Bretlandi, segir,
að aðeins vegna ákvörðunar Evr-
ópudómstólsins hafi sjómenn á
þessu svæði tapað fiski fyrir 2,6
milljarða ísl. kr.
Matareitran
rannsökuð
Brussel. Reuter.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr-
ópusambandsins (ESB) hyggst
láta rannsaka lát ítalsks ungl-
ingspilts, en bótúlineitrun varð
honum að aldurtila eftir að
hann snæddi mascarpone-ost,
sem notaður er í vinsælan rétt,
tiramisu.
Dauði piltsins hefur vakið
skelfingu á Ítalíu og hafa heil-
brigðisyfirvöld þar látið kalla
inn um 100.000 dósir af masc-
arpone-osti í kjölfarið. Bótúlí-
neitrun er matareitrun af völd-
um sperðilsýkils og veldur hún
taugalömun. Hún stafar yfir-
leitt af neyslu illa niðursoðins
matar. Að minnsta kosti sjö til-
felli, sem tengjast neyslu á téð-
um osti, hafa komið upp í Na-
pólí, Calabriu-héraði og í Siena.
Framkvæmdastjórnin hefur
sent fulltrúa sinn til Ítalíu til
að rannsaka málið, og þá ekki
síst hvort yfirvöld hafi gripið
til nægilega strangra varúðar-
ráðstafana. Mjög strangar regl-
ur gilda innan ESB um það
hvernig bregðast skuli við til-
fellum sem þessum, og hefur
öllum ríkjum, sem flytja inn
mascarpone-ost frá Italíu, bor-
ist viðvörun.
iviý söiuskrifstofa Samvinnuferða Landsýnar
verður opnuð á ísafirði föstudaginn 13. sept.
er að Hafnarstræti 7, sími 456 5390
Ny
^sknfsV0
Hinir geysivinsælu The Merry
pioughboys leika og syngja írsk þjóðlög «
á hinn eina og sanna hátt, en þeir eru þekktir
fyrir leik sinn á pöbbnum Fox's, sem er íslendingum
á ferð í Dublin að góðu kunnur.
Fulltrúar frá Ferðamálaráði Dublinar og Samvinnuferðum Landsýn
og umboðsmenn SL verða á skemmtikvöldunum.
Komið og smakkið írskan drykk og takið lagið með írskum krafti!
Einn þoklitastí golfkennari ira, Ciaran Monagan
heldur golflcynningu i boði St. Margareta's
golfklúbbsins á eftirtöldum stöðum:
Akranesi: Golfklúbbnum Leynir,
fimmtudag12.09. kl. 17:00
isafirði: Golfklúbbi ísafjarðar,
föstudag13.09. kl. 17.00
Akureyri: Jaöarsvelli,
Iaugardag14.09. kl. 14:00
Hafnarfirði: Golfklúbbnum Keili.
sunnudag15.09. kl 14:00
Ciaran er fæddur árið 1958 og varð atvinnukeppnismaður 18 ára. Hann
keppti víöa meö góðum árangri, en á síðari árum hefur hann alfariö snúiö
sér að kynningu og kennslu á Golfi. Hann er "Club Professional" á
St. Margareta golfvellinum í Dublin, sem íslenskir kylfingar þekkja mjög
vel. Þá er Ciaran golfskýrandi og þulur í útsendingum EURO-SPORT frá
golfmótum viða um heim.
Sainviiwiiferlir-Laiiilsýii
Reykjavik: Austurstræti 12 • S. 5691010 • Slmbrét 552 7796 oq 569 1095 Telex 2241 • Innanlandslerðir S. 5691070
Hótel Sögu við Hagatorg • S. 562 2277 • Símbrél 562 2460 Halnarl|örður Bæjarhrauni 14 • S. 565 1155 • Símbrél 565 5355
Ketlavík: Hafnargótu 35 • S. 421 3400 • Slmbrét 421 3490 Akranes: Breiöargötu 1 • S. 431 3386 • Slmbrét 4311195
Akureyri: Ráðhústorgi 1 • S. 462 7200 • Símbrél 461 1035 Vestmannaeyjar Vestmannabraut 38 • S. 481 1271 • Slmbréf 481 2792
'TRT O ATIASi* ísaljörður: Halnarstræti 7 • S 456 5390 Einnlg umboðsmenn um land allt
m£Sm EunocARO
Samvinnuferðir
Landsýn bjóða
gestum á írskt lcvöld
á Hótel Barbró,
Akranesi,
fimmtudagskvöldið
12. sept. kl. 21:00
á Eyrinni, ísafirði,
föstudagskvöldið
13. sept. kl. 21:00
á Pollinum,
Akureyri,
laugardagskvöldið
14. sept. kl. 21:00
á Cafe Reykjawík,
sunnudagskvöldið
15. sept. kl.21:00
Hann gaf nýlega út kennslumyndband í golfi sem
hefur vakið mikið umtal og athygli í Evrópu.