Morgunblaðið - 11.09.1996, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1996
MORGU NBLAÐIÐ
ERLENT
Reuter
Fellibylur
í Puerto
Rico
FELLIBYLURINN Hortense
gekk í gær yfir Puerto Rico og
honum fylgdi úrhellisrigning
sem olli flóðum í byggðum við
ströndina og hætta var á mikl-
um aurskriðum í fjöllunum.
Vindhraðinn var allt að 130
km á klukkustund. Rafmagns-
laust varð í mörgum byggðum
Puerto Rico og skýrt var frá
flóðum á eyjunni St. Croix. Fólk
var flutt úr strandhverfi í
Ponce, næststærstu borg lands-
ins, þar sem myndin var tekin.
Fregnir hermdu að fimm
manns hefðu beðið bana, þeirra
á meðal tveggja ára drengur
sem fórst í aurskriðu. Átján
mannsvar saknað.
Ólíklegt þótti í gær að felli-
bylurinn færi yfir Dóminíska
lýðveldið en veðurfræðingar
spáðu því að hann kæmi að
strönd Florída í lok vikunnar.
Fellibylurinn Sally í suðurhluta Kína
114 manns farast
og 110 er saknað
Peking. Reuter.
FELLIBYLURINN Sally varð að
minnsta kosti 114 manns að bana
og 110 er saknað eftir að hann
gekk yfir suðurhluta Kína á mánu-
dag.
Fellibylurinn fór yfir héraðið
Guangdong og varð að minnsta
kosti 79 manns að bana í borginni
Zhanjiang. Rúmlega 60 er enn
saknað í borginni, auk þess sem
2.300 manns meiddust. I borginni
Maoming biðu að minnsta kosti
33 manns bana og rúmlega 50 var
saknað.
Hartnær 216.000 hús hrundu í
Zhanjiang og 700 bátar skemmd-
ust í grennd við borgina. 60 bátar
sukku nálægt Maoming. „Við vit-
um ekki enn með vissu hversu
margra er saknað því margir bátar
eru enn ókomnir," sagði embættis-
maður í Zhanjiang.
100 milljarða tjón
„Efnahagslega tjónið í Zhanj-
iang er hið mesta frá árinu 1954,“
sagði annar embættismaður í borg-
inni. Tjónið í borgunum tveimur
er áætlað um 100 milljarðar króna.
Hermenn og lögregiumenn tóku
þátt í björgunarstarfinu í Zhanj-
iang og bylurinn var svo mikill að
hann reif upp nær öll tré borgar-
innar með rótum. Fellibylurinn
varð að djúpri lægð, sem gekk
yfir Víetnam í gær.
Áður höfðu gífurleg flóð valdið
miklu tjóni í suður- og miðhluta
Kína. 2.700 manns fórust og
hundruð þúsunda manna misstu
heimili sín.
Afsögii vegna
njósnamáls
Stokkhólmi. Reuter.
FORMAÐUR leyniþjónustunefndar
sænska þingsins sagði af sér í gær
í kjölfar þess að hann tjáði sig opin-
berlega um mál annars Svíans sem
vísað hefur verið frá Rússlandi fyr-
ir njósnir.
Rolf Dahlberg, þingmaður
hægrimanna og formaður þing-
nefndar sem fjallar um varnar- og
leyniþjónustumál, var staddur í
Hong Kong þegar fréttir bárust um
að Svía hefði verið vísað úr landi
fyrir njósnir. Utanríkisráðuneytið
neitaði að tjá sig um málið þrátt
fyrir að manninum hefði verið vísað
úr landi í febrúar. Það komst hins
vegar ekki í hámæli fyrr en rúss-
neskir fjölmiðlar birtu um það frétt-
ir í síðustu viku.
Þegar fréttamenn hringdu í
Dahlberg á hótelherbergi hans um
miðja nótt vegna málsins, viður-
kenndi hann að hafa haft vitneskju
um mál manns sem hefði unnið sem
„sendiboði" fyrir leyniþjónustuna.
Dahlberg sagði í gær að dómgreind-
in hefði brugðist sér í málinu og
því segði hann af sér.
Sá sem rekinn var úr landi heitir
Peter Nordström og er verkfræð-
ingur. Til er myndband sem sýnir
hann greiða 2.000 dali fyrir svokall-
aða babúsku-dúkku en í henni voru
filmur af leyniskjölum. Nordström
neitar ásökunum um njósnir og seg-
ist hafa gefið vini sínum fé sem
færa átti veikum ættingja. Auk
Nordströms var háttsettur starfs-
maður sendiráðs Svía í Moskvu rek-
inn úr iandi.
Reuter
RYUTARO Hashimotos, forsætisráðherra Japans (t.h.), vísar
Masahide Ota, héraðsstjóra á Okinawa, til sætis áður en viðræð-
ur þeirra hófust í gær.
Deilt um bandarískt herlið á Okinawa
Vonast eftir
málamiðlun
Tókýó. Reuter.
Skoðanakönnun í N-Noregi
Meiri hörku gegn
íslendingum
EKKI tókst að leysa deiluna um
veru bandarískra hermanna á jap-
önsku eyjunni Okinawa á fundi
þeirra Ryutaro Hashimotos, forsæt-
isráðherra Japans, og Masahide
Ota, héraðsstjóra á eyjunni. í alls-
heijaratkvæðagreiðslu meðal eyjar-
skeggja sl. sunnudag var samþykkt
með yfirgnæfandi meirihluta að
fækka verulega í bandaríska herlið-
inu.
í kosningunum á sunnudag var
samþykkt með 91% atkvæða að
fækka í bandaríska herliðinu, sem
er hvergi fjölmennara í Japan en á
Okinawa, en niðurstaðan er þó ekki
bindandi fyrir ríkisstjórnina.
Byggðastyrkir auknir
Á fundi þeirra Ota, sem vill alger-
an brottflutning Bandaríkjamann-
anna, og Hashimotos náðist ekkert
ákveðið samkomulag en þó er talið
líklegt, að sæst verði að lokum á
tillögu forsætisráðherrans. Hún er
sú, að byggðastyrkir við Okinawa
verði auknir og reynt að flytja hluta
bandaríska herliðsins til annarra
staða í Japan.
Kosningum spáð
Ota kvaðst bjartsýnn á, að fund-
in yrði lausn í þessum anda en
Hashimoto lagði áherslu á, að mál-
ið væri enn ekki til lykta leitt. Vildi
hann ekkert um það segja hvort
boðað yrði til kosninga í Japan á
næstunni en margir höfðu spáð
því, að það yrði gert strax og Ok-
inawa-deilan leystist.
Svíþjóð
12 Vítis-
englar
handteknir
SÆNSKA lögreglan handtók 12
liðsmenn mótorhjólasamtakanna
Vítisengla í áhlaupi á félagsheim-
ili þeirra í þremur bæjum í Suður-
Svíþjóð í fyrrinótt. Þeir eru grun-
aðir um að hafa lagt á ráðin um
morð á liðsmönnum annarra mót-
orhjólasamtaka, Bandidos.
Rúmlega 100 lögreglumenn á
bílum og mótorhjólum og tveimur
þyrlum tóku þátt í áhlaupi á fé-
lagsheimilin, sem eru í bæjunum
Hasslarp, Djurslöv og Malmö.
Lögreglan varðist frekari upp-
lýsinga um aðförina, en hún er
liður í löngu stríði sænskra, nor-
skra, finnskra og danskra lög-
regluyfirvalda gegn mótorhjóla-
samtökum.
HELMINGUR íbúa í Norður-Nor-
egi vill, að stjórnvöld sýni íslend-
ingum og öðrum, sem stunda veið-
ar í Smugunni, miklu meiri hörku,
meðal annars með því að færa út
landhelgina og færa til hafnar öll
skip, sem staðin séu að „ólögleg-
um“ veiðum. Er þetta niðurstaða
skoðanakönnunar, sem dagblaðið
Nordlys í Tromso birti í gær.
51% þeirra, sem spurðir voru í
Norðlandi, Troms og Finnmörk,
kvaðst hlynnt því, að Norðmenn
og Rússar færðu út lögsöguna til
að loka þannig Smugunni en 25%
voru því andvíg og 24% höfðu
enga skoðun. Nákvæmlega 50%
töldu, að norska strandgæslan
ætti að taka íslensk skip og önnur
erlend, sem væru að veiðum í
Smugunni, en 32% kváðust telja
það óráðlegt.
í skoðanakönnuninni kemur
einnig fram, að karlar vilja miklu
róttækari aðgerðir en konur. 69%
þeirra vilja færa út lögsöguna í
samráði við Rússa en aðeins 33%
kvennanna. Var stuðningur við
útfærsluna mestur í Finnmörk og
einkum meðal kjósenda róttækra
vinstrimanna og borgaraflokk-
anna en minnstur hjá kjósendum
V erkamannaflokksins.
Stuðningur við valdbeitingu var
einnig minnstur hjá kjósendum
Verkamannaflokksins og hjá rót-
tækum vinstrimönnum líka en
langmestur meðal stuðnings-
manna borgaraflokkanna.
Lfllltloil Manchester
H Tælcifæri sem sjaidan býðst:
á einstölcu verði!
17.685 kr. 222001?,
Athugið að það er takmarkaður ——
sætafjöldi í ferðirnar! • :'•*
Reykjavík: Austurslræti 12 • S. 569 1010
Hótel Sögu viö Hagatorg • S. 562 2277
Hafnarijörður: Bæjarhrauni 14 • S. 565 1155
Keflavík: Hafnargötu 35 • S. 421 3400
Akranes: Breiðargötu 1 • S. 431 3386
Akureyri: Ráðhústorgi 1 • S. 462 7200
Vestmannaeyjar: Vestmannabraut 38 • S. 481 1271
ísaljörður: Hafnarstræti 7 • S.456 5390
Einnig umboðsmenn um land alli